Skessuhorn


Skessuhorn - 15.07.2015, Side 26

Skessuhorn - 15.07.2015, Side 26
MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 201526 Undanfarna daga hafa Skagamenn veitt athygli litlum seglbátum sem sjá hefur mátt á hverjum degi á siglingu út af Langasandi. Um er að ræða æfingabúðir á vegum Sigl- ingasambands Íslands sem fram fóru á Akranesi. „Þetta eru æfinga- búðir fyrir öll siglingafélög á land- inu. Hér eru krakkar meðal ann- ars frá Akureyri og höfuðborgar- svæðinu,“ sagði Úlfur Hróbjarts- son, formaður Siglingasambands Íslands, þegar blaðamaður Skessu- horns heimsótti hópinn þar sem hann snæddi hádegismat í blíðunni á Aggapalli síðastliðinn miðviku- dag. „Við gerum þetta einu sinni á ári, að fara og halda æfingabúðir einhvers staðar á landinu. Undan- farin ár höfum við verið á Akureyri, Sauðárkróki og Stykkishólmi svo dæmi séu tekin,“ bætir hann við. „Þetta er alveg ljómandi aðstaða,“ sagði Úlfur aðspurður um hvernig væri að sigla á Akranesi. „Nokkuð varið af skerjunum í kring. Reynd- ar opið fyrir sunnanáttinni en þeg- ar svo ber undir er nóg pláss til að sigla í höfninni.“ Æfingabúðir sem þessar segja aðstandendur að hafi verið vel sótt- ar í gegnum tíðina. Í ár séu þó örlít- ið færri en venjulega. „Þetta sumar hefur verið rysjótt framan af, leið- inlegt veður og það hefur líklega áhrif á þátttökuna að þessu sinni,“ segir Úlfur en 17 krakkar taka þátt í æfingabúðunum á Akranesi. Elstu þátttakendur eru rétt rúmlega tví- tugir og þeir yngstu aðeins ellefu ára. „Það er mikil breidd í hópnum sem er að mörgu leyti skemmtilegt. Það verða allir að vera vinir og eldri krakkarnir passa upp á þá yngri,“ bætir Úlfur við og brosir. Í skoðun að stofna sigl- ingafélag á Akranesi Æfingabúðunum lauk á laugardag- inn með siglingakeppni. Þá var sett upp braut sem þátttakendur sigldu. Minnstu bátarnir eru allir eins og þá gildir bara hver kemur fyrstur í mark. Þegar stærri bátarnir keppa þarf að beita útreikningum og ræsa á mismunandi tímum vegna þess að þeir eru misjafnlega hraðskreiðir. „Svo vonandi getum við hald- ið námskeið hér í sumar og þá fyrir krakka á Akranesi,“ segir Úlfur og bætir því við að Siglingasamband- ið skoði nú, í samstarfi við Íþrótta- bandalag Akraness, möguleikann á því að koma að stofnun siglinga- félags á Akranesi sem yrði þá að- ildarfélag ÍA. Ekkert hafi hins veg- ar verið ákveðið í þeim efnum enn sem komið er. Siglingar eru ekki fjölmennasta íþróttagrein landsins. Einn að- standenda æfingabúðanna gat sér til um að innan SÍL væru á milli 150 og 200 virkir iðkendur. Ástæð- una taldi Úlfur meðal annars vera þá að krakkar í dag fengju ekki að kynnast sjónum. „Þessir trillukarl- ar sem maður hittir niðri á bryggju hafa gaman af því að sigla og eru í þessu vegna þess að þeir eru aldir upp við að mega fara um borð í báta og sigla þeim. Það stendur fæst- um krökkum í dag til boða,“ seg- ir hann. Krakkar séu aldir upp við að sjórinn sé hættulegur, sem hann getur vissulega verið. „Við vitum að við vinnum með ákveðinn áhættu- þátt en með viðeigandi ráðstöfun- um er áhættunni haldið í algjöru lágmarki. Til dæmis eru björgun- arvesti algjört skilyrði á viðburð- um sem þessum. Það fer enginn um borð í bát án þess að vera í vesti. Það gildir um alla, nemendur sem þjálfara,“ segir Úlfur. Tveir örygg- isbátar sem fylgdu krökkunum voru á svæðinu auk þjálfarabátsins sem lá á miðju siglingasvæðinu. Þar fylgd- ust vökul augu yfirþjálfarans Tom Wilson með öllu sem fram fór. Er þetta í sjötta skipti sem Tom kemur til landsins og þjálfar fyrir SÍL og unir hann hag sínum vel í því hlut- verki. „Tom er alveg frábær, fær þjálfari. Hann er ofboðslega góður með krakkana og nær vel til þeirra,“ sagði Úlfur. Ánægjan skein af hverju andliti Að siglingum loknum þennan mið- vikudag spjallaði blaðamaður stutt- lega við siglingakappann Gunnar Hlyn, sem sigldi ásamt nafna sínum Gunnari Kristni. „Við erum búnir að sigla saman í fimm ár og þar af svona tvö og hálft á þessum báti,“ sagði Gunnar Hlynur, en þeir fé- lagar eru aðeins tæplega tvítugir. Blaðamaður tók einnig tali nokkra yngri siglingagarpa sem sækja æfingabúðirnar. Flestir þeirra voru kringum fermingaraldurinn og öll höfðu þau milli fimm og sjö ára reynslu af siglingum. Aðspurð hversu gaman þau hefðu af því að sigla voru svörin öll á einn veg. Siglingarnar sögðu þau vera með því skemmtilegasta sem þau gerðu, sum vildu meira að segja kveða svo fast að orði að segja þær það allra skemmtilegasta. Blaðamaður trúði hverju orði enda skein ánægjan af andlitum þátttakenda. kgk Stolt siglir fleyið mitt Æfingabúðir í siglingum voru alla síðustu viku á Akranesi Æfingabúðir á vegum Siglingasambands Íslands voru haldnar á Akranesi í síðustu viku. Þátttakendur voru á öllum aldri. Þeir elstu rúmlega tvítugir og þeir yngstu ellefu ára. Tveir af aðstandendum æfingabúðanna. Úlfur Hróbjartsson, formaður SÍL og Ólafur Már Ólafsson, formaður Siglingafélags Reykjavíkur, nýttu tækifærið og sigldu sér til gamans áður en þátttakendur sneru úr hádegishléi. Það er mikilvægt að líta vel í kringum sig þegar siglt er í kringum aðra. Krakkarnir sigla í braut sem slegið var upp úti fyrir Langasandi. Mikið kapp var í þátttakendum í brautinni þar sem allir reyndu að sigla sem hraðast. Gunnar Kristinn og Gunnar Hlynur sigla hraðskreiðasta bátnum í suðurátt. Í bakgrunni má sjá eitt af skipum Hvals hf. Þessir drengir fóru heldur geyst fyrir baujuna og báturinn fór á hliðina. Þeir voru hins vegar snarir í snúningum, réttu bátinn af í hvelli og héldu áfram að sigla. Siglt í átt að Akrafjalli. Gunnar Kristinn og Gunnar Hlynur sigla í átt að landi undir lok æfinga síðastliðins miðvikudags.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.