Skessuhorn - 15.07.2015, Side 20
MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 201520
Það verður söguleg stund í dag,
miðvikudaginn 15. júlí, þegar Hót-
el Húsafell opnar dyr sínar fyr-
ir fyrstu gestunum sem þar munu
njóta dvalar. Þar með hefst það sem
hiklaust má kalla nýjan kafla í ferða-
þjónustu á þessum vinsæla og fagra
dvalarstað efst í byggðum Borgar-
fjarðar. „Það var haldið eins kon-
ar reisugildi á sunnudagkvöld fyr-
ir fólkið sem hefur unnið að bygg-
ingu og frágangi hótelsins. Undan-
farið hefur verið unnið myrkranna
á milli við að ganga frá því sem eftir
stóð í frábærri samvinnu allra sem
þar áttu hlut að máli,“ segir Unn-
ar Bergþórsson hótelstjóri. Seinna í
júlímánuði er svo ætlunin að halda
eins konar opið hús í hótelinu þar
sem almenningi gefst kostur á að
koma í heimsókn og skoða það.
„Þetta verður líklega föstudaginn
24. júlí eða þar um bil. Við erum
ekki alveg búin að ákveða dagsetn-
inguna enn. Fyrst þurfum við að sjá
betur hvernig bókunarstaðan verð-
ur svo við séum fullviss um að geta
annað því að halda slíkan dag,“ seg-
ir Unnar.
Myndir klappaðar
í hraun
Aðspurður upplýsir Unnar að fyrstu
gestir hótelsins verði hópur er-
lendra ferðamanna sem kominn er
til að skoða Ísland. Gestunum mun
mæta hlýlegt og afar glæsilegt hót-
el með vel útbúnum herbergjum og
veitingasal í fagurri náttúru Húsa-
fells. Við byggingu Hótels Húsa-
fells hefur verið gætt vel að því að
húsið falli inn í umhverfið. Á sama
tíma er að finna í húsinu ákveðnar
skírskotanir í náttúru og sagnahefð
uppsveita Borgarfjarðar og Vestur-
lands.
Páll Guðmundsson listamað-
ur sem sjálfur býr í Húsafelli hefur
lagt sín einstæðu verk af mörkum
til að af slíku mætti verða. „Í vet-
ur bjó ég til hraunmyndir af þrem-
ur körlum og þrem konum, alls sex
myndir. Þetta eru andlitsmynd-
ir sem eru klappaðar í hraunhell-
ur. Hraunmyndunum er komið fyr-
ir uppi á vegg í afgreiðslurými hót-
elsins,“ sagði Páll þegar hann sýndi
blaðamanni Skessuhorns verk sín í
síðustu viku. Hraunmyndirnar hef-
ur Páll gert með það í huga að þær
yrðu settar upp í hinu nýja hóteli.
„Ég ákvað þannig að búa til verk
sem ég hef aldrei gert áður með
sama hætti. Þetta eru fjórar mynd-
ir af persónum úr Hellismannasögu
og síðan myndir af Fjalla-Eyvindi
og Höllu Jónsdóttur konu hans,“
útskýrði Páll.
Vísar í
Hellismannasögu
Skírskotun Páls í Hellismanna-
sögu hefur bein tengsl við ná-
grenni Húsafells. Hellismanna-
saga er gömul þjóðsögn sem grein-
ir frá útilegumönnum sem höfð-
ust við í Surtshelli. Þetta voru 18
skólapiltar frá Hólum sem lágu þar
og stunduðu sauðaþjófnað. Einnig
rændu þeir til sín tveimur vinnu-
konum úr Kalmanstungu. Bónda-
sonur þaðan gekk í lið með þeim
en sveik þá síðan með þeim afleið-
ingum að borgfirskir bændur unnu
á útilegumönnunum. Vilmundur,
sem ein myndin er, af náðist við
Vilmundarstein fyrir utan Húsa-
fell. Valnastakkur var talinn mestur
kappi hellismanna. Frá vígi hans í
Vopnalág er komin hin fleyga setn-
ing „Varaðu þig, Valnastakkur, fall-
inn er hann Fjögramaki!“ Nú hef-
ur Valnastakkur hlotið sitt pláss í
Hóteli Húsafelli. Vinnukonurnar
tvær úr Kalmanstungu sem Hellis-
menn rændu og gerðu að eins kon-
ar ambáttum eru þarna einnig. Síð-
an eru það þau Fjalla-Eyvindur og
Halla sem koma hvergi við sögu í
Hellismannasögu en þau lágu úti á
hálendi Íslands, í því landslagi sem
blasir við austan Húsafells.
Afþrykk inni
á herbergjum
Þessar sex hraunmyndir eru sem
fyrr segir í afgreiðslu Hótels Húsa-
fells. „Þetta eru allt hraunstein-
ar úr Geitlandinu. Þetta er steinn
sem Kristleifur Þorsteinsson fann
sjálfur. Hann hefur legið hjá Þórði
Kristleifssyni í öll þessi ár þar til
ég tók hann og gerði þessa mynd
í hann,“ sagði Páll og benti á eina
hraunmyndina. „Svo fann ég hina
steinana sjálfur.“
Páll hefur svo bætt um betur og
búið til afþrykk af þessum myndum
sem prýða munu öll herbergi hót-
elsins. „Það fara afþrykk af hraun-
myndunum inn á öll herbergin.
