Skessuhorn


Skessuhorn - 20.05.2015, Qupperneq 10

Skessuhorn - 20.05.2015, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 2015 Síðastliðinn fimmtudag útnefndi bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar Ge- org Breiðfjörð Ólafsson heiðurs- borgara Stykkishólmsbæjar. Fyr- ir á Stykkishólmur tvo heiðurs- borgara, þau Elínu Sigurðardótt- ur ljósmóður og Ágúst Bjartmars fv. oddvita og byggingameistara. Georg Breiðfjörð er elstur núlif- andi karlmanna hér á landi og sá íslenski karlmaður sem náð hefur hæstum aldri. Hann er fæddur 26. mars 1909 í Akureyjum á Skarðs- strönd þar sem hann ólst upp. Ge- org hefur átt heima í Stykkishólmi í 88 ár. Eiginkona hans var Þorbjörg E. Júlíusdóttir, fædd í Bjarneyjum á Breiðafirði 25. apríl 1916, látin 5. janúar 1984, húsfreyja og sauma- kona í Stykkishólmi. Þorbjörg var alin upp í Bjarneyjum fram á átt- unda aldursár en eftir það á Geir- mundarstöðum í Skarðshreppi. Georg og Þorbjörg eignuðust þrjá syni; Gylfa, Júlíus Braga og Ágúst Ólaf. Hann á fjögur barnabörn og tvö barnabarnabörn. „Það er mat okkar að Georg Þung umferð bíla var um Hvalfjörð alla helgina meðan göngin undir fjörðinn voru lokuð vegna malbik- unar. „Þetta er búið að vera eins og góð helgi um hásumar. Salan er þó svolítið öðruvísi þegar það er svona umferð eins og nú er. Við seljum meira af pylsum og slíkum skyndi- mat. Það er eins og fólk sé meira að flýta sér að aka fyrir fjörðinn og megi ekki vera að því að kaupa sér eitthvað sem tekur tíma að laga svo sem hamborgara og meðlæti. En inn á milli sjáum við svo líka sallaró- legt fólk sem sest niður og slakar á. Það eru meira svona fastakúnnarnir sem gera það. Fólkið sem við sjáum alla jafnan á sumrin, þau sem eru að fara fyrir fjörð til að nóta ferðalags- ins,“ sagði Kristján Karl Kristjáns- son veitingamaður í Ferstikluskála þegar blaðamaður Skessuhorns leit þar við síðdegis á sunnudaginn. Öll umferð um Hvalfjörð gekk slysalaust fyrir sig. Kristján sagði að þrátt fyrir annir væri búið að ganga mjög vel hjá þeim í Ferstik- luskála um helgina. „Við erum búin að vera mjög vel mönnuð og und- irbúin. Það var nóg til af öllu nema ég sé að lítil kók í gleri er við það að klárast núna í lok helgarinnar. Hún er mikið að sækja í sig veðrið núna, af hverju veit ég ekki,“ sagði hann og hló við. „Það er búin að vera geysimikil umferð alla helgina og mjög mikið núna seinnipartinn. Við sjáum að menn keyra oft fyr- ir fjörð nánast í bílalestum. Slíkir stoppa illa hér. Það er eins og fólk veigri sér við að fara úr lestinni. En við erum mjög sátt.“ mþh Þetta eru stúlkurnar sem stóðu vaktina í Ferstikluskála um helgina. Frá vinstri: Heiður Ásgeirsdóttir, Adda Malín Vilhjálmsdóttir, Hrönn Eyjólfsdóttir og Sigríður Elín Sigurðardóttir. Geysimikil bílaumferð um Hvalfjörð meðan göngin voru lokuð um helgina Bílaumferð við hvalstöðina í Hvalfirði síðdegis á sunnudag. Svona þétt umferð er sjaldséð sjón í Hvalfirði eftir að göngin voru opnuð. Kristján Karl Kristjánsson vert í Fer- stikluskála. Georg Breiðfjörð sæmdur heiðursborgaranafnbót Stykkishólmsbæjar Breiðfjörð Ólafsson verðskuldi nafnbótina heiðursborgari Stykk- ishólmsbæjar,“ sagði Sturla Böðv- arsson bæjarstjóri þegar Georg var afhent heiðursskjalið á fimmtudag- inn. Vitnaði hann þar í samþykkt bæjarstjórnar sem hann, Hafdís Bjarnadóttir og Lárus Á Hannes- son rituðu undir fyrir hönd bæj- arstjórnar. Í ávarpi sem Sturla flutti við þetta tilefni sagði hann m.a.: „Georg lauk almennri skóla- göngu á sínum tíma og gekk í far- skóla. Kennari hans var Jóhann- es skáld úr Kötlum. Georg stund- aði almenn sveitastörf, var nokkur ár á vertíð í Grindavík sem land- maður, vann eitt sumar fyrir breska herinn í Hvalfirði en eftir það ein- göngu við smíðar. Hann tók þátt í að byggja mörg einbýlishús í Stykk- ishólmi og vann jafnframt víða um sveitir við að reisa hlöður og útihús fyrir bændur. Georg starfaði við skipasmíðar um áratugi, bæði við viðgerðir og nýsmíði. Starfsferilinn endaði hann í skipasmíðastöðinni Skipavík árið 1984. Georg var eft- irsóttur til vinnu, fyrir vandvirkni, handlagni og útsjónarsemi.