Fréttablaðið - 21.09.2019, Blaðsíða 78
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055.
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Magnús Sævar Magnússon,
umsjón útfara
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Hér er lögð áhersla á heilsu, samfélag og sköpun,“ segir Eva Rún Michelsen, verk-efnastjóri hjá hinu nýopn-aða Lífsgæðasetri við Suð-
urgötu í Hafnarfirði. Hún fer með okkur
Fréttablaðsfólk inn á langan gang með
litlum fyrirtækjum á báðar síður sem
hafa komið sér þar fyrir á aðlaðandi
hátt. Upprunalegur gólfdúkur er eftir
miðjum ganginum og arkitektúr Guð-
jóns Samúelssonar húsameistara er víða
sjáanlegur.
Fimmtán hafa þegar byrjað starfsemi,
auk Leikfélags Hafnarfjarðar sem er í
kapellunni á neðstu hæð. Þau bjóða upp
á margvíslega þjónustu sem öll miða að
bættri líðan og lífsháttum einstaklinga.
Má þar nefna kynlífsmarkþjálfun, for-
varnarfyrirlestra, núvitundarheilun,
jóga, fjölskylduráðgjöf, stuðning í fæð-
ingarferli, sál og líkamsmeðferð, ADHD-
og einhverfurófs markþjálfun, ráðgjöf til
syrgjenda, heilsueflandi ferðir og aukin
lífsgæði eldri borgara.
Stærsta herbergið er um það bil fyrir
miðjum gangi. „Hér er okkar kaffistofa,
miðstöð, hér hittast allir og spjalla. Við
köllum þetta hjartað. Enn vantar samt
stóra setbekkinn sem mun umlykja
það,“ segir Eva Rún. Hennar aðstaða er
í litlu herbergi þar inn af. Það er heilinn.
Þar sem áður voru sjúkrastofa og
línherbergi er sögusýning til minn-
ingar um þá starfsemi sem var í húsinu
í áratugi. „Við viljum halda uppi heiðri
St. Jósepssystra og St. Jósepsspítala og
báðum Byggðasafn Hafnarfjarðar að
setja upp þessa fallegu sýningu með
munum sem það hafði varðveitt,“ segir
Eva Rún. „Safnið á líka flöggin sem voru
notuð við vígsluna 1926, við fáum þau
til afnota.“
Eva Rún segir St. Jósepssystur hafa
látið byggja spítalann. Í upphafi hafi
verið rými fyrir 40 sjúkrarúm og aðstað-
an verið góð. „Þetta var systraregla sem
vann að góðgerðarmálum í þágu fólks.
Fyrsti hlutinn kostaði um 300 þúsund,
eitthvað fengu þær lánað og fyrstu
tíu árin fengu þær frítt rafmagn. Þær
voru með matjurtagarð við húsið og
þar voru berjarunnar líka. Á Jófríðar-
stöðum fengu þær mjólkina, þannig að
vistsporið var lítið. Nunnurnar voru
nýtnar, voru með saumastofu og gerðu
við lökin eftir þörfum. Svo önnuðust
þær sjúklingana líka.“
Hæðin sem búið er að taka í notkun er
um 650 fermetrar en allt er húsið 3.000
fermetrar svo enn er þar verk að vinna.
gun@frettabladid.is
Setur opnað til sálubótar
Fimmtán fyrirtæki hafa hreiðrað um sig í fyrrum húsnæði St Jósepsspítala í Hafnar-
firði. Þar er nú Lífsgæðasetur og nafnið segir meira en mörg orð um starfsemina
Eva Rún í sjúkrastofu og línherbergi frá gamalli tíð sem nú geymir sögusýningu um St. Jósefsspítala og nunnurnar.
Samverustofa starfsfólksins nefnist Hjartað. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Unnur Edda Garðarsdóttir, mannfræðingur og jógakennari, og
Steinunn Thorlacius Garðarsdóttir, meðferðaraðili í áfalla-
meðferð, í fræðasetrinu Unnandi. Lengst til hægri er Birna Rut
Björnsdóttir, sál-og líkamsfræðingur hjá Rótum.
Lára Janusdóttir og faðir hennar Janus Guðlaugsson í Janus
heilsueflingu sem vinnur að meiri lífsgæðum eldri borgara.
Hér er okkar kaffistofa, mið-
stöð, hér hittast allir og spjalla.
Við köllum þetta Hjartað. Enn
vantar samt stóra setbekkinn
sem mun umlykja það.
Í Lífsgæðasetrinu eru:
Hugarró
Janus heilsuefling
Leikfélag Hafnarfjarðar
Lex familia
Litla Kvíðameðferðarstöðin
Míró markþjálfun og ráðgjöf
Móðurafl
Poppy
Rætur - Sál og líkamsmeðferð
Saga - Story House
Sorgarmiðstöð
Unnandi - fræðasetur
Veraldarvinir
Yogahúsið
Örmælir
2 1 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R32 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
2
1
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:2
5
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
D
6
-4
B
6
4
2
3
D
6
-4
A
2
8
2
3
D
6
-4
8
E
C
2
3
D
6
-4
7
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K