Skessuhorn


Skessuhorn - 27.04.2016, Blaðsíða 27

Skessuhorn - 27.04.2016, Blaðsíða 27
MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 2016 27 Knattspyrnusumarið 2016 hefst formlega sunnudaginn 1. maí næst- komandi. Þá verður leikin fyrsta umferðin í Pepsí deild karla. Vík- ingur Ólafsvík mætir Breiðabliki á útivelli í fyrstu umferðinni. Lið- ið tryggði sér sem kunnugt er sæti í efstu deild á nýjan leik með eft- irminnilegum sigri í 1. deildinni í fyrra. Þegar þrjár umferðir voru eft- ir af tímabilinu var ljóst að Víkingar væru á leiðinni upp og nú tekur við næsta verkefni í deild þeirra bestu. Skessuhorn ræddi við Ejub Pur- isevic, þjálfara Víkings, og spurði hann hvernig honum litist á kom- andi keppnistímabil. „Mér líst bara vel á sumarið. Ég er spenntur, vona að við getum barist og gert góða hluti,“ segir hann. Markmið liðs- ins fyrir komandi sumar er skýrt og þarf ekki að koma neinum á óvart. „Það hlýtur að vera markmið okk- ar að halda okkur í deildinni,“ seg- ir Ejub. Lið Víkings hefur gengið í gegn- um nokkrar breytingar frá því á síð- asta keppnistímabili. Þar munar lík- lega mest um að tveir af lykilmönn- um liðsins í öftustu línu verða ekki með með í ár. Guðmundur Reyn- ir Gunnarsson, sem var valinn besti leikmaður 1. deildar síðasta sumar, var á láni hjá Víkingi og mun ekki leika með liðinu í sumar. Víkingar munu í hans stað tefla Pontus Nor- denberg fram í stöðu vinstri bak- varðar. „Pontus er tvítugur strákur og það á eftir að koma í ljós hvern- ig honum gengur. Hann þarf tíma til að aðlagast nýju liði og breyttu umhverfi en við vonum auðvitað að hann standi sig og geri vel,“ seg- ir Ejub. Enn fremur urðu Víking- ar fyrir áfalli í vor þegar miðvörð- urinn Admir Kubat sleit krossband. „Það gefur augað leið að mjög vont er að missa leikmann sem var valin besti maður liðsins af þjálfurum og leikmönnum. Við erum að leita að varnarmanni í hans stað. Hvort það tekst áður en tímabilið hefst verð- ur að koma í ljós en við vonum það auðvitað,“ segir Ejub. „Það er ekki skemmtilegt að missa góða leik- menn, sérstaklega ekki í vörninni. Þar vill maður helst hafa allt í föst- um skorðum.“ Víkingar hafa þó bætt sig á öðr- um stöðum framar. Miðjumaðurinn Þorsteinn Már Ragnarsson gekk til liðs við liðið frá KR og munar um minna. Framherjinn Pape Ma- madou Faye hefur samið við liðið sem og miðjumaðurinn Egill Jóns- son, sem spilaði með Víkingi á láni frá KR í fyrra, svo dæmi séu tekin. Kallar eftir bættri aðstöðu Liðið fór taplaust í gegnum Lengju- bikarinn og kveðst Ejub ánægð- ur með spilamennsku liðsins á undirbúningstímabilinu. „Mið- að við mannskap og breytingar þá eru þetta góð úrslit og við horfum björtum augum til sumarsins,“ segir Ejub en bætir því við að enn sé ekki allt liðið komið vestur til Ólafsvíkur. Liðið muni að líkindum ekki æfa allt saman fyrr en eftir að mótið er haf- ið. „Þessu þurfum við að breyta ef við viljum halda liðinu okkar með- Ejub Purisevic, þjálfari Víkings Ólafsvíkur: „Við munum fá bestu lið landsins í heimsókn og eigum að njóta þess“ al þeirra bestu til frambúðar. Það er vandi að ætla að vera hér með æf- ingar. Íþróttahúsið er of lítið og við þurfum betri aðstöðu,“ segir Ejub