Skessuhorn - 15.07.2015, Síða 23
MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 2015 23
Vorið var kalt þannig að viðskiptin
hjá mér hófust ekki fyrr en 12. júní.
Síðan þá má segja að það hafi verið
stöðugur straumur fólks hingað og
fín viðskipti,“ segir Sædís Guðlaugs-
dóttir í gróðrarstöðinni Gleym mér
ei í Borgarnesi. Gróðrarstöðin er vel
í sveit sett, í þjóðbraut við vegamót-
in vestur á Snæfellsnes og norður í
land við Sólbakka í Borgarnesi. Sæ-
dís ræktar og selur selur mikið úrval
fjölærra plantna ásamt úrvali af sum-
arblómum, kál- og kryddjurtum og
trjáplöntum. Hún segir að viðskipta-
vinir komi víða af landinu og sumir
yfir langan veg. Meðal annars seg-
ir hún að fólk hafi gert sér sérstaka
ferð austan af Norðfirði og hópur
kom nýlega frá Ólafsfirði svo dæmi
séu tekin.
„Heimafólkið er líka duglegt að
kaupa plöntur í sinni heimabyggð og
raunar Vestlendingar allir. Við höf-
um mjög breitt vöruúrval og fólk veit
að hverju það getur gengið,“ segir
Sædís. Nú eru tímamót framundan
í gróðrarstöðinni því 1. júlí á næsta
ári verða 30 ár liðin frá því ræktun
og sala hófst hjá Sædísi í Gleym mér
ei, fyrst í smáum stíl, en veltan hef-
ur aukist öll 29 árin sem stöðin hef-
ur verið starfrækt. Áður hafði Sædís
menntað sig í garðyrkjunni og unnið
á gróðrarstöðvum m.a. í Reykholts-
dal og Reykjavík. Fjölskylda Sædísar
heldur til á svæðinu og hefur komið
sér notalega fyrir í hlýlegu húsi á lóð
stöðvarinnar. Þá leggur móðir Sæ-
dísar, Guðbjörg Svavarsdóttir, einnig
gjörva hönd á plóg og er vakandi og
sofandi yfir garðyrkjunni ásamt Sæ-
dísi og fjölskyldu hennar.
Meðfylgjandi myndir voru teknar
á góðviðrisdegi í liðinni viku í Gleym
mér ei. Þær tala sínu máli. mm
Frjálsíþróttafélag Borgarfjarðar
hefur haft í ýmsu að snúast síð-
ustu mánuði. Fyrir utan það afrek
að fjárfesta í tímatökutækjum hef-
ur félagið haldið vígslumót tækj-
anna, staðið fyrir frjálsíþróttaskóla
þar sem mættir voru um 30 þátt-
takendur víða af Vesturlandi og
sent iðkendur á stórmót bæði hér-
lendis og erlendis. Hér að neðan
verður gert grein fyrir því helsta
frá stærstu mótum sumarsins.
Helgina 27. - 28. júní var Meist-
aramót Íslands í flokki 11-14 ára
haldið á Selfossi. Frjálsíþróttafélag
Borgarfjarðar (FB) sendi fjóra þátt-
takendur til keppni og stóðu þeir
sig mjög vel og bættu allir fyrri ár-
angur sinn í einhverri grein. Þetta
voru þau Telma Sól, sem keppti
til úrslita í 60m hlaupi, Guðrún
Karítas, sem hafnaði í fjórða sæti
í kúluvarpi, Daníel Fannar sem
hafnaði í fjórða sæti í spjótkasti og
Sigursteinn, sem hafnaði í fjórða
sæti í kúluvarpi og hlaut brons-
verðlaun í spjótkasti. Bronsverð-
launakast hans var 41,01m og er
það nýtt Borgarfjarðarmet í flokki
14 ára stráka.
Keppt á Gautaborgar-
leikunum
Fimmtudaginn 2. júlí síðastliðinn
hélt svo tíu manna hópur í keppn-
isferð til Svíþjóðar. Sex keppendur
frá FB, tveir frá UDN auk tveggja
fararstjóra. Hópurinn hélt til
Gautaborgar og keppti á Gauta-
borgarleikunum. Hópfélagar vilja
koma á framfæri þökkum til allra
sem styrktu þá til fararinnar.