“ Georg vann alla tíð langan vinnu- dag, eins og aðrir í hans stöðu, en segist hafa gætt þess að vinna jafnt eða stöðugt og vinna sér létt án þess þó að vera að svíkjast neitt um. Þetta fjallaði fyrst og fremst um vinnulag og skipulag. Ýmsir vinnu- félagar Georgs hafa haft það á orði að hann hafi hjálpað þeim og leið- beint á fyrstu árum þeirra í slippn- um og þóst heppnir að hafa unnið með honum, á það einnig við um suma verkstjóra. Lifði hefðbundnu lífi alþýðumanns Sturla sagði einnig í ávarpi sínu: „Meðal áhugamála Georgs voru spilamennska, einkum lomber og vist, en á yngri árum lék hann á munnhörpu. Georg var mikill fjöl- skyldumaður og vann við að búa fjölskyldunni í haginn í frítíma sín- um, halda við húsi sínu, salta fisk og kjöt í tunnur, hengja upp grá- sleppu, ýsu, steinbít og lúðu, svíða hausa, búa til hnoðmör, smíða leik- föng fyrir synina og fleira og fleira. Þegar Georg var á vertíð í Grinda- vík tók hann hárklippur sínar með sér og klippti vinnufélaga sína og aðra sem þess óskuðu. Georg hélt áfram að klippa eftir að hann flutti í Hólminn og var með fastakúnna, bæði úr bæjarfélaginu og einnig úr sveitinni. Aldrei tók hann neitt fyr- ir þetta og viðskiptavinunum boð- ið upp á kaffi og meðlæti að lokinni klippingu. Samkvæmt upplýsingum frá fjölskyldu Georgs hefur hann lif- að hefðbundnu lífi alþýðufólks og borðað þennan hefðbundna íslenska mat, saltaðan, súran og reyktan, fremur lítið af grænmeti nema kart- öflur og eitthvað af gulrófum og svolítið af káli. Fiskur var oft á boð- stólum (mörgum sinnum í viku) og stundum selur, sjófugl og egg.“ Langlífi í ætt Georgs Móðir Georgs var Ágústa Sigurðar- dóttir, fædd 2. ágúst 1884 að Ball- ará í Skarðshreppi, látin 9. janú- ar 1972 i Stykkishólmi. Húsfreyja í Akureyjum, Ögri við Stykkishólm og í Stykkishólmi. Faðir Georgs og eiginmaður Ágústu var Ólaf- ur Magnús Sturlaugsson, fæddur í Ytri-Fagradal á Skarðsströnd 15. mars 1885, látinn 25. október 1958 í Stykkishólmi. Bóndi í Akureyjum og Ögri en eftir það ullarmatsmað- ur í Stykkishólmi með meiru. Fjöl- skyldan flutti frá Akureyjum í Ögur 1927 og í Stykkishólm 1940. Lang- lífi hefur verið í ætt Georgs Breið- fjörð. Báðar ömmur Georgs urðu 95 ára. Móðuramman lést 1938 og hefur þetta verið mjög hár aldur á þeim tíma. „Svo sem að framan er getið hefur Georg verið sómakær bæjarbúi sem hefur verið öflugur þáttandi í daglegu lífi og verið einn af þeim máttarstólpum samfélags- ins sem ganga hljóðlátir til vinnu sinnar hvern dag og tryggja þannig að samfélagið blómstri. Eins og að framan er getið varð Georg Breið- fjörð Ólafsson 106 ára gamall 26. mars síðastliðinn. Einn íbúi Stykk- ishólmsbæjar hefur áður náð þeim aldri en það var María Andrésdóttir sem var kjörin heiðursborgari 1959. Þegar María féll frá 3.september 1965 var hún 106 ára og 43 daga gömul. Í dag er Georg Breiðfjörð Ólafsson því sá íbúi í Stykkishólmi sem lengst hefur lifað,“ sagði Sturla Böðvarsson mm/ Ljósm. Eyþór Ben. Georg og synir hans. Frá vinstri: Gylfi, Georg, Júlíus og Ágúst Georg Breiðfjörð Ólafsson með skjal til vitnis um heiðursborgaranafnbótina. Bæjarfulltrúarnir Sigurður Páll Jónsson, Hafdís Bjarnadóttir, Sturla Böðvarsson, Lárus Ástmar Hannesson og Helga Guðmundsdóttir ásamt Georg Breiðfjörð Ólafssyni.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.