Skessuhorn - 15.07.2015, Page 8
MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 20158
Sláturtölur ekki
í samræmi við
seiðamagn
LANDIÐ: Aðalfundur
Landssambands veiðifélaga
var haldinn á Breiðdalsvík
í liðnum mánuði. Þar voru
samþykktar nokkrar ályktan-
ir, svo sem lög um fiskeldi og
sjókvíaeldi. Þá lögðu fund-
armenn auk þess áherslu á
að eftirlit verði aukið með
sjókvíaeldi á laxi og regn-
bogasilungi. „Fundurinn
furðar sig á því hversu seint
og illa upplýsingar sem varða
umhverfismál berast frá
opinberum aðilum um þessa
starfsemi. Skemmst er þess
að minnast þegar fjöldi eldis-
laxa veiddist síðastliðið sum-
ar, en af fjölda veiddra fiska
má ráða að mun fleiri fiskar
hafi sloppið en tilkynnt var
um. Er líkt og þagnarmúr
hafi verið slegin utan um
starfsemina og upplýsingum
haldið leyndum. Þá er at-
hyglisvert í þessu sambandi
að sláturtölur í fiskeldi eru
ekki í nokkru samræmi við
fjölda útsettra seiða. Slíkt
vekur óhjákvæmilega spurn-
ingar um strokulaxa eða
fiskadauða í kvíum yfir eld-
istímann.“
–mm
Aflatölur fyrir
Vesturland
4. - 10. júlí.
Tölur (í kílóum) frá
Fiskistofu:
Akranes 16 bátar.
Heildarlöndun: 16.146 kg.
Mestur afli: Grímur AK:
2.717 kg í fjórum löndun-
um.
Arnarstapi 15 bátar.
Heildarlöndun: 41.441 kg.
Mestur afli: Bárður SH:
13.187 kg í fimm löndunum.
Grundarfjörður 24 bátar.
Heildarlöndun: 278.812
kg.
Mestur afli: Baldvin NC:
239.221 kg í einni löndun.
Ólafsvík 32 bátar.
Heildarlöndun: 187.584
kg.
Mestur afli: Guðmund-
ur Jensson SH: 48.058 kg í
tveimur löndunum.
Rif 35 bátar.
Heildarlöndun: 77.252 kg.
Mestur afli: Magnús SH:
9.078 kg í einni löndun.
Stykkishólmur 27 bátar.
Heildarlöndun: 82.862 kg.
Mestur afli: Íris SH: 7.707
kg í þremur löndunum.
Topp fimm landanir
á tímabilinu:
1. Baldvin NC – GRU:
239.221 kg. 7. júlí
2. Guðmundur Jensson SH
– ÓLV: 35.308 kg. 7. júlí
3. Egill SH – ÓLV:
29.814 kg. 9. júlí
4. Gunnar Bjarnason SH –
ÓLV: 15.851 kg. 8. júlí
5. Guðmundur Jensson SH
– ÓLV: 12.744 kg. 8. júlí
mþh
Ein og hálf
hússala á dag
VESTURLAND: Þinglýstir
kaupsamningar um fasteignir á
Vesturlandi voru 43 í júní. Þar
af voru 25 samningar um eign-
ir í fjölbýli, 15 samningar um
eignir í sérbýli og þrír samn-
ingar um annars konar eignir.
Heildarveltan var 926 milljónir
króna og meðalupphæð á samn-
ing 21,5 milljón króna. Af þess-
um 43 voru 36 samningar um
eignir á Akranesi. Þar af voru
23 samningar um eignir í fjöl-
býli, 12 samningar um eignir í
sérbýli og einn samningur um
annars konar eign. Heildarvelt-
an var 774 milljónir króna og
meðalupphæð á samning 21,5
milljón króna.
–mm
Mögulegir
viðkomustaðir
kortlagðir
LANDIÐ: Ferðamálastofa hef-
ur birt gögn sem söfnuðust í
hinu viðamikla verkefni „Kort-
lagning auðlinda íslenskrar
ferðaþjónustu“ en það er með-
al aðgerða sem kveðið er á um
í Ferðamálaáætlun 2011-2020.