Keppendur voru Sigursteinn Ás-
geirsson, Arnar Smári Bjarnason,
Grímur Bjarndal Einarsson, Elv-
ar Örn Einarsson, Vignir Smári
Valbergsson, Steinþór Logi Arn-
arsson, Ingibjörg Brynjólfsdótt-
ir og Hafrún Birta Hafliðadóttir.
Öll kepptu þau í nokkrum grein-
um og bættu sinn besta árangur
í að minnsta kosti einni keppnis-
grein og sumir í öllum.
Grímur Bjarndal (FB) bætti sig
í 100m hlaupi þegar hann hljóp á
12,57 en hann átti áður 12,68 sek.
Hann stökk einnig 12,19m í þrí-
stökki sem skilaði honum í úrslit
og síðan í 5. sæti. Að lokum hljóp
hann 110m grindahlaup á 17,34
sek sem er nýtt Borgarfjarðarmet
í flokki 16 ára stráka. Það verður
að teljast magnaður árangur þar
sem hann þurfti að hlaupa beint úr
þrístökkskeppninni yfir í grinda-
hlaupið og hljóp þetta því algjör-
lega óhvíldur.
Ingibjörg Brynjólfsdóttir (FB)
bætti sinn besta árangur í 100m
hlaupi þegar hún hljóp á 12,40
sem er bæting um 5 sekúndubrot.
Steinþór Logi Arnarsson
(UDN) bætti tíma sinn í 100m
hlaupi úr 12,62 í 12,46 sek. Hann
stökk 10,66m í þrístökki en átti
áður 10,35m. Að lokum bætti
hann sig í 200m hlaupi þegar hann
hljóp á 26,15 en fyrri árangur var
26,54m.
Hafrún Birta Hafliðadóttir (FB)
bætti tíma sinn í 100m hlaupi úr
15,90 í 15,70sek.
Arnar Smári Bjarnason (FB)
byrjaði mótið á því að bæta sig um
2cm í langstökki þegar hann stökk
5,57m. Einnig varpaði hann kúl-
unni 10m sem var bæting um 5cm.
Spjótinu kastaði hann 38,50m en
hann átti áður 37,48m best. 80m
grindahlaup hljóp hann á 12,42sek
sem var bæting úr 12,80sek og
nýtt Borgarfjarðarmet í flokki 15
ára pilta. Að lokum komst hann
í úrslit í 80m hlaupi og hljóp á
9,73sek sem er nýtt Borgarfjarðar-
met í flokki 15 ára pilta en gam-
an er að geta þess að þetta er jafn-
framt besti tími sem náðst hef-
ur í 80m hlaupi í þessum aldurs-
hópi á landsvísu. Aftur á móti eru
met ekki skráð í þessari grein hér
á landi og því getur árangur hans
ekki kallast Íslandsmet.
Vignir Smári Valbergsson
(UDN) bætti sig í þrístökki, með
stökki upp á 10,24m en hann átti
áður 9,79m best, kúluvarpi með
kasti upp á 9,10m en fyrri árang-
ur var 8,95m. Að lokum kastaði
hann spjótinu 41,74m sem er stór
bæting en hann átti áður 36,23m.
Mun þetta kast vera nýtt félagsmet
UDN í flokki 15. ára pilta.
Sigursteinn Ásgeirsson (FB)
bætti sig í kúluvarpi þegar hann
varpaði kúlunni 9,92m og bætti
sig um 2cm.
Elvar Örn Einarsson (FB) stökk
4,14m í langstökki en hann átti
áður 3,87m. Hann hljóp 80m
hlaup á 12,00 sem var stór bæt-
ing en hann átti áður 17,70sek. Að
lokum kastaði hann spjóti 33,57m
sem er mikil bæting en hann átti
áður 27,15m.
Það má með sanni segja að mik-
il gróska sé í frjálsíþróttum í hér-
aðinu um þessar mundir. Ungir og
efnilegir iðkendur taka stöðugum
framförum.
Næst á dagskrá er SamVest mót
í frjálsum íþróttum á Skallagríms-
velli í Borgarnesi sunnudaginn
19. júlí næstkomandi. Mótið hefst
kl. 11 og FB hvetur sem flesta til
að koma og taka þátt eða fylgjast
með. uj
Arnar Smári keppir til úrslita í 80m hlaupi í Gautaborg.
Það helsta úr starfi
Frjálsíþróttafélags Borgarfjarðar
Frjálsíþróttahópurinn sem keppti á Gautaborgarleikunum í byrjun júlí.
Stöðugur straumur í Gleym mér ei