Morgunblaðið - 07.06.2008, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Bíddu aðeins með að freta á Rússana, Tinna mín, meðan ég rek þetta dúfuræksni burt.
Iðnaðarráðherra landsins, ÖssurSkarphéðinsson, skrifar á net-
síðu sinni um traust tengsl Samfylk-
ingar og Vinstri grænna í borginni
og boðar meirihlutasamstarf þess-
ara flokka eftir næstu borgarstjórn-
arkosningar. En getur verið að ráð-
herrann sé að gefa merki um
frekari hræringar og þá í lands-
málapólitíkinni?
Ráðherrannhefur reynd-
ar fyrirvara í
skrifum sínum og
segir ólíklegt að
pólitískar ástir
Samfylkingar og
Vinstri grænna í
borginni hafi
beinlínis áhrif á
landsmálapólitík-
ina „á þessari
stundu“. Ekki núna heldur bráðum,
má ofur auðveldlega lesa úr skrif-
um ráðherrans.
Ráðherrann segir kulda milli for-manns VG og Samfylkingar
hafa haft áhrif á það hvernig rík-
isstjórn var mynduð. Er ráðherrann
að gefa skilaboð um að for-
ystuskipti í VG myndu tryggja
myndun vinstri stjórnar? Það eru
fremur kuldaleg skilaboð til Sjálf-
stæðisflokks eftir einungis eins árs
samstarf.
Bloggskrif Össurar Skarphéð-inssonar kölluðu á sínum tíma á
einkafund hans og forsætisráð-
herra þar sem sá síðarnefndi kom
athugasemdum sínum á framfæri,
við litlar undirtektir bloggarans að
því er virðist.
Er kannski kominn tími fyrir
annan fund? Og þá kannski líka með
þriðja manni, utanríkisráðherra?
Finnst forsætisráðherra í lagi aðráðherrar samstarfsflokksins
séu sí og æ að gefa til kynna að þeir
geti vel hugsað sér annað samstarf
en það sem þeir eru í? Og eru þessi
skilaboð í þökk formanns Samfylk-
ingar?
STAKSTEINAR
Össur
Skarphéðinsson
Hvað á Össur við?
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
!
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
"
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).?
# $# #
*$BC
! "
#
$
%
$& ' (
$)
*&+
, % *!
$$B *!
%& '
&
(
)
*)
<2
<! <2
<! <2
%(' +
!
, -).
D2E
62
'&&
,) ,%
')
B
&
-
.
'/!
!(
+ *
0 # 1("
+,-
#
'(2
/0 )11
) 2
)
) +
!
Tvímenningar ranglega
sagðir þremenningar
Rangt var farið með skyldleika Jóns
Illugasonar afmælisbarns á fimmtu-
dag og Jóns Stefánssonar kórstjóra.
Þeir voru sagðir þremenningar en
eru í reynd tvímenningar.
Beðist er velvirðingar á þessum
mistökum.
LEIÐRÉTT
Eftir Gunnlaug Árnason
Flatey | Vandkvæði hafa
verið með drykkjarvatn í
Flatey á Breiðafirði, sér-
staklega eftir að gestum í
eynni fjölgaði mikið. Nú
sér fram á bót í þeim mál-
um. Búið er að flytja út í
eyna tanka sem taka um
60.000 lítra og verður
vatnið í þá flutt frá Stykk-
ishólmi með ferjunni
Baldri.
Vatnsdreifikerfi er bú-
ið að vera sameiginlegt
hjá húseigendum í Flatey
í nokkurn tíma. Notast hefur verið við vatn úr brunnum í eynni. Hefur það
verið af skornum skammti og í þurrkatíð hefur orðið vatnslaust og fólk
lent í vandræðum. Síðastliðið sumar var ástandið erfitt. Þá hefur brunna-
vatnið verið lélegt og vatnið oft á tíðum bragðvont. Eftir að hótelrekstur
hófst í Flatey kom meiri þrýstingur á að finna varanlega lausn.
Ferja með reynslu
Eyjaskeggjar hafa leitað lengi að betri úrræðum og nú er lausnin fundin.
Nýja ferjan Baldur var áður siglingum á milli eyja fyrir utan Holland og
hafði það hlutverk m.a. að flytja vatn út í eyjarnar frá meginlandinu. Í
skipinu er öflugur dælubúnaður og stórir tankar undir vatnið.
