Skessuhorn - 20.05.2015, Síða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 2015
„Þetta var allt saman mjög
óvænt,“ sagði Þóra Birna Ásgeirs-
dóttir mannauðsstjóri hjá Elkem
aðspurð um tilkomu þess að aug-
lýsing fyrir Toyota var tekin upp
í verksmiðjunni í síðustu viku.
„Hingað kom bara maður einn
daginn frá kvikmyndafyrirtæk-
inu og bað um að fá vettvangs-
skoðun og að fá að taka myndir.
Forstjórinn tók vel í þetta, leyfði
manninum að koma skömmu síð-
ar og skoða sig um. Hann bar
þetta undir menn frá Toyota. Þeir
voru sáttir við umhverfið, höfðu
samband aftur og kíktu í heim-
sókn. Aðdragandinn er ekki nema
svona tvær vikur í heildina,“ bæt-
ir hún við. Síðastliðinn miðviku-
dag var svo ellefu manna hópur
kvikmyndatökumanna og annarra
mættur í Elkem og vann að tök-
um á auglýsingunni. Hópurinn er
á vegum fyrirtækisins 3Ds og er
auglýsingin liður í herferð sem á
að kynna nýja Hilux-jeppann frá
Toyota á Evrópumarkaði.
„Þessi auglýsing er fyrir internet
eingöngu, hún verður ekki sýnd í
sjónvarpi. Hún er tekin upp með
það í huga að hægt verði að skoða
bílinn í þrívídd á netinu frá öll-
um sjónarhornum og við alls kyns
aðstæður,“ sagði Arnar Knúts-
son framleiðandi þegar blaðamað-
ur Skessuhorns heimsótti hóp-
inn í Elkem á Grundartanga í síð-
ustu viku. Þá var einmitt verið að
taka upp efni fyrir hluta auglýsing-
arinnar í ofnhúsi verksmiðjunn-
ar. „Við vorum í Hvalfirði í gær að
taka bílinn upp í akstri. Hann var
með svaka fínan sportbát á kerru
í eftirdragi. Það á að sýna hvað
hann er stöðugur á vegi þrátt fyrir
að hann dragi eitthvað hlass. Síðan
vorum við í Auðholtshjálegu í Ölf-
usi um daginn. Þar tókum við upp
efni sem á að sýna hve vel bíllinn
nýtist við ýmis landbúnaðarstörf.
Svo komum við hingað og hér er
markmiðið að sýna að bíllinn sé
„töff,“ þetta sé bíll fyrir hörkutól.
Þetta er nefnilega dálítið „röff“
umhverfi, hérna í verksmiðjunni,“
segir Arnar og bætir því við að þau
hafi náð mjög góðu efni í auglýs-
inguna innan veggja Elkem. „Betra
en við hefðum fengið frá færustu
brellumeisturum.“
„Fagmannlega að
öllu staðið“
„Ísland er alltaf valkostur í þess-
um bransa, vegna náttúrunnar og
Elkem er eiginlega bara bónus. Í
handritinu stóð bara „verksmiðja“
þannig að við höfðum dálítið frjáls-
ar hendur með það. Síðan fréttum
við af Elkem, höfðum samband við
stjórnendur og þeir voru til í þetta,
sem er bara frábært,“ sagði Arn-
ar þegar blaðamaður spurði hvers
vegna þessi staður hefði orðið fyrir
valinu. „Hér er fagmannlega að öllu
staðið og fyllsta öryggis gætt. Dag-
urinn byrjaði á fundi þar sem farið
var yfir öryggismálin. Jón Þorgeir
Sigurðsson, liðstjóri á ofni I og II,
fylgir okkur allan tímann og pass-
ar upp á að allt sé eins og það á að
vera, þetta er allt virkilega faglegt,“
bætir Arnar við.
En hefur vera hópsins engin
áhrif á framleiðsluna? „Þeir segja
okkur bara hvar við megum vera
og hvenær og við hlýðum því að
sjálfsögðu,“ segir Arnar og bros-
ir. „Einni deiglu var hellt í neyð-
arútsteypingu fyrir þá í morgun.
Annars hefur framleiðslan allt-
af forgang og hefur ekkert riðlast.
Við pössum meðal annars upp á
það og þau fylgja okkar fyrirmæl-
um,“ sagði Jón Þorgeir. Neyðarút-
steyping er aðferð sem notast er við
þegar deildin sem sér um hreinsun
og útsteypingu málmsins getur ekki
tekið við deiglu. Þá er sú deigla hífð
í krana og hellt úr henni í „sæng-
ina,“ sem er í raun eins og risavax-
ið kökumót. Við það myndast mik-
ill bjarmi og neistaflug. Verðmæti
málms sem steyptur er út með þess-
um hætti er töluvert minna en þess
sem steypt er út með hefðbundnum
hætti en að sögn Þóru Birnu mun
Toyota greiða Elkem allt fram-
leiðslutap sem varð við umrædda
neyðarútsteypingu. „Við náðum
mjög góðu efni þegar þeir helltu
í sængina,“ segir Arnar. „Fengum
þá hugmynd að láta bílinn kannski
stíga upp úr reyknum eftir hell-
inguna, svona eins og hann kæmi
þaðan fullskapaður,“ bætir hann við
og brosir.
