Skessuhorn


Skessuhorn - 27.05.2015, Page 12

Skessuhorn - 27.05.2015, Page 12
12 MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2015 Laugardaginn 23. maí voru 56 nemendur brautskráðir frá Fjöl- brautaskóla Vesturlands á Akra- nesi. Dröfn Viðarsdóttir áfanga- stjóri flutti annál vorannar 2015 og Guðmundur Brynjar Júlíusson ný- stúdent flutti ávarp fyrir hönd út- skriftarnema. Benedikta Haralds- dóttir hlaut viðurkenningu skól- ans fyrir bestan árangur á stúdents- prófi á vorönn 2015. Fyrir athöfn- ina spiluðu Aðalsteinn Bjarni Vals- son, Nikulás Marel Ragnarsson og Sindri Snær Alfreðsson, nemend- ur við skólann, nokkur lög. Aðr- ir tónlistarmenn sem komu fram voru Heiðmar Eyjólfsson og Sig- rún Ágústa Helgudóttir nýstúd- entar. Við athöfnina fékk Arnar Freyr Sævarsson, sem útskrifaðist með stúdentspróf af náttúrufræði- braut á haustönn 2014, verðlaun fyrir framúrskarandi námsárangur í raungreinum úr sjóði Guðmundar P. Bjarnasonar. Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri afhenti námsstyrk Akraneskaup- staðar. Námsstyrkurinn skiptist að þessu sinni jafnt milli tveggja nem- enda. Þeir eru Eyrún Eiðsdóttir sem lauk stúdentsprófi af náttúru- fræðibraut og fékk jafnframt viður- kenningu skólans fyrir bestan ár- angur á stúdentsprófi á haustönn 2014 og Benedikta Haraldsdóttir sem lauk stúdentsprófi af málabraut og fékk einnig viðurkenningu skól- ans fyrir bestan árangur á stúdents- prófi á vorönn 2015. Nokkrir útskriftarnemar fengu verðlaun og viðurkenningar fyrir góðan námsárangur og störf að fé- lags- og menningarmálum. Nöfn þeirra sem gáfu verðlaun eru innan sviga. Arnar Freyr Sigurðsson fyrir störf að félags- og menningarmál- um (Minningarsjóður Karls Krist- ins Kristjánssonar) Arnór Bjarki Grétarsson fyrir störf að félags- og menningarmál- um (Minningarsjóður Karls Krist- ins Kristjánssonar) Benedikta Haraldsdóttir fyr- ir bestan árangur á stúdentsprófi á vorönn 2015 (Fjölbrautaskóli Vest- urlands), fyrir ágætan árangur í er- lendum tungumálum (Deild er- lendra tungumála, bókmennta og málvísinda við Háskóla Íslands), ágætan árangur í frönsku (Sorop- timistasystur á Akranesi), ágætan árangur í þýsku (þýska sendiráðið), ágætan árangur í dönsku (danska sendiráðið) og fyrir ágætan árang- ur í íslensku (Penninn Eymundsson á Akranesi) Bjarni Tómas Helgason fyrir ágætan árangur í verklegum grein- um (Katla Hallsdóttir og Ína Dóra Ástríðardóttir) Guðmundur Rafnar Óskarsson fyrir ágætan árangur í sérgreinum á námsbraut í bygginga- og mann- virkjagreinum (Verkalýðsfélag Akraness) Guðný Hulda Valdimarsdótt- ir fyrir ágætan árangur í efnafræði (Elkem Ísland) Hallur Freyr Sigurbjörnsson fyr- ir ágætan árangur í dönsku (danska sendiráðið) Heiðmar Eyjólfsson fyrir störf að félags- og menningarmálum (Minningarsjóður Karls Kristins Kristjánssonar) Sigríður Helga Sigfúsdóttir fékk hvatningarverðlaun til áframhald- andi náms og viðurkenningu fyr- ir persónulegar framfarir í námi (Zontaklúbbur Borgarfjarðar) Sigríður Eva Þorsteinsdóttir fyr- ir ágætan árangur í þýsku (þýska sendiráðið) Sigrún Ágústa Helgudóttir fyrir störf að félags- og menningarmál- um (Minningarsjóður Karls Krist- ins Kristjánssonar) Steinar Bjarki Marinósson fyrir framúrskarandi árangur í stýring- um (VS Tölvuþjónusta) Vilborg Júlía Pétursdóttir fyr- ir ágætan árangur í dönsku (danska sendiráðið), ágætan árangur í íþróttum (Omnis), ágætan árang- ur í líffræði (Skaginn og Þorgeir & Ellert), ágætan árangur í efnafræði (Norðurál) og fyrir ágætan árang- ur í raungreinum (Gámaþjónusta Vesturlands) Þorri Líndal Guðnason fyrir störf að félags- og menningarmál- um (Minningarsjóður Karls Krist- ins Kristjánssonar) Þorvaldur Arnar Guðmundsson fyrir góðan námsárangur á starfs- braut (Meitill og GT Tækni) og fyrir ágætan árangur í íþróttum (Rótarýklúbbur Akraness) Ágústa Elín Ingþórsdóttir skóla- meistari ávarpaði útskriftarnem- endur í lokin og óskaði þeim gæfu og velfarnaðar. Síðan risu gestir úr sætum og sungu saman ljóð Stein- gríms Thorsteinssonar, Nú er sum- ar. fva/ Ljósm. Guðni Hannesson. Benedikta Haraldsdóttir hlaut hæstu einkunn á stúdentsprófi. Brautskráð frá Fjölbrautaskóla Vesturlands Útskriftarhópurinn ásamt skólameistara og aðstoðarskólameistara. Hluti útskriftarhópsins þegar húfurnar voru komnar upp.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.