Skessuhorn - 15.07.2015, Qupperneq 31
MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 2015 31
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
eBOX er ný, þægileg og einföld lausn til að flytja minni sendingar
frá Evrópu til Íslands. Á ebox.is er reiknivél sem segir þér á
augabragði hver flutningskostnaðurinn er. Traust og áreiðanlegt
leiðakerfi Eimskips á Norður-Atlantshafi tryggir að sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
auðveldar smásendingar
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
������� ���������
� e���.��
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Andrés Már Harðarson í Leyni
gerði sér lítið fyrir og fór holu í
höggi á 18. holu Garðavallar á öðr-
um degi meistaramóts GL sem
fram fór um helgina. Ljósm. fengin
af facebook-síðu GL.
Leikmenn ÍA öttu
kappi við lið Augnabliks
í Kópavogi í fyrstu deild
kvenna í knattspyrnu á
fimmtudagskvöldið. Fyrri hálfleik-
ur var fremur tíðindalítill. Skaga-
konur léku ágætlega og sköpuðu
sér nokkur marktækifæri en þegar
í vítateig andstæðinganna var kom-
ið var eins og vantaði herslumun-
inn upp á. Það sama var uppi á ten-
ingnum í síðari hálfleik. Skagakon-
ur fengu ágæt færi og spilamennsk-
an almennt góð. Aftur á móti tókst
þeim ekki að koma boltanum í net-
ið og leiknum í Kópavoginum lauk
því með markalausu jafntefli.
Úrslitin þýða að ÍA er sem stend-
ur í þriðja sæti A riðils með níu
stig eftir sex leiki, sjö stigum á eft-
ir toppliði HK/Víkings sem er ein-
mitt næsti mótherji Skagakvenna.
Sá leikur fer fram á Víkingsvelli
eftir viku, miðvikudaginn 22. júlí.
Ljóst er að mikilvægt er að Skaga-
konur nái góðum úrslitum þar til að
geta farið að blanda sér fyrir alvöru
í baráttuna um sæti í úrslitakeppn-
inni um laust sæti í úrvalsdeild að
ári. kgk
Körfuknattleiksdeild Skallagríms hefur
ákveðið að endurvekja meistaraflokks-
lið kvenna eftir tveggja ára hlé. Signý
Hermannsdóttir, Kristrún Sigurjóns-
dóttir og heimamaðurinn Guðrún
Ámundadóttir hafa þegar gengið til
liðs við félagið. Signý stefnir á að taka
skóna af hillunni til að hjálpa liðinu að
komast upp um deild. Hún á að baki
langan og farsælan úrvalsdeildarferil og
er þriðji leikjahæsti leikmaður lands-
liðsins frá upphafi. Enn fremur verður
hún hluti af þjálfarateymi Skallagríms.
Tilkynnt verður um aðalþjálfara síðar,
segir í tilkynningu á vef Skallagríms.
Kristrún á einnig að baki langan feril í
úrvalsdeild og með landsliði Íslands og
hefur spilað með Val undanfarin ár.
Guðrún gengur til liðs við Skalla-
grím frá Haukum. Þar hefur hún leik-
ið undanfarin ár og var síðast fyrirliði
Hauka. Á sínum yngri árum lék hún
með Skallagrími upp alla yngri flokka
félagsins áður en hún hélt suður til
náms. Samanlagt hafa þær unnið til
fjölmargra Íslands- og bikarmeistara-
titla og munu styrkja liðið á komandi
vetri.
Við sama tilefni var gengið frá samn-
ingum við þær Írisi Gunnarsdóttur,
Guðrúnu Ingadóttur, Þórdísi Sif Arn-
arsdóttur og Sigurbjörgu Sigurðar-
dóttur. Þær léku allar með Skallagrími
þegar liðið tók síðast þátt í Íslands-
mótinu.
Lið Skallagríms mun leika í fyrstu
deild næsta vetur ásamt Breiðabliki,
Þór Akureyri, Njarðvík og Fjölni.
Fjölgað gæti í deildinni þegar nær
dregur upphafi keppnistímabilsins um
mánaðamót september og október.
kgk
Leikmenn ÍA tóku á sunnudaginn
á móti Eyjamönnum fyrir fram-
an rúmlega þúsund áhorfendur á
Akranesvelli í elleftu umferð úrval-
deildar karla í knattspyrnu. Leikur-
inn var að sjálfsögðu í beinni lýs-
ingu á vef Skessuhorns. Fyrir leik-
inn voru Skagamenn í tíunda sæti
deildarinnar en gestirnir úr Eyj-
um í sætinu fyrir neðan. Því var um
mikilvægan leik að ræða fyrir bæði
lið nálægt botni deildarinnar. Gest-
irnir byrjuðu betur og komust yfir
strax á 11. mínútu þegar Ian Jeffs
sendi boltann fyrir. Varnarmað-
ur slæmdi hælnum í boltann með
þeim afleiðingum að hann breytti
algerlega um stefnu og féll beint
á Víði Þorvarðarson sem lyfti sér
upp og skallaði hann í fjærhornið.
