Morgunblaðið - 06.08.2019, Síða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. ÁGÚST 2019
6. ágúst 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 122.56 123.14 122.85
Sterlingspund 148.32 149.04 148.68
Kanadadalur 92.62 93.16 92.89
Dönsk króna 18.204 18.31 18.257
Norsk króna 13.72 13.8 13.76
Sænsk króna 12.679 12.753 12.716
Svissn. franki 124.28 124.98 124.63
Japanskt jen 1.1459 1.1527 1.1493
SDR 168.24 169.24 168.74
Evra 135.92 136.68 136.3
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 164.031
Hrávöruverð
Gull 1436.05 ($/únsa)
Ál 1748.5 ($/tonn) LME
Hráolía 61.16 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Bandaríski
tæknirisinn Google
greindi frá því á
mánudag að frá og
með næsta ári
mundi fyrirtækið
kolefnisjafna send-
ingar á raftækjum
til viðskiptavina.
Jafnramt hyggst
Google nota endurunnið plast, í ein-
hverju magni, í öllum vörum sínum ekki
seinna en 2022.
Reuters greinir frá þessu og segir út-
spil Google til marks um harðnandi
samkeppni á milli tæknifyrirtækja um
að sýna bæði neytendum og stjórnvöld-
um að þau vilji leggja sig fram við að
draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum
frá starfseminni. Google hefur þegar
náð töluverðum árangri á þessu sviði
og minkaði t.d. sótspor raftækjasend-
inga um 40% á síðasta ári með því að
reiða sig meira á sjóflutninga í stað
flutninga með flugi. ai@mbl.is
Google hyggst kolefnis-
jafna vörusendingar
STUTT
FRÉTTASKÝRING
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Innanlandsgengi kínverska renmin-
bísins veiktist á mánudag og rauf
táknrænan múr þegar verð banda-
ríkjadals fór yfir 7 renminbía-mark-
ið. Nam gengislækkun dagsins í
kringum 1,4% og hefur gjaldmiðill
Kína ekki verið veikari gagnvart
dalnum síðan 2008.
Fréttir af veikingu renminbísins
ollu titringi á verðbréfamörkuðum
um allan heim og urðu til þess að
helstu hlutabréfavísitölur lækkuðu
skarplega. Kemur lækkun gjald-
miðilsins fram nokkrum dögum eftir
að Donald Trump Bandaríkjaforseti
rauf vopnahlé sem gert hafði verið í
tollastríði Bandaríkjanna og Kína.
Lýsti forsetinn því yfir á fimmtudag
að hann hygðist leggja 10% viðbót-
artoll á þann kínverska innflutning
sem hingað til hefði verið eirt í toll-
astríðinu, samtals um 300 milljarða
dala virði af ýmiss konar varningi.
Japanska Topix-vísitalan veiktist
um 1,8% á mánudag, MSCI-Asíuvisi-
talan um 2,5%, þýska Daxið um
1,6%, franska CAC 40-vísitalan um
2% og breska FTSE 100 tapaði 2,2%.
Um hádegisbil að staðartíma höfðu
helstu vísitölur á Wall Street lækkað
álíka mikið: Nasdaq lækkaði mest,
eða um 2,6%, en Dow Jones og S&P
500 um 2% og 2,1%.
Boðar ekki gott
Íslenskum lesendum kann að
þykja undarlegt að 1,4% gengis-
lækkun hleypi öllu í háaloft en Seðla-
banki Kína hefur áður lagt mikið á
sig til að koma í veg fyrir að rjúfa 7
renminbía-þröskuldinn gagnvart
Bandaríkjadal. Þykir til marks um
róttæka stefnubreytingu að því hafi
verið leyft að gerast, og jafnframt
benda til að versnandi líkur séu á að
farsæl lausn finnist á viðskiptadeil-
um Bandaríkjanna og Kína.
Það róaði ekki taugar fjárfesta að
Trump brást hinn versti við veikingu
renminbísins. Lét hann gremju sína í
ljós á Twitter þar sem hann sakaði
kínversk stjórnvöld um að veikja
gjaldmiðil sinn af ásettu ráði. Seðla-
banki Kína sendi aftur á móti frá sér
yfirlýsingu þess efnis að veiking
gjaldmiðilsins væri afleiðing vernd-
arstefnu í alþjóðaviðskiptum og
hækkaðra tolla á kínverskan varn-
ing. Kvaðst seðlabankinn vel í stakk
búinn til að halda gengi renminbísins
stöðugu og á eðlilegu bili.
