Morgunblaðið - 07.06.2008, Qupperneq 52
52 LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Ásgeir H Ingólfsson
asgeirhi@mbl.is
CAOZ hf. hefur undanfarin fjögur ár unnið
að tölvugerðri teiknimynd um þrumuguðinn
Þór og skrifuðu nýlega undir meðfram-
leiðslusamning við þýska fyrirtækið Ulysses
Films GmbH og Magma Productions Ltd. á
Írlandi. Samningurinn er að andvirði um 400
milljóna íslenskra króna og var gengið frá
honum á kvikmyndahátíðinni í Cannes, nú
nýverið. Um er að ræða 36% af væntanlegum
kostnaði við myndina sem áætlaður er 1,1
milljarður króna.
Myndin ber titilinn Þór – í Heljargreipum
og er væntanleg í bíó hérlendis um jólin
2010. Í myndinni segir frá því hvernig leiðir
Þórs og hamarsins hans, Mjölnis, liggja sam-
an, baráttu þeirra við jötna og ill öfl sem
vilja komast til valda í heimi guðanna. Þór
stendur að lokum frammi fyrir því að þurfa
að velja á milli þess að bjarga ríki Óðins, föð-
ur síns eða bjarga lífi vinar. Handritshöf-
undur er Friðrik Erlingsson og Gunnar
Karlsson verður annar leikstjóra ásamt því
að vera aðalhönnuður útlits og karaktera.
Hilmar Sigurðsson hjá Caoz sagði vinnu
við að finna raddir fyrir myndina vera í full-
um gangi og þótt ekki væri tímabært að
nefna nein nöfn fullyrðir hann að um verði að
ræða spennandi raddir, bæði í íslensku og al-
þjóðlegu útgáfunni. „Við vinnum hana á ís-
lensku líka, við gleymum ekki upprunanum,
enda að fara með sagnaarfinn.“ Þeir eru þó
ekki einir um að vinna með Þór þessi miss-
erin, teiknisögufyrirtækið Marvel hefur lengi
gefið út teiknisögur með jötnaskelfinum og
er nú að vinna að leikinni mynd í fullri lengd
sem er væntanleg skömmu eftir Þór þeirra
Caoz-liða.
„Við höldum bara okkar striki, við erum
búnir að vinna með þetta í átta hundruð ár
hér á Íslandi og höfum því gott forskot,“ seg-
ir Hilmar en bætir við að myndirnar séu
gjörólíkar – þetta sé sitt hvor Þórinn. Þeir
séu að segja sögur byggðar á Snorra-Eddu
og goðafræðinni á meðan Marvel-menn hafa
sinn Þór sem hefur blandast saman við
þeirra bandaríska ofurhetjuheim.
Caoz-menn munu þó spinna upp nýja sögu,
en sögu sem stendur föstum fótum í gömlu
sögunum og gamlir kunningjar eins og Út-
garða-Loki, Óðinn, Freyja og Loki koma við
sögu sem og mannabarn að nafni Edda sem
er frumsamin persóna. Og það eru fleiri sög-
ur tilbúnar. „Við sjáum alveg fyrir okkur að
Þór gæti orðið fjögurra mynda röð ef vel
gengur, það eru strax komnar hugmyndir að
Þór 2-4.“
Þá má einnig geta þess að Caoz eru með-
framleiðendur að ungverskri teikniútgáfu af
Egils sögu Skallagrímssonar sem væntanleg
er í kvikmyndahús vorið 2010, þannig að það
er ljóst að bíóin verða stútfull af norrænum
sagnaarfi það árið.
Þór í heljargreipum fjárfesta
Hamarskast Veggspjaldið af myndinni er
tilbúið og lofar frumsýningu jólin 2010.
CAOZ gerði 400 millj-
óna samning í Cannes
Heildarkostnður
myndarinnar
1.1 milljarður
/ KringLunni
Sýnd Í áLFabaKKa Og aKureyri
Forbidden Kingdom er einhver
skemmtilegasta og óvæntasta
ævintýramynd sumarsins og ætti aðgleðja alla
enda húmorinn skammt undan þar sem Jackie Chan er.
Jackie Chan og Jet Li
eru loksins mættir
í sömu mynd þar sem
snilli þeirra
í bardagaatriðum
sést glöggt.
Nú er spurning
hvor er betri!?
Frá höfundum MATRIX
kemur einhver hraðasta mynd síðari ára.
Ótrúlegar tæknibrellur sem ættu að
heilla alla í fjölskyldunni, unga sem aldna.
SKYLDUÁHORF FYRIR ALLA
SEM HAFA GAMAN AF HRAÐA, BÍLUM OG TÆKNI.
Sýnd Í áLFabaKKa, KringLunni, aKureyri, KeFLaVÍK Og SeLFOSSi
tiLneFnd tiL
gOLden gLObe
VerðLauna
bóKin er Í eFSta Sæti
metSöLuLiSta
máLS Og menningar.
ÁLFABAKKI
„ áStin á tÍmum KóLerunnar“
Stórvirki
óskarsverðlaumahafans
Gabriel Garcia Marquez
Sýnd Í áLFabaKKa Sýnd Í KeFLaVÍK Sýnd á aKureyriSýnd Í áLFabaKKa Og SeLFOSSi
speed racer kl. 2D - 5D - 8 - 10:50 LEYFÐ Digital
speed racer kl. 2 - 5 lúxus ViP
indiana jones 4 kl. 3 - 5:30 - 8D - 10:40D B.i. 12 ára
indiana jones 4 kl. 8 - 10:40 lúxus ViP
Love in the time of choLera kl. 5:30 - 8:15 B.i. 7 ára
sparbíó 550 kr á allar sýningar merktar með appelsínugulu í saMb
/ áLFabaKKa
Sýnd Í áLFabaKKa
eeee
- V.J.V.,
Topp5.is/FBL
eee
roLLinG stone
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
eeee
„Orðið augnakonfekt er of væg lýsing,
þessi mynd er sjónræn snilld!
Ég fílaði hana í tætlur!”
Tommi - Kvikmyndir.is
forBidden KinGdom kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:30 B.i.12 ára
never BacK down kl. 10:40 B.i.14 ára
iron man kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:30 B.i.12 ára
nim's isLand kl. 3 B.i.12 ára
speed racer kl. 2D -5D - 8D - 10:50D LEYFÐ Digital
seX & the city kl. 2 - 5 - 8 - 10:50 B.i. 14 ára
indiana jones 4 kl. 1:30 - 4 - 6:30 - 9 B.i. 12 ára