Skessuhorn - 23.09.2015, Qupperneq 8
MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 20158
Velta eykst
LANDIÐ: Velta í virðis-
aukaskattskyldri starfsemi í
maí og júní á þessu ári nam
683 milljörðum króna sem
er 10,9% aukning miðað
við sama tímabil árið 2014.
Á síðustu 12 mánuðum er
aukningin 9% samanbor-
ið við 12 mánuði þar áður.
Veltan hefur aukist mest í
flokknum námugröftur og
vinnsla hráefna úr jörðu.
Mikil veltuaukning er
einnig í framleiðsla annarri
en fiskvinnslu, bygginga-
starfsemi og rekstri gisti-
og veitingastaða. Aukning
er í öllum flokkum.
–mm
Sjö
umsækjendur
GRUNDARFJ: Starf
skipulags- og bygginga-
fulltrúa var auglýst laust
til umsóknar í ágúst síðast-
liðnum og er umsóknar-
frestur nú liðinn. Sveitarfé-
laginu bárust sjö umsóknir.
Það eru: Andrea Kristins-
dóttir skipulagsfræðingur,
Gunnar Jóhann Ásgeirsson
byggingafræðingur, Gunn-
ar Sigurgeir Ragnarsson
byggingafræðingur, Gunn-
laugur Jónasson arkitekt,
Ivan Nesterov verkfræð-
ingur, Ragnar Már Ragn-
arsson byggingafræðingur
og Tómas Ellert Tómas-
son byggingaverkfræðing-
ur. Þetta kemur fram á vef
Grundarfjarðarbæjar.
–mm
Viðbúnaður
vegna drengs á
fjöllum
STRANDIR: Um þrjú-
leytið síðastliðinn föstu-
dag voru björgunarsveit-
ir Landsbjargar á Strönd-
um og austanverðu Snæ-
fellsnesi kallaðar út vegna
gangnamanns sem saknað
var á Steinadalsheiði. Um
var að ræða 12 ára dreng
og þar sem mikil þoka var
á svæðinu og fáar klukku-
stundir til myrkurs var
ákveðið að bæta við björg-
unarsveitum frá Vestur-
landi, sunnanverðum Vest-
fjörðum og af höfuðborgar-
svæðinu. Áður en liðsauk-
inn kom á staðinn fannst
drengurinn heill á húfi
klukkan fimm síðdegi.
–mm
Tónleikar á
Vogi
DALIR: Laugardaginn
10. október næstkomandi
verða tónleikar með Pálma
Gunnarssyni og Magnúsi
Eiríkssyni á Vogi á Fells-
strönd. Á síðu sveitaset-
ursins segir að í tilefni
tónleikanna verði ýmis-
legt spennandi á matseðli
kvöldsins.
–mm
Aflatölur fyrir
Vesturland
12. - 18. september
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes 7 bátar.
Heildarlöndun: 46.175 kg.
Mestur afli: Ebbi AK:
23.652 kg í þremur lönd-
unum.
Arnarstapi 5 bátar.
Heildarlöndun: 64.818 kg.
Mestur afli: Tryggvi Eð-
varðs SH: 29.562 kg í sex
löndunum.
Grundarfjörður 7 bátar.
Heildarlöndun: 148.146
kg.
Mestur afli: Hringur SH:
59.741 kg í einni löndun.
Ólafsvík 15 bátar.
Heildarlöndun: 107.149
kg.
Mestur afli: Steinunn SH:
20.983 kg í einni löndun.
Rif 8 bátar.
Heildarlöndun: 77.825 kg.
Mestur afli: Stakkhamar
SH: 33.143 kg í fimm lönd-
unum.
Stykkishólmur 3 bátar.
Heildarlöndun: 17.726 kg.
Mestur afli: Fjóla SH:
8.744 kg í fimm löndun-
um .
Topp fimm landanir á
tímabilinu:
1. Hringur SH - GRU:
59.741 kg. 16. september.
2. Helgi SH - GRU:
45.210 kg. 14. september.
3. Grundfirðingur SH-
GRU: 40.833 kg. 14. sept-
ember.
4. Saxhamar SH - RIF:
26.909 kg. 18. september.
5. Steinunn SH - ÓL:
20.983 kg. 17. september.
grþ
Olíuþjófar létu greipar sópa í Hval-
firði um næstsíðustu helgi þegar þeir
brutust inn í tæki og dráttarbíl í eigu
Jónasar Guðmundssonar verktaka á
Bjarteyjarsandi. Stolið var á að giska
300 lítrum af hráolíu af dráttarbíl og
á að giska 100-200 lítrum af glussa
af beltagröfu og hjólaskóflu. Tæk-
in stóðu við Kalastaði en þar vinna
Jónas og hans menn að endurnýj-
un á hitaveitulögn. „Þetta var frek-
ar sóðaleg aðkoma enda eru rumm-
ungar eins og þessir ekki komnir til
að ganga vel um; síum og lokum
fleygt út í loftið til að þjófnaðurinn
gangi sem hraðast fyrir sig. Líkast til
hafa þeir átt við ílátaskort að glíma
fyrst þeir einbeittu sér að glussan-
um, enda kostar líterinn af honum
þúsund krónur,“ sagði Jónas í sam-
tali við Skessuhorn. Hann gerir ráð
fyrir að þjófnaðurinn hafi átt sér stað
á sunnudag eða aðfararnótt mánu-
dagsins 14. september. Vélarnar hafi
þó staðið þarna frá því á fimmtudeg-
inum áður en verktakarnir voru við
annað verk á föstudaginn og stóðu
vélarnar ónotaðar á meðan. „Þetta
gæti því hafa átt sér stað einhvern
tímann á tímabilinu frá föstudegi og
fram á aðfararnótt mánudags,“ seg-
ir Jónas. Hann hefur tilkynnt þjóf-
aðinn til lögreglu en biðlar til fólks
sem hugsanlega hafi orðið vart við
grunsamlegar mannaferðir þarna
við norðanverðan Hvalfjörð á tíma-
bilinu 11. til 14. september, að láta
lögregluna vita í síma 444-0300.
