Morgunblaðið - 07.06.2008, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2008 17
ERLENT
FRÉTTASKÝRING
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
RÁÐAMENN í Evrópusambandinu
aflýstu fundi sem átti að fara fram í
gær um leiðir til að auðvelda konum
að fara í fóstureyðingu. Ástæðan? Ír-
ar, sem eru kaþólskir og margir mjög
andvígir fóstureyðingum, efna til
þjóðaratkvæðagreiðslu nk. fimmtu-
dag um Lissabon-sáttmálann, öðru
nafni stjórnarskrá sambandsins.
Reyndar er bannað að kalla hann
stjórnarskrá af því að kjósendur í
Frakklandi og Hollandi felldu árið
2005 tillögur að stjórnarskrá ESB í
þjóðaratkvæði.
Enga stjórnarskrá, takk! En flestir
sem vit hafa á segja nýja sáttmálann
nánast samhljóða tillögunum sem
voru felldar, þ.á.m.Valery Giscard
d’Estaing, fyrrverandi forseti Frakk-
lands og einn aðalhöfundur gömlu til-
lagnanna. Annar ráðamaður sagði að
í nýja sáttmálanum væri af ásettu
ráði loðið og flókið orðalag til að fela
að um gömlu tillögurnar væri að
ræða.
Ekki fannst öllum þetta til fyr-
irmyndar. Ef menn ætluðu sér að
blekkja væri lágmarkið að sýna ekki
þá ósvífni að játa strax brotið. Og
gagnrýnt var að allir leiðtogarnir
skyldu samþykkja að alger óþarfi væri
að bera Lissabon-sáttmálann undir að-
ildarþjóðirnar. Nóg væri að þjóðþingin
segðu já. Allir leiðtogarnir nema for-
sætisráðherra Íra. Þeir settu á sínum
tíma lög um að alla meiriháttar samn-
inga í ESB skyldi leggja í dóm þjóð-
arinnar. Þess vegna verður kosið þar
og sporin hræða: Írar felldu Nice-
samninginn svonefnda 2001.
Að vísu var ákveðið að láta þá kjósa
aftur og þá samþykktu þeir hann en
samt er ótti í Brussel og herbúðum
Brians Cowens, forsætisráðherra í
Dublin. Og ný könnun í gær sýndi að í
fyrsta sinn voru andstæðingar Lissa-
bon-sáttmálans með meira fylgi en
stuðningsmenn, 35% gegn 30%. En
28% sögðust ekki hafa gert upp hug
sinn og ljóst er að hart verður barist.
AP
Verða Írar aftur með múður?
Ráðamenn ESB óttast að írskir kjósendur felli Lissabon-sáttmálann í þjóðaratkvæðagreiðslu í
næstu viku en ný skoðanakönnun sýnir í fyrsta sinn meira fylgi andstæðinga en stuðningsmanna
Hvers vegna þarf nýja
stjórnarskrá í ESB?
Fjölgun aðildarríkjanna úr 15 í 27 á
fáeinum árum er sögð gera óhjá-
kvæmilegt að laga stofnanir og
ákvarðanatöku að nýjum veruleika.
Öll aðildarríkin verða að samþykkja
sáttmálann til að hann öðlist gildi.
Hverju breytir
Lissabon-sáttmálinn?
Ein breytingin er að lítil aðildarríki fá
ekki endilega fulltrúa í fram-
kvæmdastjórninni í Brussel og fækk-
að verður í henni. Fleiri mál verða nú
ákveðin með einföldum meirihluta í
stað þess að allir verði að vera sam-
þykkir.
Hvaða embætti
verða valdamest?
Forseti framkvæmdastjórnar fær
aukin áhrif, einnig forseti ráðherra-
ráðsins og nýr talsmaður í utanrík-
ismálum. Ekki er alveg búið að skil-
greina valdsvið embættanna.
Geta lítil ríki komist
til áhrifa?
Meðal þeirra sem einkum hefur verið
rætt um sem forseta ráðherraráðs-
ins er Anders Fogh Rasmussen, for-
sætisráðherra Danmerkur.