Tvö þrykk í hvert herbergi, eitt af
karli og eitt af konu. Það verða 36
herbergi á hótelinu þannig að alls
eru þetta 72 myndir. Stundum eru
þrykkin aðeins þurr og stundum
aðeins blaut. Síðan eru bara notuð
viðarkol og eggjahvítan úr hænun-
um hans Þórðar Kristleifssonar hér
á Húsafelli. Þetta gerir það að verk-
um að engin mynd er eins,“ sagði
Páll og blaðaði í þykkum bunka
myndanna sem áttu hvað úr hverju
að fara í innrömmun í Borgarnesi.
Hleðslur eftir Unnstein
Þessar myndir eru þó ekki einu
verk Páls í Hótel Húsafelli. Í eins
konar útiskoti við neðri hæð hót-
elsins hefur tveimur höggmyndum
í steina verið komið fyrir í hagan-
legri hraungrýtishleðslu sem Unn-
steinn Elíasson frá Ferjubakka hef-
ur gert af miklu listfengi. „Önn-
ur myndin er af Eiríki úr Hellis-
mannasögu sem hljóp undir Eiríks-
jökul sem síðan er við hann kennd-
ur, og komst undan einn Hellis-
manna. Hin er svo af Gretti sterka
Ásmundarsyni,“ sagði Páll. Hann
upplýsti að steinninn með Eiríki
væri úr Selgili í nágrenni Húsafells
en Grettir væri fenginn úr Bæjar-
gilinu þar. „Þeir eru báðir úr lípar-
íti og falla mjög vel inn í hleðsluna
hér. Þetta er ákaflega fallega hlað-
ið hjá Unnsteini,“ sagði listamað-
urinn og renndi sjónum sínum yfir
vegginn.
Ofan við þennan vegg, við inn-
gang hótelsins, er svo stór stein-
mynd eftir Pál sem sýnir mynd
konu. „Það er spurning hvort þetta
geti verið Helga fagra eða fjall-
kona? Þessi steinn er ofan af Kalda-
dal,“ sagði listamaðurinn Páll Guð-
mundsson.
Nýtti hraungrýtið
úr grunninum
Unnsteinn Elíasson hleðslumeist-
ari hefur hlaðið nokkra veggi við
hótelið sem allir eru ákaflega hag-
anlega gerðir. Auk þessa hefur hann
búið til stóra hraungrýtishleðslu við
aðkeyrsluna að hótelinu sem stór-
ir málmstafir með nafni þess hafa
síðan verið festir á. „Hraungrýt-
ið sem ég nota í þessa veggi er hér
úr grunni hótelsins. Þegar rýmt var
fyrir grunninum var það fleygað út
og keyrt í haug. Ég valdi svo bestu
hleðslusteinana úr honum,“ sagði
Unnsteinn.
Öll þessi vinna var unnin í vetur.
„Þetta tók sinn tíma og var miser-
fitt. Það var nokkur vinna að koma
upp veggnum með myndunum af
Eiríki og Gretti. Þeir voru óskap-
lega þungir og það þurfti að stilla
alla hleðsluna af fyrir þá. En þeg-
ar karlarnir voru komnir á sinn stað
varð leikurinn auðveldari. Þá var
bara að hlaða utan um þá,“ sagði
hleðslumeistarinn.
mþh
Hótel Húsafell tekur á móti sínum fyrstu gestum í dag
Hótel Húsafell.
Það gekk mikið á í síðustu viku við frágang Hótels Húsafells, bæði utandyra sem
innan. En allt hafðist þetta að lokum. Hér er hópur frá Garðaþjónustunni Sigur-
garðar.
Páll Guðmundsson í prófíl við tvær af hraunmyndum sínum sem eru í afgreiðslu
hótelsins. Hér eru það þau Fjalla-Eyvindur og Halla kona hans.
Páll sýnir hér eitt af afþrykkjum sínum
af hraunmyndunum. Tvær svona
myndir eru í hverju herbergi, ein af
karli og ein af konu.
Unnsteinn Elíasson hleðslumeistari og Páll Guðmundsson við vegginn sem geymir
líparítmyndirnar af Gretti sterka og Eiríki. Grettir er við hlið Unnsteins og Eiríkur
við hlið Páls.
Börn Kristleifs og Sigrúnar á Húsafelli ásamt gömlu húsmóðurinni sem skoðaði
mannvirkin um liðna helgi. F.v. Þorsteinn, Þórður, Ingibjörg, Jón og Bergþór.
Sigrún situr í hjólastól framan við þau.
Páll við konuhöggmynd sína sem stendur
við inngang hótelsins, klöppuð í stein
ofan af Kaldadal.