Skessuhorn


Skessuhorn - 20.05.2015, Blaðsíða 15

Skessuhorn - 20.05.2015, Blaðsíða 15
15MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 2015 Borgfirðingar minnast Jónasar Árna- sonar (1923-1998), kennarans, skálds- ins og alþingismannsins með kvöld- stund í Logalandi á afmælisdegi hans, fimmtudaginn 28. maí næstkomandi klukkan 21. Þar verður litið yfir farinn veg hans og þeirra hjóna beggja, Jón- asar og Guðrúnar (1923-1997), en þau bjuggu lengi í Reykholtsdal. Minning Jónasar Árnasonar hlýt- ur fyrst og fremst að litast af því hve marga strengi mannlífsins hann snerti og hve samstíga þau hjón voru í öll- um verkefnum, sem fyrir þau lögð- ust. Í Reykholtsdal er Jónasar fyrst og fremst minnst sem kennara við Hér- aðsskólann í Reykholti, rithöfundar, alþingismanns og máttarstólpa í leik- starfi Ungmennafélags Reykdæla og bæði áttu þau Guðrún litríka og gef- andi samleið með sveitungum sínum. Til þess að kvöldstundin verði sem ánægjulegust hafa Snorrastofa, Ung- mennafélag Reykdæla og Tónlistarfé- lag Borgarfjarðar sameinað krafta sína og kennir margra grasa í dagskránni. Fyrst ber að geta Forseta Íslands, herra Ólafs Ragnars Grímssonar, sem flytur ávarp og hugleiðingar um Jón- as Árnason. Þá munu börn Jónasar bregða ljósi á uppvaxtarár og heimilis- líf í foreldrahúsum og Árni Páll Árna- son, þingmaður og formaður Samfylk- ingarinnar, minnist Jónasar með ávarpi sem hann kallar Stóri maðurinn Jónas Árnason frá sjónarhóli barns. Þá verð- ur að sjálfsögðu flutt tónlist við texta Jónasar Árnasonar en hún verður í höndum Gunnars Ringsted tónlistar- manns í Borgarnesi og félaga hans. Þar á meðal mun barnabarn þeirra hjóna stíga á stokk og gleðja áheyrendur. Ungmennafélag Reykdæla, sem minn- ist margra góðra stunda með Jónasi í leikstarfi, býður fram félagsheimili sitt og sér um veitingar í kaffihléi. Þær kosta kr. 500. Dagskrárstjóri verður sr. Geir Waage. Snorrastofu er heiður að því að bjóða til slíkrar stundar í svo gefandi samstarfi og hlakkar til líflegs vorkvölds í Reykholtsdal undir merkj- um menningar og mannlífs, sem alla tíð einkenndu hjónin á Kópareykjum. -fréttatilkynning Vorkvöld í Reykholtsdal í minningu Jónasar og Guðrúnar Jónas og Guðrún. Sjómannadagsblað Skessuhorns kemur út miðvikudaginn 3. júní Auglýsingapantanir í blaðið þurfa að berast fyrir 27. maí í síma 433-5500 eða á netfangið emilia@skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.