Skessuhorn - 20.05.2015, Blaðsíða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 2015
Hvaða útiverk fylgja
vorinu hjá þér?
Spurning
vikunnar
(Spurt á Akranesi)
Bjarki Óskarsson:
„Garðyrkjan og útivera.“
Viktoría Vala Hrafnsdóttir
(Kristrún Sara er með á mynd-
inni):
„Hoppa á trampólíninu, tína
rusl og gróðursetja tréð sem ég
fékk í útskrift á leikskólanum.“
Baldvin Kristjánsson:
„Tiltekt í garðinum.“
Berglind Helgadóttir:
„Hreinsa beðin og gera fellihýs-
ið klárt.“
Steinþóra Þórisdóttir:
„Reyta arfa og klippa trén.“
Víkingur Ólafsvík gerði markalaust
jafntefli við Gróttu Seltjarnarnesi
í öðrum leik fyrstu deildar karla í
knattspyrnu síðastliðinn laugardag.
Leikurinn fór fram á Gróttuvelli.
Víkingar sitja sem stendur í fjórða
sæti deildarinnar með fjögur stig en
þeir unnu sem kunnugt er 1-0 sig-
ur á Haukum í fyrsta leik Íslands-
mótsins.
Næsti leikur liðsins verður gegn
Selfyssingum á Ólafsvíkurvelli
næstkomandi laugardag, 23. maí og
hefst kl. 16. kgk
Lið ÍA mætti Fjölni í fyrsta leik
Borgunarbikars kvenna á Fjöln-
isvelli á mánudagskvöldið. Mar-
en Leósdóttir tryggði liðinu
sigur með eina marki leiksins á
63. mínútu og Skagakonur því
komnar í 16 liða úrslit bikars-
ins. Dregið verður í næstu um-
ferð Borgunarbikarsins fimmtu-
daginn 21. maí og því enn ekki
ljóst hver mótherji Skagakvenna
verða. Leikurinn mun fara fram
annað hvort 5. eða 6. maí. Lágur
meðalaldur ÍA liðsins í leiknum
gegn Fjölni vakti athygli blaða-
manns, en aldursforseti Skaga-
kvenna var hin 22 ára Heiður
Heimisdóttir.
Fyrsti leikur liðsins í deildar-
keppni fyrstu deildar þetta sum-
arið verður svo leikinn eftir
slétta viku þegar þær taka á móti
Augnabliki á Akranesvelli mið-
vikudaginn 27. maí. kgk
Arnór Sigurðsson er ungur knatt-
spyrnumaður sem leikur með öðr-
um flokki ÍA í knattspyrnu og yngri
landsliðum Íslands. Blaðamað-
ur Skessuhorns tók hús á Arnóri á
föstudaginn. Þann sama dag fagn-
aði hann einmitt 16 ára afmæli sínu
og þegar blaðamann bar að garði var
hann einmitt að stíga út úr ökukenn-
arabílnum eftir sinn fyrsta ökutíma.
Hann sagði tímann hafa gengið vel
og ökukennarinn tók undir það. En
það er ekki aðeins í ökutímunum
sem Arnóri gengur vel. Hann þykir
í hópi efnilegustu knattspyrnumanna
landsins og hæfileikar hans hafa vak-
ið athygli út fyrir landsteinana. Hann
fór meðal annars á reynslu til Club
Brugge í Belgíu um mánaðamótin
síðustu. „Ég fór út 27. apríl og var í
viku,“ sagði Arnór. „Það var aðeins
hærra „tempóið“ þarna úti en hér
heima því í þetta félag eru bara vald-
ir bestu leikmennirnir. Þetta var mik-
il reynsla og gott að sjá hvar maður
stendur miðað við aðra leikmenn úti
í heimi,“ segir Arnór en bætir því við
að þótt það hafi verið mikil reynsla
og upplifun þá sé aðstaðan hér heima
til fyrirmyndar, sem og þjálfararnir.
Aðspurður um hvernig reynslu-
tíminn í Brugge kom til skjalanna
svarar Arnór að hann hafi farið í
knattspyrnuskóla Kristjáns Bernburg
í Lokeren í Belgíu. Eftir að honum
lauk hafi þátttakendur síðan spilað
einn leik. „Á þeim leik voru útsend-
arar frá Club Brugge. Þeir höfðu síð-
an samband við ÍA og spurðu hvort
þeir mættu fá mig til að æfa með
unglingaliðinu sínu,“ segir Arnór.
Stóra markmiðið er at-
vinnumennskan
Arnór á ekki langt að sækja knatt-
spyrnuhæfileikana. Móðir hans er
Margrét Ákadóttir, fyrrum landsliðs-
maður í knattspyrnu sem lék lengst af
ferli sínum með ÍA en varð Íslands-
meistari með Breiðabliki árið 2001.
