Skessuhorn - 23.09.2015, Síða 2
MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 20152
Hreyfivika UMFÍ stendur nú yfir og ýms-
ir viðburðir tengdir henni hafa verið skipu-
lagðir á Vesturlandi. Hreyfivikan er hluti af
evrópsku lýðheilsuverkefni hvers mark-
mið er að fá 100 milljónir Evrópubúa til að
hreyfa sig reglulega fyrir árið 2020. Munum
því að hreyfa okkur reglulega, kyrrseta getur
verið okkar versti óvinur.
Norðaustan 5-13 m/s og rigning á Norð-
vesturlandi á fimmtudag. Annars norðan
3-8 m/s, skýjað með köflum og úrkomulít-
ið norðaustan til. Bjartviðri um sunnanvert
landið. Hiti 3-10 stig, svalast á Vestfjörðum.
Norðlæg átt, 5-10 m/s og skúrir eða dálít-
il rigning norðanlands á föstudag. Annars
hægari vindur og bjart að mestu. Hiti 3-11
stig, hlýjast syðst. Gengur í suðaustan hvass-
viðri eða storm með rigningu á laugardag,
fyrst á Suðvesturlandi en hægari vindur og
lítil úrkoma á norðaustan til. Hiti 7-12 stig.
Fremur hæg suðvestanátt með skúrum á
sunnudag og mánudag. Léttir til Norðaust-
anlands og kólnar í veðri.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns:
„Ætlar þú eða þínir að taka slátur í haust?“
48,9% svöruðu „Nei, örugglega ekki“ en
næstflestir, 26,65% sögðu „Já, örugglega.“
13,17% sögðust kannski ætla að taka slátur
og 6,27% vissu það ekki. Fæstir, eða 5,02%
spurðu á móti: „Hvað er slátur?“
Í þessari viku er spurt: „Hversu
stundvís ert þú?“
Dalamaðurinn Gísli Kristjánsson varð á dög-
unum heimsmeistari í ólympískum lyft-
ingum á heimsmeistaramóti öldunga sem
haldið var í Finnlandi. Hann keppti í flokki
50-54 ára og setti að auki heimsmet í snör-
un þegar hann lyfti 142 kg. Gísli er Vestlend-
ingur vikunnar.
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Erlendir ferða-
menn óundir-
búnir hvassviðri
VESTURLAND: Alls urðu átta
umferðaróhöpp í umdæmi Lög-
reglunnar á Vesturlandi í liðinni
viku, flest voru þau minnihátt-
ar. Tveir ökumenn voru gripnir
við akstur undir áhrifum áfeng-
is. Vegna óveðurs þá fuku tveir
húsbílar út af á Snæfellsnesi. Sá
fyrri fauk út af Útnesvegi við
Syðri Knarrartungu miðviku-
daginn 16. september. Í honum
voru erlendir ferðamenn, tvær
fullorðnar konur og tvö börn.
Hlaut fólkið nokkur meiðsli
og var það flutt á sjúkrahús.
Hinn húsbíllinn fauk útaf veg-
inum í Kolgrafafirði á Snæfells-
nesi síðdegis á laugardaginn [sjá
mynd]. Fór bíllinn heilan hring
utan vegar og lenti að endingu á
hjólunum. Þá hafði húsið rifn-
að af honum og stýrishúsið var
nánast eitt eftir á grindinni.
Erlend hjón voru í bílnum og
sluppu þau lítið meidd sem þyk-
ir mikil mildi. Það voru erlend-
ir ferðamenn sem voru á þess-
um húsbílum, sem þeir höfðu
tekið á leigu. Að sögn lögreglu
gerði fólkið sér enga grein fyrir
þeim veðurfarslegu aðstæðum
sem geta ríkt hérlendis. „Spyrja
má hvort að hægt sé að upplýsa
þá betur með einhverjum hætti
á þessari tækniöld. Víða erlend-
is eru gagnvirk gps tæki í bíl-
um þar sem kemur t.d. fram að
unnið sé að vegaframkvæmd-
um og því sé betra að fara aðra
leið. Við Íslendingar þurfum að
skoða þessi mál,“ segir Theódór
Þórðarson hjá embætti Lög-
reglunnar á Vesturlandi.
-mm
Leiðrétt
AKRANES: Í frétt um breyt-
ingar í safnamálum á Akranesi
sem greint var frá í síðasta tölu-
blaði var sagt að færa ætti rekst-
ur Ljósmyndasafns Akraness
undir héraðsskjalasafnið. Frétt-
in byggði á skýrslu sem skrif-
uð var í janúar á þessu ári. Hið
rétta er að ljósmyndasafnið hef-
ur alla tíð verið deild í héraðs-
skjalasafninu. Leiðréttist það
hér með.
-mm
Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpi@stolpiehf.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Búslóðageymsla � Ártíðabundinn lager � Lager � Sumar-/vetrarvörur
Frystgeymsla � Kæligeymsla � Leiga til skemmri eða lengri tíma
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpiehf.is
HAFÐU
SAMBAND
Við Smiðjuvelli á Akranesi er búið
að reisa nýja aðveitustöð fyrir raf-
magn. Það eru Orkuveitu Reykja-
víkur og Landsnet á Akranesi sem
standa að verkefninu. Að sögn Ei-
ríks Hjálmarssonar upplýsingafull-
trúa OR ganga framkvæmdirnar
ágætlega og reikna fyrirtækin með
því að fá nýbygginguna afhenta í
næsta mánuði og hefst þá uppsetn-
ing rafbúnaðar og tenging stöðv-
arinnar við aðra hluta raforkukerf-
isins. Nýja aðveitustöðin kemur í
stað annarrar eldri, sem staðsett
er í flóanum sunnar verslunarmið-
stöðvarinnar við Kalmansvelli, þar
sem samkvæmt aðalskipulagi á að
rísa íbúðahverfi. „Bygging nýrrar
aðveitustöðvar var orðin tímabær
þar sem orkuþörf, einkum fyrir at-
vinnulífið á Akranesi, hefur aukist
og auka þurfti rekstraröryggi með
nýrri búnaði en þeim sem er í eldri
stöðinni,“ segir Eiríkur í samtali
við Skessuhorn. Hann segir áætl-
aðan kostnað við bygginguna vera
um 800 milljónir króna og er fram-
kvæmdin að 70% á forræði Orku-
veitunnar og 30% Landsnets. Verk-
lok eru áætluð sumarið 2016 og eru
það Íslenskir aðalverktakar sem sjá
um byggingu hússins.
