Skessuhorn


Skessuhorn - 23.09.2015, Blaðsíða 31

Skessuhorn - 23.09.2015, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 2015 31 Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is eBOX er ný, þægileg og einföld lausn til að flytja minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Á ebox.is er reiknivél sem segir þér á augabragði hver flutningskostnaðurinn er. Traust og áreiðanlegt leiðakerfi Eimskips á Norður-Atlantshafi tryggir að sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt. auðveldar smásendingar Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR ������� ��������� � e���.�� F ÍT O N / S ÍA Heimsmeistaramót öldunga í ólympískum lyftingum fór fram dagana 12.-19. sept- ember í Rovaniemi í Finnlandi. Fram kem- ur á vefsíðu Lyftingasambands Íslands að Dalamaðurinn Gísli Kristjánsson hafi keppt á mótinu í 105 kg flokki 50-54 ára og hreppti heimsmeistaratitilinn þegar hann sigraði í sínum flokki með yfirburðum. Gísli setti einnig nýtt heimsmet í snörun í sínum flokki þegar hann lyfti 142 kg og bætti fyrra heims- met um 7 kg. Að auki lyfti hann 150 kg í jafn- hendingu en mistókst tvisvar að lyfta 159 kg sem hefði tryggt honum heimsmet í saman- lögðu. Samanlagt lyfti hann því 292 kg. en næsti maður á eftir lyfti 228 kg. Gísli varð einnig stigahæsti keppandinn í sínum flokki með 414.83 Meltzer-Faber stig. arg Gísli heimsmeistari í ólympískum lyftingum F ÍT O N / S ÍA Systurnar Sigrún Sjöfn, Guðrún Ósk og Arna Hrönn Ámundadæt- ur eru allar í leikmannahópi Skalla- gríms sem tók á móti Hamri í Lengjubikar kvenna í Borgarnesi síðastliðið föstudagskvöld. Syst- urnar eru dætur Ragnheiðar Guð- mundsdóttur og Ámunda Sigurðs- sonar. Arna Hrönn er yngst þeirra systra, tæplega fimmtán ára göm- ul og mun hún ásamt Guðrúnu Ósk leika með Skallagrími í vetur. Framherjinn Sigrún Sjöfn stefnir hins vegar á að halda út í atvinnu- mennsku í haust en mun leika með Skallagrími þangað til. Leikurinn á föstudaginn var ekki síður merkilegur fyrir þær sakir að hann var fyrsti heimaleikur liðs- ins í tæp þrjú ár, en meistaraflokk- ur kvenna var endurvakinn í sumar eftir þriggja ára hlé. kgk Íslandsmeistarar Snæfells tóku á móti Þór Akureyri í Lengjubikar kvenna föstudaginn 18. september. Snæfellskonur höfðu yfirhöndina allan leikinn og leiddu með ellefu stigum þegar flautað var til hálf- leiks. Þær slepptu aldrei tökum sín- um á leiknum, héldu áfram að smá bæta við forystu sína það sem eft- ir var leiks svo gestirnir að norð- an áttu aldrei möguleika. Leikn- um lauk með 15 stiga sigri Snæfells 64-49. Leikstjórnandinn Haiden Pal- mer, sem gekk til liðs við Snæfell í haust, var stigahæst í liði heima- manna. Hún skoraði 15 stig, tók níu fráköst, gaf fjórar stoðsending- ar og varði eitt skot. Þremur dögum síðar, þriðju- daginn 21. september síðastliðinn, mættu Snæfellskonur Breiðabliki í Smáranum í Kópavogi, einnig í Lengjubikarnum. Íslandsmeistar- arnir byrjuðu feykilega vel og gerðu út um leikinn með frábærum fyrri hálfleik, en höfðu 19 stiga forystu, 25-44 þegar flautað var til leikhlés. Eftir það var aðeins formsatriði að klára leikinn. Heimamenn í Breiða- bliki sáu aldrei til sólar og lokatölur urðu 41-73, Snæfelli í vil. Denise Palmer var atkvæðamest í liði Snæfells, skilaði tvöfaldri tvennu með 16 stig og tíu fráköst. Auk þess gaf hún fimm stoðsendingar, vann boltann fimm sinnum og varði tvö skot. Næst henni kom framherjinn María Björnsdóttir með 15 stig, sjö fráköst og fimm stoðsending- ar. Berglind Gunnarsdóttir skoraði einnig 15 stig, tók fimm fráköst og gaf eina stoðsendingu. kgk Skallagrímur sótti sigur til Njarð- víkur í Lengjubikar kvenna þriðju- daginn 15. september síðastliðinn. Lokatölur urðu 59-72, Skallagrími í vil. Engin opinber tölfræði var haldin um leikinn en samkvæmt fa- cebook-síðu Borgarnesliðsins fór framherjinn Sigrún Ámundadóttir mikinn í liði Skallagríms og hvorki meira né minna en 39 stig í leikn- um. Þremur dögum síðar, föstudag- inn 18. september, tóku Skalla- grímskonur á móti Hamri, einnig í Lengjubikarnum. Gestirnir áttu erfitt uppdráttar framan af, skor- uðu aðeins sex stig í fyrsta leik- hluta og þegar flautað var til leik- hlés hafði Skallagrímur 15 stiga forystu, 35-20. Gestirnir náðu að- eins að klóra í bakkann það sem eft- ir lifði