Skessuhorn


Skessuhorn - 27.05.2015, Qupperneq 17

Skessuhorn - 27.05.2015, Qupperneq 17
17MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2015 Skúli Alexandersson fyrrver- andi alþingismaður og Sand- ari lést á Landspítalanum síð- astliðinn laugardag, 88 ára að aldri. Skúli fæddist 9. september 1926 og ólst upp á jörðinni Kjós, nærri þeim stað sem Djúpuvík- urþorpið byggðist upp. Sjálfur sagðist hann einungis hafa ver- ið smástubbur þegar hann fór að venja komur sínar á síldarplön- in og þar í grennd. Þetta var á bestu árunum í Djúpuvík en svo fór að þar tók að halla undan fæti eins og víðar þar sem lífsbaráttan var erfið. Skúli fluttist til Hell- issands 26 ára gamall en í milli- tíðinni fetaði hann menntaveg- inn og prófaði sitthvað fleira til sjós og lands. Safnaði þar reynslu sem átti síðar eftir að koma sér vel í reynslubankanum. Hann var m.a. á síld og síldarbátum sem náðu í silfur hafsins inn í Hval- fjörð og á sundunum við Reykja- vík. Skúli fór í Samvinnuskólann sem þá var í Reykjavík. Að loknu námi þar réði hann sig til starfa hjá Kaupfélagi Skagfirðinga þar sem hann var verslunarmaður 1951-1952. Þá flutti hann vestur á Hellissand þar sem hans starfs- vettvangur og búseta var eftir það auk þingmennskunnar við Aust- urvöll. Skúli starfaði hjá Kaup- félagi Hellissands í þrjú ár. Síðan tók hann þátt í því ásamt fleirum að kaupa 50 tonna mótorbát og starfaði að útgerð hans í nokk- ur ár. Tók þá við starfi fram- kvæmdastjóra Útgerðarfélagsins Jökuls 1961 og veitti því félagi forstöðu í þrjá áratugi, eða þar til útgerðinni var hætt. Skúli kvaðst sjálfur frá unga aldri hafa haft mikinn áhuga á stjórnmálum. Aðhyllst Sósíalista- flokkinn og Æskulýðsfylkinguna meðan hann nam í Samvinnu- skólanum í Reykjavík. Svo eftir að hann fluttist vestur myndaði hans ásamt fleirum hóp félags- hyggjumanna sem bauð fram lista til sveitarstjórnar í Neshreppi utan Ennis eins og sveitarfélagið hét þá. Þar náðu þeir meirihluta og Skúli varð oddviti 1954 og gegndi því embætti í 12 ár. Eft- ir það var hann oddviti í tæp tvö tímabil, en seinasta árið hans í oddvitastarfinu var 1981. En það var ekki nóg með að Skúli væri þaulsetinn í sveitarstjórn heldur var hann einnig kosinn til starfa á Alþingi. Hann var fyrst kosinn á þing fyrir Alþýðubandalagið á Vesturlandi 1979 og sat á þingi til 1991. Hafði reyndar áður ver- ið inni á þingi meira og minna frá 1971 til 1979, sem varamað- ur Jónasar Árnasonar. Skúli sagði sjálfur að þátt- taka sín í atvinnulífinu hafi ver- ið besta vegarnestið þegar hann settist á þing. Alla tíð var hann með púlsinn á slagæð atvinnulífs- ins og fylgdist grannt með þróun búsetu og byggðar í sinni heima- byggð. Það gerði hann raunar allt til síðasta dags. Í takt við það helgaði hann ferðaþjónustunni starfskrafta sína síðustu áratugina eftir að þingstörfum lauk. Hann hafði meðal annars forystu um að byggja Hótel Hellissand, standa að uppbyggingu sjóminjasafns, skógrækt var hugleikin, nánara samstarf sveitarfélaga og sitthvað fleira. Líkamlegri heilsu Skúla tók að hraka á síðustu árum þótt hugurinn