Skessuhorn - 08.04.2015, Side 12
12 MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 2015
Símatæknin hefur breyst gríðarlega
síðustu árin, ekki síst farsímarn-
ir sem stöðugt taka breytingum og
eru fyrir nokkru orðnar tölvur. Ára-
tugir eru síðan sjálfvirkir símar voru
teknir í notkun í bæjum og sveitum
á Íslandi. Nú er fólk jafnvel hætt að
hafa heimilissíma, lætur farsímana
duga. Þannig er tæknin sífellt að
taka breytingum. Þeim fer fækkandi
símastúlkunum sem unnu á sím-
stöðvunum í landinu fyrir tíma sjálf-
virka símans. Stúlkunum sem gáfu
samband út í sveit eða í símaklefa á
stöðinni og tilkynntu eftir ákveðinn
tíma er leið á samtalið, eitt viðtals-
bil, og stundum urðu svo viðtalsbil-
in fleiri sem símnotandinn greiddi
fyrir að loknu símtalinu. Margrét
Vigfúsdóttir sem lét af starfi stöðv-
arstjóra hjá Íslandspósti í Ólafsvík
um síðustu mánaðamót náði í end-
ann á þessu tímabili. Hún var búin
að starfa hjá Pósti og síma og síðan
Íslandspósti í rúmlega 34 ár og ósk-
aði sjálf eftir að láta af störfum, enda
langt liðið á starfsævina. Margrét
var sveitastelpa í Staðarsveitinni og
uppvöxturinn og ýmislegt fleira bar
á góma þegar blaðamaður Skessu-
horns hitti hana að máli í Ólafsvík
á dögunum.
Ómissandi í
sauðburðinum
Margrét er frá bænum Hlíðar-
holti í Staðarsveit, næstelst fjög-
urra barna þeirra Vigfúsar Þráins
Bjarnasonar og Kristjönu Elísa-
betar Sigurðardóttur. „Ég fædd-
ist reyndar í Böðvarsholti þar sem
foreldrar mínir bjuggu áður en þau
byggðu í Hlíðarholti. Í minning-
unni var alltaf gott veður þegar ég
var lítil og við mikið að leika okkur
úti. Það var tvíbýli, þar sem Gunn-
ar bróðir pabba bjó í Böðvarsholti
og þar voru frændsystkini mín, svo
þetta voru 8-9 börn alls. Ég vann
öll almenn sveitastörf þegar ég var
að alast upp og fékk að vinna að
öllu sem gera þurfti. Ég var mikið
í fjárhúsunum með pabba og hafði
mikinn áhuga á sauðfjárbúskapn-
um, sem bræður mínir höfðu alls
ekki. Ég þekkti allar kindurnar með
nafni meðan þær voru innan við tvö
hundruð. Ég þótti víst alveg ómiss-
andi í fjárhúsunum á sauðburðin-
um og lærði mikið af foreldrum
mínum. Mamma var líka mjög lag-
in við lambærnar og að hjálpa þeim
að bera, enda langaði hana að læra
til ljósmóður þegar hún var ung,
en aðstæður voru ekki þannig að
það gengi upp. Það var allt fært til
bókar og oft var ég eins og ritari
þar sem ég sat á garðabandinu og
skráði niður helstu upplýsingar um
hverja lambá.“
Tíu ára í barnaskóla
Það var ekki verið að setja börn-
in kornung til náms í Staðarsveit-
inni. Margrét var orðin tíu ára þeg-
ar hún byrjaði í barnaskóla. „Ég
var í skóla á Ölkeldu í þrjá vet-
ur. Þórður Gíslason og Margrét
kona hans stóðu fyrir skólanum.
