Skessuhorn


Skessuhorn - 23.09.2015, Blaðsíða 6

Skessuhorn - 23.09.2015, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 20156 Auglýsa stöðu skólastjóra HVANNEYRI: Borgarbyggð auglýsir í Skessuhorni í dag stöðu skólastjóra við Andabæ á Hvanneyri. Eins og komið hef- ur fram í fréttum hefur sveit- arstjórn ákveðið að næsta vor verði skólastarfi hætt í Hvann- eyrardeild Grunnskóla Borg- arfjarðar, sem áður hét Anda- kílsskóli. Nemendur í 1. og 2. bekk grunnskóla taka hins vegar fyrstu tvo bekki skólans í stækk- uðum leikskóla, þar sem þá verða 18 mánaða til 8 ára börn í blönduðum leik- og grunnskóla. Eftir annan bekk verður börn- um síðan ekið á Kleppjárnsreyki eða í Borgarnes. Andabær hef- ur verið án leikskólastjóra síð- an í sumar. Umsóknarfresur um starf skólastjóra er til 3. október næstkomandi en ráðið í stöðuna frá 15. október. –mm Eldur í gámi BORGARNES: Um nónbil í gær kom upp eldur í gámi sem notaður er til að þurrka fiskaf- urðir og stendur við iðnaðarhús- næði á Sólbakka 7 í Borgarnesi. Slökkvilið Borgarbyggðar var kallað út og var komið skömmu síðar, enda er slökkvistöðin í þarnæsa húsi. Að sögn Bjarna K Þorsteinssonar slökkviliðsstjóra gekk slökkvistarf vel en tjón er talsvert á gámnum og innihaldi hans. -mm Elína Hrund á Odda REYKHÓLAR: Biskup Ís- lands hefur ákveðið að skipa séra Elínu Hrund Kristjáns- dóttur í embætti sóknarprests í Oddaprestakalli í Suðurpró- fastsdæmi, en hún hefur und- anfarin ár verið prestur á Reyk- hólum. Frestur til að sækja um embættið rann út 25. ágúst sl. Alls sóttu tíu umsækjendur um embættið. Embættið veitist frá 1. október næstkomandi. –mm Briddsarar hefja vetrar- starfið BORGARFJ: Mánudags- kvöldið 28. september næst- komandi ætla borgfirsk- ir briddsunnendur að hefja hauststarfið. Að sögn Ingi- mundar Jónssonar í Deild- artungu verður að vanda spilað í Logalandi og byrjað klukkan 20:00 eins og oft- ast. „Spilaður verður léttur tvímenningur og að sjálf- sögðu eru allir velkomnir,“ segir Ingimundur. –mm Misjafnt hvað sveitarfélögin auka tekjur VESTURLAND: Tölu- verður munur er á þróun útsvarstekna sveitarfélaga fyrstu átta mánuði ársins. Á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga má nú lesa töl- ur um greidda staðgreiðslu og framlag úr Jöfnunarsjóði það sem af er árinu. Á Vest- urlandi er Helgafellssveit hástökkvarinn, en þar hækk- ar útsvarið um 19% milli ára fyrstu átta mánuðina. Tekjur Grundarfjarðarbæj- ar jukust um 11,3% milli ára og í Eyja- og Mikla- holtshreppi um tíu prós- tent. Í Borgarbyggð aukast tekjurnar um 8,9%, 6,4% í Hvalfjarðarsveit, 6,3% á Akranesi, 6,2% í Stykkis- hólmi og 5,6% í Dalabyggð. Í Snæfellsbæ er aukningin einungis 1,9% en minnst í Skorradalshreppi þar sem hún er eitt prósent. –mm Fiskafli í ágúst jókst milli ára LANDIÐ: Heildarafli ís- lenskra fiskiskipa var rúm 114 þúsund tonn í ágúst síð- astliðnum sem er rúmlega 9.800 tonnum meiri afli en í ágúst 2014. Botnfiskaflinn nam tæpum 26.000 tonnum í ágúst sem er aukning um 27% samanborið við ágúst 2014, þar af nam þorskafl- inn rúmum 12.000 tonnum sem jafngildir 8,1% aukn- ingu á milli ára. Flatfisk- aflinn nam rúmum 2.000 tonnum sem er tæpum 1.500 tonnum meiri afli en í ágúst 2014, munar þar