Skessuhorn


Skessuhorn - 23.09.2015, Síða 20

Skessuhorn - 23.09.2015, Síða 20
MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 201520 Hestamannafélagið Snæfellingur tók á móti tólf þýskum ungmennum og fjórum fararstjórum nú í sumar. Heimsóknin er liður af samstarfi hestamannafélagsins við Íslands- hestamannafélagið IPN Roderath í Þýskalandi. „Þetta er ekki nýtt samstarf, það hófst upphaflega árið 1988 en datt niður árið 2006 en var endurvakið í fyrrasumar. Þá fór- um við út með tólf ungmenni frá okkur í heimsókn til Þýskalands. Nú í sumar komu þau svo til okk- ar í heimsókn,“ segir Lárus Ástmar Hannesson hjá Snæfellingi. Að sögn Lárusar heppnaðist heimsóknin afskaplega vel og var upplifunin alveg sérstök fyrir þýsku ungmennin. „Við tókum á móti þeim á flugvellinum og hluti gest- anna gisti inni á heimilum en aðr- ir í íþróttahúsinu í Laugargerðis- skóla. Við fórum með gestina í sigl- ingar, skoðunarferðir og reiðtúra. Þá var farið í fjögurra daga hesta- ferð þar sem við riðum með rekst- ur frá Staðarsveit yfir Djúpagil og yfir í Helgafellssveit. Fyrir þýsku krakkana var þetta hreint ævintýri. Þarna fengu þau að upplifa eitthvað algjörlega nýtt, bæði að ríða svona með rekstur og eins að sjá íslensku náttúruna. Íslensku ungmennin og aðrir hestamenn úr sveitinni tóku þátt í ferðinni og þegar mest var voru 60 manns ríðandi í fjörunni, knapar frá 7 ára aldri til 82 ára,“ segir Lárus. Samstarfið var styrkt af Eras- mus, Evrópu unga fólksins. „Ef það væri ekki fyrir þennan styrk hefð- um við líklega aldrei getað gert þetta,“ segir Lárus. „Nú er ætlunin að halda þessu áfram eins og áður var, þá förum við út eitt árið, tök- um á móti þeim það næsta og svo eitt ár í hlé. Þá er næsta ferð sum- arið 2017. Þessi ferð var augljóslega mikil upplifun fyrir ungmennin og vilja þau flest koma hingað aftur. Það hafa þegar nokkur ungmenni haft samband í leit að eitthverju að gera hér næsta sumar í kring um hross,“ segir Lárus. arg Blikksmiðja Guðmundar á Akra- nesi fagnaði 40 ára afmæli fyrr á árinu. Fyrirtækið var stofnað af Guðmundi Hallgrímssyni 1. apríl 1975 en árið 1997 keyptu Gerður Helga Helgadóttir og Sævar Jóns- son blikksmiður fyrirtækið. Að sögn Sævars var ekki haldið upp á afmælið á þessu ári heldur stendur til að halda stórafmæli þegar fyrir- tækið fagnar 50 árunum. „Við héld- um bara upp á þetta með starfs- mönnum og mökum þeirra. Fórum í menningarferð vestur. Við vorum heila helgi á suðurfjörðum Vest- fjarða í ævintýraferð og í góðu yfir- læti í Flókalundi,“ segir Sævar. Vinna um allt land Alls starfa ellefu manns hjá blikk- smiðjunni en nokkuð fleiri á sumr- in. „Í sumar vorum við með fjór- tán manns í vinnu, fyrir utan verk- taka. Það er búið að vera mjög mik- ið að gera. Veðrið hefur líka haft sitt að segja, eins og það var í fyrra þá var minna gert í viðhaldi á hús- um vegna þrálátrar rigningar. En það skilaði sér til baka í ár, þá voru miklar framkvæmdir í gangi,“ út- skýrir Sævar. Hann segir þó að stærstur hluti verkefna hjá fyrir- tækinu sé smíði og þjónusta vegna stóriðju. „Ætli það sé ekki um 60 - 70% verkefna hjá okkur sem tengj- ast stórfyrirtækjum, svo sem Norð- uráli, Elkem, HB Granda, Akra- borg og fleirum. Við sjáum til að mynda um utanhússklæðningar, viðgerðir á þökum og sinnum öllu viðhaldi á loftræstikerfum. Flytjum sjálfir inn allar síur sem notaðar eru í loftræstikerfi, setjum þetta upp og sinnum viðhaldinu,“ segir hann. Í sumar var nóg af öðrum verkefn- um í gangi auk þess, svo sem vinna við hótelbyggingu við Hverfisgötu í Reykjavík. „Þetta er um 100 her- bergja hótel, stórt verkefni sem við byrjuðum á síðasta vetur. Við sett- um upp loftræstikerfi þar. Annars höfum við verið að vinna um allt land, meðal annars í Flókalundi, Dalakoti og hjá nunnunum í Stykk- ishólmi, svo eitthvað sé nefnt.