Að loknu barnaskólaprófinu var
ég svo í gagnfræðanámi hjá séra
Þorgrími V. Sigurðssyni á Staðar-
stað og konu hans Áslaugu. Þor-
grímur rak skóla meðfram prests-
starfinu og yfirleitt voru átta til tíu
nemendur í heimavist á Staðarstað
fyrir utan unglingana úr sveitinni
sem voru í skóla hjá honum. Ás-
laug sá um heimilið og búskapinn
að talsverðu leyti og það var ótrú-
legt hvað hún sinnti öllu vel og var
líka góð við okkur krakkana. Það
var einnig símstöð á Staðarstað
og henni þurfti að sinna á viðtals-
tímum fyrri hluta og seinni hluta
dags þannig að æði annasamt var
á prestssetrinu. Í skólanum á Stað-
arstað hjá Þorgrími voru unglingar
sem flosnað höfðu upp úr skólum
annars staðar og sumir frá brotn-
um heimilum. Hjá þeim Þorgrími
og Áslaugu lærðu nemendur ekki
aðeins á bókina heldur líka á vinn-
una og lífið með því að hjálpa til
við heimilis- og bústörfin. Þor-
grímur kenndi unglingum bæði
fyrir landspróf og gagnfræðapróf.
Hann var prófdómari við skólann
í Reykholti og þegar kom að vor-
prófum fórum við með honum í
Reykholt og vorum prófuð þar. Ég
tók gagnfræðanám á þremur vetr-
um og útskrifaðist með gagnfræða-
próf vorið 1965.“
Kynntist ung eigin-
manninum
Margrét var heimavið sumarið eft-
ir gagnfræðaprófið en fór svo að
vinna í Ólafsvík um hausið. „Á þeim
tíma var hér Kaupfélagið Dags-
brún sem rak sláturhús. Á þessum
árum var búið á öllum bæjum í ná-
grannasveitunum og þörf var á að
þjónusta bændurna vel. Ég vann
í sláturhúsinu í septembermán-
uði og fram í október. Þegar slát-
urtíðin var að baki fór ég að vinna
í versluninni Skemmunni þar sem
núna er hótelið. Þar vann ég fram
að áramótum og á þessum tíma
kynntist ég manninum mínum. Ég
var þá enn bara sextán ára en hann
tvítugur. Hann heitir Jón Eggerts-
son, er innfæddur Ólsari, og hef-
ur alla tíð verið vörubílstjóri. Eftir
áramótin fór ég svo suður og fékk
vinnu í versluninni Víði í Starmýri.
Ég fór síðan aftur heim um vorið
en haustið eftir dreif ég mig í Hús-
mæðraskólann á Varmalandi því ég
vildi verða almennileg húsmóðir.
Það var mjög gaman á Varmalandi,
þennan níu mánaða tíma sem við
vorum nánast innilokaðar þar. Við
höldum enn sambandi stelpurnar
sem vorum í Varmalandi þennan
vetur og hittumst reglulega.“
Bú og börn
Það fór að styttast í sveitadvölinni
hjá fyrrum heimasætunni í Hlíð-
arholti í Staðarsveit. Margrét var
heima sumarið eftir námsdvölina á
Varmalandi en í desembermánuði
þetta ár 1967 hófu þau Jón Eggerts-
son búskap í Ólafsvík. Þeim fæddist
síðan fyrsta barnið í júlí sumarið eft-
ir, Kristjana Elísabet sem búsett er á
Sauðárkróki og er skrifstofustjóri hjá
KS. Vilborg fæddist 1972 og er aðal-
bókari hjá Azazo og búsett í Hafnar-
firði. Yngstur er Jón Þór blikksmið-
ur búsettur á Akureyri og starfar hjá
Kælismiðjunni Frost. „Krakkarn-
ir hafa komið sér mjög vel áfram í
lífinu og við erum ákaflega lánsöm
með það. Svo eigum við níu barna-
börn og átta þeirra eru á lífi. Þetta
er fjársjóður sem maður fær aldrei
fullþakkað fyrir,“ segir Margrét. Í
þrjá vetur kenndi hún handavinnu
við Grunnskólann í Ólafsvík. Þá
var Margrét líka bréfberi um tíma
og ráðskona hjá vegavinnuflokki á
Snæfellsnesi sumarið 1982. „Það var
mjög skemmtilegt og þægilegt að ég
gat haft krakkana með mér því Jón
var líka í vegavinnunni,“ segir Mar-
grét. Það var síðan að lokinni mat-
seldinni hjá vegavinnuflokknum
sem hún fór að vinna á símstöðinni
í Ólafsvík í nóvembermánuði 1982.
