Morgunblaðið - 29.08.2019, Síða 26

Morgunblaðið - 29.08.2019, Síða 26
26 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2019 SVIÐSLJÓS Veronika S. Magnúsdóttir veronika@mbl.is Ólöf Ólafsdóttir gerði fyrsta konfekt- kassann sinn 10 ára, þegar frændi hennar og frænka gengu í það heil- aga. Nú er hún konditornemi og hef- ur yfirumsjón með konditoriðn Mos- fellsbakarís ásamt Hafliða Ragnars- syni, bakara- og konditormeistara. Nám í konditor er ekki í boði á Ís- landi svo hún þurfti að leita út fyrir landsteinana til Danmerkur til þess að uppfylla áralangan draum. Ólöf kveður fjölskylduna á Íslandi til eins mánaðar á hálfs árs fresti, til að leggja stund á konditornámið í Kaupmannahöfn, en starfar þess á milli á Íslandi. Náminu lýkur hún sumarið 2021. „Það eru mjög fáir konditorar á Ís- landi – hér inni er það bara ég, sem nemi, og Hafliði. Ég hef einhvern veginn alltaf verið að baka síðan ég var lítil, það er uppáhaldið mitt. Á af- mælinu mínu fékk ég alltaf að velja mér afmælisköku úr lítilli kökubók og síðan fékk ég að baka kökuna sjálf. Það heppnaðist kannski ekki allaf vel en ég reyndi,“ sagði Ólöf í samtali við blaðamann sem sótti hana heim í Mosfellsbakarí. Þar er margt að sjá, notalegt and- rúmsloft og myndarleg aðstaða fyrir bakara og konditora bakarísins; stór- ir brauðofnar, fyrstir, brauðborð og stærðarinnar súkkulaðivél, þar sem um 50 lítrar af dökku súkkulaði hrærast saman. „Hér eru engir tveir vinnudagar eins og alltaf ný verkefni. Ég er mjög heppin að fá að vinna hér undir leið- sögn Hafliða því hann er einn sá flott- asti í bransanum, það býður upp á marga möguleika í framtíðinni,“ sagði hún. Tekur nokkrar vikur að gera súkkulaðiskúlptúr Að undanförnu hefur Ólöf dundað við gerð súkkulaðiskúlptúrs í frítíma sínum og lauk hún við hann nú á dög- unum. Það eru ekki margir á Íslandi, að Ólöfu vitandi, sem leggja stund á súkkuaðiskúlptúrsgerð enda lítil sem engin hefð fyrir kaupum á slíkum munum. Samstarfskona Ólafar, Chi- dapha Kruasaeng, gerði stóran og stæðilegan súkkulaðiskúlptúr sem prýðir afgreiðsluborð Mosfellsbak- arís og greip athygli Ólafar. „Ég hef alltaf horft á hana, hún gerði þennan sjúklega flotta skúlp- túr, og hugsaði að mig langaði að geta gert svona í framtíðinni.“ Þá hófst æfingin. Hún lauk við sinn fyrsta súkku- laðiskúlptúr í bakaríinu nýverið. Það tók hana nokkrar vikur að ljúka við hnattlíkanið, sem er vandlega mótað úr súkkulaði og skreytt með blómum og góðgæti. Því fylgir mikil vinna og ófyrirsjáanleiki. „Það tók mig um það bil 15 klukku- tíma samfleytt, en í heildina tvær til þrjár vikur. Það er mjög mikil vinna sem fer í svona verkefni og síðan get- ur hann brotnað eins og gerðist hjá mér í ferlinu. Þá verður maður bara að sætta sig við nokkra klukkutíma aukalega, sem fara í að laga það,“ sagði Ólöf létt í bragði. Fyrst um sinn vildi hún hafa lönd á skúlptúrnum en hugnaðist síðan bet- ur að hafa blóm – skúlptúrinn verður aldrei eins og maður sér hann fyrir sér, segir Ólöf. Að smíða súkkulaðiskúlptúr er list, rétt eins og að skrifa áletranir á tert- ur og skreyta þær með rósum. Það krefst mikillar æfingar, margra end- urtekninga og kostar mikið skreyt- ingarkrem, en það er þess virði. Vel skreytt terta sem er bragðgóð í þokkabót svíkur engan. Viðbrögðin skemmtilegust Ólöf keppti með sumarköku Mos- fellsbakarís í keppninni Terta ársins árið 2018. Hún inniheldur mand- arínur, appelsínusúkkulaði, kókos og möndlur svo eitthvað sé nefnt. Kakan sem keppti var á boðstólum en hún sigraði ekki í keppninni. „Kakan fékk góðar viðtökur og var ofarlega á lista hjá dómnefndinni,“ sagði Ólöf. Að kökunni smakkaðri er það hér með staðfest. „Þegar ég bý eitthvað til sem mér finnst gott þá er svo gaman að deila því með öðrum og sjá viðbrögðin. Fólk ljómar alltaf við að fá köku, þeg- ar það heldur upp á eitthvað þá kaup- ir það köku,“ sagði Ólöf. Bakstur hefur átt hug og hjarta Ólafar frá barnsárum en samt var hún smeyk við að verða konditor, við- horf samfélagsins til verklegrar menntunar og dýrkun bóklegrar menntunar vó þar þungt. Afneitaði draumastarfinu „Ég var alltaf í afneitun fyrir því að verða konditor. Mig langaði alltaf að verða lögfræðingur, sálfræðingur eða nema eitthvað bóklegt, því það er svo samþykkt. Maður heyrir það frá unga aldri að maður þurfi að fara í menntaskóla og feta bóklegu menntabrautina, læra að verða lækn- ir eða eitthvað því um líkt. En síðan einhvern veginn prufaði ég þetta og þetta er það besta sem hefur komið fyrir mig, þetta er ótrúlega gaman,“ sagði Ólöf. Ólöf hefur numið konditor frá því í ágúst árið 2017 og klárar námið sum- arið 2021 eins og áður sagði. En hvað kemur næst? „Framtíðardraumurinn minn er að opna lítið kaffihús á Ítalíu eða veit- ingastað, fara aðeins út fyrir land- steinana og kynnast nýrri menningu. Síðan get ég komið aftur til Íslands þegar ég er orðin eldri og opnað stað á Íslandi, reynslunni ríkari,“ sagði Ólöf að endingu. Mótar súkkulaði í frítímanum  Ólöf, konditornemi hjá Mosfellsbakaríi, stefnir á að opna sitt eigið bakarí erlendis Stundar nám í Kaupmannahöfn þar sem konditornám er ekki í boði hér  Gerði sinn fyrsta konfektkassa 10 ára Girnileg Sumarkaka Mosfellsbak- arís árið 2019 er ljúffeng á bragðið. Ólöf keppti með hana í Köku ársins í fyrra – hún bar ekki sigur úr býtum en var í miklum metum hjá dómur- um keppninnar. Kakan inniheldur m.a. mandarínur, appelsínusúkku- laði, kókos og möndlur. Vandvirkni Það tók Ólöfu 2 til 3 vikur að smíða sinn fyrsta súkkulaðiskúlptúr. Hún nýtti frítíma sinn í verkið sem snýst fyrst og fremst um æfingu en hún lærði handtökin í konditornáminu. Ljósmyndir/Ruth Ásgeirsdóttir Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is Ekki bara jeppar SANGSIN gæðavara frá Kóreu BREMSU VÖRUR í flestar gerðir bíla

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.