Markið virtist slá leikmenn ÍA út af
laginu og Eyjamenn réðu lögum og
lofum næstu tíu mínútur eða svo.
Eftir það komust Skagamenn hægt
og sígandi inn í leikinn. Arnar Már
Guðjónsson skallaði framhjá úr
dauðafæri eftir frábæra hornspyrnu
Jóns Vilhelms Ákasonar og Skaga-
menn skoruðu mark sem var dæmt
af vegna rangstöðu.
Það var svo á 39. mínútu að Arn-
ar Már jafnaði metin fyrir Skaga-
menn. Hann fékk boltann um 25
metra frá markinu. Hann var ekk-
ert að tvínóna við hlutina heldur
lét vaða að marki. Boltinn virtist á
leið yfir en tók væna dýfu og hafn-
aði efst í markhorninu. Undir lok
hálfleiksins vildu Skagamenn fá víti
þegar varnarmaður ÍBV virtist hafa
hrint Þórði Þorsteini Þórðarsyni
en dómari leiksins sýndi því lítinn
áhuga. Staðan í hálfleik því 1-1.
Skagamenn mættu mun ákveðn-
ari til síðari hálfleiks og hann var
aðeins tveggja mínútna gamall þeg-
ar þeir komust yfir. Ásgeir Mar-
teinsson fór þá laglega framhjá
bakverði Eyjamanna uppi í hægra
horninu, sendi fallega sendingu
fyrir markið á fjærstöngina þar sem
Arsenij Buinickij skallaði boltann
auðveldlega í netið. ÍA var sterk-
ara liðið á vellinum eftir markið og
skapaði sér nokkur ágæt færi. Eyja-
menn hefðu getað jafnað á 68. mín-
útu þegar boltinn barst á Jón Inga-
son vinstra megin í teignum. Árni
Snær gerði hins vegar virkilega vel
í marki Skagamanna. Kom vel út,
gerði sig breiðan og varði skotið.
Á 75. mínútu skoruðu Skaga-
menn svo þriðja mark sitt. Þórð-
ur Þorsteinn Þórðarson átti fyr-
irgjöf frá hægri. Hallur Flosason
kom á ferðinni af vinstri kantin-
um, lyfti sér upp og skallaði bolt-
ann í fjærhornið framhjá markverði
Eyjamanna. Snyrtilega klárað hjá
Halli. Jón Vilhelm Ákason hefði
getað bætt við marki eftir skyndi-
sókn undir lok leiksins. Hann fékk
dauðafæri eftir laglega sendingu frá
Marko Andelkovic í vítateig Eyja-
manna en skot hans varið. Fleiri
mörk voru því ekki skoruð í leikn-
um og lokatölur á Akranesvelli 3-1,
ÍA í vil.
Úrslitin gera það að verkum að
Skagamenn fjarlægjast botn deild-
arinnar og lyfta sér upp í áttunda
sætið með tólf stig eftir ellefu leiki.
Næst mæta þeir Íslandsmeisturum
Stjörnunnar í Garðabænum laugar-
daginn 18. júlí.
kgk/ Ljósm. Guðmundur Bjarki
Halldórsson.
Eftir stórsigur Víkinga gegn
Fram, 4:0, í síðustu viku var
ferð þeirra Víkingsmanna
heitið austur til Eskifjarðar.
Þar mættu þeir Fjarðabyggð í elleftu
umferð fyrstu deildar karla í knatt-
spyrnu laugardaginn 11. júlí síðastlið-
inn. Fyrir leikinn sátu Víkingar í öðru
sæti deildarinnar og Fjarðabyggð í því
þriðja, tveimur stigum á eftir Ólafsvík-
ingum. Fyrri hálfleikur var fremur tíð-
indalítill og sóknarleikur beggja liða
frekar ómarkviss. Hvorugt lið skap-
aði sér afgerandi færi og staðan jöfn
og markalaus þegar flautað var til hálf-
leiks.
Víkingar mættu ákveðnir til síð-
ari hálfleiks og voru nálægt því að
komast yfir á 54. mínútu. Eftir mik-
inn atgang í vítateig Fjarðabyggðar
náði Guðmundur Reynir Gunnarsson
skoti sem varnarmaður komst fyrir.