Að sögn Péturs Ágústssonar hjá Sæferðum vaknaði áhugi húseigenda í
Flatey þegar nýi Baldur hóf siglingar á því að nýta búnaðinn til vatnsflutn-
inga á sama hátt og gert var í Hollandi. Fyrir tæpu ári bauðst 45.000 lítra
tankur og var þá ákveðið að slá til.
„Þessi stóri tankur var fluttur út í Flatey í vor og keyptir voru tveir aðrir
8.000 lítra tankar til viðbótar. Samtals geta þeir geymt 60.000 lítra. Verið
er að leggja lögn frá stóra tankinum að dælustöð fyrir dreifikerfið og svo
aðra frá tanki niður að bryggju til að tengjast við Baldur. Áætlað er að gott
vatn fari að renna frá tankinum í þessum mánuði,“ segir Pétur Ágústsson.
Betri tíð Magnús Jónsson, bóndi í Flatey, við
nýja tankinn. Hann sá um framkvæmdina.
Baldur bragðbætir
vatnið í Flatey
Morgunblaðið/Gunnlaugur
RANNSÓKN efnahagsbrotadeildar ríkislög-
reglustjóra á meintum skattalagabrotum einstak-
linga tengdum Baugi er lokið. Að sögn Helga
Magnúsar Gunnarssonar, saksóknara efnahags-
brota, verður sumarið nýtt til að yfirfara gögnin
og taka ákvörðun um framhaldið. Ef til þess kem-
ur að ákært verði, mun ákæra vera gefin út „ein-
hvern tíma“ í haust.
Skattamálið hefur verið kallað þriðji hluti
Baugsmálsins, sem lauk á fimmtudag. Ljóst er að
mikill þrýstingur er á ríkislögreglustjóra að
ákæra ekki í málinu. Ekki síst í ljósi niðurstöðu
Hæstaréttar en þar er dráttur á rannsókn m.a.
gagnrýndur. Rannsókn Baugsmálsins í heild hef-
ur tekið nærri sex ár.
Í byrjun marsmánaðar úrskurðaði yfirskatta-
nefnd Baugi í hag í einum af þremur liðum sem fé-
lagið skaut til nefndarinnar í kærumáli vegna
álagningar opinberra gjalda frá árunum 1998-
2002. Niðurstaðan þýddi að ríkisskattstjóri þarf að
endurgreiða Baugi 75 milljónir króna.
Einn þáttur í rannsókn efnahagsbrotadeildar
hvað varðar meint skattalagabrot var að bíða
dóms yfirskattanefndar. Óvíst er hvort úrskurð-
urinn hafi áhrif á ákvörðun deildarinnar.
Nokkur styr hefur staðið um rannsókn efna-
hagsbrotadeildarinnar og skemmst er að minnast
þess að í febrúar sl. fékk ríkislögreglustjóri hús-
leitarheimild til að nálgast gögn vegna málsins hjá
ríkisskattstjóra. | andri@mbl.is
Ákvörðun um ákæru tekin í haust
Í HNOTSKURN
»Þrátt fyrir að hinu eiginlega Baugsmálihafi lokið með dómi Hæstaréttar á
fimmtudag er ekki þar með sagt að allir ang-
ar séu afgreiddir.
»Eftir rannsókn skattrannsóknarstjóra ámeintum skattalagabrotum var nið-
urstaðan send efnahagsbrotadeild.
»Í haust kemur í ljós hvort enn ein ákæraná hendur Baugsmönnum verði gefin út.
VEÐUR
SIGMUND
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
BLOG.IS
MUN meira verður malbikað í borg-
inni í sumar en undanfarin ár að
sögn Theodórs Guðfinnssonar,
deildarstjóra á framkvæmdasviði
Reykjavíkurborgar. Auknar fjár-
veitingar gera nú mögulegt að fara
betur inn í hverfin en verið hefur en
víða eru gamlar götur enn á sínu
fyrsta slitlagi og endurnýjunin því
brýn.
Hækkun olíuverðs mun draga
töluvert úr svigrúminu en gert er
ráð fyrir að malbikunarvinnan
verði um 30% dýrari en í fyrra.
Fjórir verktakar vinna fyrir
borgina í sumar og má því gera ráð
fyrir malbikunarvinnu á mörgum
stöðum í borginni í einu þegar vel
viðrar. Drafnarfell mun sjá um
fræsingar samkvæmt útboði og
Bergsteinn, Loftorka og Höfði um
malbikun. Einn verktaki hóf mal-
bikunarvinnu í þessari viku en
vinnan verður komin á fullt í næstu
viku. | jmv@mbl.is
Mikið mal-
bikað í sumar