Skessuhorn - 27.05.2015, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2015
Alvarlegt
umferðarslys í
Hvítársíðu
BORGARFJ: Alvarlegt um-
ferðarslys varð í Hvítársíðu í
Borgarfirði á mánudaginn þeg-
ar ökumaður bifhjóls missti
stjórn á ökutæki sínu á malar-
vegi. Ökumaður og farþegi á
hjólinu voru í kjölfarið fluttir
með þyrlu Landhelgisgæslunn-
ar á Landspítalann í Reykjavík.
Ökumanninum slasaðist alvar-
lega og er haldið sofandi í önd-
unarvél. Farþeginn á hjólinu
var lítið slasaður. Um erlenda
ferðamenn var að ræða.
–mm
„Hreinn bær
okkur kær“
GRUNDARFJ: „Tökum
höndum saman dagana 28. maí
-1. júní nk. og hreinsum og
fegrum bæinn okkar fyrir sum-
arið,“ segir í tilkynningu frá
Grundarfjarðarbæ. „Með sam-
stilltu átaki má lyfta Grettis-
taki í því að fegra nærumhverfið
og eigin lóðir. Mánudaginn 1.
júní nk. munu starfsmenn bæj-
arins fara um og hirða rusl sem
komið hefur verið fyrir í pokum
við lóðarmörk. Að öðru leyti er
bent á opnunartíma gámastöðv-
arinnar. Sýnum í verki hvað
hægt er að gera með samstilltu
átaki allra bæjarbúa. Hreinn
bær okkur kær,“ segja Grund-
firðingar. –mm
Skökkin fær úti-
veitingaleyfi
AKRANES: Bæjarráð Akra-
neskaupstaðar hefur samþykkt
að veita Skagaferðum ehf. úti-
veitingaleyfi við Kirkjubraut 2
á Akranesi, þar sem kaffihúsið
Skökkin er til húsa. Leyfið er
veitt til kl. 22 á kvöldin og með
þeim fyrirvara að ekki séu fleiri
en 25 manns á inni- og útisvæði
kaffihússins. Ekki er búið að
setja borð og stóla út ennþá en
að sögn Hildar Björnsdóttur hjá
Skökkinni verður það gert um
leið og hlýnar í veðri. Skaga-
menn og aðrir gestir ættu því að
geta notið kaffisopans í veður-
blíðunni við Akratorg í sumar.
-grþ
Skipað í starfshóp
um flóasiglingar
AKRANES: Bæjarráð Akra-
ness hefur tilnefnt Sigurð Pál
Harðarson sviðsstjóra skipu-
lags- og umhverfissviðs bæjar-
ins í starfshóp um flóasigling-
ar. Þær ganga út á að komið
verði á fót föstu áætlunarferð-
um með hraðskreiðum farþega-
báti milli Akraness og Reykja-
víkur. Borgarstjórinn í Reykja-
vík hefur gefið út erindisbréf
vegna starfshópsins sem verð-
ur undir formennsku Reykja-
víkurborgar en skipaður ein-
um fulltrúa Akraneskaupstað-
ar. Hinir tveir í hópnum verða
frá borginni. Starfshópurinn á
að leggja mat á hugsanlegar far-
þegatölur, skoða siglingaleið-
ir, rekstrarfyrirkomulag, báts-
gerð, aðgengi að bryggjum og
hve marga muni þurfa í áhöfn
slíks báts. Gert er ráð fyrir sigl-
ingum alla daga ársins. Hópur-
inn á að skila af sér niðurstöð-
um til borgarstjóra Reykjavíkur
1. september næstkomandi.
-mþh
Gera ekki at-
hugasemdir við
stækkun álvers
HVALFJ: Norðurál á
Grundartanga hefur sótt
um stækkun á álveri sínu þar
þannig að auka megi fram-
leiðslu áls úr 300 þúsund
tonnum í 350 þúsund tonn.
Erindi barst Heilbrigðis-
nefnd Vesturlands frá Um-
hverfisstofnun þann 30. mars
síðastliðinn vegna þeirra
breytinga sem fyrirhugað-
ar eru vegna þessa. Það hef-
ur verið tekið fyrir á fundi
Heilbrigðisnefndarinnar.
Hún gerir ekki athugasemd-
ir. Tekið er sérstaklega fram
í fundargerð Heilbrigð-
isnefndar Vesturlands að
Trausti Gylfason sem á sæti
í nefndinni, og er jafnframt
einn af yfirmönnum Norð-
uráls á Grundartanga, hafi
ekki tekið þátt í umræðum
við afgreiðslu málsins.
–mþh
Opið þrátt fyrir
verkfall
REYKHÓLAR: Hólabúð
á Reykólum verður opin þó
allt fari á versta veg með alls-
herjarverkföllum verslunar-
fólks í júnímánuði. Ástæð-
an er sú að í versluninni eru
einungis eigendur hennar
við störf. „Við viljum benda
fólki á það, að við munum
ekki fá vörur meðan á verk-
falli stendur. Þess vegna
munum við birgja okkur upp
alveg eins og við getum, en
höfum takmarkað pláss. Við
viljum þess vegna bjóða fólki
að panta hjá okkur nauð-
synjavörur, svo sem mjólk og
brauð, jú eða tóbak, því að
enginn veit hvað þetta mun
standa lengi. Við þurfum að
fá pantanir frá fólki í síðasta
lagi 1. júní,“ segir Reynir
Þór Róbertsson kaupmaður í
samtali við Reykhólavefinn.