væri á sama hraða og fyrr. Fyrir einungis fáum mán- uðum ákvað hann að flytja ásamt Hrefnu Magnúsdóttur eiginkonu sinni á Hrafnistu í Hafnarfirði þar sem hann þurfti að vera í ná- lægð við ákveðna læknisþjónustu flesta daga. Hann undi hag sín- um vel á Hrafnistu og sýndi þar áfram óbilandi áhuga sem hann hefur alla tíð haft fyrir landsmál- um og ekki síst byggðamálum á Vesturlandi. Ekki er lengra en nokkrir dagar síðan hann hringdi í undirritaðan til að ræða sitt- hvað sem okkur báðum var hug- leikið. Kvaðst þá vera nýkom- inn úr ferð vestur til að minnast látins félaga. „Hann var kannski síðastur þessara orginala sem unnu sinni heimabyggð,“ sagði Skúli um genginn samferðamann sinn. Ég kváði og sagði að meðan Skúli drægi andann væri allavega einn eftir. Hann hló sínum dill- andi hlátri. Eftir að Skúli flutti á Hrafn- istu tók Þórhallur Ásmundsson blaðamaður viðtal við hann sem birtist í Skessuhorni fyrr á þessu ári. Þar var skautað yfir ýmislegt úr lífshlaupi kappans. Lokaorð- in í því viðtali geri ég að loka- orðum þessarar stuttu minningar um látinn héraðshöfðingja. Eftir að hafa komið að rekstri Skessu- horns í tæplega tvo áratugi hef ég verið spar á að kalla menn því sæmdarheiti sem héraðshöfðingi er. Get ég þó með góðri sam- visku sagt að Skúli Alexanders- son er sá einstaklingur sem sýnt hefur sínu heimahéraði og raun- ar Vesturlandi öllu hvað mesta ræktarsemi í seinni tíð. Slíkir menn eru jafn mikilvægir sínum heimahéruðum og sólin er öllu lífi á jörðinni. Aðspurður um framtíðarhorf- ur síns gamla byggðarlags á Snæ- fellsnesi, sagði Skúli: „Undir- stöðuatvinnugreinarnar, sérstak- lega sjávarútvegurinn, eru sterk- ar á Snæfellsnesi. Ferðaþjónust- an er líka stöðugt að eflast og á mikla framtíð fyrir sér. Ég var baráttumaður fyrir því að sveit- arfélögin sameinuðust og varð fyrir vonbrigðum að Grundar- fjörður og Stykkishólmur kæmu ekki inn í sameininguna þegar Snæfellsbær varð til. Ég held að sameinað sveitarfélag á Snæfells- nesi, sem yrði það annað stærsta á Vesturlandi, gæti gefið slag- kraft til aukinnar uppbyggingar á svæðinu. Ég býst við að fyrr en seinna þurfi fólk að fara að huga að því. Við þurfum að standa saman, það gerir okkur sterkari. Fjölbrautaskólinn er gott dæmi um það og mjög mikilvægt að við getum varið alla starfsemi á svæðinu og eflt hana. Öðruvísi fjölgar fólkinu ekki eða byggð- in eflist.“ Útförin Skúla verður gerð frá Ingjaldshólskirkju sunnudaginn 31. maí klukkan 14.00. Ég votta eftirlifandi eiginkonu, börnum og öðrum afkomendum dýpstu samúð. Blessuð sé minn- ing Skúla Alexanderssonar. Magnús Magnússon. And lát: Skúli Alexandersson fv. oddviti og alþingismaður CLARVISTA STURTUGLER FYRIR VANDLÁTA SÓLVARNARGLER OG HANDRIÐ M ynd: Josefine Unterhauser ispan@ispan.is • ispan.is Einnig leigjum við bíl með fjórhjóladrifi fyrir allt að 11 farþega með bílstjóra, tilvalið fyrir gönguhópa Brákarbraut 5 - Borgarnesi - 437 1300 / 692 5525 / 897 6649 Leigjum fólksbíla og jeppa SK ES SU H O R N 2 01 5 á upplýsingum um væntanleg- ar framkvæmdir við Hvalfjörð. „Af hverju er svona stóru