Um er að ræða verkefni sem
nýtist við þróun og uppbygg-
ingu íslenskrar ferðaþjónustu,
bæði opinberum stofnunum
sem og einkaaðilum. Verkefnið
miðar að því að kortleggja, með
aðstoð landfræðilegra upplýs-
ingakerfa, auðlindir ferðaþjón-
ustu og helstu innviði svæða
í samstarfi við heimafólk og
greina þannig með myndræn-
um hætti hvar auðlindir ferða-
þjónustunnar og tækifæri liggja
til framtíðar. Alta ehf. vann
verkið á grundvelli útboðs sem
efnt var til í samvinnu við Ríkis-
kaup vorið 2014 en Rannsókna-
miðstöð ferðamála hafði áður
unnið forverkefni sem tók til
átta sveitarfélaga á Suðurlandi.
Þá hafa Landmælingar Íslands
einnig setið í stýrihópi verkefn-
isins og veitt ráðgjöf. Sjá nán-
ar frétt á vef Skessuhorns og
Ferðamálastofu. –mm
Veiðar úr deili-
stofnum í júní
LANDIÐ: Kolmunnaveiðar
döluðu mjög í júnímánuði. Alls
nam afli íslenskra skipa 28.277
tonnum. Nær allt veiddist í lög-
sögu Færeyja en aðeins 1.222
tonn í landhelgi Íslands. Kol-
munnaafli ársins er nú orðinn
182.692 tonn. Hann er heldur
meiri en á sama tíma í fyrra. Þá
var hann orðinn 168.010 tonn.
Jón Kjartansson SU er afla-
hæsta skipið á kolmunna með
19.269 tonn. Næst kemur Beitir
NK með 18.924 tonn. Makríl-
veiðar hófust svo í lok júní. Alls
lönduðu íslensk skip rúmum
4.200 tonnum áður en mánað-
armót runnu upp. Huginn VE
55 kom með stærsta makrílfarm
júnímánaðar til Vestmanna-
eyja. Það voru 741 tonn. Veið-
um er svo lokið á úthafskarfa á
Reykjaneshrygg. Þar voru afla-
brögð sorglega léleg. Alls lönd-
uðu íslensk skip 2.128 tonnum.
Aflahæstu skipin á úthafskarf-
anum voru Oddeyrin EA með
618 tonn og Mánaberg ÓF með
543 tonn. Engum sögum fer af
veiðum á norsk íslensku síldinni
en þær hafa oft verið stundaðar
fyrri hluta sumars. –mþh
Slökkviliði Borgarbyggðar barst á
sunnudaginn útkall vegna elds sem
kraumaði í mosa og öðrum þurr-
um gróðri vestan við Úlfsvatn á
Arnarvatnsheiði. Enginn vegur eða
troðningur liggur að þessum stað
og var því kallað eftir aðstoð Land-
helgisgæslunnar sem sendi þyrluna
TF-LÍF á svæðið. Að sögn Bjarna
Kristins Þorsteinssonar slökkviliðs-
stjóra gekk slökkvistarfið fljótt og
vel fyrir sig með þyrlunni. Eldurinn
var á afmörkuðu svæði og hafði lík-
lega kraumað í þurru landinu í einn
eða tvo daga áður en hann var upp-
götvaður. Eftir langvarandi þurrka
þarf fólk að fara gætilega með eld,
en í þessu tilfelli blossaði eldurinn
líklega upp af sígarettuglóð. Slíkt
gáleysi orsakaði einnig Mýraeldana
vorið 2006.
mm/ Ljósm. úr safni.
„Það er búið að koma upp sökkl-
um og nú er unnið í jarðvegslögn-
um. Til stendur að byrja að reisa
húsið í byrjun þessarar viku,“ sagði
Björgvin R. Pálsson, verkefnastjóri
og einn af eigendum Rafmiðlunar,
í samtali við Skessuhorn. Áætlað er
að húsnæðið verði komið undir þak
í byrjun október og að sögn Björg-
vins er stefnt að því að flytja inn
fyrir jól. Húsnæðið sem verið er að
byggja verður tveggja hæða, steypt
einingahús og rúmlega 670m2 að
flatarmáli.
Fyrirtækið sinnir öllum raf-
magnstengdum verkefnum og hef-
ur þjónustað Elkem reglulega síð-
an 1998, Norðurál síðan 2004 og
er með gildandi þjónustusamninga
við bæði fyrirtækin. Að staðaldri
eru sex til tíu starfsmenn fyrirtæk-
isins með viðveru á Grundartanga.
