Skessuhorn - 23.09.2015, Blaðsíða 21
Maxímús Músíkús
heimsækir hljómsveitina
Lau. 26. sept. » 14:00 og 16:00
Ævintýrin um Maxa hafa notið
fá dæma vin sælda og nú þegar
fjórar bækur hafa verið gefnar út
með músinni er komið að sjálfu
upphafsævin týrinu á nýjan leik.
Á þessum fjörugu tónleikum er
hlustandinn leiddur inn í töfraheim
tónlistarinnar þar sem hljóðfærin
eru kynnt hvert af öðru.
Hallfríður Ólafsdóttir
hljómsveitarstjóri
Valur Freyr Einarsson sögumaður
Jólatónleikar Sinfóníunnar
Lau. 12. des. » 14:00 og 16:00
Sun. 13. des. » 14:00
Jólatónleikar Sinfóníuhljómsveitar-
innar hafa notið gífurlegra vinsælda
og eru fastur liður í jólahaldi margra
fjölskyldna. Hátíðleikinn er í fyrir rúmi
og fluttar eru sígildar og heillandi
jólaperlur. Barbara trúður kynnir
tónleikana af sinni alkunnu snilld auk
táknmálstúlks.
Bernharður Wilkinson
hljómsveitarstjóri
Trúðurinn Barbara kynnir
Vísindatónleikar Ævars
Lau. 16. feb. » 14:00
Ævar vísindamaður hefur um árabil
kynnt töfra tækni og vísinda fyrir
ungmennum á öllum aldri og nú
kemur hann fram ásamt Sinfóníu-
hljómsveit Íslands í sann kölluðum
sinfónískum vísindatrylli. Glæsileg
tónlist og myndbrot spanna tækni-
fram farir allt frá upphafi til framtíðar
í spennandi ferðalagi undir leiðsögn
Ævars vísindamanns.
Bernharður Wilkinson
hljómsveitarstjóri
Ævar Þór Benediktsson kynnir
Ævintýrið um Eldfuglinn
Lau. 7. maí » 14:00
Í heillandi ævintýrinu um Eldfuglinn
eftir Stravinskíj, einu litríkasta hljóm-
sveitar ævintýri sem sögur fara af, segir
frá Ívani prins sem er hugrakkur með
eindæmum og risastórum fugli sem
logar í alls konar rauðum og gulum
litum, rétt eins og sólin sjálf hafi tekið
sér bólfestu í fjöðrum hans. Myndum
sem sýna Eldfuglinn dansa og svífa á
milli greina töfratrjánna verður varpað
upp meðan á flutningi stendur.
Bernharður Wilkinson
hljómsveitarstjóri
Trúðurinn Barbara sögumaður
Áskriftakort með 4 tónleikum kostar aðeins 7.040/8.320 kr.
Miðasala » www.sinfonia.is » www.harpa.is » Miðasala í anddyri Hörpu » Sími: 528 5050 » Opið 9-18 virka daga og 10-18 um helgar
Litli tónsprotinn5x39
Áskrift að skemmtun fyrir alla fjölskylduna þar sem ungir
tónlistarunnendur kynnast töfrum tónlistarinnar.
#sinfó@icelandsymphony