Morgunblaðið - 07.06.2008, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FRÉTTASKÝRING
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
SAMNINGUR um byggingu ker-
skála fyrsta áfanga álvers Norðuráls
í Helguvík var undirritaður í gær.
Það voru Íslenskir aðalverktakar
(ÍAV) sem hrepptu hnossið, en
Norðurál hafði einnig átt í viðræðum
við Ístak og ÞG-verk. Að sögn Ragn-
ars Guðmundssonar, forstjóra Norð-
uráls, er það ánægjuefni að ganga til
samstarfs á ný við ÍAV, sem byggðu
á sínum tíma kerskála fyrsta áfanga
álversins á Grundartanga. Reynslan
af samstarfinu við þá sé góð, enda
eigi þeir rætur að rekja til Suð-
urnesja.
Áætlað er að byggingu áfangans
ljúki á árinu 2010. Þá mun álverið
framleiða um 150.000 þúsund tonn á
ári og skila áætluðu 35 milljarða
króna útflutningsverðmæti á ári, en
heildarkostnaður við þennan áfanga
er áætlaður 60-70 milljarðar. Enn á
eftir að útvega starfsleyfi fyrir ál-
verið og sækja um losunarheimildir
gróðurhúsalofttegunda. Þá á eftir að
tryggja afhendingu orku fyrir annan
áfanga álversins. Ragnar áætlar að
það takist fyrir lok árs 2010.
Álverið verður hið sjötta undir
hatti móðurfélags Norðuráls, Cent-
ury Aluminium, sem rekur fjögur ál-
ver í Bandaríkjunum, álverið á
Grundartanga og báxítvinnslu á Ja-
maíka, en báxít er hráefni ál-
framleiðslunnar. Viðstaddir und-
irritunina voru John P. O’Brien
stjórnarformaður Century og að-
stoðarforstjórinn Wayne Hale.
Umhverfissinnar mótmæltu
Ræðumönnum við athöfnina varð
tíðrætt um gott samstarf við stjórn-
sýslustofnanir og sveitarfélög, ekki
síst í umhverfismálunum. Engu að
síður lét fámennur hópur mótmæl-
enda í sér heyra með friðsamlegum
hætti, en þó voru þrír einstaklingar
fjarlægðir af svæðinu fyrir ólæti,
hróp og köll, eða að hlaupa um með
svartan fána. Kváðu mótmælend-
urnir álverið drepa niður nýsköpun,
frekar ætti að efla þar ferðaþjón-
ustu. „Bjargið Íslandi!“ hrópaði einn
þeirra á ensku.
Alsælir stjórnmálamenn
Viðstaddir stjórnmálamenn voru
þó á öðru máli. „Þetta er mjög góður
dagur,“ sagði Árni Mathiesen, fjár-
málaráðherra. „Sögulegur dagur
fyrri Suðurnesjamenn,“ sagði Björg-
vin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra.
„Þetta verður gríðarlega stór stoð í
atvinnulífi okkar hér,“ sagði Árni
Sigfússon, bæjarstjóri í Reykja-
nesbæ. Björgvin segir byggingu ál-
versins ekki í andstöðu við stefnu
Samfylkingarinnar í umhverf-
ismálum, enda hafi undirbúningur
þess verið langt kominn við síðustu
kosningar, aldrei hafi verið ætlunin
að slíta það ferli úr sambandi.
„Þetta þýðir væntanlega þúsund
vel launuð störf fyrir Suðurnes, störf
sem eru í hæsta flokki meðallauna á
Suðurnesjum. Þetta er því gríð-
arlega mikilvægt fyrir okkur. Það
eru bara tvö ár síðan við misstum
700 störf hjá varnarliðinu,“ sagði
Árni Sigfússon enn fremur.
Byrjaðir að moka
Skóflustungur teknar að kerskála álversins í Helguvík
Mótmælendur fjarlægðir af svæðinu vegna hrópa og kalla
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Mokað Fjögurra ára undirbúningsferli að byggingu álversins er nú að ljúka, undirbúningsframkvæmdir eru hafnar og fyrsti áfanginn rís á næstu þremur
árum. Bjartsýni gætir meðal stjórnmálamanna á Suðurnesjum en atvinnuleysi er þar með því mesta á landinu í dag.
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest
sakfellingu yfir karlmanni fyrir kyn-
ferðisbrot. Maðurinn notfærði sér
ölvunarástand stúlku til að hafa við
hana samfarir, en hún gat sökum
ástands síns ekki spornað við atlögu
mannsins.
Atburðurinn átti sér stað í maí
2006 þegar maðurinn hitti stúlkuna á
skemmtistað, en hún er frænka
barnsmóður hans. Í framhaldinu
fóru þau í leigubíl heim til hennar og
átti atvikið sér stað þar.
