Skessuhorn - 27.04.2016, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 17. tbl. 19. árg. 27. apríl 2016 - kr. 750 í lausasölu
Framtíðin er
full af möguleikum
Traust fjármálaráðgjöf leggur grunn
að farsælli framtíð
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
–
1
5
-0
0
5
0
Fæst án lyfseðils
LYFIS
20% AFSLÁTTUR
DÖMU og HERRAFATNAÐI
TILBOÐSDAGAR
AF OG
Rafræn áskrift
Ný áskriftarleið
Pantaðu núna
Blómasetrið Kaffi kyrrð í Borgarnesi afhenti í gær síðustu rósirnar að sinni í Vetrarkærleiknum. Að sögn þeirra Kötu og Svövu í Blómasetrinu eru enn nokkrar tilnefningar
eftir sem verða geymdar, en ekki gleymdar. Handhafar rósanna nú í sumarbyrjun er starfsfólk Brákarhlíðar í Borgarnesi. Í tilnefningu um það segir: „Þetta indælisfólk
sinnir starfi sínu af nærgætni við íbúa heimilisins og aðstandendur þeirra. Þarna er unnið óeigingjarnt starf af alúð, hlýleika, ást og kærleik.“ Á myndinni er starfsfólkið
sem var við vinnu síðdegis í gær, en þeir eru að sjálfsögðu jafnframt rósahafar sem voru á frívakt þá.
„Já, það er mokveiði hérna skammt
undan,“ sagði Guðmundur Ívars-
son hafnarvörður á Arnarstapa
í samtali við Skessuhorn. Hann
segir að netabáturinn Bárður SH
hafi komið með 23 tonn að landi
á laugardaginn í fá net. Guðmund-
ur segir að þeir séu búnir að fá yfir
þúsund tonn frá áramótum. „Bárð-
ur SH hefur landað hér og í Ólafs-
vík í vetur og eru þeir þrír um
borð og svo hefur fjórði maðurinn
bæst við eftir þörfum. Núna eru
18 bátar gerðir út frá Arnarstapa
og 16 þeirra eru handfærabátar og
hefur til dæmis Hrólfur SH einu
sinni tvílandað en handfærabátar
hafa komið með allt að 2,7 tonn
að landi af góðum þorski,“ seg-
ir Guðmundur sem á von á fjölda
báta þegar strandveiðar hefjast 2.
maí næstkomandi. „Síðasta sum-
ar voru hér 36 bátar og á ég von á
fleirum þetta sumarið haldist veið-
in áfram góð.“
Góð aflabrögð hafa einnig verið
í Rifi og Ólafsvík síðan hrygning-
arstoppinu lauk. Vel hefur fiskast
í öll veiðarfæri, en handfærabátar
eru byrjaðir að róa og eru mjög
góð aflabrögð hjá þeim. Menn
eru því bjartsýnir á að strand-
veiðarnar gangi vel í sumar. Lesa
má nánar fréttir um strandveiði-
tímabilið sem framundan er á
bls. 6.
af
Mokveiði og bjartsýni fyrir strandveiðarnar
Bárður SH kemur vel lestaður til hafnar á Arnarstapa.
Ljósm. af.
Unnið við löndun úr Bárði. Boltafiskur á leið í land.
Ljósm. af.
Þessa mynd tók Sverrir Karlsson síðast-
liðið fimmtudagskvöld í Grundarfirði.
Mokafli var þann daginn hjá bátum, líkt
og í Snæfellsbæ. Í fyrsta túr eftir hrygn-
ingarstopp kom Magnús Jónsson á
Sæstjörnunni BA með 3,4 tonn að landi.
Var uppistaðan í aflanum aulaþorskur
eins og meðfylgandi mynd sýnir.