Skessuhorn - 20.05.2015, Síða 21
21MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 2015
Mikill mannfjöldi heimsótti sveita-
markaðinn Ljómalind á Brúartorgi
í Borgarnesi á sunnudaginn. Þar
var fagnað tveggja ára afmæli mark-
aðarins og nýrri staðsetningu hans.
Ýmsar uppákomur voru og boðið
upp á mat, drykk og annan varn-
ing. Meðfylgjandi mynd var tekin
þar sem tvær ungar stúlkur fylgdust
með því af brennandi áhuga þegar
Anna Dröfn Sigurjónsdóttir klippti
angórukanínuna Alla. mþh
O‘Bannion er hljómsveit skipuð fjór-
um ungum Skagamönnum. Það eru
þeir Aðalsteinn Árnason, Bergur
Líndal Guðnason, Bergþór Viðars-
son og Egill Arason. Þeir leika tónlist
sem upp á íslensku hefur verið nefnd
eyðimerkurrokk en er oft kölluð
„stónerrokk“ í daglegu tali. Helstu
áhrifavaldar þeirra í tónlistinni eru
Black Sabbath, Brain Police, Kyuss,
Queens of the Stone Age og alls kyns
gamalt rokk. „Svo hlustum við auðvi-
tað allir á alls konar tónlist en þetta er
svona það sem sameinar okkur,“ seg-
ir Bergþór. En hvaðan kemur nafn-
ið? „O‘Bannion er semsagt karakter-
inn sem Ben Affleck leikur í Dazed
and Confused, þaðan kemur nafnið,“
segir Egill. „En það er ekki endilega
af því að Ben Affleck sé eitthvað sval-
ur í myndinni,“ bætir Aðalsteinn við
en tekur fram að þeir hafi allir miklar
mætur á þeirri kvikmynd og tónlist-
inni sem ómar í henni.
Hljómsveitin er ekki beint ný af
nálinni þrátt fyrir að hafa aðeins
tvisvar komið fram undir þessum
formerkjum. Hún rekur sögu sína
hvorki meira né minna en 13 ár aft-
ur í tímann og hefur á þeim tíma
starfað með mörgum og mislöng-
um hléum undir nafninu Syna. „Við
erum allir æskuvinir og bekkjarbræð-
ur úr Brekkubæjarskóla. Það var ein-
mitt þar sem þetta byrjaði þegar við
ákváðum að stofna hljómsveit fyrir
hæfileikakeppni grunnskólanna árið
2002. Þá vorum við allir 13 ára og
enginn okkar kunni á hljóðfæri. Við
völdum fyrst hvað við vildum spila
á og svo pöntuðum við hljóðfærin,“
segja þeir og brosa. „Við horfðum
mikið á Rokk í Reykjavík á þessum
tíma og lög með hljómsveitum sem
koma fram í henni voru með þeim
fyrstu sem við spiluðum, til dæmis
lögin með Sjálfsfróun og Purrki Pill-
nikk. Síðan höldum við áfram, tök-
um þátt í þessari hæfileikakeppni
nokkrum sinnum og vinnum hana
svo þegar við erum í tíunda bekk,“
segja þeir og vilja reyndar meina að
þeir hafi verið rændir sigrinum árið
áður. „Við komum með frumsamið
lag en svo voru bara einhverjir gaurar
sem mættu og spiluðu Rangur mað-
ur með Sólstrandagæjunum og unnu,
það var glatað,“ segir Aðalsteinn.
Þeir vilja koma á framfæri sérstök-
um þökkum til Skagahljómsveitanna
sálugu Raw Material og Panil. „Þeir
voru fyrirmyndirnar okkar og nokk-
urs konar lærifeður. Þeir leyfðu okk-
ur alltaf að spila með sér á alls konar
tónleikum þó við værum miklu yngri
og enn í grunnskóla,“ segja þeir.