Margrét varð síðan stöðvarstjóri 1.
janúar 1994.
Veðbókarvottorðin
komu í símskeytum
Þegar Margét byrjaði á símstöðinni
var síma- og póstþjónustan í land-
inu sama fyrirtækið, Póstur & sími.
Breytingin varð mikil þegar þjónust-
unni var skipt og hún færð í tvö fyr-
irtæki, Símann og Íslandspóst. Síma-
þjónustan hefur síðan tekið gríðar-
legum breytingum síðustu árin eins
og þekkt er. Margrét segir að fólk
geti varla ímyndað sér í dag hvernig
vinnan var á símstöðvunum og póst-
húsunum fyrir tíma tölvubyltingar-
innar og allt varð rafrænt. „Þau voru
stundum æði mörg og löng skeyti
yfir daginn og það komu tarnir eins
og til dæmis á fermingardögunum.
Þetta var gríðarlega vandasöm vinna
eins og til dæmis þegar við þurft-
um að vélrita veðbókarvottorð fyr-
ir fyrirtækin í Ólafsvík sem komu frá
sýsluskrifstofunni í Stykkishólmi.
Þá þurfti að vanda sig að allar töl-
ur og öll orð kæmu rétt inn. Þetta
voru kannski upp í 300 orða skeyti
sem við þurftum að vélrita þegar
veðbókarvottorðin voru á ferðinni,“
segir Margrét.
Örtröð þegar áfengis-
sendingarnar komu
Hún segir að það hafi líka verið mik-
il vinna í kringum böggla- og pakka-
sendingar. „Á þessum árum var ekki
komin áfengisverslun hér í Ólafs-
vík. Yfir vertíðina að vetrinum voru
oft æðimargar áfengissendingar sem
komu til okkar. Sendingarnar komu
með sérleyfisbílum Helga Péturs-
sonar og oft kom mikið áfengi með
bílunum um hádegisbil á fimmtu-
dögum og föstudögum þegar vetr-
arvertíð stóð sem hæst. Mér er sér-
staklega minnisstæður einn föstu-
dagur þegar var kolsvitlaust veður og
ófærð. Það var náttúrlega landlega
og fyrir dyrum ball í félagsheimlinu
um helgina. Rútunni seinkaði mjög
og margir að bíða eftir að hún kæmi.
Afgreiðslan var sneisafull af fólki og
þegar loka átti pósthúsinu klukkan
fimm var það ekki hægt. Fólk neit-
aði að fara út fyrr en rútan kæmi og
það gæti leyst út kröfuna. Sem betur
fer þurfti ekki að bíða lengi og þá var
aldeilis handagangur í öskjunni.“
Sér eftir gamla tímanum
Margrét segist hafa upplifað mikl-
ar breytingar í starfinu en flestar til
góðs. „Ég sé þó eftir gamla tíman-
um því hann var svo skemmtileg-
ur. Það voru svo margir sérstak-
ir karakterar sem komu á símstöð-
ina. Mér finnst fólkið ekki jafn lit-
ríkt og skemmtilegt og það var.
Núna er eins og margir séu steypt-
ir í sama mótið. En þetta hefur ver-
ið skemmtilegt. Ég er búin að vera
í sambandi við þvílíkt marga og hef
eignast marga góða kunningja og
vini í gegnum starfið. Samstarfs-
fólkið hefur verið frábært og ég hef
líka verið í góðum tengslum við
yfirmennina í höfuðstöðvunum í
Reykjavík. Það er ekkert nema gott
um allt þetta fólk að segja og gagn-
kvæmt traust ríkti,“ segir Margrét.
