Fréttablaðið - 21.09.2019, Side 28
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550
5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Kristín Þorsteinsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653,
Íslendingar koma hérna út með tárin í augunum og sérstaklega þau sem héldu að þau væru búin
að sjá allt, segir Agnes. „Sýndar-
flugið sjálft er á tveimur hæðum,
þú sest í sæti sem fer inn í myndina
og svo hreyfast sætin í takt við
myndina og þér líður eins og þú
sért fuglinn fljúgandi að fljúga yfir
íslenskt landslag,“ útskýrir hún.
Metnaðarfullt myndefnið, sem
umlykur gesti á kúlulaga skjá, er
ákaflega skýrt og fangar fegurð
Íslands á þann hátt sem lætur
engan ósnortinn. Þá hafa viðbrögð
erlendra gesta ekki verið síðri.
„Þeir aðilar sem hafa unnið að
verkefninu hér á landi eru agndofa
yfir því hvað Íslendingar hafa
upp á að bjóða.“ Þrautseigjan og
jákvæðnin sem einkennir þessa
fámennu þjóð veki mikla undrun
og aðdáun. „Þeim finnst mjög
áhugavert hvernig veðráttan hefur
mótað okkur á þessari litlu eyju
í Atlantshafinu og við leggjum
áherslu á að beina athyglinni að
„þetta reddast“ hugarfarinu,“ segir
Agnes brosandi.
Fjölþjóðlegt fyrirtæki
Það er öllu til tjaldað hjá þessu
nýstárlega afþreyingarfyrirtæki.
Starfsemi hófst 29. ágúst síðastlið-
inn, eftir töluverðan undirbúning.
Fyrirmyndin að upplifuninni er
FlyOver Canada sem sett var á
laggirnar árið 2013 og færði svo út
kvíarnar til Bandaríkjanna og nú
síðast hingað til lands.
„Stærsti einstaki eigandinn er
Viad Corp sem er á hlutabréfa-
skrá í Bandaríkjunum, en þau eiga
70 afþreyingarfyrirtæki um alla
Norður-Ameríku, og einbeita sér
að því að fjárfesta í stöðum sem
eru einstakir í þeirra huga,“ segir
Agnes.
Starfsfólk FlyOver Iceland, sem
telur nú tæplega 60 manns, býr að
fjölbreyttri reynslu og kemur víða
að. Lýsa mætti andrúmsloftinu á
vinnustaðnum sem séríslensku
með alþjóðlegu ívafi. „ Við erum
afar stolt af starfsfólki okkar sem
býr yfir víðtækri reynslu. Við
erum með fjölbreytilegt teymi
Íslendinga og fólks af erlendum
uppruna,“ segir Agnes en meðal
heimalanda starfsfólks sem hún
nefnir eru Pakistan, Litháen,
Slóvenía, Bretland, Bandaríkin,
Pólland, Úkraína, Svíþjóð og
Frakkland.
Ísland alltaf í brennidepli
Agnes segir að þrátt fyrir alþjóð-
legan blæ sé viðfangsefnið fyrst og
fremst Ísland, eins og nafnið gefur
til kynna. Stjórnendur fyrirtækis-
ins leggi ríka áherslu á það. „Þetta
er afar mikilvægt í þeirra huga,
þetta er ekki FlyOver Canada eða
America, þetta er FlyOver Iceland,“
útskýrir Agnes.
Upplifunin er bæði fróðleg og
skemmtileg. Hún byrjar á því að
gestir ganga inn í sal og stað-
næmast fyrir framan stóran skjá
þar sem sögusviðið er langhús.
„Páll Pálsson, sjómaður til 30 ára,
segir sögu Íslendinga og lýsir því
hvernig híbýli manna voru á árum
áður,“ segir Agnes.
Það snarkar í litlu báli á meðan
Páll segir gestum frá því hvernig
sögurnar sem við heyrðum í
barnæsku hafa mótað hugarfar
Íslendinga og átt þátt í að mynda
séríslenska orðatiltækið „þetta
reddast“. Þá segir Páll lifandi
umhverfið segja sína sögu, hvert
sem litið er, og að óútreiknanleik-
inn sem fylgir eldgosum og snjó-
flóðum útskýri seigluna sem sé svo
einkennandi fyrir þjóðina.
