Fréttablaðið - 21.09.2019, Page 68
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@frettabladid.is
Cornel G. Popa
segir merki-
legt að matur
fátæka fólksins
sem þurfti að
komast af með
hagsýni og
hugmyndaflugi
á kreppuárum
Ítalíu sé nú fæði
ríka manns-
ins í heim-
inum. Honum
þykir Íslend-
ingar í mörgu
líkir Ítölum
þegar kemur
að stemningu
í kringum mat
en að þeir fari
þó frekar út
að borða með
fjölskyldu og
vinum á meðan
Ítalir eldi
matinn og hafi
samfundina
heima.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Hún amma mín sagði alltaf að mikilvægasta hráefnið við eldamennskuna væri
ást. Því er mitt einlæga ráð þegar
eldaður er ítalskur matur að nota
hjartað við matseldina og setja ást
í allt sem maður gerir í eldhúsinu.
Þá gengur maður að því vísu að
maturinn bragðist sem hinn besti
í heimi,“ segir Cornel G. Popa,
ítalskur matreiðslumaður sem
hefur búið á Íslandi undanfarin
tvö ár.
„Ég er fæddur og uppalinn í
þorpinu Carpino á Suður-Ítalíu, en
fluttist til Íslands í skammdeginu í
nóvember 2017. Ástæðan var sú að
Ísland er landið sem ég hafði ætíð
leitað að. Friðsældin á þessari litlu
eyju er vandfundin annars staðar í
heiminum.“
Matur er hamingjuvaldur
Cornel gaf á dögunum út sína
fyrstu matreiðslubók, Food and
Family: Secrets from an Italian
family kitchen.
„Áhuginn á eldamennsku
kviknaði þegar ég var ellefu ára
og mamma hélt matarboð fyrir
fjölskyldu og vini á sveitasetri
fjölskyldunnar. Þá rann upp ljós
fyrir mér um hvað ég vildi gera
við líf mitt og ég eignaðist draum
um að gera fólk hamingjusamt í
gegnum mat,“ segir Cornel sem
skráði sig þrettán ára í fyrsta
matreiðsluskólann og var farinn
að vinna við matseld sextán ára.
Á átjánda árinu ákvað hann að
f lytja til Lundúna og bjó þar og
starfaði þar til Ísland kallaði og
Cornel skynjaði að land elds og ísa
væri hans réttu heimkynni.
„Kominn til Íslands fann
ég f ljótt að íslensk stemning í
kringum mat er að stórum hluta
svipuð þeirri ítölsku og það er
sennilega ástæða þess að ég elska
að búa hér. Eini munurinn er sá að
Íslendingar fara frekar saman út
að borða með fjölskyldu og vinum
í stað þess að elda mat og hafa
samfundina heima,“ segir Cornel
sem er heillaður af íslenskum mat
og hráefni.
„Mér þykir íslenskur matur
bæði höfugur og bragðmikill og
Íslendingar mega vera stoltir af
matarhefðum sínum og hvernig
þeim tókst að skapa marga góða
rétti þegar vöruúrval var af
skornum skammti. Í dálæti er
ristaður þorskhaus og uppáhalds
naslið mitt er harðfiskur með
smjöri,“ upplýsir Cornel sem veldi
hiklaust íslenskt lambakjöt og
skyr sem hráefni í ítalskan rétt.
„Lambið mundi ég marinera
á ítalska vísu og skyr notaði ég
nýlega í stað mascarpone-osts
í ítalska eftirréttinn tiramisú.
Útkoman var algjört lostæti og
hefur nú fengið sitt eigið nafn;
skyramisú,“ segir Cornel kátur.
Glæpsamlegar uppljóstranir
Ítalskur matur þykir einn sá besti
í veröld víðri.
„Food and Family byggir á hefð-
bundnum ítölskum uppskriftum
vegna þess að ég ólst upp við þess
háttar mat og í hvert sinn sem ég
elda hann fyrir sjálfan mig fyllist
ég glöðum æskuminningum. Að
vera uppalinn á Suður-Ítalíu færir
manni skilning um mikilvægi
fjölskyldunnar og svo matarins
sem spilar stórt hlutverk á glöðum
stundum í lífi hvers manns,“ segir
Cornel sem í matreiðslubókinni
sviptir hulunni af sælkera-
leyndarmálum fjölskyldu sinnar í
ítalska eldhúsinu.
