Skessuhorn - 27.05.2015, Blaðsíða 19
19MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2015
Ísgöngin í Langjökli munu taka á
móti sínum fyrsta ferðamannahópi
mánudaginn 1. júní næstkom-
andi. „Þetta er bara rétt að klár-
ast núna, við erum á lokametrun-
um í frágangi. Útlitið var ekki gott
eftir veturinn en það hefur unn-
ist mjög vel síðustu þrjár til fjórar
vikurnar og afar lítið sem er eftir,“
sagði Sigurður Skarphéðinsson,
framkvæmdastjóri Into the Gla-
cier, eignarhaldsfélags um ísgöng-
in í Langjökli, þegar blaðamað-
ur Skessuhorns ræddi við hann
í vikunni. „Vinnan fer langt um
helgina og aðeins einhver smá-
atriði eftir sem unnið verður að í
næstu viku. Þetta er eiginlega smá
þjófstart hjá okkur, formleg opnun
verður 5. júni þegar verða göngin
opnuð með mikilli viðhöfn.“
Hellarnir, auk ganganna sem
tengja þá saman, teygja sig 550
m inn í jökulinn og allt að 30 m
undir yfirborð hans. Munu þetta
vera stærstu manngerðu ísgöng og
-hellar í Evrópu.
Verkefnið hefur verið stutt af
Icelandair Group hf. og lífeyris-
sjóðunum.Verkfræðistofan EFLA
hefur verið viðriðin verkefnið
frá upphafi og Ari Trausti Guð-
mundsson jarðfræðingur hefur
látið sérþekkingu sína í té.
Að sögn Sigurðar hefur geng-
ið vel að selja í göngin og þegar
einhverjar dagsetningar uppbók-
aðar. „Það hefur bókast rosalega
mikið þessa dagana og fyllist mjög
fljótt. Sumarið er þó ekki uppbók-
að. Við erum náttúrulega nýtt fyr-
irtæki sem hóf ekki markaðssókn
fyrr en síðasta haust. Það þýð-
ir að við höfum ekki náð til hópa
sem skipuleggja ferðir langt fram
í tímann og margir vilja koma og
skoða staðina áður en þeir koma
með stóra hópa,“ segir Sigurður
en bætir því við að fyrirtækið horfi
björtum augum til framtíðar. „Við
áætlum að það verði mikill vöxtur
á næsta ári, það tekur allavega eitt
ár að koma sér á framfæri. Þannig
að við erum bara bjartsýn.“ kgk
Ari Bjarnason, tannlæknir í Ólafs-
vík, fagnaði fimmtugsafmæli í síð-
ustu viku. Af því tilefni fór hann í
ferðalag til Asíu og hljóp maraþon
á Kínamúrnum. Það má því segja
að hann hafi haldið upp á afmælið á
frekar óhefðbundinn hátt. Skessu-
horn heyrði í Ara rétt eftir heim-
komuna og forvitnaðist um hlaup-
in og ferðina. „Það var alltaf ákveð-
inn draumur hjá mér að halda upp
á afmælið mitt í Asíu. Ég var svo að
spjalla við dóttur mína og þá kom
upp þessi hugmynd um að taka þátt
í maraþoninu en mig hefur allt-
af dreymt um að hlaupa maraþon.
Það varð svo úr að við fórum í níu
daga ferð til Kína öll fjölskyldan,
nema konan,“ segir Ari sem á þrjú
börn á aldrinum 14 - 27 ára.
Eitt af erfiðustu mara-
þonunum
Ari hefur lengi haft áhuga á hreyf-
ingu og hefur lagt stund á hjólreið-
ar til margra ára. Hann er aftur á
móti nýfarinn að stunda hlaup. „Ég
er alls ekki búinn að vera lengi í
þessu. Ég hljóp svolítið frá því ég
var tvítugur og til svona 26 ára en
hef ekki hlaupið síðan. Ég byrj-
aði bara aftur í nóvember. En mál-
ið er að ég hef hjólað mjög mikið
og því var úthaldið til staðar,“ út-
skýrir Ari. Hann bætir því við að
hann hafi aldrei áður hlaupið mara-
þon. Maraþonið á Kínamúrnum
er hlaupið þriðju helgina í maí á
hverju ári og er talið eitt af erfið-
ustu maraþonhlaupum heims. Enda
er þar hlaupið upp og niður mishá-
ar og brattar tröppur og eins eftir
grýttum stígum. Ari segist þó ekki
alveg hafa áttað sig á því hversu
strembið maraþonið væri þegar
hann skráði sig. Hann hljóp mest
inni á bretti í vetur þegar hann var
að undirbúa sig en hljóp úti þegar
veður leyfði. „Þá hljóp ég yfirleitt
á vegunum hérna fyrir utan bæinn
og aðeins uppi á fjallvegum. Það
hefði mátt vera meira, þetta eru svo
margar tröppur þarna úti og á köfl-
um er yfir 60% halli á leiðinni upp.
