Morgunblaðið - 29.08.2019, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2019
Stefán Sveinbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri VR, hefur tekið við
formennsku í stjórn Lífeyrissjóðs
verzlunarmanna af Ólafi Reimari
Gunnarssyni. Varaformaður er
Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður
Samtaka iðnaðarins.
Áður hafði komið fram að
áformað væri að Guðrún Johnsen
hagfræðingur yrði stjórnar-
formaður en það varð ekki nið-
urstaðan.
Stjórn sjóðsins kom saman til
fundar á þriðjudaginn og skipti
með sér verkum. Tóku þá sæti í
henni fjórir nýir fulltrúar VR og
einn nýr fulltrúi tilnefndur af
Kaupmannasamtökum Íslands, en
fulltrúi samtakanna, Benedikt K.
Kristjánsson, féll frá á liðnu sumri.
VR ákvað að skipta út fyrri
stjórnarmönnum vegna óánægju
stjórnar félagsins með ákvörðun
stjórnar LV að hækka vexti á ein-
um flokki neytendalána sem sjóð-
urinn býður upp á. Leiddi þetta til
nokkurrar rekistefnu, m.a. við
Fjármálaeftirlitið, en síðan tókst
samkomulag um breytingar á skip-
an stjórnarinnar.
Stjórn sjóðsins er nú þannig
skipuð: Bjarni Þór Sigurðsson, til-
nefndur af VR, Guðrún Johnsen,
tilnefnd af VR, Helga Ingólfs-
dóttir, tilnefnd af VR, Stefán
Sveinbjörnsson formaður, til-
nefndur af VR, Árni Stefánsson,
tilnefndur af Samtökum atvinnu-
lífsins að fengnu áliti Viðskipta-
ráðs Íslands, Guðný Rósa
Þorvarðardóttir, tilnefnd af Félagi
atvinnurekenda, Guðrún Haf-
steinsdóttir, varaformaður, til-
nefnd af Samtökum iðnaðarins að
fengnu áliti Samtaka atvinnulífsins
og Margrét Sif Hafsteinsdóttir, til-
nefnd af Kaupmannasamtökum Ís-
lands.
Ný stjórn tekin við hjá LV
Morgunblaðið/Eggert
Aðsetur Í Húsi verslunarinnar eru
bæði VR og LV með skrifstofur.
Framkvæmda-
stjóri VR formaður
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Það er fullkomlega eðlilegt að fólki
hafi skoðun á þessum áformum og
komi á framfæri athugasemdum. Til
þess er þetta ferli sem málið er í,“
segir Ágúst Sigurðsson, sveitar-
stjóri í Rangárþingi ytra.
Morgunblaðið greindi frá því í
gær að mikillar óánægju gætti með-
al landeigenda og sumarhúsaeig-
enda í Landsveit með stórfellda
uppbyggingu ferðaþjónustu sem
fyrirhuguð er á jörðinni Leyni. Yfir
fimmtíu sóttu fund vegna málsins í
fyrrakvöld þar sem rætt var hvaða
möguleikar væru í stöðunni. Er
bæði óánægja með umfang upp-
byggingarinnar og gagnrýnt að
ekkert samráð hafi verið haft við
landeigendur.
Um þessar mundir er í kynningu
skipulagslýsing þar sem fram kem-
ur að eigendur Leynis 2 og 3 hafi
fengið heimild sveitarstjórnar til að
nýta jarðirnar undir ferðaþjónustu.
Tjaldsvæði verði eflt og mögulega
stækkað, heilsárstjöld og hjólhýsi
verði til leigu. Þá verði reist gisti-
heimili eða gestahús fyrir allt að
240 gesti auk fjögurra íbúðarhúsa
sem hægt verði að leigja út. Í sum-
ar hafa um 15 hjólhýsi verið leigð
ferðamönnum á svæðinu. Þau eru
markaðssett undir nafninu Iceland
Igloo Village og fá fína umsögn
gesta á Booking.com.
Eigendur jarðarinnar eru að sögn
heimamanna fjárfestar frá Malasíu.
Umræddri jörð, sem er 35 hekt-
arar, virðist hafa verið skipt í
tvennt þar eð útlendingar geta ekki
keypt nema mest 25 hektara. Þann-
ig er Leynir 2 í eigu félagsins Eter-
nal Resort ehf. en Leynir 3 er í eigu
Yong Ying Ooi sem einmitt er einn
eigenda Eternal Resort.
Engin skuldbinding enn
Haraldur Birgir Haraldsson,
skipulags- og byggingafulltrúi í
Rangárþingi ytra, hafnar því í sam-
tali við Morgunblaðið að ekki hafi
verið haft samráð við fólk í sveit-
inni. „Þessi áform voru kynnt nær-
liggjandi landeigendum með bréfi
ásamt því að þau voru kynnt í stað-
arblöðum og á heimasíðu sveitarfé-
lagsins. Eins voru þau kynnt lög-
bundnum umsagnaraðilum, svo sem
Vegagerðinni, Veitum og Minja-
stofnun,“ segir hann. Kynning þess-
arar lýsingar deiliskipulags stendur
til 6. september og er hægt að gera
athugasemdir á þeim tíma.
„Við hefðum auðvitað getað farið
í íbúafund en það þótti ekki nauð-
synlegt. Það er mat sveitarstjórnar
hverju sinni hversu víðtæk kynning
þarf að vera. Þessi kynning nú er
bara fyrsta skref samráðsins. Það
er ekki verið að vaða yfir fólk þarna
enda hefur sveitarfélagið ekki
skuldbundið sig neitt. Ákvörðun
sveitarstjórnar hlýtur að byggjast á
þeim viðbrögðum sem við fáum.
