Morgunblaðið - 29.08.2019, Blaðsíða 36
36 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2019
29. ágúst 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 124.58 125.18 124.88
Sterlingspund 152.74 153.48 153.11
Kanadadalur 94.13 94.69 94.41
Dönsk króna 18.545 18.653 18.599
Norsk króna 13.846 13.928 13.887
Sænsk króna 12.923 12.999 12.961
Svissn. franki 126.96 127.66 127.31
Japanskt jen 1.1768 1.1836 1.1802
SDR 170.82 171.84 171.33
Evra 138.31 139.09 138.7
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 167.8561
Hrávöruverð
Gull 1531.85 ($/únsa)
Ál 1745.0 ($/tonn) LME
Hráolía 58.8 ($/fatið) Brent
● Hagnaður Festar
á öðrum ársfjórð-
ungi nam 550 millj-
ónum króna í sam-
anburði við 672
milljónir króna fyrir
sama tímabil í fyrra
og lækkar því um
18,2%. Hagnaður
fyrir vexti, skatta
og afskriftir (EB-
TIDA) nam 1,9 millj-
örðum króna á öðrum ársfjórðungi í
samanburði við 1,1 milljarð króna á
sama tíma í fyrra. Rekstrartekjur Festar
námu 21,4 milljörðum króna í saman-
burði við 10,9 milljarða króna á sama
tíma í fyrra. Fjölgun félaga í samstæð-
unni skýrir að mestu hækkanir á tekj-
unum. Eignir Festar námu 81,4 millj-
örðum króna í lok júní. Skuldirnar námu
54,8 milljörðum króna. Eigið fé nam
26,6 milljörðum króna og eiginfjárhlut-
fallið því 32,7%. Sé litið til fyrri árshelm-
ings þessa árs nam hagnaðurinn 601,1
milljón króna miðað við 748,1 milljón
króna fyrir sama tímabil í fyrra. Tekj-
urnar á fyrstu sex mánuðum þessa árs
námu 39,6 milljörðum króna m.v. 18,9 á
sama tíma í fyrra. Tekjur N1 á því tíma-
bili námu 17.505 milljónum króna, tekjur
Krónunnar 17.528 milljónum króna og
tekjur Elko 4.819 milljónum króna.
Hagnaður Festar 550
mkr. á 2. ársfjórðungi
Uppgjör Krónan er
hluti af Festi.
STUTT
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri
segir í myndbandi sem birt var á vef
Seðlabankans í gærmorgun að von
sé á mjúkri lendingu í íslensku efna-
hagslífi eftir sjö til átta ára hagvöxt.
Seðlabankinn lækkaði í gær vexti
um 0,25 prósentur, og fylgdi þannig
því vaxtalækkunarferli sem hafið er.
Meginvextir bankans, vextir á sjö
daga bundnum innlánum, verða því
3,5%.
Samtök iðnaðarins fagna vaxta-
lækkuninni á heimasíðu sinni, en
þau telja að þar sem verðbólga og
verðbólguvæntingar hafi haldist við
verðbólgumarkmið um nokkurn
tíma skapi það svigrúm fyrir Seðla-
bankann til að lækka vexti til þess
að hjálpa fyrirtækjum og heimilum
að takast á við niðursveifluna, eins
og það er orðað á vefsíðu samtak-
anna.
0,2% samdráttur á árinu
Í fyrrnefndu myndbandi segir
Seðlabankastjóri einnig að vaxta-
lækkunin komi til af því að hag-
kerfið sé að hægja á sér. „Við mun-
um sjá væntanlega vægan samdrátt
á þessu ári í framleiðslu, sem stafar
af fækkun ferðamanna,“ segir Ás-
geir, en í Peningamálum, ársfjórð-
ungsriti bankans, sem kom út í gær,
er rætt um 0,2% samdrátt á árinu.
Ásgeir segir að á sama tíma séu
einnig jákvæðar fréttir á ferðinni.
„Við sjáum áfram tiltölulega sterk
utanríkisviðskipti og allt bendir til
að við sjáum hagkerfið taka við sér
á næsta ári, að einhverju leyti.“
Hann sagði að spár þær sem birt-
ust í gær væru þrátt fyrir allt til-
tölulega jákvæðar.
