Skessuhorn


Skessuhorn - 27.05.2015, Qupperneq 11

Skessuhorn - 27.05.2015, Qupperneq 11
11MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2015 Brautskráning 2015 Föstudaginn 5. júní fer fram brautskráning nemenda frá Menntaskóla Borgarfjarðar. Athöfnin hefst klukkan 11:00 á sal skólans. Allir velkomnir. Skólameistari. SK ES SU H O R N 2 01 5 Fiskvinnslukonan, keiluþjálfarinn og söngfuglinn Jónína Björg Magn- úsdóttir vakti í vetur athygli fyrir lagið „Svei´attan“ þar sem hún söng um óréttlætið sem henni finnst við- gangast í launum fiskvinnslufólks. Nína, eins og hún er jafnan kölluð, samdi textann við lag Braga Valdi- mars Skúlasonar og flutti lagið sjálf. Forsaga textans er sú að Jónínu blöskraði þegar hún og samstarfs- fólk hennar hjá HB Granda tvöfald- aði vinnuafköst sín í fiskvinnslunni og fengu íspinna sem umbun í stað launahækkunar eða bónusa. Óhætt er að segja að lagið hafi slegið í gegn og að sögn Nínu hefur það fengið nærri 35 þúsund áhorf á YouTube. „Svo hefur það heyrst svolítið á Rás 2. Það var tilnefnt á vinsældalistann og fór í 6. sæti og þaðan í 14. sæti,“ segir Nína í samtali við Skessuhorn. Ákvað að prófa Nú hefur Jónína samið texta við annað lag og fékk Bubba Mort- hens til liðs við sig við gerð lags- ins. „Það var búið að skora mikið á mig að tala við hann. Gummi mað- urinn minn sagði meðal annars að hann skuldaði kannski íslenskri al- þýðu það og svo voru fleiri sem ráku á eftir því. Þannig að ég ákvað að prófa. Bubbi tók mjög vel í það, spurði bara „Hvar og hvenær á ég að mæta,“ útskýrir Nína. Hún seg- ist hafa gert tvo texta, annars veg- ar við lagið „Another brick in the wall“ með Pink Floyd og hins vegar lagið Frostrósir með Hauki Mort- hens. „Hann valdi textann sem ég hafði samið við Frostrósir en vildi gera eitthvað annað lag við það. Textinn var upphaflega tvö erindi, þar sem fyrra erindið byggir á lín- um úr Frostrósum en hitt ekki. Ég stakk svo upp á því að við myndum gera blúslag úr þessu og breyta text- anum í fjögur erindi.“ Skömmu síð- ar hittust Nína og Bubbi í stúdíóinu Góðu hljóði í Borgarnesi, þar sem lagið var hljóðritað. „Þegar við hitt- umst í stúdíóinu hjá Sissa í Borgar- nesi kom Bubbi með hugmynd að útsetningunni á blúsinum. Þannig að lagið er í raun okkar beggja en textinn er minn.“ Hægt er að hlusta á lagið á YouTube. „Morgunljós móðgun“ Lagið heitir „Morgunljós móðgun“ og textinn er ádeila, líkt og sá fyrri. „Ég er svolítið að vísa í orð Vil- hjálms Birgissonar, hann notar svo- lítið orðið morgunljóst! En annars er það um atvinnurekanda sem kem- ur með tilboð til launþeganna sem er í raun og veru ekki gott. Hann er að vanvirða fólkið með þessu móðg- andi tilboði,“ segir Nína. Hún hef- ur ákveðnar skoðanir á kjaradeil- unni og liggur ekki á þeim. „Ef fólk myndi bara hlusta á það sem við erum að biðja um. Ég vil sjá hækk- un á krónutölu, það væri bara sann- gjarnt. Það er ekki hægt að ætla að hækka alla um sömu prósentutölu. Manneskja með tvær milljónir í laun myndi hækka töluvert meira en sá sem er með undir þrjú hundruð þús- und, það væri ekki hægt að bera það saman.“ Hún segist vilja laun sem hún geti lifað af miðað við það við- mið sem útgefið er af ríkinu. „Það er bara skammarlegt að margir nái ekki því viðmiði. Sérstaklega innan þeirra atvinnugreina sem hafa alveg svigrúm til að greiða hærri laun,“ segir Nína ákveðin. Hún segir að þó laun hækki þurfi það ekki að þýða að það komi óðaverðbólga, heldur fari meira í ríkiskassann. „Það fer ekki allt samfélagið á hliðina þó laun- in hækki, heldur lækkar bara arður- inn hjá einhverjum stórfyrirtækjum. Þetta kemur á endanum inn í ríkis- kassann og þá er meira til fyrir alla. Ef fólkið fær hærri laun, getur það frekar keypt hluti úti í búð. Ég vil borga minn skatt til að ég viti að það verði hugsað um mig og mína þegar við þurfum á því að halda.“ grþ Fiskvinnslukona gefur út lag með Bubba Morthens Jóhanna Kristín Þorsteinsdóttir, Jónína Björg Magnúsdóttir, Bubbi Morthens og Sesselja Andrésdóttir við gerð myndbandsins í síðustu viku. Ljósmyndin er fengin af Facebook síðu Jónínu og birt með leyfi. FRUMHERJI HF. – ÞEGAR VEL ER SKOÐAÐ www.frumherji. is Ólafsvík 2015 Bifreiðaskoðun verður við Fiskiðjuna Bylgjuna Bankastræti 1 Mánudaginn 1. júní Þriðjudaginn 2. júní Miðvikudaginn 3. júní Lokað í hádeginu kl. 12.00 – 13.00 ATH. Allar stærðir ökutækja skoðaðar Upplýsingar í síma 863 0710 SK ES SU H O R N 2 01 5 SEPT O AID eru þurrfrystar örverur tilbúnar til að brjóta niður allan lífrænan úrgang í rotþróm. Kemi • Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík • www.kemi.is • Sími: 415 4000 Opið: Mánudag - fimmtudags: Frá kl. 8.00-17.30. Föstudaga: Frá kl. 8.00-17.00. KOMDU ROTÞRÓNNI Í LAG MEÐ SEPT-O-AID UMHVER FISVÆN VARA F RÁ KEM I Samsetning 13 mismunandi örvera hjálpar til að vinna á og minnka fastan úrgang og breyta í fljótandi form ásamt því að eyða allri ólykt frá rotþrónni. Einfalt í notkun; sett í klósett skálina og beðið í 20 mínútur, því næst er efninu skolað niður. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi Skúli Alexandersson Fyrrverandi alþingismaður frá Hellissandi lést á Landspítalanum laugardaginn 23. maí. Útför Skúla verður frá Ingjaldshólskirkju sunnudaginn 31. maí kl. 14.00 Þeim sem vilja minnast hans er bent á Menningarsjóðinn Fegurri byggðir. Reikningur í Landsbankanum nr. 190-15-380429, kt. 681011-0130. Hrefna Magnúsdóttir Ari Skúlason Jana Pind Hulda Skúladóttir Drífa Skúladóttir Viðar Gylfason börn og barnabarnabörn

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.