Það hafa enn engar athugasemdir
borist en ég á nú fastlega von á því
að þær komi,“ segir Haraldur Birg-
ir sem telur ótímabært að taka af-
stöðu til hugmynda um nákvæma
útfærslu þessarar ferðaþjónustu.
Það skoðist þegar og ef breyting
verði gerð á deiliskipulagi svæð-
isins.
Ekkert leyni-
makk við ferða-
þjónustu á Leyni
Sveitarstjóri og byggingafulltrúi
segja málið í eðlilegu umsagnarferli
Uppbygging á Leyni
» Fjárfestar frá Malasíu hafa
keypt jarðirnar Leyni 2 og 3 í
Landsveit og ætla að byggja
upp stórtæka ferðaþjónustu.
» Land- og sumarhúsaeigend-
ur eru ósáttir við umfang upp-
byggingar og samráðsleysi.
» Sveitarstjóri og bygginga-
fulltrúi segja málið í farvegi og
engar athugasemdir hafi enn
borist.
Yt
ri-
Ra
ng
á
1
Hella
H o l t a - o
g L a n d s
v e i t
Leynir ■
MiðfellÞjórs
á
Þjórs
á
Leynir í Landsveit
K
o
rt
ag
ru
n
n
u
r:
O
p
en
S
tr
ee
tM
ap
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Þessar niðurstöður eru mjög slá-
andi þó þær komi ekki beinlínis á
óvart. En það er mjög mikilvægt að
það sé innri endurskoðun, sem veitir
jú óháða sýn á málin, sem kemst að
þessari niðurstöðu því þá er ekki
hægt að tengja þetta við flokka og
pólitík,“ segir Örn Þórðarson, borg-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, í
samtali við Morgunblaðið.
Vísar hann í máli sínu til skýrslu
innri endurskoðunar Reykjavíkur-
borgar um úthlutun fjárhagsramma
og rekstur grunnskóla borgarinnar.
Var skýrslan kynnt á fundi skóla- og
frístundaráðs síðastliðinn þriðjudag.
Meginniðurstaða skýrslunnar er
sú að mismunandi skilningur virðist
vera á milli skólastjórnenda og
skóla- og frístundasviðs annars veg-
ar og fjárveitingarvalds borgarinnar
hins vegar um hvað er nauðsynlegt
fjármagn til reksturs á grunnskólum
borgarinnar. „Í raun standa skólarn-
ir almennt frammi fyrir því að nán-
ast allir rekstrarliðir fá of knappt
fjármagn,“ segir í skýrslunni.
Örn segir það vera „pólitíska
ákvörðun að svelta“ skóla- og
frístundasvið. „Sú ákvörðun kemur
frá fjárveitingarvaldinu, sem er
borgarráð og borgarstjórn, en ekki
ráðinu sjálfu,“ segir hann, en við út-
hlutun fjárheimilda fyrir grunnskóla
þarf að huga að mörgum forsendum
og gæta þess að þær endurspegli
þarfir grunnskólanna.
„Við úthlutun vegna reksturs
grunnskóla þarf meðal annars að líta
til almennrar kennslu, stuðnings,
sérkennslu, yfirstjórnar, reksturs
húsnæðis og mötuneytis svo dæmi
séu nefnd. Úthlutunarlíkanið sem
notast er við er sett fram í excel-
vinnuskjali og hefur verið notað í
nær tuttugu ár til að áætla fjár-
magnsþörf skólanna. Líkanið er orð-
ið mjög „plástrað“ og raunar úrelt
því mikið hefur breyst í umhverfi
skólanna á þessu tímabili,“ segir í
skýrslu innri endurskoðunar. „Að-
stæður grunnskólanna eru mismun-
andi að mörgu leyti og það er tæpast
hægt að ákvarða fjárhagsramma í
excel-skjali án þess að taka tillit til
sérstakra aðstæðna.“
Borgin forgangsraði
Spurður hvort minnihlutinn í
Reykjavík hafi á sínum takteinum
einhver úrræði kveður Örn já við.
„Fjárveitingarvald og yfirstjórn
borgarinnar þarf að horfa á þetta
verkefni með öðrum hætti og láta af
sinni sveltistefnu. Það verður gert
með því að forgangsraða fjármunum
með öðrum hætti en gert hefur verið
hingað til. Það er vel hægt að finna
fjármuni,“ segir hann.
Morgunblaðið/Hari
Grunnskólakrakkar Nær allir rekstrarliðir grunnskóla Reykjavíkur eru fjársveltir, að sögn innri endurskoðunar.
Skólum er of þröng-
ur stakkur skorinn
Niðurstöður skýrslunnar eru sláandi, segir borgarfulltrúi
Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi
Vinstri grænna, segir niður-
stöðu skýrslu innri endurskoð-
unar ekki koma sér á óvart,
enda hafi hún setið í skóla- og
frístundaráði frá árinu 2010.
„Þá strax benti ég á að út-
hlutunarlíkanið væri gallað,
meðal annars vegna þess að
það jafnar ekki aðstöðumun
skóla. Við höfum því vitað
þetta í þónokkurn tíma,“ segir
Líf og bætir við að fulltrúar
borgarinnar hafi ekki setið
auðum höndum undanfarið því
verið sé að vinna að nýju út-
hlutunarlíkani fyrir grunn-
skólana.
„Það er nú starfandi stýri-
hópur á vegum borgarinnar
sem í sitja embættismenn og
það er allt kapp lagt á að
reyna að klára þessa vinnu,
vonandi fyrir haustið, svo við
fáum réttlátari dreifingu fjár-
magns,“ segir hún.
Unnið að
bættu líkani
KEMUR EKKI Á ÓVART
NÝTT OG
SPENNANDI
FRÁ HOL
TA
Hefur þú prófað
Holta drumsticks?