Byggingin er á einni hæð auk kjall-
ara. Meginhluti jarðhæðar er með
talsverðri yfirhæð sem nauðsynleg
er fyrir búnað sem í bygginguna fer
en heildarflatarmál byggingarinn-
ar er 1035,8 fermetrar. Endaveggir
spennarýma eru uppbyggðir úr létt-
um flekum sem falla út ef sprenging
verður í spennarýmum. Þak bygging-
arinnar er létt og getur því lyfst upp
ef sprenging verður. Sjálfvirkt bruna-
viðvörunarkerfi er í byggingunni
sem tengt er viðurkenndri vaktstöð.
Veggir umhverfis spennarými upp-
fylla 120 mínútna brunamótstöðu
og eru allflest rými með sér bruna-
hólf. Byggingin er að jafnaði mann-
laus. Það er eingöngu í bilanatilvik-
um sem starfsmenn dvelja í skamm-
an tíma í byggingunni. Byggingin er
hönnuð af Studio strik arkitektum en
VSÓ ráðgjöf sá um burðarþols- og
lagnahönnun.
grþ
Ný aðveitustöð risin á Akranesi
Íslenskir aðalverktakar hafa undanfarið ár unnið að byggingu nýju aðveitustöðvar-
innar. Orkuveita Reykjavíkur og Landsnet fá bygginguna afhenta fljótlega og þá hefst
uppsetning rafbúnaðar og tenging við aðra hluta raforkukerfisins.
Hörður Pálsson, bakarameistari á
Akranesi lést 15. september síðast-
liðinn, 82 ára að aldri. Hörður fædd-
ist á Skagaströnd 27. mars 1933 en
ólst upp á Sauðárkróki. Eftir ferm-
ingu var hann á síld í eitt sumar en
hóf þá nám í bakaraiðn hjá Guðjóni
Sigurðssyni bakarameistara á Sauð-
árkróki. Lauk hann sveinsprófi á
tvítugsafmælisdegi sínum og stund-
aði eftir það framhaldsnám í bakstri
í Þrándheimi í Noregi árin 1953 til
1954. Hörður starfaði við bakstur á
Sauðárkróki til 1958 en tók þá við
rekstri Alþýðubrauðgerðarinnar á
Akranesi og rak hana 1958-1963.
Þá keypti hann bakaríið, breytti
nafni þess í Harðarbakarí og starf-
rækti það allt til ársins 1998.
Hörður Pálsson tók virkan þátt
í félagsstörfum og sveitarstjórnar-
pólitík. Hann var einn af stofnend-
um íþróttafélagsins Drangeyjar á
Sauðárkróki en það félag sameinað-
ist Tindastóli 1948. Hann æfði og
keppti í frjálsum íþróttum, sat síð-
ar í knattspyrnuráði Akraness og
var formaður þess 1988-89. Hörð-
ur gekk ungur í stúku, var æðsti
templar stúkunnar Gleymmérei á
Sauðárkróki, starfaði í stúkunni Ak-
urblóminu á Akranesi og sat lengi
í stjórn Stórstúku Íslands. Hörður
var prýðilegur söngmaður og söng
í Kirkjukór Sauðárkróks og síðan í
Kirkjukór Akraness. Hann stofn-
aði, ásamt þremur öðrum, Skagakv-
artettinn 1967 og starfaði í Odd-
fellowreglunni frá 1960. Hann var
sæmdur fálkaorðunni árið 2003.
Hörður var bæjarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins á Akranesi 1974 til
1986, sat m.a. í skólanefnd Fjöl-
brautaskóla Vesturlands, í stjórn
Dvalarheimilisins Höfða og var
stjórnarformaður Skipasmíðastöðv-
arinnar Þorgeirs & Ellerts á Akra-
nesi 1994-2008.
Eftirlifandi eiginkona Harðar
er Þórey Sigurðardóttir. Þau eiga
fjögur börn og 13 barnabörn.
Útför Harðar verður frá Akra-
neskirkju fimmtudaginn 24. sept-
ember kl. 11.
mm
Andlát - Hörður Pálsson bakarameistari
Um hádegisbilið síðastliðinn laug-
ardag var Lögreglunni á Vestur-
landi tilkynnt um mann sem væri
við ólöglegar stangveiðar í Botnsá í
Hvalfirði. Á fréttasíðu embættisins
segir að viðkomandi hafi hlaupist á
brott er sást til hans en lögreglan
hafi náð honum og tekið hann tali.
Viðurkenndi maðurinn að hafa
verið við stangveiðar í Botnsá án
leyfis. Má viðkomandi maður eiga
von á að þurfa að greiða allháa sekt
fyrir brotið, að sögn lögreglu.
mm
Staðinn að ólöglegum veiðum í Botnsá