leiks en sigur heimamanna var aldrei í hættu. Lokatölur urðu 59-48, Skallagrími í vil. Atkvæðamest í liði Skallagríms var framherjinn Sigrún Ámunda- dóttir með 21 stig, átta fráköst og þrjú varin skot. Næst henni kom bakvörðurinn Sólrún Sæmunds- dóttir með 18 stig, fimm stoðsend- ingar og fimm fráköst. kgk Snæfell gjörsigraði Hamar í öðr- um leik Lengjubikars karla í körfu- knattleik fimmtudaginn 17. sept- ember síðastliðinn. Leikurinn var nokkuð jafn framan af og heima- menn í Snæfelli leiddu með þrem- ur stigum þegar hálfleiksflautan gall. Snæfell gerði hins vegar út um leikinn með ótrúlegum þriðja leik- hluta þar sem liðið skoraði 35 stig, jafnmörg og það skoraði allan fyrri hálfleikinn. Eftir það áttu gestirnir úr Hamri aldrei möguleika og loka- tölur urðu 85-57, Snæfelli í vil. Atkvæðamestur í liði Snæfells var bakvörðurinn Sherrod Nigel Wright, sem gekk til liðs við lið- ið fyrir skömmu. Hann skoraði 24 stig og hirti 6 fráköst. Þá gerði framherjinn Sigurður Á. Þorvalds- son sér lítið fyrir og hirti hvorki meira né minna en 18 fráköst, skor- aði 11 stig, gaf þrjár stoðsendingar og varði þrjú skot. Tveimur dögum síðar tóku Snæ- fellingar á móti Þór Þorlákshöfn, laugardaginn 19. september. Gest- irnir úr Þorlákshöfn höfðu yfir- höndina allan leikinn og leiddu með 13 stigum í hálfleik, 27-40. Leik- menn Snæfells áttu erfitt uppdrátt- ar í síðari hálfleik og tókst aðeins að bæta við 20 stigum. Gestirnir höfðu áfram yfirhöndina, skoruðu 31 stig í fjórða leikhluta og unnu að lok- um stórsigur, 47-89. Atkvæðamest- ur í liði Snæfellinga var aftur Sher- rod Nigel Wright með 15 stig, sjö fráköst, tvær stoðsendingar og eitt varið skot. kgk Skallagrímur hef- ur samið við Þorstein Þórarinsson um að leika með liðinu í 1. deild karla á körfu- knattleik á komandi leiktíð. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. Þorsteinn er 22 ára gamall og leikur stöðu framherja. Hann kemur frá Steindórsstöðum í Borgarfirði og lék á sínum yngri árum með Umf. Reykdæla. Í meistaraflokki hefur hann áður leikið með Skallagrími og Sindra á Höfn í Hornafirði. Síðasta vetur þjálfaði Þorsteinn yngri flokka ÍA á Akranesi. Þorsteinn þykir mikill baráttu- jaxl og vonir standa til að hann komi til með að styrkja lið Skallagríms undir körfunni. Hann skoraði fimm stig og tók þrjú fráköst í 86-106 tapi gegn Tindastóli mánudaginn 14. júní síðastliðinn, þar sem Skallagrímsmenn stóðu í næstbesta liði landsins megnið af leiknum. Atkvæðamestur Skallagrímsmanna í þeim leik var bakvörðurinn Sigtryggur Arn- ar Björnsson með 26 stig, fimm fráköst og fjóra stolna bolta. Loks mætti Skallagrím- ur Keflvíkingum í Lengjubikarnum síðasta laugardag, 19. september. Fór svo að Keflvík- ingar sigruðu með 88 stigum gegn 64. Eng- in nánari tölfræði virðist hins vegar hafa ver- ið haldin um þann leik. kgk/ Ljósm. gg.Lið Skallagríms sem vann 13 stiga sigur á Njarðvík á dögunum. Ljósm. fengin af facebook-síðu Skallagríms. Sigrún Ámundadóttir með 39 stig í sigri Skallagríms Bakvörðurinn Berglind Gunnarsdóttir keyrir upp að körfunni í leiknum á móti Þór. Ljósm. sá. Íslandsmeistarar Snæfells áfram á sigurbraut í bikarnum Ámundadætur voru allar í leikmanna- hópi Skallagríms sem tók á móti Hamri í Lengjubikarnum. Fyrsti heimaleikur Skallagríms í þrjú ár - þrjár systur í liðinu Systurnar Arna Hrönn, Sigrún Sjöfn og Guðrún Ósk Ámundadætur eftir sigur á Njarðvík í fyrsta leik Skallagríms í Lengjubikarnum í síðustu viku. Sherrod Nigel Wright, bakvörður Snæfells, skorar með sniðskoti í leiknum gegn Hamri. Ljósm. sá. Stór sigur og stórt tap hjá Snæfelli í bikarnum Birgitta Sól Vilbergsdóttir, Birta Guðlaugs- dóttir og Fehima Purisevic, í Víkingi Ólafsvík voru valdar á hæfileikamót KSÍ og N1 sem fram fór í Kórnum í Kópavogi um helgina. Sáu Úlfar Hinriksson þjálfari U17 kvenna og Halldór Björnsson yfirmaður hæfileikamót- anna um mótið. Eru þessar stúlkur í fjórða flokki og að sögn forráðamanna Víkings leggja þær mikið á sig við æfingar og stefna á landsliðssæti í framtíðinni. af Gísli Kristjánsson vann til gull- verðlauna á Heimsmeistaramóti öldunga í ólympískum lyftingum sem haldið var í Finnlandi í síðustu viku. Þorsteinn semur við Skallagrím Tóku þátt í hæfi- leikamóti KSÍ

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.