Morgunblaðið - 29.08.2019, Síða 62
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2019
Góð
heyrn
glæðir samskipti
ReSound LiNX Quattro
eru framúrskarandi heyrnartæki
Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is
Erum flutt í
Hlíðasmára 19
Fagleg þjónusta hjá
löggiltum heyrnarfræðingi
Með þeim færðu notið minnstu smáatriða hljóðs sem berst þér til eyrna.
Í þeim er nýr örgjörvi með 100% meiri hraða, tvöfalt stærra minni og eru
sérlega sparneytin.
Tækin eru heyrnartól fyrir þráðlaust streymi úr síma og öðrum tækjum.
Hægt að stjórna allri virkni með appi eða með takka á tækjum. Eru með
rafhlöður, sem hlaðast þráðlaust á einfaldan hátt, eða með einnota rafhlöður.
Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka
fór fram s.l. laugardag í góðu veðri í
miðborg Reykjavíkur. Alls tóku
15.000 hlauparar þátt í hlaupinu og
það var mikil stemning. K100 var
fengið til leiks til þess að sjá um að
hita hlauparana upp með góðri tón-
list og mætti gleðipinninn Siggi
Gunnars fyrir hönd stöðvarinnar
með DJ græjurnar og spilaði góða
tónlist fyrir hlauparana sem dilluðu
sér í takt og hituðu upp fyrir átökin.
Ekki nóg með það að K100 hafi
séð um tónlistina heldur mættu
vaskir starfsmenn stöðvarinnar
einnig til leiks og sendu beint út frá
hlaupinu og færðu því öllum lands-
mönnum stemninguna hvar sem
þeir voru staddir. Fjölmargir komu
í viðtal, m.a. Dagur B. Eggertsson,
borgarstjóri, sem ræsti 10 km
hlaupið og rapparinn Kristinn Óli
eða Króli. Króli kom í spjall beint
eftir 10 km hlaupið og kvartaði þá
sáran undan verk í geirvörtum.
„Það sem er erfiðast núna er að mér
er svo illt í geirvörtunum, ég hef
aldrei fundið svona, ég er að deyja
sko,“ sagði Króli, sem augljóslega
gleymdi að setja á sig fyrirbyggj-
andi plástra. „Ég er mjög sáttur við
tímann minn, ég er ekki búinn að
hlaupa neitt. Ég fór síðast 10 km
fyrir fjórum árum,“ sagði Króli sem
fór 10 km á 49 mínútum sem var
markmiðið hans.
K100 tók einnig þátt í að hækka í
gleðinni á hvatastöð Íslandsbanka á
Granda þar sem hlauparnir voru
hvattir áfram á leiðinni. DJ Kiddi
Bigfoot sá um tónlistina og starfs-
menn deildu drykkjum og hressingu
til hlaupara.
Starfsmenn K100 eru strax farnir
að hlakka til að taka þátt í maraþon-
inu á næsta ári, sumir strengdu þess
jafnvel heit að hlaupa að ári. Svo er
spurning hvort þau heit verða efnd.
Króli Rapparinn vinsæli kom í
spjall eftir 10 km hlaup. Hér eru
hann og Siggi Gunnars að fylgj-
ast með hlaupinu.
Hækkað í gleðinni í miðborg Reykjavíkur
Aðalsmerki K100 er að hækka í gleðinni og það
gerðu starfsmenn stöðvarinnar svo sannarlega í
miðborg Reykjavíkur s.l. laugardag.
K100-teymið Kristín Sif, Stefán Valmundar, Siggi Gunnars, Þór Bæring og Erna Hrönn.
Hvatning Kristín Tinna hvatti hlaup-
ara á hvatastöð Íslandsbanka fyrir
hönd K100. Hér er hún ásamt Silju
Jóhannesdóttur frá Morgunblaðinu.
DJ Það var hinn eini sanni Kiddi
Bigfoot sem sá um tónlistina á
hvatastöð Íslandsbanka fyrir hönd
K100 og stóð sig með prýði.
Borgarstjórinn
Dagur B. Eggerts-
son kom í spjall
Af því tilefni mun Birgitta koma í
heimsókn á K100 og verður hún í
spjalli hjá Sigga Gunnars kl. 16:30 í
dag. Nýja lagið er gert af höf-
undateyminu September sem sagði í
samtali við mbl.is í gær að Birgitta
hefði verið „mega til“ í samstarf. Það
verður fróðlegt að heyra hvað sé að
frétta af Birgittu þessa dagana,
hvernig henni líst á eurovisionmynd-
ina sem á að taka upp á Húsavík og
auðvitað heyra allt um nýja lagið.
Þetta og meira á K100 kl. 16:30 í
dag.
Morgunblaðið/Eggert
Drottningin Birgitta
Haukdal verður í viðtali
Poppdrottningin Birgitta Haukdal var að senda frá
sér nýtt lag sem er ansi frábrugðið því sem hefur
heyrst frá henni áður.
Poppdrottning
Birgitta á K100
kl.16:30 í dag.