Skessuhorn - 20.05.2015, Page 25
25MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 2015
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
FRUMHERJI HF. – ÞEGAR VEL ER SKOÐAÐ
www.frumherji. is
Stykkishólmur 2015
Bifreiðaskoðun verður hjá Bílaverkstæðinu
Dekk & smur, Nesvegi 5
Fimmtudaginn 28. maí
Föstudaginn 29. maí
Lokað í hádeginu kl. 12.00 – 13.00
Tímapantanir í síma 438 – 1385
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
5
Starfsmaður á garðyrkjustöð
óskast
Starfsmaður á garðyrkjustöð á Klepp-
járnsreykjum í Reykholtsdal óskast.
Leiguhúsnæði í boði á staðnum. Laun
skv. kjarasamingum SGS og Bænda-
samtaka Íslands Upplýsingar í s.
862-1502.
Óskum eftir vinnu
Hjón á besta aldri með 2 börn, 12 og
9 ára, 2 hesta og 1 hund óska eftir
vinnu í sveit eða í ferðaþjónustu.
Við erum heiðaleg, samviskusöm og
reglusöm.Við tölum íslensku, ensku
og spænsku. Allt kemur til greina,
sumar- eða framtíðarstarf. Endilega
hafið samband í síma 866-1418, Lilja.
Nissan Qashqai
Nissan Qashqai 11/14. Ekinn aðeins
2200 km, disel sjálfskiptur, fram-
hjóladrif, ný nagladekk og mikið af
aukabúnaði.Verð. 4.750 þús. Er á
Akranesi, sími 865-7558.
Kittý týndist á Akranesi um miðjan
mars og er sárt saknað. Hún er smá-
vaxin, loðin, hvít og grá. Hún er mjög
gæf og róleg. Var með rauða ól og er
geld og örmerkt. Guðný, s. 848-4646.
Flottur antík skápur
Til sölu þessi flotti antík skápur. Er 170
cm á breidd og 140 cm á hæð. Fæst á
39 þús. Er í síma 696-2334.
Óska eftir íbúð til leigu
Óska eftir 3-4 herbergja íbúð til
leigu á Akranesi sem fyrst. Öruggum
greiðslum heitið, ekkert mál að fá
meðmæli. Leyfi fyrir gæludýr er
kostur. sigurrosa@hotmail.com.
Leita að leiguhúsnæði
Óska eftir 2-3 herbergja langtíma-
leiguhúsnæði ásamt geymslu á
Akranesi frá 1. janúar 2016. Öruggum
greiðslum og góðri umgengi
heitið. Hef meðmæli. Upplýsingar á
spalmadottir1@gmail.com eða í síma
867-2971.
Herbergi óskast á Snæfellsnesi
Ég heiti Anne og kem frá Frakklandi.
Er að leita herbergi eða íbúð á Snæ-
fellsnesi (Hellissandi, Rifi, Ólafsvík eða
Stykkishólmi).
Sími: 666-6813, Anne.
Lítil fjölskylda óskar eftir einbýlis-
húsi eða heilsárshúsi til leigu
Lítil fjölskylda óskar eftir einbýlishúsi
eða heilsárshúsi til leigu í Borgar-
nesi eða í dreifbýli Borgarness. Erum
alveg eins opin fyrir staðsetningu frá
Hvalfirði að Snæfellsnesi. Mjög góð
meðmæli frá fyrri leigjanda og höfum
við öruggar tekjur. Vinsamlegast hafið
samband við Guðmund eða Kolbrúnu
í síma 555-8888 eða 662-5320.
Atvinnuhúsnæði
Er að leita eftir atvinnuhúsnæði frá
70 fm og upp úr, skoða allt. Sími
699-1343.
Óskum eftir íbúð
Ungt par með 4 ára stelpu. Óskum
eftir 3-4 herbergja íbúð í Borgarnesi
í kringum ágúst-september. Erum
reglusöm, róleg og reyklaus, skilvísum
greiðslum heitið. Getum fengið með-
mæli frá fyrri leigusala. Greiðslugeta
er 140.000 á mánuði. 618-7879,
Hrund og 690-3624, Þóroddur.
Óska eftir Ferozu
Er að leita mér að Ferozu, óryðgaðri
en má þarfnast lagfæringa, fyrir lítið
eða skipti á torfæruhjóli. Upplýsingar
í síma 696-2334 eða á ispostur@
yahoo.com.
Viltu losna við bjúg, sykurþörf og
léttast líka?
Þá er Oolong- og Pu-erh teið eitt það
albesta. Pakki með 100 tepokum
er á 4.300. Ef keyptir eru 2 pk. er
verðið 7.800. Sykurþörfin minnkar
og hverfur oftast eftir stuttan tíma
og bjúgurinn fer mjög fljótt. Gott
fyrir líkamlega og andlega heilsu. S:
845-5715, Nína.
Herbalife, skjót og góð þjónusta
Afgreiði pantanir samdægurs. Engin
bið. Er oftast með allar næringarvör-
urnar á lager. Gott verð og þjónusta.