„Svo förum við í forsýningu
2 sem heitir Well of Time, eða
upphaf lífsins, sem fjallar um það
hvernig Ísland mótaðist og sögu-
manneskjan, eða sögutröllkonan
þar, er SúVitra sem Hanna María
Karlsdóttir ljáir rödd sína,“ segir
Sunna Dís Örvarsdóttir, Runólfur Gylfason og Agnes Gunnarsdóttir taka vel á móti gestum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Agnes Gunnars-
dóttir, fram-
kvæmdastjóri
FlyOver Iceland,
segir fyrirtækið
leggja mikla
áherslu á vand-
aða þjónustu og
ánægju meðal
starfsfólks.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Agnes. „Hún segir frá því hverjir
voru fyrstu landnemarnir, en það
voru tröllin og svo komu menn-
irnir. Við byggjum smám saman
upp eftirvæntingu meðal gesta
okkar sem nær hámarki í f luginu
sjálfu.“
Lygilegt sjónarspil
Það er óhætt að fullyrða að
myndefnið sem notað er í aðal-
hluta sýningarinnar er algjörlega
einstakt. „Það er sérstakur áhættu-
þyrlumaður sem flaug á þá staði
þar sem myndin er tekin upp en
hann gengur undir nafninu Jón
Spaði og starfar hjá Norðurflugi,
hann hefur verið að fljúga fyrir
f lestallar erlendar Hollywood-
kvikmyndir sem hafa verið teknar
hérna á landi, eins og Oblivion
með Tom Cruise, Noah, Game of
Thrones, Star Trek og James Bond,“
segir Agnes.
„Myndin er tekin upp með því
að hengja upp sérstaka 8K há-
skerpumyndavél framan á þyrlu.
Svo er f logið í miklu návígi við
íslenskt landslag og þannig næst
þetta einstaka sjónarhorn sem
endurspeglast í sýndarfluginu,“
útskýrir Agnes. „Til samanburðar
eru venjulegar bíómynd teknar
upp í 4K upplausn.“
Reynsluboltinn Rick
Mikill metnaður einkennir alla
starfsemi FlyOver Iceland og er
valinn maður í hverju rúmi. „Sá
sem við höfum unnið stíft með
er listræni stjórnandinn okkar,
magnaður maður sem heitir Rick
Rotschild,“ segir Agnes.
„Hann vann í meira en 30 ár
sem listrænn stjórnandi hjá Walt
Disney, stýrði yfir 50 sýningum,
þar á meðal Soarin’ sem mjög
margir Íslendingar kannast við, og
það er ennþá eitt vinsælasta tækið
í Disney-görðunum. Gestir f ljúga
yfir landslag og finna fyrir vind-
inum í andlitinu og lyktina af nátt-
úrunni. Í raun er verið að virkja öll
skilningarvit þín og það er akkúrat
það sem við gerum hér.
Rick lauk störfum hjá Disney
árið 2012 og þá fengu þau í FlyOver
Canada hann til liðs við sig og það
gekk svona svakalega vel, í kjölfar-
ið tóku þau upp FlyOver America
og svo núna FlyOver Iceland,“ segir
Agnes. „Rick sá um alla leikstjórn
og heildarútlit upplifunarinnar
frá A til Ö, ásamt frábæru teymi
Íslendinga og erlendra aðila.“
Fagmennska fram
í fingurgóma
Þá segir Agnes fyrirtækið leggja
mikla áherslu framúrskarandi
þjónustulund og hafa í hávegum
vandlega útfærð gildi. „Við
vinnum eftir fjórum grunn-
gildum,“ segir Agnes. „Fyrsta gildið
snýr að öryggi, eða „safety first“.
Annað gildið er „honor place“, eða
það að bera virðingu fyrir þeim
stað sem maður er á, hvort sem það
er gagnvart fólkinu, menningu,
þjóð, sögu eða umhverfi þess.“
Starfsfólkið er þannig hvatt til
þess að leggja sitt af mörkum til
samfélagsins og umhverfisins. „Á
laugardaginn ætlum við til dæmis
að vera með átak þar sem við
tínum rusl í nærumhverfi okkar,“
segir Agnes. „ Einnig sýnum við
ábyrgð með því að endurvinna
eins mikið og við getum og er
markmið okkar að vera betri í dag
en í gær. Þriðja gildið sem við störf-
um eftir „anticipate“ snýr að for-
sjálni eða að vera ávallt einu skrefi
á undan og til þjónustu reiðubúin.
Þetta lýtur að gestrisni starfsfólks
okkar. Við leggjum mikla áherslu
á þetta gildi og hafa umsagnir ekki
látið á sér standa hvað það varðar.
Við leggjum gríðarlega mikla
áherslu á þjálfun starfsfólks okkar
en áður en við opnuðum vorum
við búin að þjálfa teymið í þrjár
vikur stöðugt, þar sem við fórum
meðal annars yfir öryggisatriði,
f læði gesta um húsið og mikil-
vægi gestrisni.“ Þá segir Agnes
samheldni og starfsánægju skipta
miklu máli og að starfsfólk sé hvatt
til þess að sýna frumkvæði og
ástríðu í starfi sínu. „Fjórða gildið
lýtur að því að gera ávallt sitt
besta, eða „do your best“.
Við byggjum
smám saman upp
eftirvæntingu meðal
gesta okkar sem nær
hámarki í f luginu sjálfu.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 1 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
2
1
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:2
5
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
D
6
-5
F
2
4
2
3
D
6
-5
D
E
8
2
3
D
6
-5
C
A
C
2
3
D
6
-5
B
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K