Skömmu síðar átti Ingólfur Sigurðs-
son skot utan teigs sem markvörður
Fjarðabyggðar varði glæsilega í horn.
Eftir það datt leikurinn töluvert nið-
ur og fátt markvert gerðist þar til á 75.
mínútu þegar heimamenn í Fjarða-
byggð náðu forystunni. Guðmund-
ur Reynir hugðist þá hreinsa boltann
frá marki Víkinga en hitti hann ekki.
Það varð til þess að boltinn hafnaði hjá
Ingvari Ásbirni Ingvarssyni sem lagði
hann fyrir Elvar Inga Vignisson sem
kláraði færið snyrtilega.
Eftir markið lágu heimamenn til
baka og vörðust vel. Víkingar fengu
þó gullið tækifæri til að jafna metin
á næstsíðustu mínútu leiksins. Guð-
mundur Reynir átti þá glæsilega fyrir-
gjöf fyrir markið á fjærstöngina, beint
á Kristinn Magnús Pétursson sem
skaut framhjá markinu úr sannkölluðu
dauðafæri. Lokatölur á Eskifirði því
1-0, Fjarðabyggð í vil.
Úrslitin gera það að verkum að lið-
in hafa sætaskipti í deildinni. Víkingar
eru nú í þriðja sæti með 23 stig, einu
stigi á eftir Fjarðabyggð og fjórum
stigum á eftir toppliði Þróttar R.
Næst mæta Víkingar Haukum í
Hafnarfirði föstudaginn 17. júlí næst-
komandi.
kgk.
Á formannafundi Íþróttabandalags
Akraness nýverið var samþykkt að
stefna að því að innan bandalagsins
verði fatnaður sem mest sameig-
inlegur óháð aðildarfélögum. Að
iðkendur geti farið á milli íþrótta-
greina en nýtt íþróttafatnað eins
vel og mögulegt er. Í dag er hvert
íþróttafélag með sína eigin línu og
merki á fatnaði, en í framtíðinni er
vonast til að sem allra mest verði
sameiginlegt og merkt ÍA. Jafn-
framt var samþykkt á formanna-
fundinum að Íþróttabandalagið sjái
um sameiginleg innkaup á ýmsum
félags- og stuðningsvörum svo sem
fánum, veifum og fleiru.
mm
Víkingur Ó. tók á móti
Fram í B riðli fyrstu deild-
ar kvenna í knattspyrnu
fyrir framan 210 áhorfend-
u r á Ólafsvíkurvelli á miðvikudag.
Þrátt fyrir að Fram væri ofar í stöðu-
töflunni fyrir leikinn voru Víkings-
stúlkur sterkari aðilinn á vellinum.
Þær áttu tíu marktilraunir á móti að-
eins fjórum marktilraunum gestanna.
Fyrsta markið á Ólafsvíkurvelli kom
hins vegar ekki fyrr en á 67. mínútu
þegar Sigrún Gunndís Harðardótt-
ir skoraði og kom Víkingi yfir. Fleiri
mörk voru ekki skoruð í leiknum sem
lauk því með 1-0 sigri heimamanna.
Úrslitin gera það af verkum að
Víkingur situr í fjórða sæti riðilsins,
einu stigi á eftir Fram en fimm stig-
um á eftir toppliði Grindavíkur, sem
Víkingur lagði einmitt að velli í um-
ferðinni á undan.
Í næstu umferð mætir liðið Hvíta
riddaranum á Tungubakkavelli í
Mosfellsbæ. Víkingsstúlkur hljóta að
mæta í þann leik fullar sjálfstrausts
því þegar liðin mættust á Ólafsvíkur-
velli fyrr í sumar lauk leik þeirra með
7-0 sigri Víkings.
kgk
Meistaraflokkur kvenna
endurvakinn hjá Skallagrími
Þeir leikmenn sem þegar hafa gengið til liðs við liðið. F.v. Guðrún Ingadóttir,
Íris Gunnarsdóttir, Þórdís Sif Arnarsdóttir, Kristrún Sigurjónsdóttir, Sigurbjörg
Sigurðardóttir, Guðrún Ósk Ámundadóttir og Signý Hermannsdóttir.
Ljósm. skallagrimur.is.
Tap hjá Víkingum í
toppbaráttu fyrstu deildar
Arnar Már var valinn maður leiksins
af stuðningsmönnum ÍA og hlaut að
launum málverk eftir Bjarna Þór.
Skagasigur í mikilvægum leik á móti ÍBV
Skagamenn fagna 3-1 sigri á ÍBV eftir leikinn á sunnudaginn.
Markalaust í Kópavoginum
Vilja samræma sem mest
fatnað aðildarfélaga ÍA
Hola í höggi
Víkingsstúlkur lögðu Fram