En þetta hafðist! Ekkert kom upp á
og ég hafði það gott allan tímann,“
segir hann kátur.
Fóru fyrst í ferð
Þetta var fyrsta ferð Ara til Kína.
Hann segir að aðstæður til hlaups-
ins hafi verið góðar, byrjað var í 20
gráðu hita en á endanum hafi hit-
inn verið kominn í 30 gráður. Hann
skilaði sér í mark á 5:54:31 og varð
nr. 312 af þeim 858 hlaupurum sem
hófu hlaupið. „Það var líka hægt að
hlaupa hálft maraþon og taka þátt
í skemmtiskokki. Annars máttum
við ekki taka þátt í hlaupinu nema
koma fyrst með í ferð þar sem
genginn var hluti af veggnum, til
að við gætum hætt við ef okkur lit-
ist ekki á þetta. Það voru einhverj-
ir sem hættu við eða minnkuðu við
sig og fóru hálft maraþon í staðinn.
Sigurður Skarphéðinsson, framkvæmdastjóri Into the Glacier, eignarhaldsfélags
um ísgöngin í Langjökli.
Fyrsti hópurinn heimsækir
ísgöngin í Langjökli
Hljóp maraþon á Kínamúrnum
Svo voru líka einhverjir sem ætl-
uðu að hlaupa hálft sem ákváðu að
fara alla leið, þannig að þetta jafn-
aðist út.“ Hann segir nokkur þús-
und manns hafa tekið þátt í heild-
ina. Þar á meðal hafi verið annar Ís-
lendingur og íslenskar mæðgur sem
hlupu hálft maraþon.
Skipta um hús við
útlendinga
Í þessari ferð til Kína gistu Ari og
fjölskylda hans á hóteli. Þau eru
þó vön að ferðast með öðru fyr-
irkomulagi sem þeim líkar betur.
„Við höfum stundað húsaskipti í
nokkur ár, þar sem skipt er á hús-
um og bílum við útlendinga. Það er
alveg frábært, það á bara enginn að
ferðast öðruvísi,“ segir hann hlæj-
andi. Fjölskyldan hefur því not-
að þennan ferðamáta innan Evr-
ópu með góðum árangri. „Við fór-
um fyrst til Trieste á Ítalíu, höfum
verið í fjallaþorpi fyrir utan Ma-
drid í þrjár vikur og nú síðast vor-
um við í Montpellier í Frakklandi.
Þá fær maður húsin tilbúin, uppá-
búin rúm, matur í ísskápnum og
rauðvíns- og hvítvínsflaska á borð-
inu. Það er eiginlega óskráð regla,“
segir hann. Hann segir þennan kost
vera mun betri en að vera á hóteli.
Fjölskyldan hafi alltaf fengið góð
hús með sundlaug og þægilegt sé
að geta labbað beint inn í eldhús og
eldað sjálfur. Þó sé betra að skipu-
leggja svona frí með góðum fyr-
irvara. „Við höfum reyndar allt-
af geta valið úr heimilum enda er
ásóknin til Íslands svo mikil. Þetta
er einnig töluvert ódýrari farkost-
ur þar sem við borgum bara flug-
miðann. Við förum alltaf frá sama
flugvelli og fjölskyldurnar sem við
skiptum við og hittumst þar, til að
skiptast á bíllyklum og svona. Við
höfum því alltaf hitt fólkið. Svo er
þetta góð þjófavörn. Húsið manns
stendur ekki tómt á meðan maður
er í fríi,“ segir maraþonhlauparinn
Ari að endingu.
grþ
Kínamúrinn er umfangsmikill enda sést hann frá tunglinu.
Ari að hlaupa á Kínamúrnum. Líkt og sjá má er hlaupið gríðarlega erfitt enda er hlaupið upp og niður brattar tröppur og eftir grýttum stígum.
Ánægður með að vera kominn í mark. Ari hljóp á 5:54:31 og varð í 312. sæti.