Bærinn lítur ekki á
okkar tónlist sem
menningu
Þegar grunnskólagöngunni lauk og
þeir félagar hófu nám í Fjölbrauta-
skóla Vesturlands lagðist sveit-
in í dvala um nokkurt skeið. „Við
fórum einhvern veginn allir í sitt-
hvora áttina. Egill fór til dæmis á
kaf í dauðarokkið og við hinir fór-
um að gera annað líka,“ segja þeir.
En leiðir þeirra áttu eftir að liggja
saman í tónlistinni. Það var árið
2011 að þeir byrjuðu að æfa saman,
fyrst og fremst upp á gamanið. „Það
kom bara sá tímapunktur að okkur
langaði að byrja að spila saman aft-
ur. Hljómsveitaræfingar voru alltaf
svona vinahittingur, við erum nátt-
úrulega fyrst og fremst bara vinir,“
segir Bergþór. En það gekk illa að
koma hljómsveitinni á skrið. Þeir
æfðu á fjölmörgum stöðum úti í bæ,
í bílskúrum og skúrum hjá foreldr-
um. „Við erum mjög þakklátir for-
eldrum okkar fyrir að leyfa okkur
að æfa en það gat aldrei orðið nema
tímabundið. Þetta varð af einhvern
veginn þannig að við misstum allt-
af húsnæðið þegar við vorum byrj-
aðir að æfa fyrir alvöru og komn-
ir í eitthvað spilaform. Við þurft-
um því reglulega að gera hlé á æf-
ingum og hálfpartinn alltaf að byrja
upp á nýtt,“ segja þeir og vanda
Akraneskaupstað ekki kveðjurnar í
þessu samhengi. „Við leituðum oft-
ar en einu sinni og oftar en þrisvar
til bæjarins og það var aldrei neinn
áhugi. Við hringdum og fengum
meira að segja fundi með fulltrúum
bæjarins en það kom aldrei neitt út
úr því. Sendum fullt af tölvupóstum
en þeim erindum var aldrei svarað,“
segja þeir. „Það er alltaf verið að tala
um að það eigi að standa við bakið á
menningu og listum en svona starf-
semi er einhvern veginn ekki inni
í því. Við erum náttúrulega ekki í
tónlistarskólanum, erum ekki tón-
listarmenntaðir og finnst stundum
eins og það sé aðeins litið niður á
það. Það er frekar glatað,“ segja þeir.
„Við elskum Akranes en við hötum
Akraneskaupstað,“ segir Bergþór.
Jonni Run og Brynja
leigja okkur
„Ég man ég fór einu sinni og hitti
mann þegar ég var að reyna að
redda húsnæði fyrir okkur. Þá var
ég með fjölskylduna með mér, kær-
ustuna og litla strákinn okkar. Sagði
honum að við værum í hljómsveit
og hefðum áhuga á að leigja hús-
næði af bænum. Hann leit á mig og
sagði: „Já, en það verður sko ekkert
hass!“ Ég hló bara,“ segir Bergþór
og skellir upp úr við tilhugsunina.
„Á endanum gáfumst við bara upp
á þessu og redduðum húsnæði sjálf-
ir og borgum okkar leigu, alveg eins
og við hefðum gert hjá bænum. Við
erum búnir að vera hérna í hálft ár
og búnir að halda tónleika á Skag-
anum. Við erum bara mjög ánægð-
ir hérna á Ægisbrautinni og viljum
þakka Jonna Run og Brynju sérstak-
lega fyrir að leigja okkur,“ segja þeir
og kveðjast mjög fegnir að þurfa
ekki lengur að gera hlé á starfsem-
inni vegna húsnæðisskorts.
