Skessuhorn - 20.05.2015, Síða 23
23MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 2015
Krossgáta Skessuhorns
Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að spreyta sig á að
leysa. Þeir sem vilja geta sent Skessuhorni lausnarorð/
in á netfangið: krossgata@skessuhorn.is fyrir klukkan
15 á mánudögum. Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvu-
pósti sendi lausnir á Kirkjubraut 56, 300 Akranesi (at-
hugið að póstleggja þarf lausnir í síðasta lagi á föstu-
degi). Dregið verður úr réttum innsendum lausnum
og fær vinningshafinn bókagjöf frá Skessuhorni.
68 lausnir bárust við krossgátu í blaðinu í síðustu
viku. Lausnin var: „Leikföng“. Vinningshafi er: Anna
Hallgrímsdóttir, Hamri í Þverárhlíð, 311 Borgarnesi.
mm
Dingla
Par
Tvíhlj.
Rolla
Kusk
Líka
Kona
Sviptur
Hestur
Röð
Vand-
virkir
Einatt
Yndi
Lang-
amma
Fag
Á fæti
Span
Væta
Taumur
Atorka
Bráðum
Frá
Upp-
tendr-
uð
Gistir
Umbun-
in
Vægð
Upphaf
Morg-
unn
Beð
13
Gleði
Bara
Áhald
15
Borðar
Auðið
Egndi
5 11 18
Skall-
inn
Riðar
Lítinn
bor
Skyld
Dæld
Föggur
17 Læti
Finnur
leið
Duft
Brellur
Sýnis-
bók
Hret
Kona
Ánægð
2
Óreiða
Svall
Veiddi
For-
faðir
Bylta
Kám
Seðill
Dyggur
12 Tölur
Tók
Bardagi
1 Efni
Lest
Laun
Vafstur
Bein
10 Álit
Leðja
Fjöldi
Mjöður
Rétt
14 Berg-
mál
Ögn
3 6
Átta-
viti
Hlotn-
ast
Kvöld
Óttast
Murr
20 Örn
Rödd
Beita
Misk-
unn
Dýpi
Spann
Vær
Kvað
Tónn
Ofnana
Titill
Óhóf
Geisla-
baugur
Gleði-
hljóð
Ekra
8
Lærðu
Rugl
Skinn
Agaður
Afar
Basl
Hár-
kolla
4 Veisla
Grípa
Erta
Rot
Hvílt
Kúgun
Röð
9 19 Fámál
Leyfist
Venja
Slár
16 Erfiði
Taut
7
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19 20
Laugardaginn 25. apríl síðastlið-
inn var áhugavert námskeið hald-
ið í Átthagastofu Snæfellsbæjar. Það
var á vegum Símenntunarmiðstöðv-
arinnar á Vesturlandi. Leiðbeinend-
ur voru þær Ása Hlín Svavarsdóttir
leikkona og Helena Guttormsdóttir
myndlistarmaður.
„Tilgangur námskeiðsins var að
gefa einstaklingum og hópnum
tækifæri til að eiga gæðastundir og
vinna saman að skapandi listræn-
um verkefnum í gegnum skemmti-
lega upplifun í náttúrunni og opna
augu fólks fyrir möguleikum í nær-
umhverfi sínu. Nálgunin fór fram í
gegnum leiklist, túlkun, tjáningu,
myndlist og myndbönd. Hópurinn
skoðaði umhverfi Átthagastofunn-
ar og vann sameiginlega að útilista-
verki við höfnina. Námskeiðið var
afar vel heppnað þrátt fyrir kuldatíð
og lauk með sameiginlegri máltíð,“
segir í tilkynningu frá Símenntunar-
miðstöðinni.
mm
Útilistaverk og gæðastundir á
námskeiði í Átthagastofunni
Umhverfisvaktin við Hvalfjörð
þakkar forsvarsmönnum sameignar-
félagsins Faxaflóahafna kurteislegt
bréf frá 12.5. 2015 með svörum við
spurningum tengdum Silicor Ma-
terials Inc. frá Umhverfisvaktinni
við Hvalfjörð, dags. 28.4.2015.
Spurningar Umhverfisvaktarinn-
ar voru bornar fram vegna einhliða
upplýsinga um starfsemi Silicor Ma-
terials Inc (Silicor). Svör Faxaflóa-
hafna bæta því miður ekki miklu við
fyrri upplýsingar sem flestar hef-
ur mátt lesa áður í fjölmiðlum. Þau
ná ekki að byggja upp nauðsynlegt
traust á Silicor. Iðjuverið er enn sem
fyrr á tilraunastigi og upplýsingar
um stöðu þess sem slíks koma mest
frá því sjálfu sem er að sjálfsögðu
ekki æskilegt.
