Skessuhorn


Skessuhorn - 20.05.2015, Blaðsíða 9

Skessuhorn - 20.05.2015, Blaðsíða 9
9MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 2015 Alvarleg staða er komin upp hjá Slökkviliði Snæfellsbæjar vegna deilna um tryggingamál. Slökkvi- liðsmenn funduðu í síðustu viku í Ólafsvík vegna uppsagnar Svans Tómassonar slökkviliðsstjóra. Sögðu slökkviliðsmenn í samtali við fréttaritara Skessuhorns að verði slökkviliðsstjórinn ekki end- urráðinn, áður en uppsagnafrestur þeirra rennur út, munu þeir allir sem einn hætta þótt samningar ná- ist í deilu þeirra um tryggingamál við Snæfellsbæ. Segja þeir einnig að þessi uppsögn slökkviliðsstjór- ans hafi tekið hjartað úr liðinu. Segja þeir að stífni gæti í samskipt- um við bæjaryfirvöld og að ekki hafi verið fundað með þeim. Eins og staðan blasi við þeim nú verði ekkert starfandi slökkvilið í Snæ- fellsbæ frá og með 1. ágúst næst- komandi. Eins og fram kom í Skessuhorni í síðustu viku var Sigurður Sveinn Guðmundsson gerður að slökkvi- liðsstjóra tímabundið. Nú hafa fimm liðsmenn hætt störfum af 20 manna slökkviliði. Svanur Tóm- asson fráfarandi slökkviliðsstjóri hafði verið í slökkviliðinu í 30 ár og síðustu tíu ár sem þeirra yfir- maður. „Það er honum að þakka að menn eru vel þjálfaðir í starfi sínu. Svanur hefur náð að byggja upp eitt af bestu slökkviliðum á landinu. Þetta er ófremdarástand,“ sögðu slökkviliðsmennirnir í sam- tali við fréttaritara. „Það eina sem við viljum fá eru betri samningar í sambandi við launatengda slysa- tryggingu. Samkvæmt þeim upp- lýsingum sem við höfum aflað frá tryggingafélögum kostar slík trygging bæjarsjóð rúmar 200 þús- und krónur á ári fyrir allt slökkvi- liðið.“ Málið í farvegi Kristinn Jónasson bæjarstjóri Snæ- fellsbæjar vildi aðspurður, þegar eftir því var leitað, ekki tjá sig um málið að svo stöddu, nú þegar það væri komið inn á borð Landssam- bands slökkviliðs- og sjúkraflutn- ingamanna annars vegar og til Samtaka sveitarfélaga hins vegar. „Það er rétt að gefa þeim tíma til að vinna að lausn málsins,“ sagði Kristinn. Segir brotið á slökkviliðstjóra Sverrir Björn Björnsson, formað- ur Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, segir að klárlega sé verið að brjóta á kjara- samningi slökkviliðsstjórans frá- farandi í Snæfellsbæ. „Það vant- ar allar starfslýsingar og ráðning- arsamninga. Ekki er greitt fyr- ir stjórnendur bakvakta auk þess sem önnur atriði eru til skoðun- ar hjá okkur. Sveitarstjórnin hef- ur ekki samþykkt brunarvarnar- áætlum sveitarfélagsins sem kom inn í lög um brunamál árið 2000. Væri áætlunin í gildi mætti leiða líkum að því að málin væri með öðrum hætti hjá slökkviliði sveit- arfélagsins,“ sagði Sverrir Björn. „Við erum að vinna í samningum við Snæfellsbæ um laun og kjör auk trygginga, en þessi samnings- gerð tekur mun lengri tíma en ég átti von á. Það er erfitt að benda á eitt atriði sem tefur fyrir samn- ingum. Mannvirkjastofnum ber að rannsaka hvað sé um að vera í Snæ- fellsbæ. Það er lagaleg skylda sveit- arfélagsins að halda uppi virkum brunavörnum í sveitarfélaginu,“ sagði Sverrir Björn Björnsson að endingu. af Mikill kurr í slökkviliðsmönnum í Snæfellsbæ Hluti slökkviliðsmanna í Snæfellsbæ á fundi í síðustu viku þar sem rætt var um þá stöðu sem komin er upp hjá slökkviliðinu. Iðjuþjálfunarfræði BS Hjúkrunarfræði BS Sjávarútvegsfræði BS Náttúru- og auðlindafræði diplóma Viðskiptafræði BS Félagsvísindi BA Fjölmiðlafræði BA Kennarafræði, leik- og grunnskólastig BEd Diplómanám í leikskólafræðum Nútímafræði BA Sálfræði BA Ingibjörg Smáradóttir, sími 460 8036 netfang: ingibs@unak.is að kynna sér hvernig fyrirkomulag er í því námi sem þeir hyggjast innrita sig í. Umsóknarfrestur til 5. júní Heiða Kristín Jónsdóttir, sími 460 8039 netfang: heida@unak.is Fyrirspurnir um kennaranám: Torfhildur S. Þorgeirsdóttir, sími 460 8042 netfang: torfhild@unak.is Ása Guðmundardóttir, sími 460 8037 netfang: asa@unak.is Upplýsingar um námið veitir Upplýsingar um námið veita Upplýsingar um námið veitir Fjarnám VIÐ HÁSKÓLANN Á AKUREYRI unak.is

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.