Tónleikar með
Skálmöld 30. maí
Á næstu mánuðum hyggjast þeir
félagar halda uppteknum hætti, æfa
og semja nýtt efni. „Egill er bara
eins og hraðbanki, hann ælir út úr
sér lögunum,“ segir Bergur en Eg-
ill vill þó ekki taka alveg svo djúpt
í árinni. „Ég sem vissulega lögin
og hef svona ákveðnar hugmynd-
ir um hvert og eitt þegar ég kem
með það á æfingu. Það kemur svo
bara í ljós í æfingaferlinu hvaða
stefnu hvert lag tekur,“ segir hann
og Bergþór nýtir tækifærið og lýs-
ir ánægju sinni með hve fjölbreytt
lögin eru þrátt fyrir að auðvitað
megi fella þau öll undir hatt eyði-
merkurrokksins. Þeir segjast jafn-
framt ánægðir með viðtökurnar
sem þeir hafa fengið enn sem kom-
ið er. „Við höfum ekki fengið nei-
kvæð viðbrögð enn. Það eru bara
vinir okkar sem gefa okkur engin
viðbrögð, mæta stundum á æfing-
ar, hlusta á okkur og svo bara ekk-
ert. Það hvetur okkur aðeins áfram,
ég verð að viðurkenna það,“ segir
Aðalsteinn.
Framundan eru svo tónleikar
með hljómsveitinni Skálmöld í lok
mánaðarins, en óhætt er að segja að
Skálmöld sé ein vinsælasta þunga-
rokkssveit landsins um þessar
mundir. „Þeir verða 30. maí. Þetta
verða tvennir tónleikar á Gaukn-
um í Reykjavík. Þeir fyrri um miðj-
an daginn, fyrir alla aldurshópa og
svo aðrir um kvöldið og miðasal-
an fer fram á tix.is,“ segir Bergur.
„Á tix.is stendur að O‘Bannion frá
Akranesi hiti „upp upp.“ Það þótti
mér skemmtilegt,“ segir Bergþór
og hlær við.
Í sumar hyggjast þeir félagar svo
verja tíma í hljóðveri. „Við stefnum
á hefja upptökur á efninu okkar í
júní. Ætlum að vinna að þeim í ró-
legheitum bara á meðan Bergur og
Bergþór eru í hvalnum,“ segir Eg-
ill. „Það er eitthvað öðruvísi við
þetta núna en áður. Núna finnst
okkur eins og við höfum eitt-
hvað fram að færa sem við höfð-
um kannski ekki áður. Við þekkj-
um vel inn á hvorn annan, erum að
þroskast sem hljómsveit og alltaf
að verða betri og betri,“ bætir hann
við að lokum. kgk
Meistarinn í Grundarfirði lauk
loks upp hleranum á pylsuvagn-
inum í hádeginu föstudaginn 15.
maí. Enda virðist vorið loksins vera
komið með smá hita og rigningu.
Það gladdi gesti og gangandi að
geta nælt sér í einn eða tvo Hen-
rik af matseðli Meistarans eftir vet-
urlanga bið. Þannig var að minnsta
kosti stemningin hjá Hermanni
Geir Þórssyni og Heimi Þór Ás-
geirssyni sem gæddu sér á dýr-
indis kræsingum hjá Baldri Orra
Rafnssyni eiganda Meistarans
skömmu eftir opnun. tfk
Alli kanína klipptur
í Ljómalind
Tóku gleði sína á ný þegar
Meistarinn opnaði hlerann
Eyðimerkurrokkhljómsveitin O´Bannion af Akranesi:
Heldur tónleika með Skálmöld í lok mánaðarins
Bergþór Viðarsson í miðju lagi.
Hljómsveitin O‘Bannion. F.v. Bergþór Viðarsson bassaleikari, Aðalsteinn Árnason
trommuleikari, Egill Arason, gítarleikari og söngvari, og Bergur Líndal Guðnason
gítarleikari.
Drengirnir tóku lagið fyrir blaðamann þegar hann heimsótti þá á Ægisbrautina
um helgina. Hér má sjá Egil Arason, einbeittan á svip.