Skessuhorn


Skessuhorn - 27.04.2016, Blaðsíða 25

Skessuhorn - 27.04.2016, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 2016 25 Þörungaverksmiðjan hf. á Reykhólum óskar eftir að ráða í eftirfarandi störf: Sumarafleysingar í verksmiðju og við löndun. Störf á verkstæði við viðhald og viðgerðir. Viðhaldsformann á verkstæði félagsins. Æskileg reynsla og hæfni: Frumkvæði Samviskusemi og vandvirkni Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum Vinnuvélaréttindi Öryggisvitund og þátttaka og virðing fyrir öryggiskröfum er skilyrði. Þörungaverksmiðjan byggir á sjálfbærri nýtingu á þangi og þara í Breiðafirði og framleiðir mjöl af háum gæðum til fjölbreyttra nota. Afurðir eru lífrænt vottaðar og seldar um allan heim. Verkamiðjan gerir strangar kröfur um umhverfismál og setur öryggi starfsmanna í öndvegi. Áhugasamir hafi samband við Bjarna Þór Bjarnason í síma 849-7080 eða Birnu Björnsdóttur í síma 864-9283 eða birna@thorverk.is. Atvinna SK ES SU H O R N 2 01 6 ÖLL ALMENN VERKTAKASTARFSEMI Eiríkur J. Ingólfsson ehf. S ke ss uh or n 20 13 FRUMHERJI HF. – ÞEGAR VEL ER SKOÐAÐ www.frumherji. is Búðardalur 2016 Bifreiðaskoðun verður hjá K.M. þjónustunni ehf. Vesturbraut 20 Mánudaginn 2. maí Þriðjudaginn 3. maí Miðvikudaginn 4. maí Allar stærðir ökutækja skoðaðar Tímapantanir í síma 570 – 9090 Lokað í hádeginu kl. 12.00 – 13.00 SK ES SU H O R N 2 01 6 Það var margt um manninn og mik- il dagskrá í Safnahúsi Borgarfjarð- ar á sumardaginn fyrsta. Um nónbil var boðið upp á tónleika sem nefn- ast Sumarbragur. Á þeim fluttu nem- endur í Tónlistarskóla Borgarfjarðar eigin lög við ljóð Snorra Hjartarson- ar skálds, sem fæddist á Hvanneyri en ólst upp í Arnarholti í Stafholtstung- um. Nemendurnir fluttu þarna, þrátt fyrir ungan aldur, skemmtileg lög og tónlist með aðstoð kennara sinna í Tónlistarskóla Borgarfjarðar. Theo- dóra Þorsteinsdóttir tónlistarskóla- stjóri stýrði þeim hluta samkomunn- ar en Guðrún Jónsdóttir forstöðu- maður Safnahússins stýrði samkom- unni að öðru leyti. Sagði hún frá til- urð þessa samstarfs Safnahússins og Tónlistarskólans sem orðinn er fast- ur liður í starfseminni þar sem lögð er áhersla á listsköpun og miðlun henn- ar. Þá bauð Guðrún velkominn Phi- lippe O’Quin, franska sendiherrann á Íslandi, og ávarpaði hann einnig sam- komuna. Ástæða heimsóknar hans er að búið er að setja upp í Safnahús- inu sýningu til að minnast sjóslyssins mikla þegar fanska skipið Pourquoi pas? fórst út af Mýrum fyrir 80 árum. Sýningin er á spjöldum í stigagangi, en hönnuður hennar er Heiður Hörn Hjartardóttir. Síðari hluti dagskrárinnar var opn- un á ljósmyndasýningu Sigurjóns Ein- arssonar í Hallsteinssal, en sýninguna nefnir hann Refi og menn. Sigurjón hefur fylgst með fimm refaskyttum að störfum í héraðinu. Valdar ljós- myndir úr veiðiferðum prýða veggi og störfum refaveiðimanna gerð skemmtileg skil. Skytturnar fimm eru þeir Snorri Jóhannsson, Snorri Jó- hannesson, Páll Jensson, Þórir Indr- iðason og Birgir Hauksson. Guðrún Jónsdóttir sagði jafnframt frá því að nú hefur safninu áskotnast haförn í fuglasafnið, en það er ung uppstoppuð assa. Þá hefur verið opn- uð ný heimasíða Safnahúss Borgar- fjarðar á safnahus.is og ljósmynda- samkeppni hefur verið hrundið af stað. mm Sýning opnuð og tónleikar í sumarbyrjun Hluti af yngstu nemendunum flytja tónverk sitt við ljóð Snorra Hjartarsonar. Lisbeth Inga Kristófersdóttir og Ingibjörg Þórðardóttir flytja Þjóðlag við undirleik Ólafs Flosasonar. Sigurjón Einarsson ljósmyndari ásamt syni sínum Herði Smára. Guðrún Jónsdóttir og Philippe O’Quin að skoða sýninguna um Pourquoi pas? slysið fyrir 80 árum. Nýr sveitarstjóri Borgarbyggðar var meðal gesta, en Gunnlaugur A Júlíusson er mættur til starfa. Ljósm. safnahus.is Á ljósmyndasýningunni er refaveiðimönnum og lágfótu gerð skil. Hér er Snorri Jóhannsson. Rita og Páll í Grenigerð skoða sýningu Sigurjóns, þar sem refaveiðum Páls eru meðal annars gerð skil. Þessi ungi maður flutti sitt lag á fiðlu en einnig á píanó.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.