Spurð um ástæðu þess að hún ákvað
að hætta núna á þessum tíma seg-
ir hún. „Ég hef alltaf hugsað hlut-
ina þannig að ég vil ekki verða elli-
dauð í starfi. Það er betra að hætta
í tíma áður en manni er ýtt út. Mér
fannst þetta vera góður tími að
hætta núna.“
Virk í félagsmálum
Margrét hefur tekið mikinn þátt í
félagsmálum. „Ég gekk í Kvenfé-
lag Ólafsvíkur fyrir 45 árum og hef
tvisvar sinnum verið formaður í fé-
laginu. Kvenfélagið er mjög góður
félagskapur. Þá var ég í bæjarstjórn
Ólafsvíkur á árunum 1987-1994. Ég
hef alltaf haft áhuga á velferð kirkj-
unnar og var í sóknarnefnd á árunum
1995-2009, þar af gjaldkeri í þrettán
ár. Á þeim tíma var kirkjan endur-
bætt bæði að innan og utan. Einnig
var allt umhverfi kirkjugarðsins lag-
fært. Þessa áráttu mína í félagsmál-
um fékk ég frá foreldrum mínum en
þau voru bæði mjög virk í málefnum
sinnar sveitar. Ekki síst kirkjunnar á
Búðum sem var þeirra hugðarefni
síðustu árin. Ég er félagi í Kirkjukór
Ólafsvíkurkirkju, hef verið það frá
1987 og það er mjög skemmtilegur
félagskapur. Við í kórnum erum með
mjög góðan stjórnanda, hana Vero-
niku Osterhammer á Brimilsvöllum.
Undir hennar stjórn höfum við far-
ið í söngferðalög til Færeyja og Bæj-
aralands í Þýskalandi, sem er hennar
heimabyggð. Við erum að fara aft-
ur þangað í september næstkomandi
og höldum þar tvenna tónleika. Allt
þetta félagsvafstur gefur lífinu gildi
og einnig það að maður er að gefa af
sér til samfélagsins.“
Nóg að láta sig hlakka til
Spurð hvað taki svo við segir Mar-
grét að áhugsmálin séu mörg og
það verði nóg að gera. „Núna von-
ast ég til að geta sinnt fjölskyld-
unni ennþá betur. Börnin búa ann-
ars staðar og nú gefst meiri tími til
ferðalaga þar sem ég er ekki bundin
í vinnu lengur. Svo eru það barna-
börnin sem ég get sinnt ennþá bet-
ur núna. Svo hygg ég gott til glóð-
arinnar að taka þátt í mjög öflugu
starfi félags eldri borgar hérna. Ég
hef líka mikinn áhuga fyrir allskon-
ar hannyrðum, svo sem prjónaskap
og bútasaum. Frá 2003 höfum við
ferðast mjög mikið að sumrinu með
hjólhýsi sem við eigum. Við höfum
ferðast í góðum hópi vina og núna
höfum við tækifæri til að hafa þessi
ferðalög lengri. Okkur finnst þetta
æðislegur ferðamáti og gaman að
vera á ferð með góðu og skemmti-
legu fólki. Þannig að það er nóg til
að láta sig hlakka til,“ sagði Margrét
Vigfúsdóttir að endingu.
þá
Upplifað miklar breytingar á símstöðinni í yfir þrjátíu ár
Margrét Vigfúsdóttir hefur látið af starfi stöðvarstjóra Símans í Ólafsvík
Margét Vigfúsdóttir á heimili sínu í Ólafsvík.
Margrét ásamt Bjarni Ólafssyni
stöðvarstjóra þegar hún tók við starf-
inu í lok árs 1982.
Fjölskyldan þegar sonurinn Jón Þór og tengdadóttirin Þóra Guðrún giftu sig.
Aftari röð: Arnar Þór, Vilborg, Kristjana Elísabet og Guðmundur Anton. Fremri röð
Jón, Jón Þór, Þóra Guðrún og Margrét.