Sendi um allt land. Greiði burðar-
gjaldið ef pantað er fyrir 12.000 kr.
eða meira í einu. S: 845-5715, Nína.
Dreymir þig um siglingar?
Rúmgóð 37 feta seglskúta, Bavaria 37
Cruiser árg. 2006. Mjög vel útbúin til
úthafs- og strandsiglinga, ma radar,
sjálfstýring og fullkomin siglingatæki.
Lúxus innrétting. Verð 15 milljónir.
Uppl. s. 898-4927.
Borgarnes póstkort
Til sölu eru póstkort með myndum
frá Borgarnesi. Sjá: www.hvitatravel.
is/postcards 12 gerðir í setti, eða
12 stk að eigin vali á 1,000.- kr. Frí
heimsending innanlands. Pantanir og
nánari upplýsingar fást á netfanginu
gullhamrar@hotmail.com eða í síma
661-7173.
Borgarbyggð -
miðvikudagur 20. maí
128. fundur sveitarstjórnar Borg-
arbyggðar í ráðhúsinu að Borgar-
braut 14 í Borgarnesi kl. 16.
Stykkishólmur -
miðvikudagur 20. maí
Skólaslit Tónlistarskóla Stykkis-
hólms í Stykkishólmskirkju kl.
18. Á skólaslitum fá allir nem-
endur námsmat og prófskírteini.
Flutt verða valin tónlistaratriði
úr öllum deildum skólans, ein-
leikur, einsöngur og fjölbreytt
samspilsatriði. Allir nemendur og
foreldrar hvattir til að koma. Aðrir
velunnarar einnig hjartanlega
velkomnir!
Akranes - fimmtudagur 21. maí
Leshringurinn fundar á Bókasafni
Akraness kl. 16:15. Fundur hjá
leshring bókasafnsins og spjallað
um bókina Flekklaus eftir Sól-
veigu Pálsdóttur og tvær forvitni-
legar ljóðabækur. Síðasti fundur
fyrir sumarfrí.
Akranes -
fimmtudagur 21. maí
Skólaslit í Tónbergi kl. 18.
Skólaslit, afhending skýrteina og
vitnisburða. Ætlast er til að allir
nemendur skólans mæti að und-
anskyldum forskólanemendum.
Borgarbyggð -
fimmtudagur 21. maí
Opinn umræðufundur um mál-
efni nýbúa í Hjálmakletti kl. 20.
Hvernig viljum við taka á móti
nýjum íbúum í Borgarbyggð? Við
viljum heyra þína skoðun. Hvað
finnst þér? Hvað er verið að gera
vel? Hvað þarf að gera betur?
Vinnuhópur um stefnumótun í
málefnum nýbúa.
Akranes - laugardagur 23. maí
Kári mætir Einherja í Akraneshöll-
inni kl. 14 í þriðju deild karla í
knattspyrnu.
Hvalfjarðarsveit -
laugardagur 23. maí
Eurovision söngvakeppni á
Laxárbakka. Eurovision hefst í
beinni á tjaldi kl. 19, vinningar í
boði fyrir spáspaka og skemmt-
un fram eftir nóttu! Tilboð í mat
og drykk.
Borgarbyggð -
sunnudagur 24. maí
Hátíðarguðsþjónusta í Borgar-
neskirkju á hvítasunnu kl. 11.
Hátíðarsöngvar Bjarna Þor-
steinssonar fluttir. Organisti
Steinunn Árnadóttir. Prestur sr.
Þorbjörn Hlynur Árnason.
Akranes -
sunnudagur 24. maí
Hátíðarguðsþjónusta á Hvíta-
sunnudag í Akraneskirkju kl. 14.
Prófastur Vesturlandsprófasts-
dæmis, sr. Þorbjörn Hlynur
Árnason setur sr. Þráin Haralds-
son inn í nýtt embætti prests á
Akranesi. Sr. Eðvarð Ingólfsson,
sóknarprestur Akurnesinga,
þjónar einnig í messunni.
Kaffiveitingar í boði sóknar-
nefndar að athöfn lokinni. Allir
velkomnir! Hátíðarguðsþjón-
usta að Höfða kl. 11.30 (Ath.
Breyttan tíma að þessu sinni!).
Borgarbyggð -
mánudagur 25. maí
Hvítasunnumessa á Borgar-
kirkju á Mýrum kl. 14. Organisti
Bjarni Valtýr Guðjónsson. Prest-
ur Þorbjörn Hlynur Árnason.
Akranes -
þriðjudagur 26. maí
ÍA mætir Breiðabliki í úrvals-
deild karla í knattspyrnu á
Jaðarsbökkum kl. 19:15.
Á döfinni
Markaðstorg Vesturlands Nýfæddir Vestlendingar
15. maí. Stúlka. Þyngd 3.170 gr.
Lengd 49 sm. Foreldrar: Svala Ýr
Smáradóttir og Þorsteinn Gíslason,
Akranesi. Ljósmóðir: Lára Dóra
Oddsdóttir / Helga Valgerður
Skúladóttir.
12. maí. Stúlka. Þyngd 4.450 gr.