S&S
HANN var ólmur í að svara spurningum kenn-
arans, hinn 84 ára gamli Kimani Nganga Ma-
ruge, þegar hann settist í fyrsta bekk grunn-
skólans í bænum Eldoret í vesturhluta Kenýa
fyrir fjórum árum. Nganga öðlaðist fyrir vikið
heimsfrægð á gamals aldri, enda elsti maður
sögunnar til að hefja nám í grunnskóla, sam-
kvæmt upplýsingum heimsmetabókar Guinness.
Eins og sjá má á myndinni hér til hliðar var
námsþorsti gamla unglambsins ósvikinn. Eiga
margir erfitt með að trúa því að Nganga hlýði
yfirvöldum sem vilja nú að hann setjist í helgan
stein á dvalarheimili.
„Ég er efins um að hann muni samþykkja
slíka röskun á námi sínu,“ sagði Jane Obinchu
kennari, sem minnti á að hinn heimsfrægi
Nganga væri enginn venjulegur nemandi. Marg-
ir taka undir.
„Menntamálaráðuneytið ætti að koma okkur
til bjargar,“ sagði Albert Kebenei, formaður
kennarasamtaka á svæðinu. Námsþorsti Nganga
hefur orðið mörgum innblástur, Kebenei segir
að nemendum við Kapkenduiywo-grunnskólann
hafi snarfjölgað.
Nganga hefur notað frægðina til að vekja
máls á þeirri staðreynd að mörg börn fara á mis
við menntun. Hann hefur fengist við ýmislegt á
langri ævi, löngu áður en hugur hans stóð til
náms barðist hann í Mau-Mau-uppreisnarsveit-
unum gegn yfirráðum Breta. | baldura@mbl.is
AP
Sá elsti Ávallt er stutt í brosið hjá Nganga. Heather Stone, sjálfboðaliði hjá samtökunum NetAid, fylgdist með þar sem öldungurinn var á ferð um New York
fyrir þremur árum vegna herferðar sem ætlað var að minna á að hundrað milljónir barna í heiminum ættu ekki kost á menntun sökum sárrar fátæktar.
Elsti skólastrákurinn
á leið út úr stofunni
Námfúsum öldungi í Kenýa gert að fara á elliheimilið
Dúxinn? „Ég veit svarið“ hugsar Nganga eflaust
með sér. Óvíst er hvort hann snúi aftur í skólann.
BRESKIR um-
hverfisvernd-
arsinnar hafa
lengi haft horn í
síðu „Chelsea-
traktoranna“
svokölluðu,
fjórhjóladrif-
inna bíla sem
áður gegndu
hlutverki land-
búnaðartækja
en minna nú meira á koníaksstofur á
hjólum.
Range Rover-lúxusjeppinn hefur
ósjaldan orðið skotspónn græningja,
enda slagar koldíoxíðslosunin hátt í
400 grömm á hvern kílómetra eða
með því allra mesta í bifreiðum.
Nú gætu unnendur þessa fyrsta
evrópska lúxusjeppa sögunnar úr
röðum efnafólks í Chelsea-hverfinu
alþekkta í Lundúnum andað léttar.
Fram er komið fyrirtæki sem hyggst
breyta þessum óði til sprengihreyfils-
ins í hljóðlátan og mengunarlausan
rafmagnsbíl.
Fyrirtækið heitir Liberty Electric
Cars og er með höfuðstöðvar í Oxford
Miðast áætlanir við að senn muni 250
manns hafa fullt starf við að útbúa
jeppann í rafmagnsútfærslu.
Miðað er við að afköstin verði
nokkrar tugir þúsunda bifreiða þegar
fram í sækir og er verðmiðinn frá
95.000 pundum til 125.000 punda eftir
útfærslum, eða allt frá 14,1 milljón ís-
lenskra króna og upp í tæpar 18,6
milljónir króna á núverandi gengi.
Þótt ekkert verði púströrið á bif-
reiðinni og losun koldíoxíðs engin ber
að hafa í huga að orkan sem mun
knýja bifreiðarnar á götum bresku
höfuðborgarinnar mun að öllum lík-
indum verða sótt í bruna jarðefna-
eldsneytis til að byrja með, eða þar til
vegur endurnýjanlegrar orku vex
frekar þar í landi. Hér á Íslandi væri
þetta ekki vandamál. | baldura@mbl.is
Grænn
„Chelsea-
traktor“
Rafmagnsútfærslur
af Range Rover
Ranger Rover-
lúxusjeppinn.