Morgunblaðið - 01.08.2019, Page 68
68 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2019
Fallegar vörur
fyrir heimilið
Sendum
um
land allt
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is
Æðislegir
hægindastólar með
ítölsku leðri á slitflöt
Fáanlegir í svörtu, dökkbrúnu
og dökkgráu leðri.
Einnig fáanlegir í sófum.
Verð frá 179.000 kr.
um.
Vinsælu Jason
hægindastólarnir
komnir aftur
Rafmagn í
skemli og
hauspúða
Guja Sand-
holt söng-
kona og
Heleen
Vegter pí-
anóleikari
flytja
Wesen-
donck-
ljóðin eftir
Richard
Wagner í
Fríkirkjunni í Reykjavík í dag kl.
12. Tónleikarnir eru hluti af tón-
leikaröðinni Á ljúfum nótum í Frí-
kirkjunni.
Wesendonck-ljóðin
í Fríkirkjunni í dag
Flytjendurnir Heleen
Vegter og Guja Sandholt.
Steinar Logi
Helgason leikur
verk eftir Haf-
stein Þórólfsson
á tónleikum í
Hallgrímskirkju
í dag kl. 12.
Tónleikarnir
eru hluti af
Alþjóðlegu org-
elsumri í Hall-
grímskirkju. Hafsteinn Þórólfs-
son, Fjölnir Ólafsson og Örn
Ýmir Arason syngja á tónleik-
unum. Miðar eru seldir við inn-
ganginn.
Flytja söngverk
eftir Hafstein
Fjölnir Ólafsson
Boðið er upp á listamannaspjall
með Libiu Castro og Ólafi Ólafs-
syni í Nýlistasafninu í kvöld kl. 20.
„Tvíeykið mun meðal annars ræða
verk sín á sýningunni … og hvað
svo? sem stendur yfir til 4. ágúst.
Á … og hvað svo? mætast verk 12
listamanna sem hver fyrir sig og í
samtali sín á milli ávarpa hið yfir-
vofandi og rannsaka listina sem
áhrifavald,“ segir í tilkynningu.
Listafólkið sem á verk á sýning-
unni eru Andreas Brunner, Eva Ís-
leifs, Freyja Eilíf, Fritz Hendrik
IV, Huginn Þór Arason, Libia
Castro & Ólafur Ólafsson, Rebecca
Erin Moran, Rúna Þorkelsdóttir,
Steinunn Gunnlaugsdóttir, Þor-
valdur Þorsteinsson og Þórður
Ben Sveinsson. Spjallið í kvöld fer
fram á ensku og aðgangur er
ókeypis.
Listamannaspjall með Libiu og Ólafi
Ljósmynd/Vigfús Birgisson
Svo Frá sýningunni í Nýlistasafninu.
Ísköld augnablik er níunda bók-in í Sandhamn-seríunni eftirmetsöluhöfundinn VivecuSten. Sandhamn-serían fjallar
um lögfræðinginn Nóru Linge og
lögreglumanninn Thomas Andr-
easson sem eru æskuvinir og leysa
hvert sakamálið á fætur öðru ýmist
saman eða hvort í
sínu lagi. Bæk-
urnar hafa selst í
um fjórum millj-
ónum eintaka og
gerðir hafa verið
eftir þeim sjón-
varpsþættirnir
Sandhamn-
morðin.
Bókin, sem er
smásagnasafn, er
góð sem slík og margar sögur og
sögupersónur trúverðugar. Lýs-
ingar á lífi Nóru og Tómasar frá því
að þau hittust á unglingsárum og þar
til þau eru orðin fullorðin með öllum
sínum gleði- og sorgarstundum
draga að mati rýnis á köflum úr
spennunni.
Höfundur bókarinnar segir reynd-
ar í formála að hún hafi í áranna rás
fengið margar spurningar um aðal-
persónur bókarinnar. Hún hafi því
valið þá ómótstæðilegu leið að kynna
persónurnar betur með því að ganga
inn í heim þeirra og velta því fyrir
sér sem var og því sem varð. Sten
segir smásagnasafnið Ísköld augna-
blik eins konar lýsingu á því sem
gerist bak við tjöldin og hún noti
tækifærið til þess að skrifa um aðal-
og aukapersónur, sem allar tengjast
sænska skerjagarðinum.
Fyrsta sagan í bókinni gerist 1981,
næsta 11 árum síðar, aftur er hoppað
11 ár til baka og þaðan allt aftur til
1948. Fjórða sagan gerist 2001 og
eftir það færist sagan fram í róleg-
heitum til ársins 2015.
Fyrsta sagan, „Fermingin“, minn-
ir á unglingasögu enda fjallar hún
um unglingsár Tómasar og Nóru í
Sandhamn þar sem brennuvargur
gengur laus. Önnur saga bókarinnar,
„Peðfórn“, er vel í anda spennu-
sagna, „Grafið í fortíðinni“ er að mati
rýnis vel útfærð frásögn með spenn-
andi endi. Sagan „Sjálfhelda“ tengist
annarri sögu í bókinni og kemur
skemmtilega á óvart. „Jónsmessu-
draumur“ endar á óvæntan hátt en
sagan sjálf er frekar ótrúverðug í því
umhverfi sem hún fer fram í. Sagan
„Barnaskapur“, sem er stutt, fékk
rýni til þess að lesa síðustu línuna
með óbragð í munni. „Gleðilegt ný-
ár“ er saga sem að mati rýnis kemur
eins og skrattinn úr sauðarleggnum
en er skemmtileg tilbreyting.
