Morgunblaðið - 29.08.2019, Síða 1
F I M M T U D A G U R 2 9. Á G Ú S T 2 0 1 9
Stofnað 1913 202. tölublað 107. árgangur
ÞAU BERA
ÖR LÍKAMANS
MEÐ STOLTI
FJÖGUR NÝ
VERK VERÐA
FRUMFLUTT
LJÓÐ JÓHANNS
HÉT UPPHAFLEGA
EKKI SÖKNUÐUR
DANSFLOKKURINN 70 FRUMRITIÐ FUNDIÐ 32MYNDASÝNING 14
Umræður um þriðja orkupakk-
ann stóðu í allan gærdag á Alþingi.
Hófust þær um klukkan hálfellefu
og lauk um hálfáttaleytið. Umræð-
unum verður fram haldið í dag og á
föstudag þegar gengið verður til
atkvæða um þetta umdeilda þing-
mál. Andstæðingar málsins héldu
því fram að enn þyrfti að skýra
marga þætti þess og óvissa ríkti um
afleiðingar þess að samþykkja það.
Stuðningsmenn málsins sögðu aftur
á móti að það væri fullrætt og engin
vafamál lengur uppi sem tefja ættu
fyrir því að það hlyti staðfestingu
Alþingis nú þegar. »6
Morgunblaðið/Eggert
Alþingi Frá þingfundinum í gær.
Langar umræður
um orkupakkann
Fimm stjörnu hreyfingin og Lýð-
ræðisflokkurinn, sem er sósíal-
demókratískur, náðu í gær sam-
komulagi um myndun nýrrar
ríkisstjórnar á Ítalíu. Giuseppe
Conte verður áfram forsætisráð-
herra.
Matteo Salvini, leiðtogi Banda-
lagsins, sem sleit ríkisstjórnarsam-
starfi við Fimm stjörnu hreyf-
inguna 8. ágúst, segir að nýja
stjórnin sé brothætt og ólíkleg til
þess að endast. Hann vildi kjósa í
haust, en flokkur hans mælist sá
stærsti á Ítalíu um þessar mundir.
Flokkarnir sem nú hafa náð sam-
an eru afar ólíkir og hafa verið
miklir andstæðingar í stjórnmálum.
Ný ríkisstjórn
mynduð á Ítalíu
Samherji hefur keypt skip af
írskri útgerð og er að þróa aðferð
til að flytja botnfisk lifandi í land til
vinnslu hér á landi. Yrði hluta
aflans haldið lifandi í tönkum í skip-
inu og honum síðan dælt inn í fisk-
vinnsluhús til frekari vinnslu.
Einnig myndi skipið, sem hefur
fengið nafnið Oddeyrin, vinna botn-
fisk með hefðbundnum hætti um
borð. »6
Hyggjast flytja
fisk lifandi í land
Ríkisstjórnin veitti í gær Lilju Alfreðsdóttur
menntamálaráðherra samþykki til þess að hefja
viðræður við Dani um endurheimt íslenskra
handrita úr Árnastofnun í Kaupmannahöfn. Mik-
ill fjöldi handrita er enn ytra, en ráðherrann seg-
ir áhuga Dana á þessari menningararfleifð fara
dvínandi. Mál sé því að Íslendingar endurheimti
ritin. Í gær skoðaði ráðherrann handrit í Árna-
stofnun í Reykjavík, meðal annars það sem hefur
að geyma helgikvæðið Lilju eftir Eystein Ás-
grímsson munk. Máltækið segir að þá Lilju vildu
allir kveðið hafa. »10
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Menntamálaráðherrann vill handritin heim
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Grunnskólar Reykjavíkur standa
almennt frammi fyrir því að nánast
allir rekstrarliðir fá of knappt fjár-
magn. Þá virðist mismunandi skiln-
ingur vera á milli skólastjórnenda
og skóla- og frístundasviðs annars
vegar og fjárveitingarvalds borg-
arinnar hins vegar um hvað er
nauðsynlegt fjármagn til reksturs á
grunnskólum borgarinnar. Þetta
eru meginniðurstöður skýrslu innri
endurskoðunar um úthlutun fjár-
hagsramma og rekstur grunnskóla
Reykjavíkur, en skýrslan var kynnt
á fundi skóla- og frístundaráðs síð-
astliðinn þriðjudag.
Unnið að breyttu líkani
Örn Þórðarson, borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins, segir niður-
stöður skýrslunnar „mjög sláandi“.
Þær komi honum þó ekki á óvart,
þörf sé á að forgangsraða fjármun-
um borgarinnar til skóla. „Fjárveit-
ingarvald og yfirstjórn borgarinnar
þarf að horfa á þetta verkefni með
öðrum hætti og láta af sinni svelti-
stefnu,“ segir hann.
Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi
Vinstri-grænna, segir núverandi út-
hlutunarlíkan gallað og að stýrihóp-
ur á vegum borgarinnar vinni nú að
úrbótum sem skila eigi réttlátari
dreifingu fjármagns.
Of lítið fé til grunnskóla
Grunnskólar í Reykjavík standa almennt frammi fyrir of litlu rekstrarfé, segir
innri endurskoðun Mismunandi skilningur er uppi um nauðsynlegt fjármagn
Úthlutunarlíkan
» Mestur hluti fjárhagsramma
grunnskólanna er reiknaður í
excel-líkani sem er um 20 ára
gamalt.
» Líkanið er orðið töluvert
„plástrað“ eftir viðbætur. Er
flækjustig því sagt mikið.
MSkólum er of þröngur »4
rúm... 20-40%
ara.... 20%
klæði.. 20-70%
Wis
60%
VER
MEÐ
H ilsu
av
nd
tra
AFSLÁTTUR
Ð ÁÐUR 179.900
6 A
TVEIR LITIR:
GRÁR / VÍNRAUÐUR
20-60% AFSLÁTTUR