Skessuhorn - 23.09.2015, Blaðsíða 22
MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 201522
Síðastliðinn sunnudag bauð Rauði
krossinn á Akranesi íbúum bæjar-
ins af erlendum uppruna í skoð-
unarferð um Akranes og ná-
grenni. Ferðin var hluti af verk-
efninu „Kynning á nærsamfélag-
inu - Rjúfum einangrun.“ Fimmtíu
manns af a.m.k. fimm þjóðernum
tóku þátt og létu vel af. Fyrst var
ekið um Skagann og sagt frá einu
og öðru forvitnilegu sem við kem-
ur húsum og náttúru, en síðan tek-
inn hringur um Akrafjall og tæpt á
nokkru því sem þar ber fyrir augu.
Ferðin endaði svo í Garðalundi þar
sem grillaðar voru pylsur í skálan-
um góða, en áður var tekinn stutt-
ur gönguhringur um skógrækt-
ina í Klapparholti sem er fallegur
útivistarstaður sem oft vill gleym-
ast. Ágætlega viðraði á ferðafólkið
þrátt fyrir fremur svarta spá.
„RKÍ á Akranesi hefur nú um
árabil unnið að nokkrum verkefn-
um sem miða að því að rjúfa ein-
angrun nýbúa í bænum og kynna
þeim nærsamfélagið. Þetta verk-
efni snýst um að reyna að tengja
erlent fólk, sem búið hefur á Akra-
nesi um lengri eða skemmri tíma,
betur við sögu og menningu bæj-
arins sem það býr í. Samkvæmt
verkefninu Kynning á nærsam-
félaginu - Rjúfum einangrun er
fyrst um sinn ráðgert að bjóða upp
á eina eða fleiri útsýnisferðir í rútu
um Akranes og nágrenni með leið-
sögumanni og túlki, en líka stuttar
sögugöngur um bæinn og göngu
á Akrafjall. Það er bjargföst trú
stjórnar Rauða krossins á Akra-
nesi, að öðlist nýbúar meiri inn-
sýn í sögu og staðhætti bæjar síns
og næsta nágrennis nái þeir betur
að tengja við staðinn og innlenda
bæjarbúa og geti þar með átt þar
enn betra líf,“ segir í tilkynningu
frá stjórn RKA. „Verkefnið virkar
svo líka í báðar áttir, þar sem þeir
innlendu Skagamenn sem að verk-
efninu koma kynnast betur okkar
erlendu bæjarbúum og verða enn
betur í stakk búnir til að aðstoða
þá til betra lífs. Á Akranesi eru allt
að 15% bæjarbúa af erlendu bergi
brotnir.“
mm/ Ljósm. kp.
Einangrun rofin með kynningu
á nærsamfélaginu
Göngur og réttir
Gangnamenn létu veðrið ekki á sig fá á laugardaginn þegar réttað var í Þæfusteinsrétt á Hellissandi og
Ólafsvíkurrétt. Farið var af stað um morgunin og komið niður um hádegið að venju en þá hafði aðeins
dregið úr vindi frá því um morguninn. Veðrið þennan dag var mjög slæmt til leita; rigning, hvassviðri
og þoka. Smölun gekk þó ágætlega miðað við aðstæður. Þegar í réttirnar kom tók við hin árlega
réttarstemning og sundurdráttur. Sú hefð hefur myndast í báðum réttunum að boðið er upp á veitingar
og runnu þær sérlega ljúflega niður hjá smölunum. Tómstundabændur höfðu á orði að fjárskil hafi verið
með lakara móti og þarf því að fara fleiri ferðir á fjöll, vonandi í betra veðri. Ljósm. þa. Fé bíður réttar í Hvalfirði síðastliðinn föstudag. Ljósm. mþh.
Réttað í Svarthamarsrétt í Hvalfirði. Ljósm. mþh.
Ljósmyndarar taka gjarnan tæknina sér í lið. Hér er búið að festa GoPro myndvél
á horn þessa lambhrúts og ferðalag hans tekið upp. Myndin er úr Arnarhólsrétt í
Helgafellssveit. Ljósm. sá.
Svipmynd úr Arnarhólsrétt í Helgafellssveit. Ljósm. sá.
Réttað í Gillastaðarétt í Laxárdal. Ljósm. bae.
Hér er réttað í Brekkurétt í Saurbæ. Ljósm. bae.
Í Skerðingsstaðarétt í Hvammssveit. Ljósm. bae.
Réttað var í Rauðsgilsrétt í Borgarfirði síðastliðinn sunnudag. Ljósm. bhs.