FT greinir frá að Yi Gang, seðla-
bankastjóri Kína, hafi jafnframt sagt
á mánudagskvöld að stjórnvöld þar í
landi hygðust ekki nota gengi ren-
minbísins sem tæki til að takast á við
utanaðkomandi vandamál, s.s. vegna
deilna um milliríkjaviðskipti. Sagði
hann að gengið myndi fá að ráðast af
markaðsöflum og yrði ekki fellt til að
bæta samkeppnishæfni kínverskra
framleiðenda.
Markaðsgreindendur virðast sum-
ir eiga bágt með að trúa seðlabanka-
stjóranum og benda á að í tolla-
stríðinu við Bandaríkin sé Kína hér
um bil orðið uppiskroppa með
bandarískar vörur sem hækka mætti
tolla á og veiking gjaldmiðilsins sé
því einn af fáum valkostum sem kín-
verskum stjórnvöldum standi til
boða.
Tekur marga með sér í fallinu
Þá óttast sérfræðingar að ef gjald-
miðill Kína heldur áfram að lækka
muni það koma af stað hrinu geng-
islækkana í Asíu og víðar. Áhrifanna
gætti strax á mánudag og veiktist
gjaldmiðlavísitala MSCI fyrir ný-
markaðaslönd um allt að 0,9% sem
er mesta lækkun á einum degi í tvö
ár.
Renminbíið tók heimsmarkaðs-
verð á olíu einnig niður með sér í fall-
inu, og lækkaði Brent-hráolía um
1,9%. Japanska jenið hækkaði aftur
á móti um 0,4% gagnvart Banda-
ríkjadal, og má skýra með því að jap-
anskir fjárfestar hafi selt eignir sín-
ar í Asíu og víðar og þannig aukið
innstreymi fjármagns til landsis. Þá
varð óróinn til þess að fjárfestar leit-
uðu skjóls í gulli sem hækkaði um
1,6%.
Hlutabréf lækka vegna
veikara renminbís
AFP
Rautt Konur fylgjast með verði hlutabréfa á markaði í Peking í gær.
Gjalmiðill Kína olli á mánudag skjálfta sem fannst um allan heim.
Gengisþróunin þykir til marks um minni líkur á farsælum endi á tollastríði
Bandaríkjanna og Kína Helstu hlutabréfavísitölur lækkuðu skarplega
Yi Gang Donald Trump
Stjórn risabankans HSBC tilkynnti
á sunnudag að bankastjóranum John
Flint hefði verið sagt upp störfum.
Flint hefur gegnt stöðunni í aðeins
18 mánuði en hann átti að baki lang-
an feril hjá bankanum og gerði ekki
miklar breytingar á starfseminni eft-
ir að hafa tekið við stjórnartaumun-
um. Wall Street Journal segir skort
á róttækum aðgerðum hafa valdið
áhrifafólki innan bankans vonbrigð-
um og því þótt þörf á að gera gang-
skör að því að styrkja bankann í æ
harðari samkeppni. Hlutabréfaverð
HSBC lækkaði um 14% þann tíma
sem Flint var bankastjóri.
Samhliða því að tilkynnt var um
uppsögn Flints greindi fjármála-
stjóri HSBC frá því í viðtali að til
stæði að fækka starsfólki bankans
um 2% en þar vinna hátt í 238 þús.
manns. Á niðurskurðurinn einkum
að beinast að efri lögum skipurits
bankans og lækka launakostnað um
allt að 4%.
Noel Quinn, yfirmaður viðskipta-
bankastarfsemi HSBC, mun taka við
bankastjórahlutverkinu til bráða-
birgða. Stjórn bankans hyggst leita
nýs bankastjóra bæði innan og utan
HSBC, og segir leitina get tekið allt
upp í eitt ár. ai@mbl.is
AFP
Varfærinn John Flint þykir ekki hafa verið mjög framtakssamur í starfi.
Bankastjóri
HSBC rekinn
Nokkur þúsund til viðbótar á förum