Maðurinn neitaði upphaflega að
hafa átt samræði við stúlkuna en
breytti síðar framburði sínum og
sagði það hafa verið með vilja henn-
ar. Á það féllst dómurinn ekki.
Við ákvörðun refsingar var litið til
þess að brotið beindist að persónu-
frelsi stúlku en á móti kom að mikill
dráttur varð á lögreglurannsókn.
Þótti Hæstarétti 18 mánaða fangelsi
hæfilegt, en héraðsdómur hafði áður
dæmt 15 mánaða fangelsi.
Ástæða þess að refsingin er
nokkru vægari en sést hefur í öðrum
nýlegum kynferðisbrotadómum er
m.a. sú að sérákvæði gilti á þeim
tíma sem misneytingin átti sér stað
og varðaði brot gegn því mun vægari
refsingu en almenna nauðgunar-
ákvæðið. | andresth@mbl.is
18 mán-
uðir fyrir
nauðgun
Hæstiréttur þyng-
ir samt héraðsdóm
HRESSIR nemendur í Digranes-
skóla heilluðu foreldra sína og
aðra gesti upp úr skónum í sal-
arkynnum skólans á uppskeruhá-
tíð Comenius-verkefnis þar sem
sungið var Höfuð, herðar, hné og
tær á 4 tungumálum. Verkefnið
„Sögur Evrópu“ er verkefni fjög-
urra skóla sem fengu styrk úr
Comenius 1-sjóði Evrópusam-
bandsins og EES-landanna. Tóku
skólar frá Finnlandi, Ítalíu og
Portúgal þátt í verkefninu ásamt
Digranesskóla. Tilgangurinn var
að gera nemendur meðvitaðri
um menningararf sinn og efla
sjálfsvitund þeirra í evrópsku
samhengi samhliða því að efla
þekkingu þeirra á sviði tölvu- og
upplýsingatækni. Verkefnin áttu
m.a að fanga sagnaarf þjóðanna
og voru efnistök hin fjölbreytt-
ustu, allt frá íslenskum jólasvein-
um til portúgalskra sæfara eins
og Vasco da Gama. Verkefnið
sjálft heldur úti bloggsíðu á
www.comenius-tales.blogs-
pot.com. | thorbjorn@mbl.is
Höfuð, herðar, hné og tær á 4
tungumálum í Digranesskóla
Morgunblaðið/Valdís Thor
JÓHANNA Kristjánsdóttir frá
Kirkjubóli í Bjarnardal í Önund-
arfirði lést sl. miðvikudag en hún
náði 100 ára aldri 7. maí. Var hún
þá ein af átta Vestfirðingum, sem
voru tíræðir eða eldri.
Jóhanna var eitt af fjórum
börnum þeirra Kristjáns Guð-
mundssonar og Bessabe Hall-
dórsdóttur en bræður hennar
voru allir landskunnir menn, þeir
Ólafur Þ. skólastjóri, Guðmundir
Ingi bóndi og skáld og Halldór al-
þingismaður.
Jóhanna bjó á Kirkjubóli til
ársins 2003 eða til 95 ára aldurs.
Var hún lengi í stjórn Sambands
vestfirskra kvenna, mikil áhuga-
kona um esperanto, garðyrkju og
skógrækt og var veitt viðurkenn-
ing fyrir störf sín að þeim málum
úr verðlaunasjóði Kristins Guð-
laugssonar frá Núpi.
Segja má, að Jóhanna hafi ver-
ið hagort jafnt til munns sem
handa, mikil hannyrðakona og
skáldmælt vel. Gaf Kvenfélag
Mosvallahrepps út bókina Hrísl-
urnar hennar Hönnu með ljóðum
eftir hana.
Jóhanna var síðustu æviárin á
sjúkrahúsi Patreksfjarðar en hún
lætur eftir sig dótturina Kolfinnu
Guðmundsdóttur.
Andlát
Jóhanna
Kristjáns-
dóttir
23. apríl 2007
Samningar nást við Hitaveitu
Suðurnesja um orkukaup.
7. júní 2007
Samningar nást við Orkuveitu
Reykjavíkur um orkukaup.
3. október 2007
Samið er við Landsnet hf. um
flutning raforku til Helguvíkur.
10. október 2007
Landvernd kærir úrskurð Skipu-
lagsstofnunar um umhverfis-
áhrif álversins til umhverf-
isráðherra.
17. desember 2007
Breytingar á aðalskipulagi
Garðs og Reykjanesbæjar vegna
álversins taka gildi.
12. mars 2008
Byggingarleyfi samþykkt í bæj-
arstjórnum Garðs og Reykja-
nesbæjar.
27. mars 2008
Stjórnsýslukæra berst frá Nátt-
úruverndarsamtökum vegna út-
gáfu byggingarleyfis.
6. júní 2008
Fyrsta skóflustungan. Enn á eft-
ir að fá starfsleyfi og sækja um
losunarheimildir fyrir álverið.
Stiklað á stóru