Morgunblaðið - 29.08.2019, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2019
VIÐTAL
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Við erum mannræktarfélags-
skapur sem vinnur að því að gera
okkur að betri einstaklingum,“
segir Guðmundur Eiríksson stór-
sír, yfirmaður Oddfellow-
reglunnar á Íslandi. Félagsmenn á
Íslandi, eins og annars staðar í
heiminum, minnast þess í ár að
200 ár eru liðin frá því reglan var
stofnuð í þeirri mynd sem hún
starfar eftir í dag. Meðal annars
verður almenningi boðið í heim-
sókn í regluheimilin um allt land
næstkomandi sunnudag, meðal
annars Oddfellow-húsið við Von-
arstræti í Reykjavík.
Oddfellow-reglan var stofnuð í
Bandaríkjunum á árinu 1819 en
grundvallaðist á eldri reglum sem
starfræktar höfðu verið í Bret-
landi og víðar um aldir. „Mikil
neyð var þá í Bandaríkjunum, sár
fátækt. Thomas Wildey, innflytj-
anda frá Englandi, datt í hug að
reglan sem hann hafði kynnst í
heimalandi sínu gæti verið farveg-
ur til að veita fátækum og þeim
sem áttu um sárt að binda af ýms-
um ástæðum aðstoð. Þannig varð
Oddfellow-reglan til í þeirri mynd
sem við þekkjum hana og hún
kom aftur til Evrópu í því formi,“
segir Guðmundur.
Fyrsta stúkan var stofnuð á Ís-
landi árið 1897. Fyrsta verkefnið
var bygging Holdsveikraspítalans
í Laugarnesi sem danskir Odd-
fellowar söfnuðu fyrir og gáfu Ís-
lendingum. Danirnir, Guðmundur
Björnsson landlæknir sem var
meðal stofnenda fyrstu stúkunnar,
og fleiri lögðu áherslu á fag-
mennsku við rekstur spítalans og
segir Guðmundur að rekstur hans
hafi þess vegna orðið til að ýta
undir framfarir í hjúkrun og lækn-
ingum hér á landi.
Leynd yfir fundum
Mannræktarstarfið fer fram á
fundum í Oddfellow-stúkum og
öðrum samskiptum reglusystkina,
að sögn Guðmundar. Það felst
meðal annars í því að félagar efli
gleðina í lífi sínu, læri að þekkja
styrkleika sína og rækta þá sem
best. Ekki er sagt frá því hvað
fram fer á fundum enda er Odd-
fellow leyniregla í þeim skilningi.
„Þetta er eins og á heimilum. Við
segjum ekki frá því hvað fram fer
á heimlinu en förum eftir siða-
reglum og venjum sem byggjast á
fornum gildum.“
Guðmundur leggur þó áherslu á
að allir geti sótt um inngöngu í
stúkur, hafi þeir meðmælendur, og
öllum sem vilji vita megi vera ljóst
í hverju starfið felst í megin-
atriðum.
148 milljónir í styrki
Oddfellow-reglan leggur sitt til
samfélagsins með því að byggja
upp stúkubræður og -systur. Hún
leggur einnig sitt af mörkum með
margháttuðu góðgerðarstarfi.
Sagt er frá nokkrum af helstu
verkefnum þeirra í hliðargrein.
Auk sameiginlegra verkefna
styðja stúkurnar úti um landið
verkefni í sínum heimabyggðum.
Guðmundur segir að reglan hafi
í mörg ár veitt eitthvað á aðra
milljón króna í styrki á viku að
meðaltali. Bætt hafi verið í á af-
mælisárinu og styrkir undanfarna
tólf mánuði nemi 148 milljónum
króna.
Styrkar- og líknarsjóður Odd-
fellowa á góðan höfuðstól sem er
grundvöllur öflugs góðgerðar-
starfs. Hann varð til með því að
61 reglubróðir keypti jörðina Urr-
iðavatn um miðja síðustu öld. Til-
gangurinn var að eiga land til að
byggja sumarbústaði fyrir félag-
ana. Þeir ákváðu síðar að gefa
landið til styrktar- og líknarsjóðs-
ins. Sjóðurinn hefur haft veru-
legar tekjur af þessari eign sinni,
meðal annars með sölu á bygging-
arrétti í Urriðaholti. Stúkur afla
sér einnig fjár með sölu á hlutum
sem félagsmenn gera og vinna að
ýmiskonar fjáröflun eins og sölu
happdrættismiða og minning-
arkorta. Þá rennur hluti fé-
lagsgjalda í styrktarsjóðinn.
Þurfa ungt fólk
Spurður hvort það sé ekki tíma-
skekkja að reka leynireglu í nú-
tímasamfélagi, þar sem kjól-
klæddir karlmenn og
svartklæddar konur sjást hverfa
inn í Oddfellow-húsin til starfa
sem ekki má segja frá, segir Guð-
mundur svo alls ekki vera. „Það
Sama þörf fyrir starfið
Oddfellow-reglan á Íslandi minnist 200 ára afmælis alþjóðareglunnar Unnið að eflingu stúku-
bræðra og -systra Oddfellow styður mikilvæg verkefni Opið hús í regluheimilum nk. sunnudag
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Í Sólarsal Guðmundur Eiríksson, yfirmaður Oddfellow-reglunnar á Íslandi, í fundarsalnum í Oddfellow-húsinu við
Vonarstræti. Sá helgidómur er eingöngu fyrir reglubræður og -systur en nú gefst almenningi kostur á að líta inn.
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma
Stórsír
» Stórsír er yfirmaður Odd-
fellow-reglunnar á Íslandi.
» Guðmundur Eiríksson, bygg-
ingatæknifræðingur og for-
stöðumaður tæknideildar
Faxaflóahafna, hefur gegnt því
embætti í tvö ár af fjögurra ára
kjörtímabili.
» Starfið felst ekki síst í því að
heimsækja reglulega allar
regludeildir, sinna eftirliti og
veita aðstoð eftir þörfum.
Oddfellowreglan 200 ára