mm
Þjófar stálu olíu fyrir hundruð
þúsunda í Hvalfirði
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem þjófar ráðast á vélar Jónasar á Bjarteyjarsandi. Í
nóvember síðastliðnum var hurðum af traktorsgröfu stolið. Þær fundust reyndar
þegar snjóa leysti síðasta vor. Myndin er úr safni Skessuhorns.
Rakel Garðarsdóttur voru í
síðustu viku afhent hvatn-
ingarverðlaun JCI hreyf-
ingarinnar á Íslandi sem
veitt eru framúrskarandi
ungum Íslendingum. Rakel
stofnaði velferðarsamtök-
in Vakandi upp á sitt eins-
dæmi en samtökin berjast
gegn sóun matvæla. Síð-
an samtökin voru stofnuð í
ársbyrjun 2014 hefur orðið
mikil vitundarvakning og
viðhorfsbreyting í samfélaginu um
sóun á mat. Rakel gaf út bók fyr-
ir síðustu jól í nafni Vakanda. Hún
hefur unnið allt sitt starf
með Vakanda í sjálfboða-
vinnu og nýtt frítíma
sinn í að berjast gegn
sóun. Hún hefur reynt
að bæta umhverfi sitt,
heiminn allan og segir:
„Lítil skref byrja alltaf
hjá okkur sjálfum.“ Nú
stendur Rakel í fjáröflun
fyrir heimildamynd sem
fjallar um sóun á mat og
tískufatnaði.
mm
Fékk hvatningarverðlaun fyrir
átak gegn matarsóun
Lundey NS, skip HB Granda, land-
aði um miðja síðustu viku síld úr
norsk-íslenska stofninum á Vopna-
firði. „Búið er að skerða kvótann það
mikið milli ára að beinum síldveiðum,
sem hófust í síðustu viku, er nú lok-
ið,“ sagði í frétt á vef HB Granda. Að
líkindum var þetta síðasti afli Lund-
eyjar áður en skipið verður selt eða
rifið. Þetta var eini hreini síldveiðitúr
Lundeyjar á þessari snörpu vertíð en
makrílveiðum skipsins lauk þremur
dögum áður, laugardaginn 12. sept-
ember. Lundey fer í slipp fljótlega
þar sem sinnt verður reglubundnu
viðhaldi. Skipinu verður svo lagt eða
það selt þegar Víkingur AK, sem er í
smíðum í Tyrklandi, kemur til lands-
ins fyrir jól. mm
Lundey að líkindum hætt veiðum
fyrir núverandi eigendur
Landfestum kastað upp á bryggjuna á Akranesi í febrúar síðastliðnum þegar
loðnuveiðar voru að hefjast. Ljósm. fh.
Ferðaþjónustufyrirtækið Gray
Line hefur ákveðið að hefja bein-
ar áætlunarferðir milli Akureyr-
ar og Keflavíkurflugvallar næsta
vor. Um leið mun Strætó bs. fá
samkeppni á hluta þessarar leiðar,
þ.e. frá Mjóddinni í Reykjavík til
Akureyrar. „Í apríl og maí verður
ekið þrisvar í viku en daglega yfir
sumarið fram í miðjan septem-
ber,“ segir í tilkynningu frá Gray
Line. Áætlun Gray Line verður
með þeim hætti að brottför verð-
ur frá Keflavík kl. 17:00 og kom-
ið til Akureyrar um kl. 23:00. Það-
an verður haldið kl. 23:15 og kom-
ið til Keflavíkur kl. 05:15. Flugfar-
þegar sem koma til landsins síð-
degis komast þannig norður fyr-
ir miðnætti og farþegar að norðan
komast beint í morgunflug. Á leið-
inni verður stoppað fyrir farþega í
Borgarnesi, Staðarskála, Blönduósi
og Varmahlíð. Fargjald aðra leið
verður 11.000 kr. milli Akureyrar
og Keflavíkur, Varmahlíð 10.000
kr., Blönduós 9.000 kr., Staðarskáli
7.000 kr. og Borgarnes 4.500 kr.
„Gray Line leggur áherslu á
að ferðalagið verði þægilegt og
ánægjulegt og verða eingöngu lúx-
usrútur úr flota fyrirtækisins not-
aðar á leiðinni. Þær eru með sal-
ernum og veitingaaðstöðu ásamt
internetteningu og tveir bílstjórar
verða ávallt með í för til að tryggja
gæði þjónustunnar,“ segir í til-
kynningu frá Gray Line. mm
Samkeppni eykst næsta vor í akstri
milli Keflavíkur og Akureyrar