Skessuhorn


Skessuhorn - 27.04.2016, Blaðsíða 19

Skessuhorn - 27.04.2016, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 2016 19 einmitt uppi í Borgarfirði núna ásamt fleirum að vinna að þessu verki fyrir Orkuveituna. Það hef- ur gengið mjög vel og var áætluð tenging nýju lagnarinnar í ágúst en mun vera fyrri hluta maímán- aðar. Verkinu á svo ekki að skila endanlega fyrr en vorið 2017. Við eru jafnframt að endurbyggja sjö kílómetra á Kjósarskarðvegi sem á að skila í haust með bundnu slit- lagi,“ segir Helgi. „Okkur hefur alltaf gengið vel að skila verkum á réttum tíma,“ bætir hann ánægð- ur við. Reksturinn alltaf gengið í bylgjum Þrátt fyrir að fyrirtækið hafi vaxið smám saman frá 1984 segir Olga að það hafi verið um 2003 sem það fór að stækka verulega. Þá var nokkur uppgangur í þjóðfélaginu og hann átti eftir að halda áfram til nokkurra ára, eins og allir þekkja. Þegar mest var störfuðu 20 manns hjá Þrótti. Í dag eru starfsmenn- irnir tíu talsins en mun fjölga lít- illega í sumar. Þau segja að rekst- urinn hafi alltaf gengið í bylgjum. Langlífi fyrirtækisins þakka þau ekki síst það að þau hafi aldrei far- ið fram úr sér. „Við höfum allt- af reynt að vera undirbúin und- ir kreppur og alltaf reynt að eiga góðan varasjóð,“ segir Olga. „Fyr- ir hrunið pössuðum við okkur á því að skuldsetja fyrirtækið ekki um of. Margir hristu hausinn því það var mjög auðvelt að fá lán,“ bæt- ir hún við. Það átti eftir að reyn- ast mikið gæfuspor. „Síðan eftir að kreppan skall á fækkaði auðvit- að verkefnunum en við komumst ágætlega frá þeim tíma, af því við skulduðum ekki meira en við réð- um við. Árið 2010 seldum við ný- lega beltagröfu til Noregs og fest- um kaup á malarnámu við Stóru- Fellsöxl af Hvalfjarðasveit. Það má því eiginlega segja að við höfum vaxið í kreppunni. Náman hafði farið í umhverfismat og hafði öll tilskilin leyfi og námusvæðið er skilgreint athafnasvæði á skipulagi. „En auðvitað höfum við lent í alls konar hremmingum í gegnum tíð- ina,“ segir Olga. „Ég man til dæm- is að árið 1988 keyptum við nýja jarðýtu og skömmu síðar var geng- inu breytt. Það kom illa við okk- ur en þá voru sultarólarnar bara hertar. Við settum fyrirtækið í al- gjöran forgang og vorum staðráð- in í að láta þetta ganga,“ bætir hún við. „Lykillinn að farsælum rekstri er góður mannskapur, tækjabún- aður, stjórnun og skipulag. Allt þarf þetta að fara saman ef rekst- urinn á að ganga til lengdar,“ seg- ir Helgi. Á fyrstu kennitölunni Líkt og önnur fyriræki fékk Þrótt- ur sína kennitölu þegar þær voru teknar í notkun á Íslandi árið 1969. Kennitala fyrirtækisins er enn sú sama. Telja eigendurn- ir þetta algjört einsdæmi með- al íslenskra verktakafyrirtækja. „Ég man ekki eftir neinum öðr- um verktökum sem eru búnir að starfa samfleytt í 70 ár og eru enn á sömu kennitölunni,“ segja hjón- in og bæta því við að oft sé erfitt að keppa við fyrirtæki sem reglu- lega skipta um kennitölur á rekstr- inum. Einnig sé alþekkt að bók- haldsbrögðum sé beitt þegar fyrir- tæki sækist eftir verkum sem boðin eru út. „Við höfum oft horft upp á það að fyrirtæki fái að skila inn nýjum ársreikningum ef þau stan- dast ekki skoðun við útboð af ein- hverjum ástæðum. Þá er bókhaldið bara lagað til og