Faðir hans, Sigurður Þór Sigur-
steinsson, var einnig liðtækur knatt-
spyrnumaður og á að baki fjölmarga
leiki í félagsliðum á Íslandi auk nokk-
urra leikja með yngri landsliðum Ís-
lands. En það hefur lítið að segja
fyrir feril Arnórs. Ljóst er að mikil
vinna er á bakvið það að verða góð-
ur knattspyrnumaður. „Ég æfi mikið
aukalega,“ segir hann. „Bý til mán-
aðarlegt prógramm þar sem ég ákveð
allar æfingar sem ég ætla að gera í
þeim mánuði. Svo raða ég þeim bara
á ákveðna daga þannig að einn dag-
inn fer ég kannski í þreksalinn og síð-
an æfi ég fótavinnu einhvern annan.
Ég reyni að æfa alltaf svona 4 sinnum
í viku, aukalega.“
Arnór stefnir, eins og margir aðr-
ir efnilegir knattspyrnumenn, á at-
vinnumennsku erlendis. „Stóra mark-
miðið er auðvitað atvinnumennsk-
an,“ segir hann en vekur máls á um-
ræðunni um hvenær knattspyrnu-
menn eigi að fara út, hvort þeir eigi
að gera það ungir eða bíða í nokk-
ur ár. „Það hefur náttúrulega bæði
kosti og galla að fara út ungur. Ég
held það sé betra að fara seinna því
þá er maður kannski orðinn tvítugur
og fer beint inn í aðalliðið. Ef mað-
ur væri yngri þá þyrfti maður fyrst að
komast í 21 árs liðið áður en maður
kemst í aðalliðið, eins og þessir gæj-
ar hjá Brugge þurfa að gera. Það eru
kannski fjórir af svona 25 sem voru
með mér þarna úti sem komast upp í
næsta lið hjá þeim, 21 árs liðið,“ seg-
ir Arnór og hefur báða fætur á jörð-
inni þegar atvinnumennskan berst
í tal. „Ég myndi hugsa það fyrir al-
vöru ef boðið kæmi en meðan það er
ekki komið, þá er ég 100% með fók-
usinn hér heima,“ segir hann og bæt-
ir því við að hann stefni á að verða
byrjaður að æfa á fullu með meistara-
flokki eftir þetta keppnistímabil. „Ég
geri miklar kröfur á sjálfan mig og
set mér markmið sem ég skrifa nið-
ur. Ég held að það sé lykilatriði,“ seg-
ir hann.
Lífið snýst um fótbolta
Þegar blaðamaður spyr hann út í
áhugamál sín kemur svarið svosem
ekki á óvart. Það er fótboltinn. „Líf-
ið snýst eiginlega um fótbolta og
mér finnst það gaman. En þegar ég
er ekki í fótbolta þá er ég mikið með
vinum mínum, við spilum stundum
golf saman. Það er mjög skemmti-
legt. Ég get reyndar ekkert í golfi,“
segir Arnór og hlær.
Að lokum vill hann hvetja sér
yngri knattspyrnumenn, sem og
aðra, að leggja hart að sér. „Æfðu
meira en gæinn við hliðina á þér og
það er lykilatriði að geta tekið gagn-
rýni. Það sem varð til þess að ég byrj-
aði að æfa meira var þegar ég var
ekki valinn í landsliðsverkefni í Sviss.
Það eru margir sem myndu byrja að
hugsa: „Hvað er þjálfarinn að spá?
Hann er helvítis fífl,“ og eitthvað í þá
áttina. En þú getur ekki breytt val-
inu. Hugsaðu frekar: „Hvað ætla ég
að gera til að sýna honum að hann
hafi rangt fyrir sér?“ Það var ein-
mitt það sem ég gerði, vegna þess að
mig langaði þetta svo mikið. Þegar
ég var svo boðaður á landsliðsæfingu
næst var ég 100% klár að sýna hvað í
mér býr. Það verður að fara rétt með
mótlætið,“ segir Arnór. „Svo þegar
gengur vel verður maður að halda sig
á jörðinni. Það eru sumir sem verða
„cocky“ [hrokafullir, innsk. blaða-
manns] þegar þeim gengur vel, eru
valdir í unglingalandsliðin eða eitt-
hvað. Það er ekki svoleiðis hjá mér
vegna þess að fyrir mér er ég ekki bú-
inn að afreka neitt ennþá.“ kgk
Víkingar fagna sigurmarki Alfreðs
Más Hjaltalíns gegn Haukum í fyrsta
leik sumarsins síðastliðinn laugardag.
Ljósm. af.
Jafntefli hjá
Víkingi Ó.
Arnór á æfingu með Club Brugge í Belgíu um síðustu mánaðamót.
Ljósm. Kristján Bernburg.
„Æfðu meira en gæinn við hliðina á þér“
- spjallað við Arnór Sigurðsson, ungan knattspyrnumann á Akranesi
Arnór Sigurðsson, upprennandi knattspyrnumaður á Akranesi. Ljósm. kgk.
Meistaraflokkslið kvenna sumarið 2015. Ljósm. kfia.is
Skagakonur áfram í bikarnum