„Þetta er hugsað sem bæði starfs-
mannaaðstaða og þjónustuverk-
stæði. Það var kominn tími til að
koma okkur endanlega fyrir þarna,
hafa almennilega aðstöðu á svæðinu
eftir öll þessi ár,“ segir Björgvin.
Aðspurður segir hann fyrirtæk-
ið einnig hafa litið til fjölgunar fyr-
irtækja á iðnaðarsvæðinu á Grund-
artanga. „Við sjáum fyrir okkur að
bjóða komandi fyrirtækjum þjón-
ustu og vera með betri aðstöðu á
svæðinu til að sinna því. Við höfum
verið að vinna fyrir Faxaflóahafnir
og komum til með að gera meira af
því ef vel gengur,“ bætir hann við.
Rafmiðlun verður ekki ein í nýju
byggingunni því EFLA verkfræði-
stofa mun leigja skrifstofur í húsinu
þegar flutt verður inn. Það stað-
festi Brynjar Bragason, sviðstjóri
iðnaðarsviðs hjá EFLU, í samtali
við Skessuhorn. EFLA hefur unn-
ið fjölmörg verkefni fyrir stóriðju-
fyrirtækin á Grundartanga í gegn-
um tíðina og munu starfsmenn
stofunnar sem þar eru hverju sinni
því eiga vinnuaðstöðu á svæðinu í
framtíðinni.
kgk
Frá árinu 2008 hefur þjónustuverk-
stæði vélsmiðjunnar Héðins verið
rekið á iðnaðarsvæðinu á Grundar-
tanga. Forsvarsmenn fyrirtækisins
hafa ráðist í stækkun verkstæðisins
og eru framkvæmdir þegar hafnar.
Þjónustuverkstæðið, sem nú er tæp-
lega 500 fermetrar, verður nálega
tvöfaldað. „Stækkunin er tilkomin
vegna aukinna verkefna á svæðinu.
Þarna er gott að vera, það er gott
að vinna fyrir þessi fyrirtæki. Svo
horfum við auðvitað til framtíð-
ar því það stendur til að fjölga fyr-
irtækjum á Grundartanga,“ sagði
Árni Ingólfsson, gæðastjóri Héð-
ins, í samtali við Skessuhorn. Búið
er að steypa sökkul og í næstu viku
stendur til að steypa gólfplötuna.
„Stálgrindin er á leiðinni til lands-
ins,“ segir Árni og bætir því við að
áætluð verklok séu með haustinu,
líklega í endaðan september.
Um tíu til tólf starfsmenn Héð-
ins eru á Grundartanga á hverj-
um degi. Aðspurður hvort fjölgun
starfsfólks sé í burðarliðnum seg-
ir Árni það óvíst, það fari allt eft-
ir verkefnastöðunni. Héðinn sé
með stóra smiðju í Hafnarfirði og
geti sent mannskap upp á Grundar-
tanga þegar svo ber undir. „Starfs-
fólki hefur þó fjölgað jafnt og þétt
síðustu árin,“ segir hann.
Héðinn sinnir allri almennri
járnsmíðavinnu og hefur lengi
þjónustað bæði Elkem og Norður-
ál. „Þetta er mikið til viðhaldsvinna
eða vinna við breytingar og annað
slíkt. Alls konar verkefni við fyrir-
tækin sem eru þarna. Það er gott að
vinan fyrir fyrirtækin sem eru þarna
fyrir. Við trúum því að þetta verði
áfram gott iðnaðarsvæði og höf-
um trú á því að þarna sé góð fram-
tíð. Við munum þjónusta alla, stóra
sem smáa,“ segir Árni.
kgk
Héðinn stækkar við sig
á Grundartanga
Rafmiðlun byggir á Grundartanga
Þyrlan slökkti gróðureld
á Arnarvatnsheiði
Frá framkvæmdum við stækkun þjónustuverkstæðis Héðins á Grundartanga.
Búið var að steypa sökkul fyrir síðustu helgi og til stendur að steypa gólfplötuna
nú í vikunni.
Vinna er hafin við byggingu nýs þjónustuverkstæðis Rafmiðlunar á Grundartanga.
Búið var að steypa sökkulinn og unnið var í jarðvegslögnum þegar blaðamann
Skessuhorns bar þar að garði í síðustu viku.
Teikning af norðausturhlið þjónustuverkstæðisins. Alls verður það rúmlega
670m2 að stærð.