og kallar eftir því að knattspyrnuhús verði reist í Ólafsvík. Hann segir aðstandendur knattspyrnufélagsins hafa unnið kraftaverk til að skapa þá umgjörð sem fyrir er en það sé því miður ekki nóg. Til að stíga næsta skref verði bæjaryfirvöld að koma að málum og reisa þurfi knattspyrnu- hús. „Við erum í nákvæmlega sömu stöðu og fyrir fjórum árum síðan og það er í raun ótrúlegt að við höfum tvisvar komist í úrvalsdeild á þeim tíma. Lið í svipaðri stöðu og við og með svipaða aðstöðu eru flest í 2. deild og neðar,“ segir Ejub. „Ef við ætlum að eiga lið í annarri af tveim- ur efstu deildunum um ókomna tíð þá verðum við að bæta umgjörðina. Við þurfum að veita yngri flokkun- um okkar almennilega aðstöðu til að þeir geti þróast í að verða meist- araflokksleikmenn.“ Hann segir leikmenn þurfa að öðlast reynslu í að spila í ákveðinni taktík og það sé ekki hægt ef æft sé stóran hluta árs- ins í íþróttahúsi sem er mun minna en knattspyrnuvöllur. Bætt aðstaða í formi knattspyrnuhúss sé því for- senda framfara hjá félaginu. „Það er erfitt að veiða fisk ef þú ert ekki með bát,“ segir Ejub. Saman reynum við að gera okkar besta Undir stjórn Ejubs hafa Víkingar oftar en ekki lagt áherslu á sterk- an varnarleik. Hann reiknar með að þannig verði uppleggið í sum- ar. „Í fyrra vorum við stundum með boltann 60-70% leiksins og gátum spilað vel saman. Núna erum við í sterkari deild og getum eflaust ekki verið jafn mikið með boltann en við munum reyna að vera eins skipu- lagðir og við getum í hverjum ein- asta leik,“ segir Ejub. „Við verðum að halda skipulagi, vera klárir í að berjast en umfram allt að reyna að hafa gaman af þessu,“ segir hann og vonast til að það skili Ólafsvíking- um ánægjulegu knattspyrnusumri. „Eins og ég sagði áðan eiga mörg lið sem eru svipuð að stærð og um- gjörð og Víkingur Ólafsvík í erfið- leikum með að halda sér í 2. deild. Hvort sem við verðum í ár eða lengur í úrvalsdeildinni eigum við að hafa gaman af því. Við munum fá bestu lið landsins í heimsókn og eigum njóta þess á meðan það var- ir,“ bætir Ejub við og segir það eiga við um bæði leikmenn og þjálfara en ekki síður áhorfendur og bæjar- félagið allt. „Það sem mér fannst skemmtilegast síðast þegar við vor- um í úrvalsdeild voru stuðnings- mennirnir. Okkur gekk stundum erfiðlega þá en frábær stuðningur var það sem hjálpaði okkur mest á þeim tímum,“ segir Ejub sem þyk- ir ánægjulegt að geta á nýjan leik boðið Ólafsvíkingum upp á úrvals- deildarfótbolta. „Ég vona að stuðn- ingsmennirnir njóti sumarsins og hafi gaman af því. Ég er spenntur að fá þetta fólk með okkur og sam- an reynum við að gera okkar besta,“ segir Ejub Purisevic að lokum. kgk/ Ljósm. af. Ejub Purisevic. Emir Dokara lék vel í hægri bakvarðarstöðunni síðasta sumar. Pontus Nordenberg gekk til liðs við Ólafsvíkinga á dögunum. Hann fékk létta flugferð í um helgina þegar Víkingar tóku á móti nöfnum sínum úr Reykjavík í æfingaleik. Skeifunni 3h ll Sími: 588 5080 ll dynjandi.is Vatnsdælur, háþrýstidælur og rafstöðvar Hjá Dynjanda færðu öflugar rafstöðvar, vatns- og háþrýstidælur í mismunandi stærðum og gerðum. Við veitum þér faglega aðstoð. Hafðu samband.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.