máli ekki sýnd meiri athygli, til dæmi í Ríkisútvarpi allra landsmanna? Við teljum að það þurfi að upp- lýsa alla landsmenn um hvað fyr- ir dyrum er og standa fyrir hrein- skiptri og opinni umræðu um 450 manna stóriðjufyrirtæki sem vafa- lítið mun verða stækkað verði því á annað borð hleypt af stað í upp- byggingu. Fjölmiðlar hafa á eng- an hátt verið að sinna þessu máli. Til dæmis var í lok vetrar skrifað undir stærsta fjárfestingasamning í stóriðju hér á landi frá því samn- ingur um álverið á Reyðarfirði var undirritaður, þegar Silicor skrifaði undir tækjakaup við Þjóðverja upp á 70 milljarða við athöfn í Reykja- vík. Þetta þótti stóru fjölmiðlunum afskaplega ómerkilegt mál og sum- ir slepptu því með öllu að fjalla um það,“ segir Þórarinn. Þau Ragn- heiður og Þórarinn telja ástæð- una fyrir afskiptaleysi fjölmiðla og ráðamanna í fyrirhuguðu kísilverk- smiðjumáli gefa vísbendingar um að það séu fjármálaöflin sem raun- verulega ráði för. „Það verða hugs- anlega lífeyrissjóðir sem koma að fjármögnun bæði verksmiðjunn- ar og orkuöflunar og þeirra hagur er að koma peningunum sem þeir sitja á í vinnu. Bankar og aðrar fjár- málastofnanir ráða býsna miklu hér á landi og þeir ásamt lífeyrissjóð- unum vilja af einhverjum óskiljan- legum ástæðum fjárfesta í stóriðju. Ef fjölmiðlar svo spila með í „geim- inu“ er ekki við öðru að búast en al- menningur trúi að enn meiri stór- iðja eigi að verða bjargvættur lands- ins út úr kreppunni. Við segjum hins vegar NEI við slíku, því við horfum til langtímaáhrifa. Landið okkar er alltof verðmætt til að fara svona með það. Við megum aldrei fórna því fyrir stundarhagsmuni peningaafla,“ segir Þórarinn. Eigum ennþá eitt hreinasta land í heimi Þórarinn og Ragnheiður telja að skipulagsyfirvöld, borgarstjórn, sveitarstjórn Hvalfjarðarsveit- ar og ríkisstjórnin geti ekki horft fram hjá ábendingum og kröf- um Umhverfisvaktarinnar um að virða rétt fólks við Hvalfjörð og að vernda náttúruperlu sem er einstök. „Þar að auki telur Um- hverfisvaktin að Íslendingum beri að framleiða íslenskar vörur úr íslensku hráefni sé þess nokk- ur kostur. Við þurfum að leggja áherslu á það sem íslenskt er. Það er t.d. ekki íslensk framleiðsla að hreinsa óþrifnað úr innfluttu sú- ráli sem er í eigu útlendinga, með íslenskri niðurgreiddri raforku, skilja óþrifnaðinn eftir hér á landi og flytja lokaafurðina sem einnig er í eigu útlendinga aftur út. Hrá- efnið fyrir Silicor er ekki íslenskt. Eigendurnir eru erlendir,“ segja þau Þórarinn og Ragnheiður. Að lokum segja þau að í um- ræðu um stóriðju eig ekki að beita innihaldslausri orðræðu og afvegaleiða umræðuna, heldur líta raunsætt á málin: „Við eigum ennþá eitt hreinasta land í heimi sem er ríkt af auðlindum. Við ætt- um öll að hrósa happi yfir þessu fallega landi og virða rétt kom- andi kynslóða til þess. Við eigum að koma í veg fyrir að stjórnvöld gíni yfir sameiginlegum auðlind- um og að auðlindir verði notað- ar með alltof miklum hraða, jafn- vel offorsi og á þann hátt að aldrei verði bætt.“ mm

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.