mest um aukinn afla á grálúðu og skarkola. Afli uppsjávarteg- unda nam tæpum 85.000 tonnum og jókst um rúm 3% samanborið við ágúst 2014. Skel- og krabbadýra- afli nam tæpum 1.200 tonn- um í ágúst samanborið við tæp 900 tonn í ágúst 2014. Metið á föstu verðlagi jókst aflinn í ágúst á þessu ári um 5,5% miðað við ágúst 2014. Á síðustu 12 mánuðum hef- ur heildarafli úr sjó aukist um tæp 255 þúsund tonn eða um 23,5% ef miðað er við sama tímabil ári fyrr. Þessa aukningu má nær ein- göngu rekja til aukins upp- sjávarafla. –mm Eigendur Dreki Adventures voru á ferðinni á Snæfellsnesi á dögun- um þegar bíll þeirra bilaði uppi á Snæfellsjökli. Dreki Adventures er ferðaþjónustufyrirtæki sem leggur áherslu á ævintýraferðir á norður- slóðum með sérstakri áherslu á Ís- land eins og segir á heimasíðu fyr- irtækisins. Að sögn Mike Herberts eins eigenda fyrirtækisins var þetta fjölskylduferð og var fólkið búið að vera á Snæfellsnesi en voru að koma frá Hellnum og ætluðu næst á Vest- firði þar sem verja átti um það bil sex dögum. Þegar ljósmyndari hitti félagana fyrir voru þeir að bíða eftir öðrum alveg eins bíl sem fyrirtækið á til að geta haldið ferð sinni áfram en það var drifið í bílnum sem bil- aði. þa Gera út á ævintýraferðir á norðurslóðum Landeigendur á Rauðsgili í Hálsa- sveit sendu snemma í sumar bréf til Borgarbyggðar þar sem þeir fóru fram á að Rauðsgilsrétt, sem er í þeirra landi, verði fjarlægð. Í fés- bókarfærslu nýverið ítrekar hús- freyjan á bænum þessa ósk þeirra en kvartar yfir að erindi þeirra hafi ekki verið svarað. Bendir hún á að réttinni hafi verið illa viðhald- ið og þar að auki sé fáu fé réttað í henni á hverju hausti. Á fundi fjallskilanefndar Rauðsgilsréttar 5. júní í sumar var tekið fyrir er- indi ábúenda á Rauðsgili. Í fund- argerð nefndarinnar segir orðrétt sem svar við þeirri beiðni: „Nefnd- in telur nauðsynlegt að Rauðsgils- rétt verði áfram þar sem hún er skilarétt samkvæmt lögum. Einnig kemur fé úr ógirtum afrétti (Lund- dælinga) í heimalönd, sem tilheyra réttinni. Skoða mætti að afmarka réttarsvæðið með girðingum í sátt og samráði við landeigendur. Rétt- in er gömul og hefur staðið á þess- um stað síðan 1875. Hún þarfnast viðhalds og samþykkt var á síðasta fundi að sækja um styrk til endur- bóta.“ Jón Eyjólfsson formaður fjall- skilanefndar Rauðsgilsréttar upp- lýsti blaðamann að byggðarráð Borgarbyggðar hefði staðfest þessa bókun fjallskilanefndar. Hins vegar hafi starfsfólki sveitarfélagsins láðst að tilkynna afgreiðsluna með form- legum hætti þeim sem lögðu fram erindið. Eiga rétt á uslagjaldi Samkvæmt lögum um um afrétta- málefni, fjallskil o.fl er kveðið skýrt á um að landeiganda sé skylt að leggja land undir rétt, þó ekki tún eða engi. Í annarri málsgrein 50. greinar laganna segir: „Metn- ar skulu landeiganda bætur fyr- ir jarðrask í sambandi við nýbygg- ingu réttar eða endurbætur, og rétt á ábúandi á árlegu uslagjaldi fyrir átroðning vegna réttarhalds.“ Réttað var í Rauðsgilsrétt síðast- liðinn sunnudag. mm Rauðsgilsrétt er landeigendum til ama Horft til suðausturs yfir Rauðsgil, Okjökull í bakgrunni. Réttin er neðarlega fyrir miðri mynd. Ljósm. Mats Wibe Lund.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.