“ Lítil nýliðun Sævari er umhugað um framtíð ís- lenskra blikksmiða. Hann er for- maður Félags blikksmiðjueigenda á Íslandi og segir að lítil nýliðun sé í bransanum. „Það er erfitt að fá ungt fólk í námið. Ég hef rætt það óformlega við skólameistara FVA og fulltrúa í bæjarstjórn að það þyrfti að kynna iðngreinarnar á Akranesi betur. Það er lítil nýlið- un í þessum fögum. Þeir fáu sem útskrifast úr skólanum fara margir í verksmiðjurnar á Grundartanga. Svo eru alltaf einhverjir sem fara í vélsmíðina og í trésmíði. Tréiðna- deildin hér er góð en málmiðna- deildin er það líka en hún er því miður vannýtt,“ segir Sævar. Hann segir Félag blikksmiðjueig- enda hafa tekið þátt í starfamessu á Suðurlandi í vor, á vegum Fjöl- brautaskóla Suðurlands. „Þar voru haldnar kynningar fyrir krakka úr níunda og tíunda bekk grunnskóla á Suðurlandi, þar sem flestall- ar þessar iðngreinar voru kynnt- ar á básum. Það skilaði sér inn í atvinnulífið hjá Sunnlendingum, því það sóttu krakkar um vinn- ur í flestum þessum fyrirtækjum í sumar.“ Árlega er haldið upp á ösku- daginn í Blikksmiðju Guðmund- ar og segir Sævar að það sé ein af leiðunum sem hægt er að nota til kynningar á iðnaði. „Ég vona að það skili sér í því að krakkarnir viti af þessum fyrirtækjum í framtíð- inni.“ Auðvelt að bæta við einingum Sævar segir að stutt sé í stúdent- inn hjá þeim sem ljúka iðnnámi. „Það er auðvelt að bæta við ein- ingum. Það mættu fleiri útskrif- ast sem tæknistúdentar, fara í iðn- nám og bæta við sig því sem upp á vantar í stúdentsprófið. Það er boðið upp á slíkt fyrirkomulag hér í FVA og í Borgarholtsskóla. En á málmiðnbrautinni hér er bara grunndeild, það er okkar Akki- lesarhæll,“ segir hann alvarlegur. Til að klára blikksmíðina þarf því að fara í Borgarholtsskóla eftir að grunnnáminu lýkur. Þar bætist ein önn við námið, þar sem eru kennd sérhæfð blikksmiðjufög. Nám- inu lýkur með sveinsprófi. „Núna er reyndar boðið upp á lotunám, þar sem kennt er á föstudögum og laugardögum. Það auðveldar eldra fólki að klára námið.“ Sævar bæt- ir því við að síðastliðinn föstudag hafi iðnsveinar úr flestum grein- um útskrifast á landsvísu, þar af hafi verið átta blikksmiðir. „Einn af þeim er héðan frá Akranesi en sá sem yngstur er í blikksmiða- hópnum er fæddur 1991. Það er áhyggjuefni fyrir okkur, við þurf- um að sjá þennan aldur lækka um tvö til þrjú ár ef vel á að vera.“ Fjölbreytt starf Sævar hefur sjálfur starfað í blikk- inu í þrjátíu ár. Hann fylgdi for- dæmi uppeldisbróður síns sem fór í blikksmíðina á svipuð- um tíma. „Við unnum saman hjá Blikksmiðnum í Reykjavík og þá sá ég tækifæri í að læra þetta. Pabbi starfaði reyndar í vélsmíð- inni, þannig að ég vissi aðeins hvað þetta snerist um. Þetta er oft þannig að það er einhver í kring- um mann í iðngreinum, svo smit- ar þetta út frá sér.“ Sævar seg- ir starfið fjölbreytt og skemmti- legt. „Þetta er ekki „skítadjobb“ eins og sumir halda, heldur er þetta oftast þægileg innivinna og fjölbreytt starf. Blikksmiðir geta gengið í nánast hvaða verk sem er. Sennilega er þetta eitt fjölbreytt- asta starfið í þessum bransa. Ég mæli með iðnnámi, hvort sem það er í blikksmíði eða eitthvað ann- að. Það vantar blikksmiði um allt land og mörg atvinnutækifæri sem liggja í þessu.“ grþ Einstök upplifun fyrir þýsk ungmenni að ríða út á Íslandi Brugðið á leik á Djúpalónssandi. Stór hópur hestamanna á Snæfellsnesi fóru í fjögurra daga hestaferð með ungmennunum tólf þar sem mikið var riðið á fjörum. Hestaferðin var einstök upplifun fyrir ungmennin frá Þýskalandi. Sævar Jónsson blikksmiður hefur áhyggjur af lítilli nýliðun í greininni. Góð verkefnastaða hjá Blikksmiðju Guðmundar

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.