Umhverfisvaktin hefur ýmislegt
við orðræðu Faxaflóahafna að at-
huga. Lögð er áhersla á að Silicor sé
um það bil mengunarlaust. Flestir
vita að stóriðja er aldrei mengunar-
laus og þetta „um það bil“ lofar ekki
góðu í ljósi sögunnar. Silicor yrði
öflug viðbót við efnamengun, sjón-
mengun, hávaðamengun og ljós-
mengun sem nú þegar fylgir stóriðj-
unni á Grundartanga og myndi hafa
ófyrirséð samlegðaráhrif með hin-
um iðjuverum þar. Í kjölfarið myndu
lífsgæði fólksins sem hefur hlotn-
ast sú gæfa að búa og ráða lönd-
um í Hvalfirði skerðast á þann hátt
að óbærilegt verður fyrir marga. Í
þessu sambandi er rétt að benda á að
sanngjörn krafa neytenda um upp-
runamerkingar matvæla verður sí-
fellt háværari.
Umhverfisvaktin gerir fleiri at-
hugasemdir við orðræðu Faxaflóa-
hafna, t.d. þá að stóriðja sé réttlæt-
anleg vegna mikillar atvinnusköpun-
ar. Þarna er verið að blanda saman
tveimur ólíkum málefnum. Stóriðja
skaðar náttúru og lífríki. Þess vegna
á ekki undir nokkrum kringumstæð-
um að koma henni fyrir í landbún-
aðarhéraði. Atvinna er annað mál og
mikilvægt, en það er ekki atvinnu-
leysi við Hvalfjörð. Vegna Silicor
þyrfti að flytja starfsmenn tugi kíló-
metra með tilheyrandi losun gróð-
urhúsalofttegunda og jafnvel sækja
þá til útlanda. Einnig þyrfti að flytja
varning til og frá verksmiðjunni á
sjó og landi með ómældri meng-
un. Þessi atriði hafa ekki verið tekin
inn í heildarmyndina, ekki frekar en
versnandi lífsgæði íbúa og landeig-
enda við Hvalfjörð vegna áhrifa frá
Grundartanga.
Enn einn þáttur í orðræðunni er
einhverskonar meðaumkun með
Silicor sem sér hag í að koma til Ís-
lands vegna fríverslunarsamnings
milli Íslands og Kína. Slíkt er ekki
og á ekki að vera áhyggjuefni íbúa
og landeigenda við Hvalfjörð.
Athygli vekur að mengun frá iðju-
verunum á Grundartanga og um-
hverfisvöktun vegna hennar virðist
ekki valda forsvarsmönnum Faxa-
flóahafna áhyggjum. Umhverfis-
vöktun gæti því orðið með svipuðu
sniði og áður: Iðjuverið vaktar sig
sjálft. Niðurstöður vöktunarinnar fá
íbúar að sjá ári síðar og landeigend-
ur á Grundartanga geta alltaf skotið
sér bak við Umhverfisstofnun sem
„ræður þessu öllu.“ Það mun reyn-
ast erfitt að staðfesta efnamengun
frá Silicor vegna nálægðar við aðrar
verksmiðjur. Þar að auki er mengun-
armælingum vegna Grundartanga
haldið í lágmarki og náttúra og líf-
ríki njóta ekki vafans. Enn eru not-
aðar ágiskanir um þol íslensks bú-
fjár á eiturefnum, loftgæðamæling-
ar fara aðeins fram hálft árið, eng-
ar mælingar eru birtar á rauntíma
og viðbragðsáætlun fyrir íbúa vegna
mengunarslysa er ekki til svo nokk-
uð sé nefnt. Fyrir stuttu var upplýst
að Umhverfisstofnun hafði tekið
loftgæðamælinn í Stekkjarási, norð-
vestan við Grundartanga, úr umferð
í vetur til að nota hann vegna Holu-
hrauns! Þetta eru aðeins örfá dæmi
um slaka umhverfisvöktun.
Ýmsir hafa borið lof á Silicor,
einkum þeir sem hafa fjárhagslegra
hagsmuna að gæta og eru þeir þá
líklega fúsir að taka við iðjuverinu í
sína heimabyggð. Umhverfisvaktin
fullyrðir að tilraunaverksmiðja Sili-
cor á ekkert erindi inn í náttúruperl-
una Hvalfjörð. Áhrif iðjuversins yrðu
slæm og óafturkræf. Nú er komið að
því að forsvarsmenn Faxaflóahafna
átti sig á að sameignarfélagið er að-
eins einn af mörgum landeigendum
við Hvalfjörð. Haldi þeir að hlut-
ur Faxaflóahafna sé merkilegri eða
réttmeiri en hlutur annarra er það á
misskilningi byggt.
Heyrst hefur meðal íbúa við
Hvalfjörð að þýðingarlaust sé að
láta í ljós áhyggjur vegna Grundar-
tanga. Ekki verði hlustað á slíkt hjal,
jafnvel gert lítið úr fólki fyrir vikið.
Umhverfisvaktin hvetur fólk til að
skoða vefinn okkar www.umhverf-
isvaktin.is hitta okkur á Fésbók eða
senda póst á umhverfisvaktin@um-
hverfisvaktin.is.
Umhverfisvaktin við Hvalfjörð
berst gegn frekari röskun á náttúru-
perlunni Hvalfirði. Málstaðurinn er
sanngjarn og saman erum við sterk.
Hvalfirði, 17. maí 2015
Umhverfisvaktin við Hvalfjörð
Til forsvarsmanna Faxaflóahafna frá Umhverfisvaktinni við Hvalfjörð
Náttúruperlan Hvalfjörður og Silicor Materials Inc.
Pennagrein