Lengd 52 sm. Foreldrar: María
Kúld Heimisdóttir og Arnór Ingvi
Hermundarson, Stykkishólmi.
Ljósmóðir: Valgerður Ólafsdóttir /
Helga Valgerður Skúladóttir.
ÓSKAST KEYPT
TIL SÖLU
LEIGUMARKAÐUR
Í tilefni þess að nú eru 100 ár lið-
in frá því að íslenskar konur fengu
kosningarétt verður farið í Píla-
grímagöngu frá Hvammi í Dölum
yfir í Reykholt í Borgarfirði. Fetað
verður í fótspor hinnar kristnu land-
námskonu, Auðar djúpúðgu. Gang-
an sem um ræðir er sex dagleiðir og
verður því farin í nokkrum hlutum.
Fyrsti hlutinn verður farinn laugar-
daginn 30. maí kl. 10 frá Hvammi í
Dölum í Hjarðarholt. Daginn eftir
verður gengið frá Hjarðarholti yfir
í Kvennabrekku. Laugardaginn 13.
júní verður farið frá Kvennabrekku
yfir í Reykjadal og á sunnudeginum
þaðan yfir í Hvamm í Norðurár-
dal. Á mánudeginum 15. júní verð-
ur haldið áfram frá Hvammi yfir í
Norðtungu í Þverárhlíð og að end-
ingu verður gengið frá Norðtungu
yfir í Reykholt þriðjuaginn 16. júní.
Gengin gömul þjóðleið
„Það er bæði spennandi að halda upp
á þessi tímamót, 100 ára kosninga-
afmæli kvenna og tilvalið að minn-
ast kristinna landnámskvenna í leið-
inni. Við byrjum í Hvammi, á land-
námsbæ Auðar djúpúðgu enda er
hennar saga mjög áhugaverð og hún
er sterk fyrirmynd fyrir íslenskar
konur. Svo göngum við yfir í Borg-
arfjörðinn enda leikur þetta sögu-
svið stórt hlutverk á Sturlungaöld.
Það voru miklar samgöngur milli
Dala og Borgarfjarðar og farnar
margar ferðir, þannig að við fetum
þarna gamla slóð,“ segir Elínborg
Sturludóttir prestur í Stafholti. Hún
segir að ekki verði farið eftir Bröttu-
brekku, heldur gengin gömul þjóð-
leið um Sanddal. „Það eru margir
sem þekkja þá fallegu leið og hafa
farið hana ríðandi. Við endum svo í
Reykholti 16. júní. Okkur finnst við
hæfi að klára göngurnar áður en við
fögnum 100 ára kosningaafmælinu,“
bætir Elínborg við.
Andlegt ferðalag
Hún segir að gangan sé pílagríma-
ferð en í þeim sé ekki bara ferðast
frá einum stað til annars, heldur séu
slíkar göngur líka andlegt ferðalag.
Í göngunni verði hugleidd sagan og
arfleifð kristinnar trúar og menn-
ingar og ekki síst áhrif kristinnar
trúar á sjálfsmynd íslenskra kvenna.
„Við ætlum að minnast allra þess-
ara kvenna en auðvitað voru það
bæði karlmenn og konur sem létu
sig þetta kvenfrelsi varða og börðust
fyrir því. Þetta hefði aldrei fengist í
gegn ef ekki hefði verið fyrir karl-
mennina líka. En fyrst og fremst
munum við beina sjónum okkar að
þessari arfleifð. Við notum hana til
að byggja okkur upp. Þarna göng-
um við og hugleiðum frelsisbar-
áttu. Hver einasta manneskja þarf
í lífi sínu að berjast fyrir ákveðnu
frelsi. Öll þráum við frelsi og það er
svo margt sem getur fjötrað okkur,
bæði ytri aðstæður og innri rimlar
sem koma í veg fyrir að við blómstr-
um,“ segir Elínborg. Hún segir að
pílagrímagöngur séu oft notaðar til
uppbyggingar og í þeim takist fólk á
við ýmsar tilvistarspurningar og hlúi
að því sem gerir lífið innihaldsrík-
ara. Í þeim sé kyrrð og fólk fái tóm
til að hugsa og fara inn á við. „All-
ir sem hafa áhuga á arfleifð kristinn-
ar trúar og frelsisbaráttu íslenskra
kvenna eru hjartanlega velkomnir í
gönguna. Hver hluti göngunnar er
11 - 25 kílómetrar og við gerum ráð
fyrir að gengið verði í fjóra til sex
tíma hvern dag. Við leggjum alltaf af
stað klukkan 10 að morgni og erum
því búin um miðjan dag,“ segir Elín-
borg að endingu. Nánari upplýsing-
ar um gönguna er að finna á www.
pilagrimar.is og hjá: elinborg.sturlu-
dottir@kirkjan.is grþ
Pílagrímaganga frá Dölum í Borgarfjörð
Við Krosshólaborg í botni Hvammsfjarðar.
ATVINNA ÓSKAST
ATVINNA Í BOÐI
BÍLAR / VAGNAR / KERRUR
DÝRAHALD
HÚSBÚNAÐUR / HEIMILISTÆKI