„Hverjum má treysta?“ er óvenjuleg
að því leyti að hún sýnir sjónarhorn
brotamanns, sem var áhugavert.
„Frelsi án ábyrgðar“ er að mati rýn-
is bara hreint ekki spennandi saga
og „Yndislegt sumarfrí“ með nokkuð
ótrúverðugum endi lokar bókinni.
Kynning Viveca Sten valdi „þá
ómótstæðilegu leið að kynna per-
sónurnar betur með því að ganga
inn í heim þeirra og velta því fyrir
sér sem var og því sem varð“.
Skelfing í
skerjagarði
Smásögur
Ísköld augnablik bbbnn
Eftir Vivecu Sten.
Þýðing Elín Guðmundsdóttir.
Ugla, 2019. Kilja, 368 bls.
GUÐRÚN
ERLINGSDÓTTIR
BÆKUR
Það þurfa ekki allir að veraeins í heiminum og við er-um sennilega öll að leita aðmismunandi reynslu. Sum-
ir eru að elta draum meðan aðrir
reyna að læra eitthvað um sig sjálfa
og heiminn. Platan Hótel Borg er
konsept-plata um allt þetta, en hefur
einnig ofið leit einstaklingsins sam-
an við leit hótelsins að sínu eigin
sjálfi á mismunandi tímum sög-
unnar. Hótel Borg er í senn Hótel
Kalifornía og Hótel Jörð, og sög-
urnar eru jafnt um fastagesti,
starfsfólk og sængurver Hótels
Borgar.
Lög og
textar eru
framúrskar-
andi og tón-
listin flakkar
frá fögrum
ballöðum til
meira stuðs og kemur meðal annars
við í „Borgardjammi“ sem er dans-
vænasta lag plötunnar. Það er alveg
svakalega grípandi og minna raddir,
útsetning og texti á sveitir á borð við
Spilverk þjóðanna og Moses High-
tower. „Búa um rúm“ er með smá
slettu úr Pink Floyd-krydd-
stauknum og „Söngur nætur-
varðarins“ er ljúfur og seiðandi með
strengjasveit. „Röðin“ er í stuði, eins
og allar raðir hafa alltaf verið, og þar
gætir smá Valgeirs Guðjónssonar-
áhrifa í lagasmíð. Textinn við það lag
er eftir Hallgrím H. Helgason, sem
nær algerlega íslenskri biðraða-
stemningu!
Ekki má gleyma að minnast á inn-
komu Möggu Stínu í laginu „Guð býr
á Borginni.“ Magga, Margrét Krist-
ín Blöndal, er ein yndislegasta söng-
kona Íslands og vel til fundið að fá
hana til að syngja lagið, sem passar
einkar vel fyrir rödd hennar. Þarna
er eiginlega komið lagið sem sam-
einar „Braggablús“ Magga Eiríks
og „Guð í garðslöngunni“ Megasar.
Það sem er svo mikilvægt við
plötu eins og Hótel Borg er að þarna
eru sagðar sögur en enginn tekur
sig of hátíðlega. Hljómurinn á plöt-
unni er sakleysislegur og opinn en
samt angurvær og fullur af nostalg-
íu, enda viðeigandi að stemningin
verði ljúfsár þegar túlka á sögu jafn-
merkilegs húss og Hótel Borg er. Í
textunum er leikur og glettni og líka
í spilamennsku. Liðsmenn Melchior
eru ekki nýir í bransanum enda gaf
Melchior út sína fyrstu plötu árið
1978, en hljómsveitin er engu að síð-
ur full af lífi og flottum pælingum
um líf og fólk og hús.
P.s. Þessi dómur er í anda plöt-
unnar: Skrifaður með blýanti í stíla-
bók og sendur inn til blaðsins með
sendibréfi frá Lundúnum (næstum
því, reyndar með tölvupósti), en hin
saklausa og séríslenska stemning
Melchior fékk byr undir báða vængi
með blýantinum. Góðar hlustunar-
stundir um ókomin ár. Melchior hef-
ur, rétt eins og fyrirrennarar þeirra
sem sungu um Hótel Kaliforníu, séð
til þess að þú getur tékkað út þegar
þú vilt en þú getur aldrei farið.
Þú getur tékkað
út þegar þú vilt
Geisladiskur
Melchior – Hótel Borg bbbbm
12 lög, 46,22 mínútur. Útsetningar
Melchior. Upptökur í Stúdíó Sýrlandi
2015 og víðar 2016-2018. Um upptökur
í Stúdíó Sýrlandi sáu Linda Björg Guð-
mundsdóttir og Sveinn Kjartansson,
sem hljóðblandaði ásamt Melchior og
hljóðjafnaði jafnframt. Hönnun umslags
og umbrot: Lilja B. Ránd.
RAGNHEIÐUR
EIRÍKSDÓTTIR
TÓNLIST
Reynsluboltar Hljómsveitin Melchior er „full af lífi og flottum pælingum um líf og fólk og hús,“ segir í rýni um Hótel Borg.