Skessuhorn - 27.05.2015, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2015
Venus NS 150, nýtt uppsjávarveiði-
skip HB Granda, kom til hafnar á
Vopnafirði á hvítasunnudag eft-
ir að sjö manna áhöfn þess hafði
siglt henni frá skipasmíðastöðinni í
Tyrklandi. „Mér líst afar vel á þetta
skip. Siglingin gekk fínt á heim-
leiðinni frá Tyrklandi. Við feng-
um á okkur slæmt veður í heilan
sólarhring þegar við vorum út af
Portúgal og skipið fór ákaflega vel
með það,“ sagði Guðlaugur Jóns-
son skipstjóri á Venus í samtali við
Skessuhorn síðdegis í gær. Skipið lá
þá enn við bryggju á Vopnafirði þar
sem meðal annars var verið að und-
irbúa vígsluathöfn þess sem verð-
ur síðdegis í dag þriðjudag og hefst
klukkan 15:30. Margt verður um
dýrðir. Þar verða ræður fluttar og
skipið blessað og skírt á hefðbund-
inn hátt með því að brjóta freyði-
vínsflösku á stefni þess. Reistur hef-
ur verið sérstakur pallur úr timbri
til þessa á bryggjunni á Vopnafirði.
Sjá má fyrirkomulagið og skipið við
bryggju á vefmyndavél HB Granda
á Vopnafirði. Að vígslu lokinni
verður skipið til sýnis almenningi.
Til veiða í vikunni
Að þessu loknu verður ekki lengi
beðið boðanna með að halda á
veiðar. „Veiðarfærin eru þegar
komin um borð og verið að gera
allt klárt til að halda á miðin nú
á fimmtudag. Við förum á kol-
munnaveiðar,“ sagði Guðlaugur.
Hann var sjálfur skipstjóri á Ing-
unni AK allar götur frá því hún
kom ný til landsins frá Chile alda-
mótaárið 2000. „Ingunn er nú á
leiðinni hingað á Vopnafjörð með
kolmunnafarm og verður kom-
in hingað fyrir vígsluna á morg-
un.“ Guðlaugur segir aðspurð-
ur að stór munur sé á Ingunni og
nýju Venusi. „Þetta er allt annað
skip en Ingunn. Það er stór mun-
ur á. Breiddin er mesti munurinn
og svo er brúin á Venus einni hæð
hærri. Venus er 17 metra breið en
Ingunn 12,5 metrar. Samt er Ven-
us ekki nema átta metrum lengri.
Ingunn hefur reynst mér ótrúlega
vel öll þau ár sem ég hef verið með
hana. Það hafa aldrei verið nein-
ar bilanir á henni, engin óhöpp og
alltaf aflast vel á henni. Ég vona að
Venus reynist jafn vel og hef eng-
ar ástæður til að ætla að svo verði
ekki. Hér er allur frágangur góð-
ur frá hendi skipasmíðastöðvar-
innar.“
Ýmis nýbreytni
um borð
Guðlaugur segir að átta til níu
manns verði í áhöfn Venusar.
„Reyndar verða ráðnir 12 menn
á hana í heild. Það verða þannig
alltaf einhverjir í fríum. En þetta
er nokkur fækkun á því sem var
á Ingunni. Þetta skýrist mikið til
af tækninýjungum og meiri sjálf-
virkni um borð. En því er ekki að
neita að menn verða líka að hlaupa
hraðar við störfin um borð. Á móti
kemur að öll aðstaða er miklu betri
hér um borð og það fer betur um
menn. Hér er ýmislegt sem er ný-
lunda svo sem það að við dælum
aflanum úr pokanum og um borð
aftan frá skut. Ég fylgist þá með
öllu úr myndavélum. Síðan fer
fiskurinn eftir röri frameftir skipi
og í lestarnar. Hefðbundna að-
ferðin er að dæla úr pokanum við
stjórnborðshlið skipsins. Það er
ýmislegt nýtt sem gaman verður
að prófa,“ sagði Guðlaugur.
mþh
Venus NS 150 er komin heim
Venus NS 150 kemur til Vopnafjarðar á hvítasunnudag eftir siglinguna frá Tyrklandi. Sjö menn voru í áhöfn hennar á
heimleiðinni sem gekk mjög vel. Ljósm. Thorberg Einarsson.
