Skessuhorn - 20.05.2015, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 21. tbl. 18. árg. 20. maí 2015 - kr. 750 í lausasölu
Fluconazol
ratiopharm
Fæst án lyfseðils
Er þér annt
um hjartað?
Eru bólgur og verkir
að hrjá þig?
Arion
hraðþjónusta
– hafðu það eins og þú vilt
Arion appið • Netbanki • Hraðbankar
Rafræn áskrift
Ný áskriftarleið
Pantaðu núna
Útskriftarfötin
Jakkaföt
Skyrtur
Stakir jakkar
Stakar buxur
Bindi
Slaufur
Skór
Belti
Nýtt
kortatímabil
22. maí
15% AFSLÁTTUR
Nemendur frá Keili, miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs, sóttu sjókajaknámskeið á Breiðafirðinum í síðustu viku. Þeir voru staddir í Stykkishólmi þegar ljósmyndara
Skessuhorns bar að garði. Þá voru nemendur staddir í Maðkavík í Stykkishólmi. Námskeiðið er hluti af átta mánaða löngu leiðsögunámi í ævintýraferðamennsku sem
skólinn hefur boðið upp á í samstarfi við Thompson Rivers háskólann í Kanada. Um er að ræða 60 eininga háskólanám sem fer að hálfu fram hér á landi og hentar það
einkum áhugamönnum um ferðamennsku og útivist við krefjandi aðstæður. Að námi loknu eiga nemendur svo möguleika á að starfa á fjölbreyttum vettvangi í ört
vaxandi heimi ævintýraferðamennskunnar. kgk/ Ljósm. Sumarliði Ásgeirsson.
Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri á
Akranesi hefur ákveðnar skoðanir á
málefnum bæjarins. Hún segir þó að
pólitíkin móti stefnuna og að hennar
starf sé að framfylgja henni. Hún er
hlynnt sameiningu sveitarfélaga og vill
sjá blandaða byggð íbúða og atvinnu-
starfsemi á Sementsreitnum. Henni
finnst vanta meiri sérhæfingu í stjórn-
sýslu- og skipulagsmálum á Akranesi
og hún er hugsi yfir ferðaþjónustunni
á Skaganum. Ítarlegt viðtal við Reg-
ínu má finna á bls. 16-17 þar sem rætt
er við hana um ýmis málefni Akranes-
kaupstaðar, svo sem framtíð Kútters
Sigurfara, ferðaþjónustuna, Sements-
reitinn og margt fleira.
Bæjarstjórinn
í viðtali
Húsasmiðir frá trésmiðjunni Akri
á Akranesi unnu nú í vikunni við
að reisa vandað gróðurhús á lóð
Fjöliðjunnar á Akranesi. „Þetta er
mjög spennandi verkefni sem gef-
ur fólkinu kost á að geta séð eitt-
hvað vaxa úr moldinni og hlúa að
því. Hugsunin er sú að fara hægt
og bítandi út í ýmsa ræktun í þessu
húsi. Ég held að þetta verði mjög
skemmtileg viðbót við allt annað
sem gert er á vegum Fjöliðjunnar.
Þetta verður rúmlega 70 fermetra
hús, trégrind á steyptum sökkli.
Húsið verður svo klætt með gegn-
sæju plasti sem hleypir gegnum sig
sólarljósi. Það verður líka lagður í
það hiti. Þarna verður svo lítið for-
dyri þar sem hægt verður að skola
mold af stígvélum og hjólastól-
um,“ segir Guðmundur Páll Jóns-
son forstöðumaður Fjöliðjunnar.
Það er Akraneskaupstaður sem
kostar framkvæmdina sem hljóðar
upp á 8 til 10 milljónir króna. Hús-
ið á að standa tilbúið nú síðsumars.
Á lóðinni sem það stendur á stóð
fyrir nokkrum árum til að reisa
stækkun við húsakost Fjöliðjunnar.
„Þessi stækkunaráform voru 2007
eða þar um bil. Málið var komið
svo langt að það átti sér stað útboð
en svo bárust engin tilboð í verk-
ið. Það tafðist því að hafist yrði
handa. Síðan kom efnahagshrun-
ið 2008 og þetta verkefni er ekki í
neinum pípum í dag. Hugmyndin
um að reisa þarna gróðurhús hefur
svo þróast í staðinn.“
Á morgun, fimmtudag, verð-
ur opinn dagur hjá Fjöliðjunni
á Akranesi. Það er svokallaður
„Dagur góðra verka.“ Húsið verð-
ur opið frá klukkan 13 – 15 og eru
allir velkomnir.
mþh
Gróðurhús rís við Fjöliðjuna á Akranesi
Smiðir frá Akri framan við gróðurhús Fjöliðjunnar á Akranesi sem þeir unnu við
að reisa á þriðjudag. Frá vinstri: Hafþór Pétursson, Jón Karlsson, Sigurður Sjafnar
Ingólfsson og Björn Guðmundsson.