„Framhaldið mun að einhverju
leyti ráðast af því hvernig verðbólga
þróast, hvort hún muni halda áfram
að ganga niður og hvernig hagkerf-
ið tekur við sér á næsta ári.“
Um hagvaxtarhorfur í landinu
segir í yfirlýsingu peningastefnu-
nefndar, að þær hafi versnað þar
sem útlit er fyrir að það taki ferða-
þjónustuna lengri tíma að ná sér á
strik eftir áföll ársins. „Verðbólga
var 3,4% á öðrum fjórðungi ársins
en minnkaði í 3,1% í júlí. Undir-
liggjandi verðbólga hefur þróast
með áþekkum hætti. Horfur eru á
að verðbólga hjaðni hraðar en spáð
var í maí og að hún verði komin í
[2,5% verðbólgu] markmið á fyrri
hluta næsta árs,“ segir í yfirlýsing-
unni.
Krónan hækkað um 2%
Þá segir þar einnig að gengi
krónunnar hafi hækkað um liðlega
2% milli funda [nefndarinnar] og
gjaldeyrismarkaður hafi verið í
ágætu jafnvægi. Verðbólguvænting-
ar hafi minnkað frá síðasta fund og
taumhald peningastefnunnar því
aukist lítillega. „Peningastefnan
mun á næstunni ráðast af samspili
þróunar efnahagsumsvifa annars
vegar og verðbólgu og verðbólgu-
væntinga hinsvegar.“
Von á mjúkri lendingu eftir
áralangt hagvaxtarskeið
Morgunblaðið/Ómar
Vextir Markaðsaðilar vænta 0,25 prósentna vaxtalækkunar til viðbótar fyrir lok 2019, samkvæmt könnun SÍ.
Peningamál
» Spáð er að hagvöxtur aukist
í 2,7% árið 2021
» Störfum fækkaði á öðrum
fjórðungi ársins og atvinnu-
leysi jókst nokkuð. Það var að
meðaltali 3,8% á fjórðungnum
og hefur ekki verið meira frá
árinu 2015.
» Gert er ráð fyrir að verð-
bólga verði komin í 2,9% á síð-
asta fjórðungi ársins.
Stýrivextir lækkaðir um 0,25 % Fækkun ferðamanna ástæða samdráttar
Mál fyrrverandi forstöðumanns
hlutabréfa hjá Stefni, sem veitti ráð-
gjöf um sölu á rútufyrirtækinu Hóp-
bílum til sjóðs í eigu Landsbréfa og
fjallað var um í ViðskiptaMogganum
í gær, hefur verið á málaskrá emb-
ættis héraðssaksóknara, samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins. Að sögn
Ólafs Þórs Haukssonar héraðssak-
sóknara getur embættið ekki að svo
stöddu tjáð sig um málið, hvar það sé
statt og hvort það sé til rannsóknar.
Að sögn Sigríðar Bjarkar Guðjóns-
dóttur, lögreglustjóra lögreglunnar
á höfuðborgarsvæðinu, er málið ekki
til rannsóknar þar.
Í tilkynningu frá Stefni sem barst
Morgunblaðinu í gær og fram-
kvæmdastjóri sjóðsins, Jökull Heið-
dal Úlfsson, ritar undir, er fullyrð-
ingum um þöggun hagsmuna-
árekstra í starfsemi Stefnis vísað á
bug og þær sagðar úr lausu lofti
gripnar. Í tilkynningu Stefnis er full-
yrðingum um hagsmunaárekstra þó
ekki mótmælt. „Stefnir er fjármála-
fyrirtæki og starfar með leyfi Fjár-
málaeftirlitsins. Fjölmargar innri og
ytri reglur gilda í starfsemi félagsins
og leggur Stefnir mikla áherslu á
reglufylgni. Vakni grunur um brot í
starfsemi félagsins er þeim vísað til
innri eftirlitsaðila og eftir atvikum til
viðeigandi yfirvalda. Komi í ljós að
hagsmunaárekstrar hafi skaðað
hagsmuni viðskiptavina félagsins
ber að tilkynna þeim um slíkt enda
er hlutverk Stefnis að gæta hags-
muna viðskiptavina sinna. Stefnir
býr ekki yfir upplýsingum sem
benda til þess að hagsmunir við-
skiptavina hafi skaðast í starfsemi
félagsins,“ segir í tilkynningu.
Morgunblaðið/Eggert
Hagsmunaárekstrar Sjóðurinn
Stefnir er í eigu Arion banka.
Málið verið á borði
héraðssaksóknara
Stefnir vísar
fullyrðingum um
þöggun á bug