-mþh
Ríkisstjórn Íslands samþykkti á fundi
sínum í gær að verja samtals 1,8
milljörðum króna til brýnna fram-
kvæmda á vegakerfi landsins til við-
bótar við þær framkvæmdir sem áður
voru fyrirhugaðar. Tilgangurinn
með framkvæmdunum er að bæta
umferðaröryggi, bregðast við slæmu
ástandi vega og koma til móts við
þarfir landsmanna og ferðamanna
vegna stóraukinnar umferðar, seg-
ir í tilkynningu. Meðal annars verða
fjölfarnir ferðamannavegir utan al-
fararleiðar lagfærðir. Má þar nefna
Dettifossveg, Kjósarskarðsveg, Ux-
ahryggjaveg og Kaldadalsveg.
Kaldadalsvegur kallast leiðin milli
Þingvalla og Húsafells. Unnið verð-
ur að endurgerð Uxahryggjavegar
eftir því sem fjármagn leyfir og lagt á
hann bundið slitlag. Leggja á bundið
slitlag á uppbyggðan kafla á Kalda-
dalsvegi milli Uxahryggja og Sand-
kluftavatns. Um er að ræða fjölfar-
inn kafla sem tengir Þingvelli við
Borgarfjörð um Uxahryggi.
Vegurinn um Kjósarskarð teng-
ir Þingvelli við Hvalfjörð og Vest-
urland. Þessi fallega leið býður upp
á mikla möguleika til að tengja bet-
ur saman Vesturland og Suðurland.
Endurbygging Kjósarskarðsveg-
ar er talin löngu tímabær enda að
stórum hluta malarvegur. Á þessu
ári er stefnt að því að endurnýja ríf-
lega helming vegarins sem eftir er og
leggja á hann bundið slitlag. Þetta
verk verður hægt að bjóða út fljót-
lega. mm/mþh
Viðbótar fjárveiting til uppbyggingar vega
um Uxahryggi, Kaldadal og Kjósarskarð
Fyrirhugaðar endurbætur á vegakerfinu hjóta að teljast fagnaðarefni fyrir
ferðaþjónustuna og ferðalanga.
Arnarstapi á
Snæfellsnesi er
farinn að vekja
athygli sem við-
komuhöfn fyrir
skemmtiferða-
skip. Í fyrrasum-
ar kom eitt skip.
Það lagðist fyr-
ir utan höfnina
á Stapa og far-
þegar voru síð-
an fluttir á land með gúmmíbát-
um. Nú í sumar eru hins vegar fjór-
ar skipakomur. Sú fyrsta er strax í
næstu viku. „Þetta er skipið Sea
Explorer sem kemur 2. júní, það er
á þriðjudag í næstu viku. Þetta skip
kemur svo aftur 12. júní. Skemmti-
ferðaskipið Bremen er síðan bók-
að 18. júní og þann 22. júní kem-
ur Sea Explorer svo þriðja sinni.
Fólkið kemur í land á gúmmíbátum
sem sigla upp í uppsátursrennuna
hér í höfninni og skoðar náttúruna.
Skipin stoppa í sex til átta tíma.
Við höfum undirbúið þessar kom-
ur með því að festa kaup á gróf-
um dregli sem fólkið gengur á upp
rennuna. Því ætti því ekki að verða
fótaskortur á hálu og blautu undir-
lagi,“ segir Björn Arnaldsson hafn-
arstjóri Snæfellsbæjar í samtali við
Skessuhorn. Hann segir að í fyrra
hafi komið eitt skip með farþega til
Arnarstapa. „Það var Iceland Sky,
4.200 tonna skip. Á undan því voru
liðin mörg ár síðan skemmtiferða-
skip hafði viðkomu á Arnarstapa.“
Björn segir að fyrir utan dreg-
ilinn góða sé ekki hugað á aðr-
ar framkvæmdir í Arnarstapahöfn
þegar ferðaþjónusta sé annars veg-
ar. „Við ætlum á hinn bóginn að
stækka svæðið innan hafnar sem
verður með fullu dýpi sem kallað
er. Það verður grafið út á um það
bil þúsund fermetra svæði í höfn-
inni. Þetta er framkvæmd upp á um
22 milljónir króna.“ Fyrr í vor lét
Snæfellsbær dýpka innsiglinguna
og höfnina í Rifi. Grafnir voru út
og dælt tæplega 40.000 rúmmetr-
um. „Við ætlum svo að steypa eina
götu nú í sumar á hafnarvæðinu hér
í Ólafsvík. Það eru endalaust verk-
efni í hafnarmálunum, alltaf eitt-
hvað á ári hverju,“ segir Björn Arn-
aldsson hafnarstjóri í Snæfellsbæ.
mþh
Skemmtiferðaskipakomur framundan á Arnarstapa
Björn Arnaldsson
hafnarstjóri í Snæ-
fellsbæ.