Framleiðslan gengur vel
Blaðamaður ræddi að lokum stutt-
lega við Sigurjón Svavarsson, fram-
kvæmdastjóra Öryggis-, heilbrigð-
is- og umhverfismála, um fram-
leiðsluna og hvað væri efst á baugi
hjá fyrirtækinu. Framleiðsluna
sagði hann hafa gengið vel það sem
af er ári, betur en í fyrra og vísaði
þar til rafmagnsskerðinga sem fyr-
irtækið þurfti að glíma við. Skerð-
ingin var tilkomin vegna þess hve
lítið vatn var í uppistöðulónum á
hálendinu og hafði þær afleiðingar
fyrir fyrirtækið að einfaldlega þurfti
að stöðva framleiðslu á tveimur af
þremur ofnum verksmiðjunnar í
lengri tíma. „Það er sem betur fer
ekkert svoleiðis í gangi núna, fram-
leiðslan gengur bara jafnt og þétt,“
sagði Sigurjón. „Síðan erum við
að fara af stað með nokkur verk-
efni sem tengjast öryggi og heilsu
starfsmanna. Meðal annars eitt sem
miðar að því að bæta loftgæðin í
verksmiðjunni,“ bætti hann við að
lokum.
kgk
Skógræktarfélag Borgarfjarðar hef-
ur verið starfandi síðan 1938. Á
þeim 77 starfsárum hefur félagið
staðið að gróðursetningu víðsveg-
ar í skógarreiti sem félagið hefur til
umráða. Þessir skógarrreitir eru t.d.
Daníelslundur, Grafarkot, Gríms-
staðarreitur, Holt og Reykholt. Í
þessa reiti hefur almenningur að-
gang til útivistar en einnig hefur
töluvert verið selt af jólatrjám úr
þessum reitum, oft í samvinnu við
önnur félagasamtök í héraði. Lotan
í jólatrjáarækt eins og hún er stund-
uð á Íslandi er um 15 ár. Það tek-
ur þennan tíma frá gróðursetningu
og þar til tréð er tilbúið til höggs.
Það er því mjög mikilvægt að fé-
lagið gróðursetji árlega í sína reiti
þannig að ekki skapist „gap“ í fram-
leiðslu jólatrjáa. Þetta starf hefur í
gegnum árin verið unnið af sjálf-
boðaliðum en aukin samkeppni um
tíma fólks hefur haft það í för með
sér að erfitt er að ná að framkvæma
það sem þarf.
Nú liggur það fyrir að félagið
mun gróðursetja um 10 þúsund
plöntur á þessu ári í skógrækt-
arsvæði í Reykholti í Reykholts-
dal. Skógræktarfélagið leitar eft-
ir stuðningi/hjálp til að gróður-
setja með félögum í Skógræktarfé-
lagi Borgarfjarðar en áætluð vinnu-
kvöld eru sem hér segir, miðviku-
dagana 27. maí, 3. júní og 10. júní.
Mætt verður í Reykholti við
Höskuldargerði klukkan 19 og
unnið í tvær klukkustundir. Skóg-
ræktarfélagið hefur bakkaplöntur
tilbúnar til gróðursetningar af ýms-
um tegundum svo sem birki, blá-
greni, lerki, sitkagreni, alaskaösp,
ilmreyni og stafafuru. Gróðusetn-
ingarverkfæri verða tiltæk en einnig
væri gott ef fólk á verkfæri að hafa
þau með, gróðursett er með plöntu-
stöfum eða svokölluðum geyspum.
Stjórn Skógræktarfélags Borg-
arfjarðar þakkar gott samstarf í ár-
anna rás við alla héraðsbúa. Það
yrði félaginu mikils virði ef þið sæj-
uð ykkur fært að koma til aðstoðar
eitthvað kvöldið sem fyrirhugað er
að gróðursetja í Reykholtsskógi.
Með bestu kveðjum,
F.h. Skógræktarfélags Borgarfjarðar,
Sigríður Júlía Brynleifsdóttir
Þórður Logi og Kubbur hafa verið virkir þátttakendur í gróðursetningu á vegum
félagsins.
Framundan eru gróðursetningarkvöld
Skógræktarfélags Borgarfjarðar
Ræktarlegur skógur er vaxinn upp ofan við Reykholt. Þessi mynd er nokkurra ára
en mikill trjávöxtur hefur verið síðari árin.
Tökumenn skoða afraksturinn.
Auglýsing fyrir Toyota tekin upp í Elkem á Grundartanga
Frá tökum á auglýsingunni í ofnhúsi Elkem.
Frá tökustað, Ofn III í baksýn.