fyrirtækin kom- ast upp með að undirbjóða í verk og eru oft komin í þrot áður en langt um líður. Síðan sér maður sömu mennina komna með fyr- irtæki á nýrri kennitölu skömmu síðar. Þetta hafa menn komist upp með alla tíð en sem betur fer segj- ast stjórnvöld ætla að fara að taka á þessum málum,“ segja Olga og Helgi. Togaði alltaf í Fannar Eins og áður sagði eru allir bræð- urnir hluthafar í fyrirtækinu og starfa Fannar og Þorsteinn þar í dag. Fannar hefur undanfar- in misseri komið í auknum mæli að stjórnun fyrirtækisins og fað- ir hans stefnir á að minnka við sig. Hann kveðst ánægður með þá þró- un mála. „Ég vann hér öll sumur þegar ég var yngri og líkaði vel,“ segir Fannar. „Ég prófaði ýmislegt annað, flutti til Reykjavíkur og fór í háskólanám. En það togaði alltaf í mig að koma aftur, mér finnst þetta skemmtilegt,“ bætir hann við. Foreldrarnir segjast ánægðir að tveir bræðranna starfi hjá fyrirtæk- inu í dag. „Þeir hafa allir unnið hér á einhverjum tímapunkti en það hefur aldrei verið nein kvöð á strák- ana að vera hér, alls ekki. Við höf- um hvatt þá til að prófa annað og það hafa þeir gert. Dyrnar standa þeim aftur á móti alltaf opnar vilji þeir snúa aftur. Við erum ánægð að hafa Fannar og Þorstein með okk- ur í dag en þykir alveg jafn gott að vita til þess að Magnús og Ómar séu ánægðir í starfi annars staðar,“ segja hjónin. Fjölskyldufyrirtæki um ókomna tíð Í tilefni afmælisins bauð Þróttur starfsfólki sínu á Bauma vélasýn- inguna sem haldin var í München í Þýskalandi snemma í apríl. „Við erum lítið partífólk og ákváðum því að halda ekki til veislu,“ segir Olga. „Þess í stað ákváðum við að gera eitthvað fyrir starfsfólkið og bjóða því út á þessa sýningu,“ bætir Helgi við og segir ferðina hafa ver- ið ánægjulega. Í framtíðinni telja þau að rekst- ur Þróttar muni halda áfram með svipuðu sniði og verið hefur. „Verk- efnastaðan er góð og það er allt að lifna við aftur,“ segja þau og horfa björtum augum til framtíðar. Kveð- ast þau meðal annars, með tíð og tíma, ætla að kanna möguleika á efnisvinnslu úr námunni við Stóru- Fellsöxl. „Náman er svolítið óskrif- að blað hjá okkur og var hugsuð sem einskonar lífeyrir fyrir okkur hjón- in. Þar eru miklir möguleikar sem hafa ekki verið kannaðir í þaula.“ Segjast þau standa vel að vígi í efn- issölu á Grundartangasvæðinu en velta jafnframt upp möguleikanum á efnissölu til steypustöðva á höfuð- borgarsvæðinu og víðar, auk ann- arrar efnistöku. En eitt er víst, Þróttur verður í eigu fjölskyldunnar um ókomna tíð. „Svo lengi sem við stöndum í þessu þá verður þetta fjölskyldufyr- irtæki,“ segir Olga. kgk Gatnagerð á Grundartanga. Fjölskyldan öll saman komin þegar Magnús gifti sig á Indlandi. Hjónin Helgi og Olga sitja en standandi eru f.v. Sigurbjörg Gyða Guðmundsdóttir næst manni sínum Ómari. Þá bræður hans Þorsteinn, Magnús og Fannar ásamt konu sinni Sigríði Rún Steinarsdóttur. Í tilefni sjötugsafmælis Þróttar var starfsfólki boðið til Þýskalands á Bauma vélasýninguna í München fyrr í þessum mánuði. Starfsfólk Þróttar við kvöldverðarborðið á Bauma sýningunni í München. Ein af nýrri vélunum í flota Þróttar. Caterpillar 336E, 36 tonna beltagrafa, hér útbúin ripper.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.