Skessuhorn - 20.05.2015, Blaðsíða 5
5MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 2015
Opnunartími í sumar
15. maí – 1. september
Alla daga frá 08:00 – 17:00
*Opið mán - lau yfir vetrartíma frá 9-16
Nesvegur 1 • Stykkishólmur • Sími 438 1830 • Nesbrauð ehf
Nýbakað brauð og bakkelsi, súpa, salat og smurðar langlokur.
Velkomin
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
„Hamarsvöllur kemur vel undan
vetri, mjög vel og miklu betur nú
en undanfarin ár,“ sagði Jóhann-
es Ármannsson, framkvæmdastjóri
Golfklúbbs Borgarness og vallar-
stjóri á Hamarsvelli, þegar blaða-
maður Skessuhorns ræddi við
hann í vikunni. Völlurinn var opn-
aður fyrstu helgina í maí og fyrsta
opna mót sumarsins var haldið
síðasta laugardag, 16. maí.
„Við gerðum miklar breyting-
ar á vellinum í vetur. Allar braut-
ir hafa verið breikkaðar og lengdar
með slætti. Karginn er horfinn og
völlurinn orðinn miklu spilavænni.
Boltinn er því sjáanlegur alls stað-
ar svo lengi sem maður er innan
vallar. Það kemur sér mjög vel fyr-
ir okkar kúnnahóp, sem er þessi
hefðbundni kylfingur með 20+ í
forgjöf,“ sagði Jóhannes. „Hingað
koma margir golfarar úr Reykja-
vík og leika einn og einn hring. Á
góðu ári erum við með um það bil
14 þúsund leikna hringi.“
Átak í 310 og 311
Að sögn Jóhannesar hefur iðkend-
um í golfi fjölgað stöðugt frá ári til
árs og fjöldinn í klúbbnum er að
skríða yfir 200 félagsmenn. „Svo
fórum við af stað með átak núna
hér í Borgarbyggð, í póstnúmer-
um 310 og 311. Við bjóðum fólki
að gerast félagsmenn fyrir tiltölu-
lega lágt gjald eða 20 þúsund krón-
ur fyrir einstaklinginn og 30 þús-
und fyrir hjónin, eða svokallað ný-
liðagjald. Það hefur verið tekið vel
í þetta átak hjá okkur. Við erum
jafnframt alltaf að kynna starf-
semina,“ bætir hann við og segir
Hamarsvöll þónokkuð vel þekkt-
an meðal golfara almennt. Þeim
þyki völlurinn bæði skemmtilegur
að leika, í fallegu umhverfi og með
fjölbreyttar brautir, sumar umlukt-
ar skógi og vatnstorfærum.
Fjöldi móta framundan
„Golfklúbbur Borgarness heldur
nokkur opin mót í sumar sem og
fjölda innanfélagsmóta. Enn frem-
ur hefur okkur verið treyst fyrir
að halda Sveitakeppni GSÍ í efstu
deild. Á Hamarsvöll munu þá mæta
sumir af bestu kylfingum landsins
og keppa með sínu liði fyrir hönd
síns félags í þriggja daga keppni.
Sveitakeppnin er með skemmti-
legri keppnisformum. Jafnframt
munum við halda eitt unglingamót
fyrir GSÍ, Íslandbankamótaröð-
in, þar sem rjóminn af hæfileika-
ríkustu yngri kylfingum landsins
keppa. Áhorfendur eru að sjálf-
sögðu velkomnir á báða þessa við-
burði,“ sagði Jóhannes.
Aðspurður hvort þurrkur und-
anfarinna vikna hafi ekki komið
illa við Golfklúbb Borgarness segir
Jóhannes svo ekki vera. „Þurrkur-
inn gaf okkur tækifæri til að vinna
í vellinum, hann hefur því ekkert
aftrað okkur. Það er búið að vinna
mjög mikið í flötunum í allt vor,
„toppdressa“ þær tvisvar og valta
þær allar. Þetta hefur mikið til
verið gert í sjálfboðavinnu félags-
manna. Það er mikill hugur í þeim
og vinnuframlag þeirra ómetan-
legt. Ég get því lofað því að völl-
urinn verður í toppstandi í sumar.
Jafnframt er fínna slitlagið kom-
ið á veginn að Hamri sem og nýju
bílastæðin, en bílastæði við skál-
ann, umhverfi vélageymslu og æf-
ingasvæðis hafa fengið nýtt mal-
arþrifalag“ sagði Jóhannes að lok-
um.
kgk
Miklar breytingar hafa verið gerðar á
Hamarsvelli fyrir sumarið
Jóhannes Ármannsson, framkvæmdastjóri Golfklúbbs Borgarness og vallarstjóri á Hamarsvelli.