Skessuhorn - 27.05.2015, Side 15
15MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2015
Vorhreinsun íbúa, fyrirtækja og
stofnana á Akranesi fer fram dag-
ana 29. maí til 8. júní næstkom-
andi. Það er Akraneskaupstaður
sem stendur fyrir hreinsunarátak-
inu og eru bæjarbúar hvattir til að
taka virkan þátt í að hreinsa og
fegra bæinn sinn. „Þetta er átak
sem við erum að fara í með bæj-
arbúum en við erum ekki síður að
biðla til fyrirtækjanna á svæðinu
um að gera fínt og fallegt hjá sér,“
segir Íris Reynisdóttir garðyrkju-
stjóri í samtali við Skessuhorn.
Akraneskaupstaður mun stað-
setja gáma á ákveðna staði í bæn-
um sem íbúar og fyrirtæki geta
notað. Ætlast er til að sorpið sé
flokkað og því verða mismunandi
gámar á hverjum stað merktir
með viðeigandi flokkunarmerkj-
um. Gámarnir verða á sjö stöð-
um í hverfunum og á fjórum stöð-
um á athafnasvæðum. Að sögn Ír-
isar er vorhreinsunin í ár víðtæk-
ari en verið hefur. Stefnan sé að
taka bæinn í gegn en starfsfólk
Akraneskaupstaðar er að hefja sín
venjubundnu vorverk og reynir að
hreinsa til eftir bestu getu sam-
hliða því. „Við munum að vísu
ekki taka garðúrganginn hjá íbú-
um líkt og í fyrra en í staðinn kom-
um við til móts við fólk og setjum
gáma um allan bæ. Við reynum að
stíla inn á að fólk hafi tvær helg-
ar til að nýta sér gámana og því er
um að gera að henda sem mestu
og losa sig við nógu mikið,“ segir
hún. Íris bendir á að hægt sé að fá
upplýsingar um vorhreinsunina á
vef Akraneskaupstaðar og með því
að hringja á skrifstofu Akranes-
kaupstaðar. „Við hvetjum alla til
að taka þátt og nýta sér tækifærið
að hreinsa vel til á sinni lóð og í
sínu nær umhverfi. Það er gott að
hafa í huga gamla góða hugtakið:
Margar hendur vinna létt verk,“
segir hún. „Það er mikill straum-
ur af fólki hingað á sumrin og öll
viljum við hafa bæinn okkar til
sóma,“ bætir Íris við.
grþ
Vorhreinsun Skagamanna
Vorhreinsun íbúa, fyrirtækja og stofnana á Akranesi fer fram dagana 29. maí - 8. júní.
Bæjarbúar, ungir sem aldnir, eru hvattir til að taka virkan þátt í að hreinsa og fegra bæinn okkar!
Gámar verða staðsettir á ákveðnum stöðum í bænum sem íbúar og fyrirtæki geta notað.
Ætlast er til að sorp sé flokkað og verða gámar merktir með viðeigandi flokkunarmerkjum.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Allar nánari upplýsingar
er að finna á vef
Akraneskaupstaðar
www.akranes.is
Vorhreinsun framundan á Akranesi
Unglingar í vinnuskólanum að störfum í fyrrasumar þegar bærinn fékk vorhreinsun fyrir Norðurálsmótið.
Ljósm. úr safni Skessuhorns.
Verzlunin Allra manna hagur
Í tilefni af
hreinsunarátaki
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5