Morgunblaðið - 29.08.2019, Qupperneq 77
Sérhæfum okkur í sölu og leigu á atvinnuhúsnæði
Pantaðu verðmat eða skoðun – 534 1020 // sala@jofur.is
TIL LEIGU
Bolholt 4 – 105 Reykjavík
Stærð: 505 m2 / 148 m2 / 178 m2
Gerð: Verslunar-, lager- og skrifstofuhúsnæði
Jarðhæð: Vel staðsett verslunarhúsnæði sem er 235 m² ásamt 270 m²
lagerrými, samtals um 505 m². Húsnæðið skiptist í 235 m² verslunarhúsnæði
á jarðhæð og er að mestu opið rými með góðum sýningargluggum og góðri
lofthæð. Kaffi- og skrifstofuaðstaða ásamt opnu rými er í bakhluta húsnæðisins
sem er um 90 m². Úr bakrými er innangengt í 180 m² vörugeymslu með
innkeyrsludyrum. Möguleiki er á að leigja verslunar- og bakrýmið sér.
Næg bílastæði. Húsnæðið er laust strax.
-----------------------------------------------------------------------------------------------------
2. hæð: Um 148 m² skrifstofuhúsnæði sem skiptist upp í hol, stórt opið
vinnurými, eina lokaða skrifstofu, kaffistofu, eina geymslu og snyrtingu.
Á gólfum er parket. Skrifstofan getur verið laus fljótlega.
-----------------------------------------------------------------------------------------------------
5. hæð: Um 178 m² gott og bjart skrifstofuhúsnæði sem skiptist upp í opið
rými/ hol, 3 lokaðar skrifstofur þ.a. ein stór, eitt fundarherbergi og rúmgóða
kaffistofu. Á gólfum er parket. Glerveggir eru til staðar sem veita rýminu
skemmtilegt og bjart yfirbragð. Snyrtingar eru í sameign á hæðinni. Lyfta
er í húsinu. Glæsilegt útsýni í átt til Esju og sjávar. VSK leggst ekki við
leigufjárhæðina. Húsnæðið er laust strax.
Nánari upplýsingar veitir Helgi Már Karlsson löggiltur fasteignasali, s. 897 7086, hmk@jofur.is
TIL LEIGU
Sólvallagata 14 – 101 Reykjavík
Stærð: 538,8 m2
Gerð: Íbúðarhúsnæði
Til leigu virðulegt 538,8 m2 hús á rólegum stað í vesturbæ Reykjavíkur.
Húsið var byggt árið 1928, en er nýlega endurnýjað og viðgert að innan
sem utan. Öll gerð þess er smekkleg og mjög glæsileg.
Húsið er notað sem íbúðarhús í dag, en til greina kemur að breyta
um notkun þess. Húsið getur hentað undir margskonar starfsemi fyrir
fyrirtæki, félagasamtök, sendiráð eða einstaklinga.
Húsið getur losnað fljótlega eða skv. samkomulagi.
Húsið var byggt árið 1928, er þrjár hæðir auk riss.
Eigninni fylgir um 35 m2 bílskúr.
Kjallari: um 159 m2, þrjú herbergi/stofur, þvottaherbergi, víngeymsla
með rakastýringu og ræstikompa.
1. hæð: um 133 m2, forstofa, fjögur herbergi/stofur, stórt eldhús með
borðstofu og snyrting.
2. hæð: um 134 m2, fimm herbergi/stofur, stórt baðherbergi með hornbaðkari.
Rishæð: um 79 m2, tvö stór herbergi/stofur og snyrting með sturtu.
Umhverfis húsið er fallegur garður, næg bílastæði eru á lóðinni og á baklóð eru trépallar.
VSK bætist ekki við leiguverð.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Kristinsson löggiltur fasteignasali, s. 861 0511, magnus@jofur.is
534 1020
Ármúla 7, Reykjavík - www.jofur.is
Bergsveinn
S: 863 5868
Sigurður J.
S: 534 1026
Helgi Már
S: 897 7086
Magnús
S: 861 0511
Ólafur
S: 824 6703