Skagamaðurinn Tómas Guðmunds-
son hefur undanfarin misseri unn-
ið að gerð nýrrar íslenskrar vef-
síðu sem á sér enga sína líka. Um
er að ræða vefinn tripcreator.com,
sem rekinn er af ferðaskrifstofunni
TripCreator, sem er að sögn Tóm-
asar ólík öðrum ferðaskrifstofum á
ýmsan hátt. „Þetta er alíslensk hug-
mynd sem kviknaði hjá stofnendum
fyrirtækisins fyrir nokkrum árum
síðan og gott dæmi um áhugavert og
vel heppnað sprotafyrirtæki. Nokkr-
ir einstaklingar sem voru að pæla á
svipuðum nótum komu svo að hug-
myndinni á seinni stigum,“ segir
Tómas í samtali við Skessuhorn.
Fyrirtækið telur tíu starfsmenn
og eru höfuðstöðvar þess á Íslandi
en einnig er rekin þróunardeild í
Litháen. „Þetta er að mörgu leyti
öðruvísi ferðaskrifstofa en við eig-
um að venjast. Ekki eru seldar fyr-
irfram ákveðnar ferðir heldur get-
ur fólk farið inn á síðuna, skipu-
lagt og sérsniðið sína eigin ferð með
hjálp þeirrar tækni sem TripCrea-
tor byggir á og er einstök á heims-
vísu. Þarna geturðu hakað í hvað þú
vilt gera, hvaða áhugamál þú hefur
og hvernig ferð þú vilt fara í. Einn-
ig geturðu valið um hversu miklu
þú vilt eyða, hvað þú vilt gera mik-
ið á dag, hvort þú viljir bílaleigubíl
og svo framvegis,“ útskýrir Tóm-
as. Að lokum smellir notandinn á
hnappinn „búa til ferð“ og fær upp
tillögu að ferð sem er sérsniðin að
hans óskum og væntingum. „Þá ertu
með fullkomna ferðalýsingu og bú-
inn að bóka allt; gistingu, afþreyingu
eða hvað sem það er. Síðan greið-
ir þú fyrir ferðina þegar hún er full-
sniðin að þínum óskum. Vefurinn
er tengdur beint við booking.com,
bokun.is og aðra slíka vefi þannig að
það koma bara upp valmöguleikar
þar sem möguleiki er á bókun.“
Á þriðja þúsund afþrey-
ingarmöguleikar
Tómas segir að fleiri hundruð þjón-
ustuaðilar séu í kerfinu og á þriðja
þúsund mismunandi afþreyingar-
möguleikar. „Svo sem hvalaskoðun,
jöklaferðir og hvað hægt er að sjá og
skoða. Þetta eru bæði t.d. dagsferð-
ir sem kosta eitthvað og aðrir hlutir
sem kosta ekki neitt.“ Auðvelt er því
fyrir ferðamanninn að sníða ferðina
að sínum fjárhag og sínum áhuga.
Vefurinn sér svo um að reikna út
og áætla allar fjarlægðir á milli staða
og hve langan tíma tekur að keyra
á milli þeirra. „Þar eru reiknuð inn
í stopp og gert ráð fyrir ákveðnum
frávikum. Svo má skoða ferðalýs-
inguna bæði á korti og í dagatali. Þá
er einnig hægt að bæta við viðburð-
um eða skoðunarstöðum og henda
út.“ Tómas leggur áherslu á að vef-
urinn henti Íslendingum ekki síður
en erlendum ferðamönnum. Þarna
geti þeir séð á einfaldan hátt hvað
Ísland hefur upp á að bjóða, ná-
kvæmlega flokkað eftir því hvað fólk
vill gera. „Við stefnum á að hafa sem
flest náttúrufyrirbæri þarna inni.
Fólk getur þá séð að það er helling-
ur að sjá og gera um allt land.“
Þegar verið er að skipuleggja ferð
geta notendur valið sér flokk eftir
staðsetningum og eftir þemum. „Við
reynum að vekja athygli á allskonar
áhugaverðum stöðum, náttúrufyrir-
bærum og fleiru. Hægt er að fá upp-
lýsingar um vita, náttúrulaugar, fjöll
og fossa, söfn og sundlaugar - svo
eitthvað sé nefnt. Við vinnum líka
eftir því og leggjum í raun áherslu
á að vekja athygli á nýjum svæðum,“
segir Tómas. Aukinn fjöldi ferða-
manna kallar á frekari dreifingu
þeirra um landið, eins og rætt hef-
ur verið um og yfirvöld ferðamála
og ferðaþjónustan leggja áherslu á.
Því má segja að það sé rauður þráð-
ur hjá TripCreator vefnum að beina
fólki í aðrar áttir og vekja um leið
athygli á nýjum og áhugaverðum
stöðum og svæðum víða um land.