„En þótt það hjómi kannski
glæpsamlegt að upplýsa fjöl-
skylduleyndarmálin er fjölskyld-
an mín í Carpino ákaf lega glöð að
þeim sé nú deilt með öðrum. Hví
ekki að láta matargleðina berast
til annarra þegar maður kann
eitthvað einstakt um matseld,
sem gerir matinn enn betri og
leyfa öðrum að upplifa sama ljúf-
fenga bragðið? Okkur fjölskyld-
unni þótti hreinlega eigingjarnt
að halda leyndardómunum út af
fyrir okkur og ekkert einasta vit í
því lengur,“ segir Cornel og brosir.
Fæði fátækra nú matur ríkra
Cornel vann að Food and Family í
heilt ár en bókin hefur boðskap.
„Með bókinni vil ég sameina
fólk við matarborðið en einnig
vekja fólk til umhugsunar um
matarsóun. Í Evrópu einni fara
32 prósent matar í tunnuna en
endurunninn matur, þótt það
hljómi ekki vel, er ein besta leiðin
til að spyrna fótum gegn matar-
sóun. Ég vil líka sýna fram á að
það er enginn vandi að elda góm-
sætan, ítalskan mat og þegar upp
er staðið eru engin laun sætari né
betri en ánægjan af því að elda
mat fyrir fjölskyldu og vini,“ segir
Cornel.
Hann segir Miðjarðarhafsmat-
seld að stórum hluta upprunna á
Ítalíu.
„Allir bestu réttir ítalska eld-
hússins voru búnir til á kreppu-
árum þegar fólk þurfti að vera
hugmyndaríkt til að geta borið
máltíðir á borð. Í kjölfarið urðu
fjölskylduleyndarmálin til. Það er
skondið til þess að hugsa hvernig
tímarnir hafa breyst; að matur
fátæka mannsins þá sé nú matur
ríka fólksins. Að réttir sem eldaðir
voru við mikinn skort af fátæku
fólki sem reyndi að komast af sé
í dag talinn einn besti og heil-
næmasti matur sem um getur,“
segir Cornel sem á sér uppáhalds
uppskrift í bókinni sem geymir
hjartfólgnar minningar frá
uppvaxtarárunum með stórfjöl-
skyldunni.
„Sú uppskrift er líka eins sú
allra vinsælasta; hestabaunir og
kaffifífils-salatblöð. Það eru einu
hráefnin sem til þarf í réttinn og
svolítil extra virgin ólífuolía.“
Cornel gefur lesendum upp-
skrift að óhefðbundnum tira mi-
sú-eftirrétti.
„Uppskriftin varð til vegna
þess hve mér þótti kaffi vont á
táningsaldri. Hún geymir eitt af
mínum eigin leyndarmálum sem
ég vil þó gjarnan upplýsa svo
aðrir fái að njóta.“
Tiramisú Cornels Popa:
380 ml appelsínusafi
250 ml marsala-vín
230 g strásykur
6 eggjarauður
10 g vanilludropar
750 g mascarpone-ostur
4-5 eggjahvítur
Lady Fingers/Savoiardi-kex-
kökur
Kakóduft
Aðferð:
Mýkið mascarpone-ost í skál með
vanilludropum og eggjarauðum.
Stífþeytið eggjahvítur saman við
sykurinn. Blandið eggjahrærunni
varlega saman við mascarp-
one-ostinn með sleif. Setjið nú
tiramisú-réttinn saman. Dýfið
kexinu í blöndu marsalavíns og
appelsínusafa í 2 til 3 sekúndur
og raðið neðst í djúpa skál eða fat.
Setið síðan lag af mascarpone-
blöndunni ofan á. Leggið því næst
bleytt kex ofan á mascarpone-
blönduna og endurtakið lagskipt
þar til hráefnið er búið. Stráið
þunnu lagi af kakódufti ofan á
eftirréttinn og kælið í minnst hálf-
tíma áður en borið fram.
Matreiðslubók Cornels, Food and
Family, fæst á Amazon, Water
stones og fleiri bókaverslunum á
netinu, undir nafninu (Cornel G.
Popa, Food and Family) og von
andi í íslenskum bókaverslunum á
næstunni.
Ástin er mikilvægasta hráefnið
Ítalinn Cornel G. Popa sviptir hulunni af leyndarmálum suðurítalskrar fjölskyldu sinnar í
matreiðslubókinni Food and Family. Bókina vann hann í íslenskri friðsæld sem hann elskar.
Með bókinni Food and Family vill Cornel sameina fólk við matarborðið.
Ísland er landið
sem ég hafði ætíð
leitað að. Friðsældin á
þessari litlu eyju er
vandfundin annars
staðar í heiminum.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 1 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
2
1
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:2
5
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
D
6
-5
0
5
4
2
3
D
6
-4
F
1
8
2
3
D
6
-4
D
D
C
2
3
D
6
-4
C
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K