„Það er kappsmál okkar að opna
augu fólks fyrir áhugaverðum, en ef
til vill vannýttum, svæðum. Ástæðan
fyrir því að þau eru vannýtt er ekki
sú að það sé ekki eitthvað áhuga-
vert að sjá þar eða gerast. Það þarf
hins vegar að draga fólk inn á þessi
svæði og þá kemur eftirspurnin eft-
ir margvíslegri þjónustu þar klárlega
í kjölfarið.“
Skrifar lýsingar
Starf Tómasar felst m.a. í því að afla
upplýsinga um og skrifa lýsingar á
ýmsum stöðum og náttúrufyrirbær-
um sem hægt er að finna á vefnum,
auk margvíslegra markaðs- og þjón-
ustutengdra verkefna. „Ég hef t.d.
samband við fólk hingað og þangað
um landið og spyr það hvað hægt sé
að gera á svæðinu, oft með áherslu
á að finna eitthvað sem er nýtt og
spennandi. Flestir geta bent mér á
eitthvað eða bent mér á einhvern
annan sem gæti sagt frá einhverju
sniðugu. Þegar litið er yfir land-
ið kemur í ljós að á meðan margt
er í boði fyrir ferðafólk á ákveðn-
um svæðum eru önnur svæði þar
sem minna virðist af afþreyingu eða
áhugaverðum stöðum að sækja heim
og skoða. Það er hins vegar alveg
ljóst að á þessum svæðum er fullt af
áhugaverðum stöðum. Það á bara
eftir að koma þeim á kortið. Sem
dæmi um slík svæði má nefna hluta
af Norðausturlandi, norðanvert
Vesturland og sunnanverða Vest-
firði. Eftir að Reykhólum sleppir
er oft lítið um þjónustu. Sum svæði
eru mjög vel depluð á kortinu okkar,
en svo koma svæði þar sem ekki eru
eins margir deplar þó að nóg sé að
sjá þar og gera. Það koma því eyður
inn á milli en það er alveg klárt að
þar er eitthvað að sjá og gera líka,“
útskýrir hann.
Gaman að
grúska í þessu
Tómas Guðmundsson hefur ver-
ið viðloðandi ferðaþjónustu í lang-
an tíma og er mikill áhugamaður
um ferðamannastaðinn Ísland. „Ég
hef verið býsna lengi í ferðaþjón-
ustunni, við margvísleg störf og
þá hefur sambýliskona mín, Bjarn-
heiður Hallsdóttir, unnið við rekst-
ur eigin ferðaskrifstofa um árabil.
Það má því segja að ferðaþjónust-
an sé okkar lifibrauð og um leið
helsta áhugamál og ekki spillir fyrir
hvað ég hef gaman af því að grúska
í þessu.“ Tómas og Bjarnheiður
gáfu til að mynda út Ferðahand-
bók fjölskyldunnar fyrir nokkrum
árum. „Svo frétti ég af þessu verk-
efni núna og datt inn í það. Það er
gaman að pæla í þessu og komast að
því hversu margt er hægt að upp-
lifa, sjá og skoða á Íslandi. Ég hafði
t.d. lúmskt gaman af að skrifa um
allar 330 kirkjur landsins og vitana
líka, sem allir hafa sín sérkenni,“
segir Tómas og brosir.
Sífelld endurnýjun
Að sögn Tómasar er tvennt sem
gerir TripCreator vefinn sérstak-
an. Annars vegar skipulagningin,
að app eða vefur sjái um að skipu-
leggja og bóka ferðir fyrir ferða-
manninn frá A til Ö. Hins vegar
nefnir hann þá sérstöðu að mikið
er af fróðleik og áhugaverðu efni
á vefnum, af nánast öllu mögulegu
sem hægt er að skoða. „Vefurinn fer
vel af stað, þrátt fyrir að við höfum
farið seint af stað fyrir þetta sum-
arið og ferðaþjónustuaðilar hafa
sýnt þessu mikinn áhuga. Við kom-
um vel út á leitarvélum og umferð-
in kemur á óvart. Fólk er að skoða
vefinn hvaðanæva úr heiminum,“
segir hann. Hann segir næstu skref
vera að klára að setja inn margvís-
legt efni svo sem tjaldsvæði, golf-
velli og veiðisvæði. „Svo er vefur-
inn reglulega uppfærður. Það er
endalaust hægt að betrumbæta,
sníða af hnökra og efnisöflunin er í
sífelldri endurnýjun,“ segir Tómas
Guðmundsson. grþ
Vefur sem skipuleggur sérsniðnar ferðir um landið
Tómas Guðmundsson.